Morgunblaðið - 30.04.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 7
Póstgíró kynnir nýja, hraðvirka, örugga og ódýra leið
til fjármagnsflutninga milli landa
Eurogiro
Eurogiro veitir fyrirtækjum og einstaklingum nýjan valkost í fjármagnsflutningum milli landa.
Þessi valkostur byggir á þeirri hagkvæmni sem samstarf aðildarríkja Eurogiro leiðir af sér.
Tölvukerfi þeirra er samtengt þannig að fjármagn og upplýsingar eru sendar með hraðvirkum, ódýrum
og öruggum hætti milli landanna. Allar kostnaðarupplýsingar er hægt að fá gefnar fyrirfram, þannig
að sendandi og viðtakandi viti hvaða gjöld á að greiða í báðum löndum.
Eurogiro er hlutafélag 16 evrópskra póststjórna og póstbanka með um 50 milljón póstgíróreikninga
um alla Evrópu. Japan er auk þess aðili að Eurogiro sem þýðir 2 milljónir póstgíróreikninga til viðbótar.
í ár munu Chase Manhattan bankinn og bandaríska póstþjónustan gerast aðilar að Eurogiro.
Það samstarf mun breiða þjónustunet Eurogiro um allan heim.
Póstgíró er 25 ára á þessu ári og hefur því öðlast aldarfjórðungs
reynslu í fjármagnsflutningum, bæði innanlands og utan. Póstgíró
leggur ríka áherslu á að bjóða hagkvæma þjónustu varðandi alla
almenna fjármagnsflutninga sem jafnframt er einföld og þægileg
fyrir viðskiptavini. Fjölmargir þeirra hafa opnað póstgíróreikning,
eingöngu til að geta valið ólíkar lausnir, t.d. Eurogiro. Þeir halda
hins vegar öðrum viðskiptum við sinn helsta viðskiptabanka
óbreyttum. Til einföldunar og þæginda fyrir viðskiptavini millifærir
Póstgíró yfir á bankareikning þeirra eins oft og óskað er og þar
af ókeypis tvisvar í viku.
/OV*
8 ara
y 1971-1996
post giro
Ármúla 6,150 Reykjavík. Sími: 550 7497 Fax: 568 0121