Morgunblaðið - 15.02.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Á FUNDINN mættu yfir fjörutíu manns og gerðu góðan róm að máli framsögumanna, þótt umræð-
ur yrðu á köflum fjörugar.
Vaðbrekku, Jökuldal
Þjálfunarstöð fyrir
hjarta- og lungnasjúkl
inga á Suðurlandi
Atvinnumálanefndir Jökuldals-
hrepps, Hlíðarhrepps, og Tungu-
hrepps héldu opinn fund í Brúarás-
skóla á dögunum um atvinnumál
þessara sveitarfélaga. Atvinnulífið
í þessum sveitum hefur verið nokk-
uð einhæft fram að þessu, en í
þessum sveitarfélögum er nær ein-
göngu rekinn sauðfjárbúskapur,
einnig er lítilsháttar loðdýrarækt
og vísir að smáiðnaði.
Á fund atvinnumálanefndanna
mættu og fluttu framsögu Gunnar
Vignisson, atvinnumálafulltrúi
Austurlands, en hann útskýrði
starfsemi atvinnuþróunarfélags
Austurlands og atvinnuþróunar-
sjóð Austurlandds og sagði frá
hvaða skilyrði fólk þyrfti að upp-
fylla til að fá fyrirgreiðslu hjá
þessum stofnunum. Kristófer
Ragnarsson, fyrrverandi ferða-
málafulltrúi, flutti framsögu um
ferðamál og kom meðal annars
inná græna ferðamennsku, sem svo
er nefnd. Ólafur Dýrmundsson
flutti framsögu um vistvænan og
lífrænan landbúnað. t
Miklar umræður og oft fjörugar
urðu að loknum framsöguerindum,
sérstaklega var fundarmönnum
hugleikin vistvæn framleiðsla á
sauðfjárafurðum, enda ekki nema
von þar sem sauðfjárrækt er aðal-
Mikill áhugi
á vistvænni
sauðfjárrækt
atvinna í þessum sveitarfélögum.
Þó nýsköpun í þessu einhæfa at-
vinnulífi sé nauðsynleg voru fund-
armenn á því að líka yrði að byggja
á því sem fyrir er en bæta jafn-
framt.
Fram kom í máli Ólafs Dýr-
mundssonar að nú þessa dagana
er að koma út reglugerð hjá land-
búnaðarráðherra um vottun á vist-
vænni framleiðslu. Einnig kom
fram í máli Ólafs að sauðfjárbænd-
ur á þessu svæði þurfi sáralitlu að
breyta til að fá vistvæna vottun á
alla sína framleiðslu. Sauðfjár-
bændur á fundinum sýndu þessu
máli mikinn áhuga, hver á sinn
hátt, sumir höfðu uppi efasemdir
um að þetta hentaði þeim og öðrum
þótti reglur um vistvæna vottun,
sem væntanlegar eru, of vægar og
metnaðarlausar til að þær gerðu
það gagn sem þeim er ætlað. Þá
töldu fundarmenn að nokkuð langt
væri í land með að hægt væri að
hefja lífræna sauðfjárrækt nema
þá í litlum mæli á þessu svæði,
a.m.k. til að byrja með.
I lok fundarins var samþykkt
eftirfarandi ályktun: „Almennur
fundur um atvinnumál, haldinn í
Brúarási 31. janúar 1996, skorar á
sveitarstjórnir Jökuldals, Hlíðar-
og Tunguhrepps að vinna að því
að sem flestir framleiðendur í þess-
um sveitum fái viðurkenningu á
sína framleiðslu sem vistvæna.
Jafnframt hvort hægt sé að tengja
saman ferðaþjónustu, smáiðnað og
vistvænan landbúnað í þessum
sveitum.“
Fram kom í máli forsvarsmanna
atvinnumálanefndanna að verið er
að ýta úr vör rekstri á lítilli pijóna-
stofu á svæði þessara þriggja
hreppa. Verður hún þannig upp-
byggð að markaðssetning verður
sameiginleg, en pijónaskapurinn
fer fram heima á býlunum og
prjónastofan nokkurs konar sam-
ræmingaraðili er sér um að afla
verkefna og úthluta þeim til þeirra
er stunda prjónaskapinn. Einnig
kom fram í máli forsvarsmanna
atvinnumálanefndanna, að unnið
er að því að gera atvinnulífið í
þessum sveitum fjölbreyttaratil
að skjóta fleiri stoðum undir af-
komu í þessum sveitum.
Hveragerði - ÁHeilsustofnunNLFÍ
í Hveragerði hefur þjálfunarstöð
fyrir hjarta- og lungnasjúklinga
nýverið tekið tii starfa. HL-stöðin
verður rekin til reynslu fram í maí-
mánuð og hefur heilbrigðis- og
tryggingaráðherra veitt 600 þúsund
króna styrk til rekstrar
stöðvarinnar þennan tíma.
Starfsemi HL-stöðvarinn-
ar fer fram í samvinnu við
samtök hjartasjúklinga á
Suðurlandi en heilsustofn-
un leggur til alla aðstöðu,
tækjakost og starfsmenn
fram í maímánuð.
Þorkell Guðbrandsson,
sérfræðingur í hjartalækn-
ingum, veitir þjálfunar-
stöðinni forstöðu. Hann
sagði slíkar stöðvar þegar
vera starfræktar á Akur-
eyri og í Reykjavík og
væri gildi viðhaldsendur-
hæfingarinnar sem þar fer
fram ótvírætt. Þorkell
sagði að starfsemi stöðva
sem þessarar væri mikil-
vægur þáttur í forvörnum á sviði
hjarta- og lungnasjúkdóma og þeir
sjúklingar sem hljóti þjálfun af
þessu tagi haldist lengur vinnufær-
ir og einkennalitlir og þurfi því
minna á þjónustu heilbrigðiskerfis-
ins að halda.
