Morgunblaðið - 28.03.1996, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1996 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AUKNAR ÞORSK-
VEIÐIHEIMILDIR
MOKVEIÐI hefur verið á þorski á grunnslóð og hafa
sjómenn kvartað yfir því, að þeir verði að forðast
þorskinn vegna lítils kvóta og þess, að hann er uppurinn
hjá þeim mörgum. Sjómenn hafa sagt, að „sjórinn sé gulur
af mengun". Þessi þorskgengd hefur farið mjög vaxandi
síðustu misserin og er sömu sögu að segja umhverfis allt
landið. Þetta eru gleðileg tíðindi og þá ekki síður það, að
þorskurinn hefur farið stækkandi og er nú algengast að
sjá rígaþorsk í afla bátanna. Ekki fer milli mála, að mikil
umskipti hafa orðið á miðunum.
Ástæðan fyrir þessari breytingu er vafalaust bætt skil-
yrði í sjónum, svo og ráðstafanir til að koma í veg fyrir
ofveiði. Svæðalokunum hefur verið beitt til að vernda smá-
þorsk á uppeldisstöðum hans og möskvar stækkaðir í veið-
arfærum. Þegar þetta kemur allt saman er óhætt að full-
yrða, að fiskveiðistjórnunin hefur borið árangur.
Stærð þorsksins þýðir, að miklu færri fiska þarf í hvert
tonn og segja sjómenn algengt, að aðeins 100 þorska þurfi
til þess. Þessu hafa hins vegar fylgt fullyrðingar um, að
sjómenn hendi smærri þorskinum, þar sem miklu hærra
verð fáist fyrir þann stóra. Þá sé þorski einnig hent á
veiðum á öðrum tegundum, þar sem báturinn hafi engan
þorskkvóta og sektir liggi því við að koma með þorskinn
að landi. Sé þetta rétt er óhjákvæmilegt að grípa til að-
gerða og t.d. athuga breytingu á reglum um meðafla.
Kröfur hafa orðið æ háværari að undanförnu um, að
þorskveiðikvótinn verði aukinn strax á vetrarvertíð nú
vegna þessarar mjklu þorskgengdar og ekki beðið eftir
endurskoðun á aflaheimildum fyrir fiskveiðiárið, sem hefst
1. september n.k. Að sjálfsögðu er skiljanlegt, að sjómenn
og útgerðarmenn, svo og starfsfólk fiskvinnslunnar í landi,
klæi í lófana við að sjá þennan mikla og fallega þorsk.
Fresturinn til að endurskoða aflaheimildir á þessu ári renn-
ur út 15. apríl og þess vegna styttist ört tíminn sem er
til stefnu.
Eðlilegt er, að fiskifræðingar taki tillit til reynslu sjó-
manna. En sem fyrr verður að fara varlega, þar sem ekki
má með neinum hætti stefna uppbyggingu þorskstofnsins
í tvísýnu. Þess vegna er ekki unnt að auka aflaheimildir
án þess að fiskifræðingarnir telji það óhætt. Þótt fræði
þeirra séu ófullkomin, og deilur standi um aðferðirnar við
mælingar á þorskstofninum, þá er ljóst að taka verður
allar ákvarðanir á þeim vísindalega grunni sem Hafrann-
sóknastofnun hefur byggt upp í áranna rás.
SPENNUM BELTIN Á
BÖRNIN
VÍTAVERT ábyrgðarleysi allt of margra ökumanna er
tíundað í lítilli frétt á baksíðu Morgunblaðsins í gær,
þar sem greint er frá því að tuttugu og átta af hundraði
barna á leið í leikskóla eru laus í bílum. Þetta er niður-
staða úr könnun sem Slysavarnafélag íslands, Umferðar-
ráð og samtökin „Betri borg fyrir börn“ stóðu fyrir í síð-
ustu viku. Könnunin náði til 1.028 barna og af þeim reynd-
ust 285 börn vera farþegar í bifreiðum án nokkurs öryggis-
búnaðar. Þessi niðurstaða er algjörlega óviðunandi.
