Morgunblaðið - 15.02.1996, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1996
MINNIIMGAR
MORGUNBLAÐIÐ
ÓLÖF AÐALHEIÐUR
FRIÐRIKSDÓTTIR
+ Ólöf Aðalheiður Friðriks-
dóttir fæddist á Selabóli í
Önundarfirði 7. nóvember
1914. Hún lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri 23.
janúar siðastliðinn og fór útför-
in fram frá Akureyrarkirkju 8.
febrúar.
Kveðja frá Sam-Frímúrara-
reglunni á Akureyri
Arabíska skáldið Kahlil Gibran
komst svo að orði um dauðann:
„Hvað er það að deyja annað en
standa nakinn í blænum og hverfa
inn í sólskinið."
Nú hefur Ólöf Friðriksdóttir,
okkar kæra reglusystir, horfið inn
í sólskinið. Hún hafði ekki gengið
heil til skógar og sagðist vera tilbú-
in að mæta kalli sínu. Hún tók veik-
indum sínum með æðruleysi og
traust trú hennar á höfund lífsins
veitti henni styrk til þess að horfa
óttalaus fram á veginn. Ólöf gekk
í Sam-Frímúrararegluna í júní 1950
og var því búin að starfa þar í rúm
45 ár. Hún átti sæti í stjóm reglunn-
ar hér á fandi í mörg ár og var
heiðursfélagi í stúkunni Gimli. Störf
Ólafar einkenndust af trúmennsku,
kærleika og þrautseigju. Hún var
ávallt reiðubúin að taka á sig störf
í þágu reglunnar. Það var okkur
mikil gæfa að eiga slíka systur.
Hún trúði á trúarbrögð viskunnar
og kærleikans sem gefa lífinu þá
fegurð sem hún dáði svo mjög. Með
listrænum hæfileikum sínum átti
hún auðvelt með að túlka fegurðina
á sinn skapandi hátt. Hún hafði þá
skoðun að engin trú væri sannleik-
anum æðri og setti sér það mark-
mið í lífinu að leita sannleikans.
Dagsverki mikilhæfrar konu er lok-
ið, það verk var vel unnið og mun-
um við systkinin í Sam-Frímúrara-
reglunni á Akureyri minnast þess
með þakklæti alla tíð.
Þú áttir mikið af þoli og þreki
og þorðir að höggva á vanans bönd.
Þú flaugst á væng hinnar fomu spekL
um furðuheima og undralönd.
Þú áttir söngva og sól í hjarta,
er signdi og fágaði viljans stál.
Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta,
er kynni höfðu af þinni sál.
Þú auðgaðir heim að orku og snilli,
lést öðrum skína þinn mikla dag,
og velferðarmálum vannstu hylli
með víðsýni þínu og glæsibrag.
(Grétar Fells.)
Ástvinum Ólafar sendum við
innilegar samúðarkveðjur. Við
kveðjum hana með söknuði og virð-
ingu og óskum henni fararheilla til
ódáinsheima.
Jóna Fjalldal,
Margrét Guðmundsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasiðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög.
ATVIN N U A UGL YSINGAR
Framreiðslunemi
Sölumaður óskast
Veitingastaður
í miðbænum
óskar eftir að ráða frískan og duglegan mat-
reiðslumann og einnig traustan og duglegan
framreiðslumann strax.
Svör sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir 21. febrú-
ar, merkt: „Veitingastaður - 4006“.
Hótel Saga ehf. óskar eftir framreiðslunem-
um til starfa strax. Þurfa að vera duglegir
og tilbúnir til að vinna mikið.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
á milli kl. 13.00-16.00, ekki í síma.
Öflug og vel rekin fyrirtækjasala óskar eftir
að ráða hörkuduglegan og afkastamikinn
sölumann sem þarf að geta hafið störf strax.
Reynsla æskileg.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. sem
fyrst, merktar: „Sölumaður - H 1996“.
WtÆKOAUGL YSINGAR
A TVINNUHUSNÆÐI
Til leigu
við Suðurlandsbraut mjög gott skrifstofuhús-
næði, sem skiptist t.d. í 60, 120, og 150 fm
stærðir, og verður innréttað að óskum leigu-
taka.
Upplýsingar í síma 562 2991 á skrifstofutíma
og í síma 893 4628 á kvöldin og um helgar.
Athafnafólk á Hellu
og nágrenni!
Viltu reka verslun eða þjónustu í nýjum versl-
unarkjarna á Hellu?
Leitað er að samstarfsaðilum, sem hafa
áhuga á að kaupa aðstöðu í nýjum verslunar-
kjarna við Dynskála á Hellu.
Þeir, sem hafa áhuga, hafi samband við
Aðalheiði Högnadóttur á umboðsskrifstof-
unni, Hellu, í síma 487 5165.
- Borgeyhf.
Aðalfundarboð
Aðalfundur Borgeyjar hf. verður haldinn
á Hótel Höfn, Hornafirði, fimmtudaginn
22. febrúar 1996 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
14. grein samþykkta félagsins.
2. Tillaga stjórnar um hækkun hlutafjár.
Hluthafar eiga forkaupsrétt að hinu nýja
hlutafé í samræmi við 5. gr. samþykkta
félagsins, og skulu tilkynna stjórn félags-
ins innan fjögurra vikna frá aðalfundi, svo
fremi sem tillaga um hlutafjárhækkun
verði samþykkt, hvort þeir neyti forkaups-
réttar síns.
