Morgunblaðið - 30.04.1996, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
97. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Drepnir við
gamla þorpið
SÆNSKUR liðsmaður friðar-
gæslusveita Atlantshafsbanda-
iagsins í Bosníu freistar þess í gær
að stöðva för Bosníu-múslima til
gamla þorpsins síns, Sjenina, í
norðurhluta landsins, en það er á
yfirráðasvæði Bosníu-Serba. Þeir
íétu ekki segjast, sneiddu hjá veg-
tálmum og héldu áfram för með
þeim afleiðingum að Serbar réðust
á hópinn, myrtu tvo og særðu aðra
tvo til viðbótar. Þá réðst hópur
fullorðinna Serba vopnaður skófl-
um og öðrum bareflum á rútu
fulla af múslimum, sem freistuðu
þess að fara að gröfum ættmenna
sinna í Trnovo, skammt frá
Sarajevo. Múslimar telja sig hafa
heimild skv. ákvæðum Dayton-
friðarsamkomulagsins til þess að
fara til sinna gömlu heimkynna.
Carl Bildt sáttasemjari Evrópu-
sambandsins boðaði fulltrúa músl-
ima og Serba til fundar í dag til
þess að freista þess að finna lausn
á þessu deilumáli.
Fjöldamorðingi myrðir 34 í Astralíu
Hríðskotabyssur
Ástralskir borgarar mega eiga
vopn af ýmsu tagi. Sums staðar er
þeim meira að segja leyft að hafa
hríðskotabyssur í fórum sínum.
Hópar, sem beijast fyrir tak-
mörkun byssueignar, ítrekuðu kröf-
ur um hertar aðgerðir í gær, en
kröfðust þó ekki allsheijarbanns,
enda slíkt talið ógerlegt.
Fyrri tilraunir til að herða byssu-
lögin hafa strandað á því að slíkt
er ekki á valdi ríkisstjórnarinnar,
heldur stjórnvalda í fylkjum lands-
ins, sem eru sex talsins. Howard
skoraði á fylkisstjórnir landsins að
veita sér stuðning og sagði að vopn
á borð við þau, sem notuð voru á
sunnudag, ættu ekki að vera í hönd-
um almennings.
Reuter
■ Ástralíumaður myrti/20
Heitir að herða lög
um skotvopnaeign
Canberra. Reuter.
JOHN Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, hét því í gær að lög um
eign skotvopna í landinu yrðu hert
eftir að Ástrali myrti 34 manns og
særði 19 þegar hann hóf skothríð
á ferðamannastaðnum Port Arthur
á eynni Tasmaníu á sunnudag.
Fjöldamorðinginn notaði tvo
öfluga riffla til að fremja ódæðis-
verkið. Hann náðisteftir 18 klukku-
stunda umsátur lögreglu, þegar
hann hljóp út úr alelda húsi, sem
hann hafði komið sér fyrir í ásamt
þremur gíslum.
Howard sagði að yfirmenn lög-
reglu um alla Ástralíu
yrðu kvaddir til fundar
í næstu viku til að ræða
leiðir til að herða lög
um byssueign í land-
inu. _
„Ég mun gera allt
sem hægt er ... til að
herða byssueftirlit í
þessu landi með skil-
virkum hætti,“ sagði
Howard við blaðamenn
eftir athöfn til minn-
ingar um fórnarlömbin
á Tasmaníu í gær.
Fjöldamorðinginn
Howard sagði að
fjöldamorðin bæru því
vitni að ofbeldi væri
að grafa um sig í ástr-
alskri menningu og
bætti við að Ástralir
ættu að velta fyrir sér
hvers eðlis þjóðfélag
þeirra væri.
Hert eftirlit með
byssueign er nú til
umræðu víða um heim.
Bretar hétu þeim sak-
aruppgjöf, sem létu
ólögleg vopn af hendi
í júní, eftir fjöldamorðin í Dun-
blane. Frakkar hertu byssulög í
apríl eftir skotárásir í borgum og
bönnuðu fólki undir 18 ára aldri
alveg að hafa skotvopn undir hönd-
um. 16 ára unglingur myrti 16
manns í bænum Cuers í september
og átti það atvik þátt í þessum
aðgerðum Frakka.
Frelsi til fjar-
skipta í óvissu
Genf. Reuter.
BANDARÍKJAMENN settu í gær
ný skilyrði fyrir aðild að nýrri
heimsskipan fjarskiptamála og
var óttast að þeir myndu kippa
að sér hendi og hætta við aðild
að samkomulaginu, sem gæti þýtt
að j)að yrði hvorki fugl né fiskur.
I kvöld rennur út frestur til
þess að ná samkomulagi um frelsi
í fjarskiptamálum, sem var annað
tveggja óleystra samningstfna er
Heimsviðskiptastofnunin (WTO)
leysti af hólmi GATT-samkomu-
lagið um tollfrelsi í viðskiptum.