Augljóst er af niðurstöðum könnunarinnar að notkun
öryggisbúnaðar er mismikil eftir byggðarlögum. Þannig
er niðurstaðan ökumönnum á Eyrarbakka og í Garði til
háborinnar skammar, þar sem yfir níutíu af hundraði barn-
anna voru laus í bílunum. Hvað eru ökumenn á þessum
stöðum eiginlega að hugsa! Varla um líf og limi barnanna
sem þeim er trúað fyrir.
Ökumenn landsins ættu að taka sér til fyrirmyndar öku-
menn i Hafnarfirði og á Húsavík, þar sem einungis 2%
barna á leið til leikskóla voru án öryggisbúnaðar. Það er
að vísu 2% of mikið, en þó óumræðilega miklu betri niður-
staða en á ofangreindum stöðum.
Það er umhugsunarefni að öryggisgæsiu ökumanna sem
aka yngstu börnunum virðist í fáu ábótavant, en við þriggja
ára aldur versnar hún til muna. Það þarf ekki mikla þekk-
ingu á því hvað gerist við árekstur, útafakstur eða annars
konar umferðaróhapp, til þess að gera sér grein fyrir því
hversu gjörsamlega óvarin þau börn eru, sem ekki eru
spennt í bílbelti, eða þar til gerða öryggisstóla, þegar eitt-
hvað ber út af. Verjum yngstu borgarana og spennum
beltin á öll börn!
VARIMARSTÖÐIIM Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Stefnt að sparnaði
með auknu samstarfi
Ljósmynd: Bandaríski flotinn
KAFBÁTALEITARFLUGVÉLAR varnarliðsins geta nú notað flugvellina á Egilsstöðum og Akureyri
sem varaflugvelli, í stað þess að þurfa að fara til Skotlands.
Stefnt er að spamaði
í rekstri vamar-
stöðvarinnar í Kefla-
vík, meðal annars
með auknu samstarfi
Islendinga og vamar-
liðsins. Olafur Þ.
Stephensen fjallar
um nokkrar
spamaðarhugmyndir,
sem þegar em
komnartilfram-
kvæmda eða
verið er að skoða.
ISAMKOMULAGI íslands og
Bandaríkjanna um fram-
kvæmd varnarsamnings ríkj-
anna, sem var gert opinbert
fyrr í vikunni, er ákvæði um að
halda áfram að reyna að draga úr
kostnaði við rekstur varnarstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli. Nefnd
háttsettra embættismanna, sem
starfað hefur að þessu verkefni,
mun halda áfram störfum. Lokun
einnar flugbrautar á Keflavíkur-
flugvelli hefur þegar sparað varn-
arliðinu stórfé. Þá hefur verið
ákveðið að kafbátaleitarflugvélar
varnarliðsins geti notað flugvellina
á Akureyri og Egiisstöðum sem
varaflugvelli. Á meðal hugmynda,
sem eru til skoðunar, er að íslend-
ingar taki að sér heilsugæzlu varn-
arliðsmanna í auknum mæli og að
komið verði á sameiginlegu almenn-
ingssamgöngukerfi Suðurnesja-
manna og varnarliðsins.
Frá því að samkomulag um fram-
kvæmd varnarsamningsins var
undirritað í byijun ársins 1994 hef-
ur verið gripið til ýmissa sparnað-
ar- og hagræðingaraðgerða í
rekstri varnarliðsins, fyrir utan
beina fækkun hermanna, flugvéla
og tækja.
Síðastliðið vor var byijað að
bjóða út verklegar framkvæmdir,
sem greiddar eru af Mannvirkja-
sjóði Atlantshafsbandalagsins. Eitt
slíkt verk hefur verið boðið út og
framkvæmt og vann verktaki það
fyrir verð, sem var tals-
vert undir kostnaðaráætl-
un.