Æfingar eru tvisvar í viku,
klukkutíma í senn. Hver einstakl-
ingur fer í þolpróf áður en þjálfun
hefst til að kanna þrek og þol og
byggist þjálfunin síðan á því ástandi
sem viðkomandi er í.
Óli Haraldsson er í forsvari fyrir
Samtök hjartasjúklinga á Suður-
landi. Hann sagði aðspurður að til-
koma HL-stöðvarinnar í Hveragerði
myndi gjörbreyta þjálfunarmögu-
leikum hjartasjúklinga á Suður-
landi. Því þó þjálfun sem þessi hafi
staðið til boða í Reykjavík þá sé
Hellisheiðin óneitanlega farartálmi
og margir sem veigri sér við að
sækja þjálfun alla þá leið. ítrekað
hafi komið fram óskir um slíka
þjálfunarstöð á svæðinu og því sé
gleðilegt að sjá þennan draum ræt-
ast. Óli sagði það mikið hagsmuna-
mál að þjálfunarstöðinni verði
tryggður áframhaldandi rekstrar-
grundvöllur því að á Suðurlandi séu
margir hjarta- og lungnasjúklingar
sem án HL-stöðvarinnar myndu
ekki njóta þeirrar viðhaldsendur-
hæfingar sem þeir þurfi á að halda.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
GUNNHILDUR A. Vilhjálmsdóttir
hjúkrunarforstjóri leiðbeinir Óla Har-
aldssyni og Bergþóri Pálssyni á þrek-
hjólunum.
Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
Iþrótta-
maður árs-
ins kjörinn
Siglufjörður - Grétar Örn
Sveinsson hefur verið valinn
íþróttamaður ársins 1995 á
Siglufirði. Grétar, sem er 15
ára gamall, er mjög fjölhæfur
íþróttamaður. Hann spilar m.a.
fótbolta með 4. flokki KS, var
valinn í norðurlandsúrval ogtil
æfinga hjá U-15 úrvali KSÍ.
Grétar er auk þess norður-
landsmeistari í einliða- og tví-
liðaleik sveina í badminton.
Hann spilar einnig körfubolta
með ungmennafélaginu Glóa
og hefur verið yfirburðarmaður
í sínum flokki. Það er kiwanis-
klúbburinn Skjöldur á Siglu-
fírði sem staðið hefur að vali
á íþróttamanni ársins á Siglu-
fírði síðan árið 1979.
Morgunblaðið/Silli
Fékk
afreksmanna
viður-
kenningu
Húsavík - íþróttamaður
Húsavíkur, Erna Dögg Þor-
valdsdóttir, hefur hlotið
viðurkenningu úr afreks-
mannasjóði Héraðssambands
Þingeyinga, en það mun vera
einstakt að sjóðurinn heiðri
svo ungan íþróttamann, en
Erna Dögg er 16 ára gömul.
Erna Dögg fær þessa
viðurkenningu fyrir frábæra
ástundun í íþróttum og
árangur í 200 og 400 metra
hlaupum þar sem hún setti
íslandsmet á síðasta ári.
Erna Dögg hefur tekið þátt
í mörgum mótum heima og
erlendis og með árangri sem
er verður viðurkenningar.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins
- kvöldskóli -
Staöur: Valhöll, Háaleitisbraut 1 - Tími: 19. febrúar til 12. mars.
Innritun í síma 568-2900.
Mánudagur 19. febrúar:
Kl. 19.00-19.30 Skólasetning: Davíð Oddsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Kl. 19.30-21.00 Sjálfstæðisstefnan: Friðrik
Sophusson, varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Kl. 21.15-23.00 Ræðumennska og fundarsköp:
Gísli Blöndal, markaðsstjóri.
Þriðjudagur 20. febrúar:
Kl. 19.30-21.00 Utanríkismál - ný viðhorf:
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra.
Kl. 21.15-23.00 Ræðumennska og fundarsköp:
Gísli Blöndal, markaðsstjóri.
Mánudagur 26. febrúar:
Kl. 19.30-21.00 Konur, karlar og
sjálfstæði: Dr.Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, dósent.
Kl. 21.15-23.00 Skipulag og starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri sjálfstæðis-
flokksins.
Þriðjudagur 27. febrúar:
Kl. 19.30-21.00 Stjórnskipan og stjórnsýsla:
Sólveig Pétursd., alþingismaður.
Kl. 21.15-23.00 Sjálfstæðisflokkurinn og hinir
flokkarnir: Dr. Hannes H.
Gissurarson, dósent.
Mánudagur 4. mars:
Kl. 19.30-23.00 Ræðumennska og sjónvarpsþjálf-
un: Gísli Blöndal, markaðsstjóri,
og Björn G. Björnsson, kvik-
myndagerðarmaður.
Þriðjudagur 5. mars:
Kl. 19.30-23.00 Borgarmálin - stefnumótun: Árni
Sigfússon, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, Inga )óna Þórðardóttir
og Guðrún Zoéga, borgarfulltrúar.
Mánudagur 11. mars:
Kl. 19.30-21.00 Menntamál: Sigrfður Anna
Þórðardóttir, alþingismaður.
Kl. 21.15-23.00 Greina- og fréttaskrif:
Þriðjudagur 12. mars:
Kl. 19.30-22.00 Heimsókn í Alþingi.
Starfshættir Alþingis og meðferð
þingmála: Ólafur G. Einarsson,
forseti Alþingis og Hanna Birna
Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri
þingflokksins.
Kl. 22.00 Skólaslit.