Frá 15. febrúar liggja frammi á skrifstofu
félagsins, hluthöfum til sýnis, fundargögn
skv. 4. mgr. 88. gr. laga nr. 2 frá 1995.
Stjórnin.
Hjallasókn
Aðalsafnaðarfundur
Boðað er til aðalsafnaðarfundar í Hjallasókn
í Kópavogi sunnudaginn 18. febrúar nk.
Fundurinn verður haldinn í Hjallakirkju að
aflokinni guðsþjónustu sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Samþykktir fyrir Hjallasöfnuð.
Önnur mál.
Ársreikningur og tillögur að samþykktunum
liggja frammi í dag, fimmtudag, á skrifstofu-
tíma kirkjunnar kl. 10.00-17.00.
Sóknarnefnd.
Fundarboð
Aðalfundi Ósvarar hf., sem halda átti laugar-
daginn 17. febrúar nk., er aflýst.
Aðalfundur félagsins verður þess í stað hald-
inn fimmtudaginn 29. febrúar 1996 kl. 17.30
á Hafnargötu 80-96, Bolungarvík.
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf.
- Tillaga stjórnar um hækkun hlutafjár um
krónur 140.000.000 með áskrift nýrra
hluta.
- Tillaga um breytingu á 1. gr. samþykkta
félagsins.
- Tillaga um breytingu á samþykktum félags-
ins til samræmis við lög nr. 2/1995.
Á fundinum verður borin upp tillaga frá stjórn
um hækkun á hlutafé félagsins um kr.
140.000.000 með áskrift nýrra hluta. í tillögu
stjórnar er gert ráð fyrir að um áskriftarrétt
hluthafa fari eftir 7. gr. samþykkta félagsins.
Miðað er við að frestur hluthafa til að nota
forgangsrétt sinn til áskriftar verði tvær vikur
frá tilkynningu til hluthafa um ákvörðun um
hækkun hlutafjár og að áskrift fari fram á
skrifstofu félagsins.
Tillögurnar, ásamt þeim gögnum sem getur
í 2. mgr. 33. gr. laga nr. 2/1995, munu liggja
frammi til athugunar fyrir hluthafa á skrif-
stofu félagsins, Hafnargötu í Bolungarvík,
minnst viku fyrir aðalfundinn.
Hluthöfum er boðið til formlegrar opnunar
á frystihúsi félagsins laugardaginn 17. febrú-
ar nk. kl. 14.00, þar sem kynntar verða
þær miklu breytingar á fyrirtækinu, sem
unnið hefur verið að undanfarna mánuði.
Bornar verða fram léttar veitingar.
Stjórnin.
Samtök um vestræna
samvinnu - Varðberg
Félögin Samtök um vestræna samvinnu og Varöberg halda sameigin-
legan hádegisfund í Skála, Hótel Sögu, í dag, fimmtudaginn 15. febrú-
ar, og hefst fundurinn stundvíslega kl. 12.00.
Raeðumaður fundarins verður Jamie Shea, talsmaður Atlantshafs-
bandalagsins, og mun hann ræða um friðargæslu NATO í Bosníu.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti.
Stjórnirnar.
Smfl auglýsingar
I.O.O.F. 5 = 1772158 = FR
I.O.O.F. 11 = 17715028'/2 =
Kirkjukvöld
Landsst. 5996021519 VIII
Hvítasunnukirkjan
Vöivufelli
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.30.
Láttu sjá þig, þú ert innilega
velkominn.
^ Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Israelskvöld kl. 20.30 í umsjá
Knut Gamst.
Allir velkomnir.
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
Hvernig get ég nálgast Guð
og ræktaðtrú mína?
Fræðslukvöld Biblluskólans
kl. 20.30.
Leiðbeinandi: Ulrich Parzany.
Aögangur ókeypis.
Allir velkomnir.
Dagsferð sunnud. 18. feb.
Kl. 10.30 Landnámsleiðin,
3. áfangi, Stóru-Vogar, Vatns-
leysuvlk.
Dagsferð sunnud. 18. feb.
Kl. 10.30 Skiðagönguferð,
Jósepsdalur og nágrenni.
Útivist.
Góðtemplarahúsið,
Hafnarfirði
Félagsvist í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 15. febrúar. Byrjum að
spila kl. 20.30 stundvíslega.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferð 17.-18. febr.
Þorra- og vættaferð
í Biskupstungur
Góð gisting í Úthlíð. Fjölbreytt
skíðagöngu- og gönguland.
Fararstjóri Gestur Kristjánsson.
Upplýsingar og farm. á skrifst.
Sunnudagsf erðir 18. febr.
Kl. 10.30 að Gullfossi í klaka-
böndum.
Skíðagöngurkl. 10.30 og 13.00.
Ferðafélag íslands.
Pýramídinn -
______ andleg
miðstöð
Mlðlun
Vilt þú kynnast sjálfum þér?
Hver ert þú?
Hvaða hæfileik-
um ert þú búin?
Hver er næmni
þín?
Námskeiö til að
rækta og læra á
næmni, æðri
skynjanir, áruhjúp-
inn, sköpun, sjálfs-
styrkingu og sjálfs-
tjáningu.
17. og 18. febrúar
nk. verður haldið
námskeið i Pýra-
mídanum, Dugguvogi 2. Leiö-
beinandi verður Ragnheiður Ól-
afsdóttir, aðstoðarmaður Ellen
Sveinsdóttir.
Bókanir i símum 588-1415 og
588-2526.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2.