Um leið hófust útböð á
kaupum vöru og þjónustu
fyrir varnarliðið, til dæm-
is st'arfrækslu' hótelbók-
unarkerfis, fólksflutningum, útgáfu
tímarits, iiolræsahreinsun, búslóð-
arflutningum og fleiri þáttum. Út-
boðin hafa skilað talsverðum sparn-
aði. Til dæmis er talið, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, að
útboð fólksfiutninga hafi sparað um
50.000 dollara, eða 3,3 milljónir
króna.
1 nýja samkomulaginu, sem
gengið var frá í síðustu viku, er
gert ráð fyrir að útboð verði tekin
upp vegna framkvæmda, sem
Bandaríkjamenn greiða sjálfir og
einkaréttur íslenzkra aðalverktaka
og Keflavíkurverktaka verði þannig
afnuminn. Auk þess á kostnaðar-
iækkunarnefndin að halda áfram
störfum.
Lokun flugbrautar hefur
sparað 260 milljónir
í nefndinni sitja fulltrúar varnar-
liðsins og íslenzka ríkisins. Nýr
kraftur komst í störf nefndarinnar
síðastliðið haust, er Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra breytti
skipan hennar þannig að í hana
voru settir hátt settir embættis-
menn utanríkisráðuneytisins. Hilm-
ar Hilmarsson, aðstoðarmaður ráð-
herrans, er formaður nefndarinnar.
Með kostnaðarlækkunarnefndinni
starfa svo ýmsar undirnefndir, sem
fást við skoðun og útfærslu ein-
stakra hugmynda. Nefndin hefur
komið saman sex sinnum frá því í
ágúst, síðast nú í þessari viku.
Sú sparnaðaraðgerð, sem kostn-
aðarlækkunarnefndin hefur komið
í framkvæmd og skilað hefur mest-
um sparnaði, er lokun einnar flug-
brautar á Keflavíkurflugvelli. Hefði
brautinni ekki verið lokað, heféi
þurft að ráðast í dýrar viðhalds-
framkvæmdir á henni. Talið er að
lokun hennar hafi þegar sparað um
fjórar milljónir dollara, eða nálægt
260 milljónum króna. Auk þess
sparast 500 til 600 þúsund dollarar
á ári í rekstrarkostnað, eða 30-40
milljónir króna.
Ónnur sparnaðaraðgerð, sem
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra átti frumkvæðið
að, er að Orion P-3 kaf-
bátaleitarflugvélar varn-
arliðsins fá nú að nota
Egilsstaðaflugvöll og
Akureyrarflugvöll sem
varaflugvelli, lokist
Keflavíkurflugvöllur af einhverjum
orsökum. Vélarnar hafa til þessa
þurft að snúa til Skotlands, hafi
flugvöllurinn lokazt. Einhver elds-
neytiskostnaður sparast með þess-
ari breytingu, en hún skilar þó fyrst
og fremst meira öryggi í kafbáta-
leitarfluginu. Enn hefur ekki komið
til þess að Orion-vélarnar hafí þurft
að nota varaflugvellina vegna veð-
urs, en þær hafa æft þar aðflug
og lendingu. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins hefur engu þurft
að breyta í starfsemi flugvallanna til
þess að hægt sé að taka á móti flug-
vélunum þar hvenær sem er.
Kostnaðarlækkunarnefndin hef-
ur unnið að útfærslu útboða þjón-
ustu- og vörukaupasamninga varn-
arliðsins. Þeirri vinnu er ekki lokið
og telja viðmælendur Morgunblaðs-
ins að útboðin verði ekki komin að
fuilu til framkvæmda fyrr en á ár-
inu 1998.
