Morgunblaðið - 15.02.1996, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Söng’liátíð
í Háskólabíói
ELDRI og yngri kórfélagar taka lagið undir stjórn Friðriks S.
Kristinssonar í nýbyggingunni í Skógarhlíð 20.
UM ÞESSAR mundir eru liðin
sjötíu ár frá stofnun Karlakórs
Reykjavíkur. Kórinn var stofnaður
af Sigurði Þórðarsyni tónskáldi og
36 söngmönnum í Bárunni í Reykja-
vík 3. janúar 1926. Ágúst Böðvars-
son landmælingmaður er eini núlif-
andi stofnfélagi kórsins, en hann
átti níræðisafmæli 3. janúar sl., á
sjötugsafmælisdegi kórsins.
Sigurður Þórðarson tónskáld
stýrði Karlakór Reykjavíkur í 36
ár. 8. apríl 1995 voru liðin 100 ár
frá fæðingu Sigurðar og var því
seinasta starfsár kórsins helgað
minningu hans. Það hefun verið
gæfa kórsins að hafa notið leiðsögn
afbragðs stjómanda þessi 70 ár.
Páll P. Pálsson tónskáld tók við af
Sigurði Þórðarsyni árið 1966 og
stjórnaði hann kórnum í aldarfjórð-
ung Undanfarin fimm ár hefur Frið-
rik S. Kristinsson söngkennari
stjórnað kómum við góðan orðstír.
Söngstarfið
í gegnum tíðina hafa okkar bestu
einsöngvarar sungið með Karlakór
Reykjavíkur. Nöfn Stefáns íslandi
og Guðmundar Jónssonar em sam-
ofin sögu kórsins. Af öðmm ein-
söngvurum má nefna Sigurð
Björnsson, Sieglinde Kahmann,
Svölu Nielsen, Kristján Jóhannsson,
Kristinn Sigmundsson, Signýju
Sæmundsdóttur og Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur svo nokkrir séu nefndir.
Margir kórfélagar hafa og sungið
einsöng með kórnum, sem dæmi
má nefna Gunnar Pálsson, Guð-
mund Guðjónsson, Friðbjörn G.
Jónsson, Hreiðar Pálmason og
Hjálmar Kjartansson. Styrkur kórs-
ins hefur þó fyrst og fremst byggst
á samheldni og söngáhuga kórfé-
laga sjálfra.
í sjötíu ár hafa kórfélagar komið
sem vorboðar til höfuðborgarbúa,
með sína árlegu vortónleika. Um
1.200 manns eru styrktarfélagar
kórsins og hafa margir sótt tónleika
kórsins í áratugi. Undanfarin ár
hafa þessir tónleikar verið fimm að
í tilefni af 70 áraaf-
mæli Karlakórs Reykja-
víkur segir Bjarni
Reynarsson frá söng-
hátíð kórsins í Háskóla-
bíói 17. febrúar.
tölu, þannig að hátt á þriðja þúsund
manns hlýða að jafnaði á styrktar-
félagatónleikana. Á liðnu ári varða
að bæta við sjöttu tónleikunum
vegna aðsóknar. Vill kórinn á þess-
um tímamótum þakka öllum sínum
dyggu styrktarfélögum fyrir stuðn-
inginn í áranna rás. Styrktarfélagar
kórsins eru sá grunnur sem starf
kórsins byggir á.
Auk þess að syngja á hveiju ári
í höfuðborginni hefur kórinn farið
reglulega í söngferðir út á land
með söngtónleika. I byijun maí í
vor er áætluð tónleikaferð um
Norðvesturland. Þá hefur kórinn
tekið upp þá nýbreytni að halda
annað hvert ár aðventutónleika í
Hallgrímskirkju. Hafa þessir tón-
leikar verið vel sóttir og fengið
mikið lof jafnt frá gagnrýnendum
sem tónleikagestum.
Um þessar mundir er kórinn að
ljúka upptökum á geisladisk þar
sem Kristinn Sigmundsson, Krist-
ján Jóhannsson og Sigrún Hjálm-
týsdóttir syngja einsöng með kórn-
um. Mun geisladiskurinn væntan-
lega koma út næsta haust. Þá er í
undirbúningi geisladiskur þar sem
kórinn syngur lög eftir Sigfús Hall-
dórsson við undirleik Sinfóníu-
hljómsveitar íslands undir stjórn
Páls P. Pálssonar. Um þessar
mundir er kórinn að byggja tónlist-
arhús í Skógarhlíð 20. Mikill skort-
ur er á góðum tónleikasölum í höf-
uðborginni. Kórar þurfa yfirleitt að
halda tónleika í kirkjum vegna
skorts á tónleikasölum. Karlakórinn
leitar nú eftir stuðningi áhugafólks
um tónlistarhús til að fullgera „tón-
perluna" undir Öskjuhlíðinni.
