Morgunblaðið - 13.04.1996, Page 17

Morgunblaðið - 13.04.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 17 ERLEIMT Bardagar blossa upp í Líberíu BARDAGAR blossuðu upp í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, í gær íu nágrenni herstöðvar sem verið hefur þungamiðja átakanna sem brutust út í landinu fyrir viku. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði óhjá- kvæmilegt að flytja brott fleiri erlenda ríkisborgara sem inn- lyksa væru þar. Þegar hafa bandarískar herþyrlur flutt 900 manns brott. Gera sér grein fyrir hlut NATO RIJSSAR gera sér grein fyrir því að Atlantshafsbandalagið (NATO) verður að gegn lykil- hlutverki í nýrri skipan örygg- ismála í Evrópu, sagði Alek- sander Kwasniewski forseti Póllands í blaðaviðtali í gær. Hann átti fund með Borís Jelt- ín Rússlandsforseta sl. þriðju- dag og gerði honum grein fyr- ir hvers vegna Pólveijar legðu áherslu á að ganga í NATO. ítrekaði Jeltsín þar andstöðu sína við stækkun NATO til austurs. Smyglarar klófestir KÍNVERJAR segjast hafa kló- fest 46.000 fíkniefnasmyglara á árunum 1991 til 1995 og dæmt 7.300 þeirra til dauða eða í lífstíðar fangelsi. Alls var ljóstrað upp um 144 þúsund smyglmál og m.e. gerð upptæk 17,1 tonn af heróíni. Hugðist ræna ráðherra CARLOS, illræmdur hryðju- verkamaður, hugðist ræna og jafnvel ráða franska dóms- málaráðherrann Robert Bad- inter af dögum árið 1982, að sögn blaðsins Le Monde, sam- kvæmt skýrslum austur-þýsku leyniþjónustunnar Stasi. Var það ráðgert í þeim tilgangi að fá konu hans úr frönsku fang- elsi. Þar situr Carlos nú og bíður dóms vegna fjölda til- ræða. Hann er talinn hafa 83 mannslíf á samviskunni. Hefði leyft dótturinni að fljúga aftur REGLUM um þátttöku far- þega í stjórn einkaflugvéla verður að líkindum breytt eftir flugslysið í Cheyenne í fyrra- dag þar sem 7 ára stúlka, fað- ir hennar og flugkennari biðu bana er tilraun var gerð til að stúlkan yrði yngst til að stjórna flugfari milli stranda í Bandaríkjunum. Móðir stúlk- unnar varði í gær þá ákvörðun foreldranna að gera flugtil- raunina og sagði að hún myndi leyfa aðra slíka ferð ef sú staða hefði komið upp. „Það gerir enginn sér grein fyrir þeirri ánægju sem hún hafði af flugi. Fyrir engan mun vil ég halda aftur af börnum mín- um og svipta þau lífsgleðinni og frelsi til athafna," sagði hún. Sprengjutilræði írska lýðveldishersins Handtaka í Dyflinni Dyflinni. Reuter. ÍRSKA lögreglan hefur handtekið mann í Dyflinni og halda írskir fjöl- miðlar því fram, að um sé að ræða tímamót í rannsókn á tilræðum IRA, Irska lýðveldishersins, í Bretlandi. Talsmaður lögreglunnar staðfesti, að 26 ára gamall maður hefði verið handtekinn í fyrradag en vildi ekk- ert um það segja hvort handtakan tengdist rannsókn á sprengjutilræði IRA í viðskiptahverfinu Canary Wharf í London 9. febrúar sl. Breska lögreglan kveðst hafa „áhuga“ á manninum en áhersla er lögð á, að hans hafi ekki verið leitað vegna tilræðisins í Canary Wharf. Tveir menn létust og um 40 slös- uðust þegar sprengjan sprakk aðeins tæpri klukkustund eftir að IRA lýsti yfir, að vopnahléi samtakanna í 17 mánuði væri lokið. Næsta mánuðinn kom IRA fyrir þremur sprengjum og sprakk ein þeirra líklega fyrir slysni í strætis- vagni. Varð hún útsendara IRA að bana og. slasaði níu manns. Fréttir eru um, að meðal annars sé verið að yfirheyra manninn vegna sprengjuefnis, sem falið hafði verið í reiðhjólastelli og fannst í Brighton og Bognor Regis 1994. Walesa á eftirlaun Varsjá. Reuter. ÞING Póllands sam- þykkti í gær eftirlauna- greiðslur til handa Lech Walesa, fyrrum forseta landsins. 268 þingmenn greiddu atkvæði með til- löguninni en 63 sátu hjá. 32 töldu hins vegar enga ástæðu til að greiða fyrr- um forseta landsins eftir- laun. Eftirlaunin eru rétt rúmar 100.000 krónur á mámn- uði og eru þau miðuð við grunn- laun starfandi forseta. Þetta eru sjöföld mánaðarlaun rafvirkja í Póllandi. Mikla athygli vakti er Walesa hóf störf á ný í skipa- smíðastöðinni í Gdansk þar sem hann starfaði sem rafvirki áður en hann gerðist leiðtogi andstöðunnar við alræði kommúnistaflokksins. Kvað Walesa þetta þrautarlendingu sína þar eð þingheimur hefði ekki samþykkt frumvarp um eftirlaun forseta. Walesa kenndi vinstri öflunum um og vændi þau um mannillsku og yfirgang en fyrrum kommún- istar eru áhrifamesta aflið í pólskum stjórnmálum nú um stundir. Þrefaldur 1. vinningur! Nú cr fló notfl tíekif^Hð! -vertu viðbúintn) vinningi Fáðu þér miða fyrir kl. 20.2° i kvöld. V]S / QISQH V1|AH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.