Hugmyndir um aukið
samstarf í heilsugæzlu
Fleiri sparnaðarhugmyndir eru
til skoðunar og er athugun þeirra
mislangt á veg komin. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
sú hugmynd komið fram í sparn-
aðarnefndinni að íslenzka heil-
brigðiskerfið taki yfir rekstur
sjúkrahúss varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli, eða þá að varnarliðs-
menn sæki í auknum mæli heil-
brigðisþjónustu til sjúkrahúsanna í
Reykjavík. Talið er að þetta gæti
sparað háar fjárhæðir, þar sem ís-
lendingar álíta sig geta rekið heil-
brigðisþjónustuna með lægri til-
kostnaði en Bandaríkjamenn gera
nú. Embættismenn úr heilbrigð-
isráðuneytinu hafa unnið með
kostnaðarlækkunarnefndinni að út-
færslu hugmyndarinnar.
Hins vegar er ekki einfalt að
hrinda þessum áformum í fram-
kvæmd og mörg ljón eru á vegin-
um. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er til dæmis erfitt að
samræma hugmyndina reglum
Bandaríkjahers um heilbrigðisþjón-
ustu. Jafnframt hefur
það sjónarmið komið
fram af hálfu varnarliðs-
ins að alvöruhersjúkra-
hús verði að vera á Kefla-
víkurflugvelli, ef til hern-
aðarátaka kemur. Hug-
myndin hefur þó ekki verið lögð til
hiiðar og var rædd á fundi kostnað-
arlækkunarnefndarinnar síðastlið-
inn þriðjudag.
Sameiginlegar almennings-
samgöngur á Suðurnesjum?
Önnur hugmynd, sem gæti bæði
orðið til sparnaðar og til þess að
auka lífsgæði varnarliðsmanna og
fjölskyldna þeirra — áherzla
varnarliðsins á að gera íbúum ýarn-
arstöðvarinnar vistina sem bærileg-
asta kostar mikið fé — er að kbmið
verði á sameiginlegu almennings-
samgöngukerfi varnarstöðvarinnar
og nærliggjandi sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Þessi hugmynd hefur
verið skoðuð að frumkvæði varnar-
liðsins, sem í fyrstu vildi hagræða
í fólksflutningum til, frá og innan
varnarsvæðanna. Útboð fólksflutn-
inga er liður í þeirri viðleitni.
Varnarliðið hefur rekið eigið
strætisvagnakerfi og einnig hafa
fólksflutningar á vegum verktaka
og þjónustufyrirtækja á Keflavíkur-
flugvelli verið umtalsverðir. Suður-
nesjabær hyggst hefja rekstur eigin
strætisvagnakerfis næsta sumar og
hafa komið fram hugmyndir um
að koma upp sameiginlegu almenn-
ingssamgöngukerfi bæjarins og
varnarliðsins, hugsanlega með þátt-
töku fleiri sveitarfélaga á Suður-
nesjum.
Úmræður um þessa hugmynd
eru skammt á veg komnar. Hún
er hins vegar dæmi um að sumar
sparnaðaraðgerðir geta komið bæði
varnarliðinu og Islendingum til
góða. Sama má segja um hugmynd-
ir um að reisa nýja sorpeyðingar-
stöð í samvinnu varnarliðsins og
Suðurnesjamanna.
Aðlögunartími lengdur með
jákvæðri afstöðu?
íslenzk stjórnvöld hafa lagt
mikla áherzlu á að sýna sjálf frum-
kvæði að sparnaði í varnarstöðinni
og að taka hugmyndum Banda-
ríkjamanna vel. I utanríkisráðu-
neytinu töldu menn til dæmis að
slík afstaða gæti stuðlað
að því að auðveldara yrði
að semja við Bandaríkja-
menn um aðlögunartíma
fyrir Islenzka aðalverk-
taka og Keflavíkurverk-
taka að afnámi einka-
réttar þeirra á varnarframkvæmd-
um. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins fóru Bandaríkin
þó aldrei fram á að einkarétturinn
yrði afnuminn þegar í stað. Ein
ástæðan er sú, að breyta þarf út-
boðsreglum til samræmis við það,
sem tíðkast á íslandi, til þess að
önnur verktakafyrirtæki geti boðið
í framkvæmdir á varnarsvæðun-
um. Aðalverktakar og Keflavíkur-
verktakar hafa til þessa starfað
eftir reglum, sem að mestu leyti
eru sniðnar eftir venjum Banda-
ríkjamanna.