Utanlandsf erðir
Enginn íslenskur kór hefur kynnt
íslenska söngtónlist jafn víða um
heimsbyggðina og Karlakór
Reykjavíkur, sem hefur farið í 17
söngferðir til útlanda á starfsferlin-
um. Sumar hljómleikaferðimar voru
stórvirki á sínum tíma, eins og ferð-
irnar til N-Ameríku 1946, þegar
haldnir voru 60 tónleikar, og 1960,
en þá voru sungnir 39 konsertar.
þá má nefna ferð um Miðjarðarhafs-
lönd 1953 þegar kórinn söng fyrir
Píus VIII. páfa í Vatíkaninu, hina
frægu Baltika-söngferð 1967 og
fjölmargar ferðir til Norðurlanda
og Mið-Evrópu. Á síðastliðnu ári
fór kórinn í eftirminnilega söngferð
til Færeyja, þar- sem kórfélögum
var tekið sem þjóðhöfðingjum af
frændum okkar Færeyingum.
Sönghátíð í Háskólabíói
17. febrúar
í tilefni af 70 ára afmæli kórsins
efnir hann til sönghátíðar í Há-
skólabíói 17. febrúar nk. kl. 16.00.
Á tónleikunum munu margir ein-
söngvarar sem sungið hafa með
kómum undanfarin ár og þrír kórar
heiðra kórinn á þessum tímamótum
með söng sínum. Einsöngvararnir
eru: Björk Jónsdóttir, Signý Sæ-
mundsdóttir, Sigurður Björnsson
og Sieglinde Kahmann. Þá mun
einn kórfélagi, Ásgeir Eiríksson,
syngja einsöng á tónleikunum. Auk
Karlakórs Reykjavíkur og eldri fé-
laga munu eftirtaldir kórar syngja
nokkur lög: Drengjakór Laugarnes-
kirkju, Karlakórinn Fóstbræður og
Kvennakór Reykjavíkur.
Sem dæmi um efnisskrá tónleik-
anna má nefna að Sigrún Hjálmtýs-
dóttir mun syngja „Draumalandið"
eftir Sigfús Einarsson og „íslands-
lag“ eftir Björgvin Guðmundsson,
Ásgeir Eiríkssoni mun syngja
„Nótt“ eftir Áma Thorsteinsson og
Sieglinde Kahmann „Wien du Stadt,
meiner Traurne" eftir Sieczynski.
Þá má nefna að Fóstbræður og
Kariakór Reykjavíkur munu syngja
saman „Brennið þið vitar“ eftir Pál
Isólfsson. Tónleikunum lýkur með
samsöng Karlakórs Reykjavíkur og
eldri félaga, sem flytja nokkur vin-
sæl karlakórslög m.a. „Þér land-
nemar “ eftir Sigurð Þórðarson
stofnanda Karlakórs Reykjavíkur.
Tónleikarnir verða án efa hinir
glæsilegustu. Miðasala er í Há-
skólabíói og bókaverslunum Ey-
mundssonar í Austurstræti og í
Kringlunni og í Pennanum í Hallar-
múla.
Höfundur er formaður Karlakórs
Reykjavíkur.
SEMF
Samtök endurhæfðra mænuskaddaðra
Happdrætti Húsnæðisfélags S.E.M. 1996
Toyota bifreið á kr. 1.440.000
á miða nr. 96154
Utanlandsferðir á kr. 25.000
á miða nr. 9629 47439 53495 90859
Utanlandsferðir á kr. 100.000:
40 8173 22257 23934 33535 40032 52981 72235 84413 94521
390 10229 22316 23943 33720 45794 58359 73893 87629 96227
7163 22234 22891 26621 39533 48774 60894 81563 88001 96694
Vöruúttekt hjá Radíóbúðinni á kr. 75.000:
1723 15122 17951 29965 43077 45115 62824 68028 75867 96409
7139 15936 25123 30356 44392 52917 63284 68932 75995 98176
11168 16532 25920 32634 44479 59383 64399 75855 78255 99729
Vöruúttekt hjá Radíóbúðinni á kr. 50.000:
164 9261 17877 28015 36039 54117 54895 68262 76958 96362
637 9833 17904 29022 37480 45280 54980 68432 77654 96471
1014 9868 20089 29285 38283 50080 57290 70879 82121 97361
1588 10167 20873 29465 41285 50083 57880 70988 83804 98709
2005 11687 21755 29727 42061 50112 58677 71551 84952 99404
2467 11757 22379 31282 42332 50134 60550 72387 85652 99747
4831 11791 22395 32643 42763 50452 60606 72694 86706
6181 12237 24927 32704 42971 50907 62056 73038 87592
6197 14371 26876 32967 43484 51107 62725 73150 89385
6800 15896 27340 33988 43538 51180 63580 73326 89838
7832 15902 27502 34423 43743 53180 66169 75232 90191
8786 16594 27580 36038 44023 54390 67313 76844 93425
Þeir sem hlotið hafa vinning hafi samband isima 568-2121.
* If listar yf ir rör
Vinna - efni - ráðgjöf
Einar Guömundsson
pípulagningameistari
LAUFBREKKU 20 / DALBREKKU MEGIN - KÚP.
