Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.04.1996, Blaðsíða 25
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 25 UTI A£) BORÐA MEÐ EMILIONU TORRINI Ég er eins og harmnníka Emilíana Torrini er að springa úr ham- ingju. Hún ræddi við Ivar Pál Jónsson um lífið, tilveruna og flatbökur með banönum yfír kvöldverði á Hótel Borg. ÆSTA PLATA verður þjóðlagaplata," segir Emilíana áður en við höfum pantað nokkurn skapaðan hlut. „Hefurðu heyrt lagið Har- old? Platan verður svolítið í þeim stíl og yfirbragðið verður með rólegara móti.“ Henni finnst skemmtilegra að syngja þannig tónlist fyrir áheyrendur. „Textarnir eru oft svo fyndnir og skemmtilegir og fólkið skemmtir sér vel þegar maður segir því fyn- dna sögu,“ segir hún og kallar á „besta þjón í heimi,“ Steina, sem er vinur hennar. „Hann er kurteis eins og breskur þjónn.“ Steini spyr hvort við viljum fordrykk. Hvern- ig fordrykk eigum við að panta? spyrjum við á móti. Steini segir að gjarnan fái fólk sér kokteil fyrir mat. „Láttu okkur þá fá góðan kokteil, en ekki of sætan,“ segir Emilíana, „að minnsta kosti ekki fyrir mig.“ Steini kemur með Brjál- uðu Bínu. Við er- um sammála um að hún bragðist hreint ágætlega og íhugum hvaða forrétt við eigum að panta. „Platan kemur út um jólin, en eftir þau ætla ég til Ítalíu í hálft ár að læra ítölsku og söng,“ segir söngkonan, sem á ættir að rekja til Napólí. „Þá verður bara ein- hver að sjá um plötuna fyrir mig.“ Okkur finnst við hæfi að panta ítalskt rauðvín með matnum og veljum Riserva Ducale (Chianti Classico). Það veldur ekki von- bi’igðum. „Þetta er alveg afbragð, eins og flest ítalskt," segir Emilí- ana. Farréttur Núna er hún að læra söng í Söngskóla Reykjavíkur hjá Þuríði Pálsdóttur, en um þessar mundir hefur hún nóg að gera við að syn- gja inn á geisla- plötu sem kemur út samfara sýn- ingum á leikritinu Stone Free eftir Jim Cartwright í sumar. Þar er hún einn af aðalsöngv- urunum. „Mér finnst það alveg frábært. Eg fæ að syngja svo góð lög og fólkið sem stendur að upp- færslunni er svo yndislegt. Það er líka mjög skemmtilegt íyrir þær sakir að við erum að heims- frumsýna leikritið. Ég held ég fái mér snigla-“Saute“ frá Burgundy með sveppum, gljáðum lauk og fleski í dökki’i rauðvínssósu í forrétt. Ég er alveg að springa úr hamingju.“ Emilíana tók sem kunnugt er þátt í uppfærslu Flugfélagsins Lofts á Hárinu, en það var söng- leikur. Stone Free er leikrit. Þar DjúpsteHit spínat SPÍNATIÐ ER HREINSAÐ OG ÞURRKAÐ OG SETT OFAN í 180-185° HEITA FEITI. SÝNA SKAL SÉRSTAKA VARKÁRNI, ÞAR SEM MIKIL LÆTI VERÐA OG FEITIN SKVETTIST UPP ÚR POTTINUM. ÞEGAR LÆTIN HÆTTA ER SPÍNATID LAGT Á HANDKLÆÐI SEM DREGUR FEITINA í SIG. ÞÁ ER SALTI STRÁÐ AÐ VILD. hníf. Sjáðu, þetta er eins og að skera í gegnum smjör,“ segir söngkonan og lýsir einnig yfir ánægju sinni með bragðið. Hún kallar á besta þjón í heimi. „Attu ekki djúp- steikt spínat eins og ég smakkaði hérna um áramótin? Það var eitt mesta sæl- gæti sem ég hef smakkað.“ Steini fer inn í eldhús og kemur að vörmu spori með disk af djúpsteiktu spínati. „Það mætti borða þetta sem snarl með ídýfu,“ segir hún. Máltíðin rennur ljúflega niður. „Af hverju er ekki hægt að fá sér súpu á íslenskum veitinga- stöðum án þess að þær séu löðrandi í rjóma?“ spyr hún blaðamanninn, sem verður að játa fá- visku sína á því sviði. „Þetta er eins og með pasta. ís- lendingar nota allt of mikla sósu með pastanu sínu. Sósan á að vera með past- anu, ekki pastað með sósunni.“ Eftirréttur reynir á leikhæfileikanav „Ég kann ekkert að leika. Ég er áreiðanlega ein versta leikkona landsins. En ég syng svo mikið í leikritinu, enda gerist það á rokkhátíð." Steini, besti þjónn í heimi, kem- ur með sniglana og Emilíana er alveg himinlifandi með þá. A ein- hvern undarlegan hátt berst talið að flatbökum með banönum. „Þær eru vondar. Að borða þær er eins og að tyggja hor,“ segir söngkonan og grettir sig. „Eg er mikil matmanneskja og nýt þess að borða,“ segir hún. „Stundum kemur fyrir að ég torga fjórum stórum máltíðum á dag.“ Blaðamaður skýtur inn í að það sjáist ekki á henni. „Ég er Morgunblaðið/Ásdís eins og harmoníka,“ segir hún þá og á við sveiflur í líkamsþyngd. „Eg er mjög kröfuharður við- skiptavinur á veitingastöðum, sérstaklega ítölskum. Ef mat- reiðslan er ekki samkvæmt ítölsk- um venjum á ég til að fara hrein- lega í fýlu. Ef ég ætla að fara að skemmta mér með vinkonum mínum getur maturinn eyðilagt það sem eftir er af kvöldinu.“ A. ðairéttur Nú er komið að aðalréttinum og hann er ekki af verra taginu. Léttsteikt villigæsabringa með portvíns- og gráðostasósu og berjum. „Já svei mér þá. Það ligg- ur við að maður þurfi ekki að nota Eftirrétturinn kemur á eftir aðal- réttinum, eins og nafnið gefur til kynna. Eftir tals- verðar vangaveltur veljum við súkku- laði-mousse tertu með vanillusósu og ávaxtasalati. „Mamma er besti kokkur sem ég þekki. Ég held ])ví fram að hún geti fengið fólk til að gráta af hamingju þegar það borðar matinn hennar, á svipaðan hátt og kokkurinn í myndinni Kryddlegin hjörtu. Reyndar er það þannig að ef maður lætur í ljós vanþóknun sína á mat á Ítalíu fer kokkurinn að gi’áta. Þar er matargerð nánast trúarbrögð.“ Enn hvað tíminn líður, segir blaðamaðurinn við söngkonuna. Söngkonan áttar sig á því hversu tíminn hefur liðið hratt. „Ó guð, er klukkan orðin svona margt. Ég verð að drífa mig,“ segir hún. Hún á að vera löngu mætt í hljóðver. ° Sjónvorpstæki • Myndbandstæki • Hljómtae’ki « FerðQútvarpstæki >> Vasadiskó • Geislospilarar Bíltæki Hatalarar Gervihnattabúnaóur Frystikistur • Þvottavélar • Örbylgjuofnar • Símor GSM-símar • Kaffikönnur Hraösuöukatlar Drauöristar • Handþeytarar Hórblósarar • Krullujórn • og fjölmargt tloiro .! Skipholti 19 Sími: 552 9600 s€i istmvm mat íRáBtn um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.