Morgunblaðið - 30.04.1996, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
í Miðstöð fólks í atvinnuleit er hægt að sækja námskeið, leita ráðgjafar og fá félagsskap
Mikilvægl að finna
sér nýjan farveg
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit flutti
í febrúar í nýtt húsnæði á jarðhæð
Hafnarhússins í Tryggvagötu 17.
Sigrún Harðardóttir, félags- og
námsráðgjafi, er framkvæmda-
stjóri miðstöðvarinnar og þangað
getur fólk leitað í margvíslegum
erindagerðum; til þess að sækja
námskeið, vinna í Smiðjunni,
útbúa atvinnuumsóknir, fá upp-
lýsingar um réttindi sín, ráðgjöf
vegna fjárhagserfiðleika, lesa
blöðin, hitta fólk og drekka kaffi.
Sigrún leggur áherslu á að þeir
sem missa vinnuna nýti tíma sinn
á skipulegan hátt. „Við reynum
að hvetja fólk til þess að finna
sér farveg sem fyrst. Ég get nefnt
sem dæmi að hjá VR eru 800
manns á atvinnuleysisskrá ár eft-
ir ár og maður sér. ekki fýrir að
allt í einu verði til svo mörg störf
í þeirri grein. Hegðun fólks sem
missir vinnuna er oft mjög ómark-
viss, það skráir sig kannski á
námskeið til þess að stytta bóta-
lausa tímabilið, en það er tilviljun-
um háð hvernig tíminn er nýttur.
Fólk í þessari aðstöðu verður
að velta fyrir sér hvort það vilji
starfa við eitthvað annað og
áhugaprófin er leiðin til þess að
komast að því. Þá sér viðkomandi
hvar áhuginn liggur og við getum
síðan vísað leiðina að settu
marki,“ segir hún. Þess má einnig
geta að veitt er hönnunarráðgjöf
í Smiðjunni annan miðvikudag
hvers mánaðar fyrir þá sem vilja
setja á fót eigin atvinnustarfsemi.
Boðin er aðstoð við að útfæra og
þróa hugmyndir, til dæmis í list-
og handiðnaði.
Tengiliður við kerfið
Reykjavíkurborg sér miðstöð-
inni fyrir húsnæði, greiðir leigu
og leggur 700 þúsund krónur til
starfseminnar á þessu ári. Þá
nýtur reksturinn aðstoðar ýmissa
stéttarfélaga, þjóðkirkjunnar og
prófastdæmanna. „Þetta er þjón-
ustumiðstöð fyrir atvinnuleitend-
ur og hér liggja frammi upplýs-
ingar um réttindi og námskeið.
Síðan veitum við fólki aðstoð við
atvinnuumsóknir og ráðgjöf og
erum nokkurs konar tengiliður við
kerfið, svo sem Félagsmálastofn-
Miðstöð fólks í atvinnuleit var endurvakin
í október sl. eftir tæplega árs hlé á starf-
seminni vegna fjárskorts. Þangað leita fjöl-
ERNA Jóhannsdóttir
SIGRÚN Harðardóttir
un og skattyfirvöld. Jafnframt
aðstoðum við fólk við að leita til
lögfræðings ef fjármálin eru í
ólestri," segir Sigrún.
20. október sl. var Smiðjan
opnuð og þar geta áhugasamir
mótað í leir, teiknað og málað,
skorið í tré og bein og unnið með
pappamassa. „Við höfum verið
með 20 stunda námskeið frá ára-
mótum og erum að reyna að koma
okkur upp betri aðstöðu, svo sem
fyrir jám- og glervinnu sem karl-
mennirnir geta nýtt sér.“
Sigrún segist vonast til þess að
ekki verði frekari röskun á starf-
semi miðstöðvarinnar en orðið hef-
ur og að húsnæðið í Tryggvagötu
verði varanlegt skjól. Hún er eini
fasti starfskrafturinn í 80% starfi
og auk hennar eru fjórir starfs-
menn sem skipta með sér þremur
100% stöðum í sex mánuði í tengsl-
um við atvinnuátak á vegum borg-
arinnar, sem lýkur í júní.
Nokkur stéttarfélög hafa greitt
10.000 krónur á mánuði til rekstr-
arins og segir Sigrún ekki ganga
vel að fá fleiri til að láta fé af
hendi rakna. Svo virðist sem sum
félaganna sjái ekki tilgang í því.
Miðstöðin er opin alla daga vik-
unnar frá 9-17 og segir hún að
margir leggi leið sína þangað dag-
lega, aðrir annan hvern dag og
sumir tvisvar í viku. Fleíri konur
hafa sótt þangað að undanförnu
enda er nú boðin á barnagæsla,
að hennar sögn.