Sparnaður
getur komið
báðum til
góða
Útboð kaupa á
vöru og þjón-
ustu hafa
sparað mikið
ÞRAUTSEIGJA Bobs Doles
bar loks árangur í gær er
hann hlaut yfir 60% at-
kvæða í forkosningum
repúblikana í Kaliforníu og tryggði
sér öruggan meirihluta fulltrúa á
landsfundinum sem kýs forsetaefni
í San Diego í ágúst. Öldungadeild-
arþingmaðurinn og stríðshetjan frá
Kansas reyndi árangurslaust að
verða frambjóðandi 1980 og aftur
1988 en að þessu sinni naut hann
eindregins stuðnings flokksvélar
repúblikana. í nóvember kemur í
ljós hvort hinn 72 ára gamli Dole
býr yfir nægilegum krafti og seiglu
til að steypa 49 ára gömlum forset-
anum, Bill Clinton, af stalli.
„Ég er orðinn svo öruggur um
mig að ég ætla að lýsa því yfir núna
að ég verð frambjóðandi repúblik-
ana,“ sagði Dole er úrslitin voru ljós
í Kaliforníu á þriðjudagskvöld. „Ég
tel að þjóðin sé nú á krossgötum.
Það hillir undir ný Bandaríki,“ bætti
hann við.
Vandi Doles er sá að hvorki.kjós-
endur né stjórnmálaskýrendur eiga
auðvelt með að koma á auga nýja-
brumið í skoðunum hans og lausnum.
Hann fær atkvæðin í forkosningunum
en hrifning fólks er takmörkuð. Sjálf-
um vefst honum tunga um tönn og
andríkið er lítið þegar hann svarar
spurningum um helstu markmið sín
nái hann kjöri og taki við völdum í
Hvíta húsinu.
Dole er leiðtogi meirihlutans í öld-
ungadeildinni og hefur setið á þingi
áratugum saman. Honum hefur geng-
ið erfiðlega að beijast gegn lýðskrumi
hins mælska Pats Buchanans sem
höfðar af mikilli lagni til vaxandi ótta
almennings við snögg umskipti og
heim í geijun. Atvinnuleysi, glæpafár,
aukin samkeppni við erlendar fram-
leiðsluvörur og angist vegna hruns
gamalgróinna samfélagsgilda, allt er
þetta vatn á myllu Buchanans.
Þótt Dole sé nú búinn af hrista
Buchanan af sér fer ekki hjá því að
hann verði að svara spurningum kjós-
enda um þessi brýnu vandamál, þær
eiga sér víðtækari hljómgrunn en kjör-
fylgi Buchanans bendir til.
Verulegar líkur eru einnig á að
auðkýfingurinri Ross Perot bjóði sig
fram í haust fyrir nýjan Umbótaflokk
sinn og rær hann að mestu á sömu
mið einangrunarstefnu og afturhvarfs
og Buchanan. Árið 1992 fékk Perot
um 19% atkvæða og töldu repúblikan-
ar að hann hefði með framboði sínu
tekið nægilegt fylgi af George Bush
til að tryggja Clinton sigur. Dole hef-
ur hamrað á þessu við Perot en ekki
haft erindi sem erfiði.