SÍMI 554 5633 - BRÉFSlMI 554 0356
Tvísköttun lífeyris-
greiðslna eldri borgara
UM SÍÐUSTU áramót varfelldur
niður 15% skattafsláttur af lífeyris-
greiðslum, sem veittur var frá 1.
janúar 1995 og hafði þar með verið
í gildi í eitt ár.
Þessi 15% frádráttur af Iífeyris-
greiðslum átti að koma á móti þeirri
tvísköttun sem verið hefur á ið-
gjaldi til lífeyrissjóða og allir voru
sammála um að væri mjög óréttlát
og raunar alröng.
Frá þvl að staðgreiðsla skatta
var tekin upp 1988 greiddu laun-
þegar skatt af 4% iðgjaldi sínu til
lífeyrissjóðs, en þessi 4% er grunn-
urinn undir 40% af lífeyrisgreiðslum
sem fólk fær, a.m.k. í almennu líf-
eyrissjóðunum. Þegar fólk fékk síð-
an lífeyri frá sjóðunum var hann
skattlagður að fullu og þar með var
aftur verið að skattleggja iðgjald
launþegans.
Til þess að koma til móts við
mikla óánægju almennings með
þessa tvísköttun tók ríkissjórnin sig
til og fékk sérfræðinga til þess að
reikna út hve stór hluti lífeyris-
greiðslna væri tvískattlagður og
þeir komust að þeirri niðurstöðu að
þetta jafngilti um 15% af útborguð-
um lífeyri. Þessari 15% frádráttar-
heimild var síðan komið á hinn 1.
janúar 1995, eins og fyrr segir.
Þá vaknar spurningin, af hveiju
var þessi 15% frádráttarheimild
tekin af ellilífeyrisþegum nú um
áramótin? Skoðum málið aðeins.
Fyrst um launþega
sem eru i starfi
Verkalýðshreyfingin hefur verið
mjög andvíg þessari tvísköttun og
telur þennan 15% frádrátt alls ekki
nægjanlegan. Hún hefur krafist
þess að iðgjald launþega, eins og
iðgjald atvinnurekanda, verði und-
anþegið skatti þegar
það er greitt til lífeyris-
sjóðsins. Ríkisstjórnin
ákvað að koma til móts
við þessa kröfu og
samþykkti að leggja
af þessa skattlagningu
iðgjaldsins í áföngum,
þannig að 50% ið-
gjaldsins varð frá-
dráttarbært frá 1. apríl
1995, 75% varð frá-
dráttarbær 1. janúar
sl. og iðgjaldið verður
að fullu frádráttarbært
1. júlí nk. Þar með virð-
ist vera komin viðun-
andi lausn varðandi þá
sem eru í starfi og greiða iðgjald
til lífeyrissjóða.
Þá er að líta á launþega
sem hættir eru störfum
Hvernig er með þá ellilífeyris-
þega sem hættir eru störfum og
þar með hættir að greiða iðgjald
Aðeins er verið að
skerða kjör þeirra,
sem minnstu hafa úr
að spila, segir Helgi
Arnlaugsson. Lækka
laun þeirra.
til lífeyrissjóðs og farnir að fá líf-
eyri frá sjóðunum? Þeir hafa greitt
skatt af iðgjaldi sínu frá því að stað-
greiðslan var tekin upp, þeirra líf-
eyrir var tvískattaður, og vegna
þessarar tvísköttunar var talið rétt-
látt að setja á þennan 15% frádrátt
á útborgaðan lífeyri.
Hvað hefur breyst
hjá þeim?
Er nokkuð sem rétt-
lætir þá ákvörðun að
fella niður þessa 15%
frádráttarheimild? Það
hefur hreint út sagt
ekkert breyst hjá þess-
um ellilífeyrisþegum,
sem réttlætir þessa
skerðingu. Þeirra staða
er nákvæmlega sú
sama og þegar tekin
var ákvörðun um að
koma á þessum 15%
frádrætti, enda var
ákvörðunin tekin
vegna þeirra. Þarna er aðeins verið
að skerða kjör þeirra sem minnstu
hafa úr að spila, lækka laun þeirra
á sama tíma og laun annarra hækk-
uðu um áramótin.
Hvað er það þá sem fær ráða-
menn til þess að draga til baka þá
réttlátu og raunar sjálfsögðu ráð-
stöfun að leiðrétta þá tvísköttun líf-
eyrisiðgjalda sem viðgengist hefur?
Spyr sá sem ekki veit.
Þótt samið hafi verið við verka-
lýðshreyfinguna um lausn fyrir
vinnandi fólk til að koma í veg fyr-
ir þessa tvísköttun lífeyrisiðgjalda,
þá breytir það ekki stöðu þeirra sem
þegar eru hættir að vinna. Það er
ekkert sem réttlætir að taka aftur
upg tvísköttun á laun þeirra.
Ég vil því mjög eindregið skora
á ríkisstjórnina að endurskoða
þessa ákvörðun og koma á aftur
þessari 15% frádráttarheimild af
lífeyri, varðandi þá ellilífeyrisþega
sem hættir eru vinnu.
Höfundur fyrrverandi starfsmað-
ur Samiðnar.
Helgi Arnlaugsson