Bandaríkjamenn settu í gær
fram nýjar kröfur varðandi leyfi
útlendra símafyrirtækja til að
starfa í Bandaríkjunum. Vilja þeir
að leyfin verði tengd opnun flar-
skiptamarkaðar heimalands við-
komandi fyrirtækis. Embættis-
menn ESB segja það jafngilda því
að Bandaríkjamenn fái úrskurðar-
vald um hvaða ríki uppfylli ákvæði
nýs íjarskiptasáttmála.
Þá sögðu Bandaríkjamenn ekki
nógu mörg ríki hafa heitið að
opna fjarskiptamarkað svo sam-
komulagið geti fallið undir WTO.
Vanti nokkur Asíuríki og Kanada.
Sir Leon Brittan, sem fer með
viðskiptamál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins (ESB), sagð-
ist enn telja mögulejka á að ná
sáttum fyrir kvöldið. I fyrra hættu
Bandaríkjamenn á síðustu stundu
við aðild að alþjóðasamkomulagi
um frelsi á sviði fjármálaþjónustu.
Orðrómur um að Zelimkhan Jandarbíjev hafi fallið í valdabaráttu í Tsjetsjníju
Zelimkhan Jand-
arbíjev, leiðtogi
Tsjetsjena
Leiðtogi sagður á lífi
Moskvu. Reuter.
EINN af helstu foringjum hersveita
uppreisnarmanna í Tsjetsjníju vísaði í
gær á bug fréttum um að nýr leiðtogi
tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna, Ze-
limkhan Jandarbíjev, hefði beðið bana
í átökum milli Tsjetsjena á sunnudags-
kvöld.
Jandarbíjev varð leiðtogi aðskilnað-
arsinna í Tsjetsjníju fyrir viku eftir
að Dzhokhar Dúdajev beið bana í flug-
skeytaárás Rússa.
„Ég talaði við hann í talstöð fyrir
kiukkustund," sagði Doku Makhajev,
sem stjórnar liði aðskilnaðarsinna í
suðvesturhluta Tsjetsjníju. „Hann er
við mjög góða heilsu. Ekki kom til
neinna skotbardaga," sagði Mak-
hajev, sem kvaðst hafa rætt við Jand-
arbíjev klukkan 13 í gair að íslenskum
tíma.
Fréttastofan Intevfax hafði einnig
eftir ónafngreindum embættismanni í
Rússnesku öryggisþjónustunni (FSB)
í gær að Jandarbíjev hefði ekki fallið
heldur frændi hans. „Heimildarmaður-
inn lagði áherslu á að fylgdarlið Jand-
arbíjevs hefði staðfest þessar upplýs-
ingar,“ sagði fréttastofan.
Mikill viðbúnaður í Moskvu
Embættismenn tsjetsjensku stjórn-
arinnar í Grosní höfðu haldið því fram
að Jandarbíjev hefði fallið í „uppgjöri“
milli tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna á
sunnudagskvöld. Þetta olli miklum
vangaveltum í rússneskum fjölmiðlum
um að harðvítug valdabarátta hefði
blossað upp meðal forystumanna
Tsjetsjena.
Rússneskar fréttastofur skýrðu frá
því í gær að Shamil Basajev, sem
stjórnaði mannskæðri árás í suður-
hluta Rússlands í fyrra, hefði verið
gerður að yfirmanni hers aðskilnaðar-
sinna í stað Aslans Maskhadovs, sem
þykir hófsamari og líklegri til að semja
um frið við Rússa. Þessi frétt var þó
ekki staðfest í gær.
Maskhadov sagði í sjónvarpsviðtali
að enginn ágreiningur væri meðal for-
ystumanna aðskilnaðarsinna.
Rússnesk yfirvöld hafa aukið ör-
yggisviðbúnaðinn í Moskvu þar sem
þau óttast að Tsjetsjenar séu að und-
irbúa árás og gíslatöku í borginni líkt
og í árásinni sem Basajev stjórnaði í
júní í fyrra. Menn hans héldu þá a.m.k.
1.000 manns í gíslingu í rúma viku í
bænum Budennovsk. 120 manns biðu
bana í árásinni.
Mótmælin
á alnetið
Frankfurt. Reuter.
ÞÝSKIR málmiðnaðarmenn,
sem orðnir eru leiðir á því
að þramma um götur á bar-
áttudegi verkalýðsins, 1.
maí, geta lagt mótmæla-
spjöldunum.
I staðinn geta þeir kveikt
á tölvunni og upplifað
stemmningu dagsins á alnet-
inu (internet).
Stærstu samtök þýskra
málmiðnaðarmanna, IG
Metall, hvöttu félagsmenn í
gær til þess að taka þátt í
1. mai dagskrá samtakanna
á alnetinu. Þar gætu þeir
fylgst með ræðum, sem
fluttar yrðu víðs vegar um
land, og öðrum fróðleik í
tilefni dagsins. Gætu þeir
komið skoðunum þar á
framfæri og tekið þátt í
könnun um starfsgleði.