Dálkahöfundurinn William Safire
sagði nýlega í The New York Times
að svo gæti farið að fjórði maðurinn,
neytendafrömuðurinn Ralph Nader,
byði sig fram og þá sennilega á vegum
flokks Græningja. Gæti Nader, sem
Leitin að
boðskap
Nú er orðið ljóst að demókratinn Bill Clinton
o g repúblikaninn Bob Dole munu keppa um
----------------------j,-
forsetaembættið í Bandaríkjunum. I grein
Krislgáns Jónssonar segir að skoðanirkeppi-
nautanna séu svipaðar en kjósendahópamir
um margt ólíkir
er landsþekktur maður og nýtur
mikillar virðingar á vinstri vængn-
um, velgt Clinton undir uggum en
forsetinn hefur haft verulega yfir-
burði í skoðanakönnunum að undan-
förnu fram yfir Dole. Ekki myndi
það skaða Dole að hann gæti þá
dregið úr áhrifum Perots og grafið
undan Clinton með því að krefjast
þess fyrir kappræður í sjónvarpi að
allir fjórir frambjóðendurnir yrðu
þátttakendur.
Loks má ekki gleyma þvf að
hafi Dole öflugt varaforsetaefni
sér við hlið getur hann lagað stöð-
una mjög síðustu mánuðina.
Kynslóðabil
Munurinn á persónuleika og stíl
frambjóðendanna tveggja er mikill og
augljós, kynslóðabilið er sláandi. Báð-
ir eiga mennirnir atkvæðamiklar kon-
ur en Elizabeth Dole, sem er fyrrver-
andi ráðherra og nú forseti Rauða
krossins bandaríska, hefur lýst því
yfir að hún muni ekki taka þátt í
stjórnunarstörfum manns síns. Þykir
ljóst að fordæmi Hillary Rodham Clin-
ton, sem ætlað var að skipuleggja
endurskoðun heilbrigðismála en varð
að láta undan síga, þyki nú víti til
varnaðar.
Hillary Clinton hefur mjög verið
bendluð við Whitewater-íjársvikamál-
ið, er enn vofir yfir forsetahjónunum
en hyggist repúblikanar notfæra sér
málið er ekki víst að þeir ríði feitum
hesti frá þeirri viðureign.
Fjölmiðlar eru þegar byijaðir að
fara í saumana á Ijármálum Dole
og eiginkonu hans og gefa í skyn að
þau hafi misnotað aðstöðu sína. Þess
má geta að Dole hefur árum saman
verið talinn mjög hallur undir hags-
muni stórfyrirtækja, einkum í land-
búnaði og hefur oft notfært sér hvers
kyns þjónustu, t.d. einkaþotur, sem
þau hafa boðið honum. Var reynt að
nota þetta gegn Dole í forkosningun-
um en virtist ekki valda honum mikl-
um vanda, hvað sem síðar verður.
Aðstoðarmenn Dole segja að ald-
urinn sé honum engin hindrun og
hann hafi reynsluna og þroskann
fram yfir Clinton. Dole sé stríðs-
hetjan sem hafi iagt allt í sölurnar
fyrir ættjörðina. Clinton kom sér
undan herþjónustu í Víetnam.
Forsetinn hefur einstaka þekkingu
á stjórnmálum og setur sig betur inn
í málin en innanbúðarmenn í Wash-
ington þekkja dæmi um hjá öðrum
forsetum. Hann er hins vegar svo
málglaður að mörgum þykir nóg um,
byijar aðra hveija setningu á orðinu
ég og virðist stundum álíta að búið
sé að leysa flókin mál þegar búið sé
að ræða þau í þaula frá öllum hliðum.
Hann hlustar af athygli á annað fólk
og fortöluhæfileikar hans í návígi eru
óumdeildir.
Dole er oft fámáll og virðist fremur
feiminn, talar oft um sjálfan sig í
þriðju persónu í ræðum og er illa við
að ræða um einkamál sín. Fullyrt er
að honum líði best á skrifstofu sinni
í þinghúsinu á fundi með fáeinum
pólitískum kunnáttumönnum sem
hann á gott sálufélag við.
Aðstoðarmenn Dole fá hann sjaldan
til að tjá sig opinberlega um stríðið
og dæmalausa þrautseigjuna sem
hann sýndi er hann var að ná sér af
lífshættulegum sárum og vinna bug
á lömun. Hann getur verið afar orð-
heppinn en ræðustíll hans þykir mjög
þurrlegur og hrifur ekki fólk.
Dole verður að beita mikilli jafn-
vægislist næstu mánuði vegna stöðu
sinnar sem talsmaður meirihlutans í
öldungadeildinni en hann þykir efn-
staklega laginn við að koma málum
í gegn og sætta sjónarmiðin. Hann
vill sem ábyrgur leiðtogi sjá til þess
að togstreita þings og forseta um fjár-
lög lami ekki stjórnkerfið og frum-
kvæði eina risaveldisins á alþjóðavett-
vangi. Samtímis verður hann að halda
sínum hlut svo vel að hann lendi efíirt
stöðugt í skugga Clintons.
Dole verður að fá kjósendur til að
trúa því að ástæða sé til að treysta
honum betur en Clinton til að sýna
festu en jafnframt frumkvæði. Hann
verður að efla þá ímynd að munur sé
á boðskapnum, hversu miklir tals-
menn málamiðlana sem þeir báðir séu
í reynd. Svo gæti þó farið að repúblik-
anar gæfu þetta upp á bátinn en legðu
megináherslu á eiginleika mannanna
tveggja sem í framboði eru, ekki skoð-
anir þeirra.
Repúblikanar náðu langþráðu tak-
marki 1994 er þeir hrepptu meiri-
hluta í báðum þingdeildum og kynntu
þá róttæka áætlun um endurbætur.
Atkvæðamikill forseti fulltrúadeild-
arinnar, Newt Gingrich, knúði marg-
ar tillögur um niðurskurð og minni
ríkisafskipti í gegn. í breska tímarit-
inu The Economist er hins vegar rak-
ið hvernig Dole, sem vitað var að
hafði litla trú að hugmyndunum, hef-
ur tekist að útvatna margar þeirra
þar sem hann telur ólíklegt að kjós-
endur þoli í reynd svo mikla rót-
tækni, einkum á sviði heilbrigðis- og
félagsmáia. Uppstokkunin mikla,
sem repúblikanar bóðuðu, hefur varla
verið nefnd í prófkjörsbaráttunni.
Stefnumálum
stolið
Dole og Clinton gera sér báðir ljóst
að flestir Bandaríkjamenn eru lítt
hrifnir af því að þurfa að herða mitti-
sólina, þeir afsala sér ekki hljóða-
laust opinberum bótum og niður-
greiðslum sem þeir telja sig eiga rétt
á. Á hinn bóginn er ljóst af stórsigri
repúblikana 1994 að flestir kjósendur
vilja minni ríkisafskipti og óttast
aukinn fjárlagahalla. Fjárlagatillögur
Clintons bera þess merki að hann
hefur meðtekið boðin, hann lofar
minni halla og heitir að lækka skatta.
Repúblikanar saka forsetann um að
stela stefnumálum andstæðinga
sinna.
Þingmaðurinn frá Kansas hefur
jafnan þótt óræður, er sagður haga
seglum eftir vindi á sama hátt og
hentistefnumaðurinn Clinton. En þótt
frambjóðendurnir tveir leiti nú báðir
inn á miðjuna og hafi svipaðar skoð-
anir er ekki þar með sagt að stjórnar-
stefna þeirra verði að öllu leyti hin
sama. Kjósendahóparnir eru óiíkir,
þrýstihóparnir sem hafa áhrif á Clin-
ton forseta eru af öðrum toga en
þeir sem myndu reyna að róa í Dole
forseta.
Reutfir
BOB Dole fagnar prófkjörssigri í sambandsríkjunum Kaliforníu, Nevada og Washington með stuðningsmönnum sínum á þriðjudagskvöld.
Keppinauturinn Pat Buchanan fékk innan við fimmtung atkvæða í Kaliforníu. f