Vakna til lífsins
„Við töldum fjölda þeirra. sem
komu í hverri viku í mars og sund-
urliðuðum eftir stéttarfélögum,
meðal annars til þess að fá þau
til að leggja eitthvað af mörkum,
en það hefur ekki borið árangur
enn,“ segir Sigrún. Þeir sem
sækja miðstöðina eru búnir að
vera án vinnu mislengi, að hennar
sögn, allt frá nokkrum dögum upp
í nokkur ár. „Við höfum greint
mikinn mun á fólki sem hefur
komið hingað eftir margra ára
atvinnuleysi og unnið í Smiðjunni
og séð hvað það hressist við.
Margir hefjast handa við atvinnu-
umsóknir, eins og þeir vakni til
lífsins. Fólk án atvinnu einangrast
mjög fljótt."
í miðstöðinni er hægt að fá
ókeypis kaffi, brauðsneið fyrir
tuttugu krónur og lesa blöðin en
að Sigrúnar sögn hafa Morgun-
blaðið og Alþýðublaðið, ein dag-
blaða, séð sér fært að láta ókeypis
eintök af hendi rakna. „Þetta hef-
ur gengið mjög erfiðlega hjá okk-
ur. Við höfum auglýst eftir verk-
færum í Smiðjuna án þess að fá
nokkur viðbrögð. Að vísu fengum
við húsgögn frá Skólaskrifstofu
DANÍEL Cornette
Reykjavíkur en fólk hér hefur lagt
til hitt og þetta svo sem kaffivél
og ísskáp." Ein tölva er í miðstöð-
inni með prentara sem ekki getur
prentað súlurit og töflur, engin
ljósritunarvél og bilað fax.
„Við höfum reynt allt til þess
að fá nýjar tölvur. Meirihluti nám-
skeiða sem Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður greiðir niður til stytt-
ingar biðtíma er tölvunámskeið
en það er engin aðstaða fyrir fólk
til þess að æfa sig. Samt er verið
að kenna því nýjustu tækni. Það
er enginn skilningur á þörfum
atvinnulausra og bókstaflega
hætt að heyrast í þeim. Það er
búið að þagga niður í þessum
hópi. Atvinnulausir sitja uppi með
ábyrgðina og sektarkenndina,
ekki þjóðfélagið í heild. Ég hef
hitt þúsundir atvinnulausra en
ekki enn hitt nokkurn sem ekki
vill vinna.“
marfflr daff hvem og í mars sóttu tæplega
130 miðstöðina heim vikulega.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BRYNHILDUR Björnsdóttir ásamt dætrum
sínum, Eydísi og Ingu.
Ný skýrsla til Alþingis leiðir í ljós að viðskipti með fíkniefni eru orðin mjög skipulögð hér á landi
Lagt hald á fíkniefni
fyrir 350 millj. á 10 árum
Magn helstu ólöglegra fíkniefna sem
yfirvöld hafa lagt hald á síðastliðin 11 ár
FfKNIEFNI
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995
Hass, grömm 8.906 10.383 14.916 19.170 9.321 6.760 5.167 20.650 17.699 20.235 10.933
Marijúana, grömm 574 273 236 55 48 74 94 332 86 93 305
Kannabisplöntur, stk. 27 0 16 31 13 15 40 36 53 109 221
Amfetamín, grömm 970 0 365 640 198 199 1.563 1.638 3.375 783 5.146
Kókaín, grömm 24 1.698 534 100 747 206 206 1.295 14 317 143
LSD-skammtar, stykki 2.223 8 0 6 694 58 5 91 69 369 11
Sveppir, grömm 0 0 0 0 0 0 91 144 743 813 158
E-töflur, stykki 0 0 0 0 0 0 0 8 1 22 1.820
LAGT hefur verið hald á fikniefni
að söluverðmæti um 350 milijónir
króna á undanförnum áratug. Mikið
framboð virðist vera á amfetamíni
og LSD auk þess sem mikil aukning
hefur orðið á E-töflum í umferð.
Hass hefur verið ráðandi efni á fíkni-
efnamarkaðnum og virðist stöðugt
framboð á því. Erfitt er að segja til
um hversu mikið hefur verið flutt
af fíkniefnum til landsins á þessu
tímabili. Erlendis er oft miðað við
að lagt sé hald á um tíunda hluta
þeirra efna sem koma inn í Iandið.
Viðskipti með fíkniefni eru orðin
mun skipulagðari hér á landi en
áður var, að því er kemur fram í
30 síðna skýrslu forsætisráðuneyt-
isins um útbreiðslu fíkniefna og þró-
un ofbeldis, sem lögð var fram á
Alþingi í gær. Skýrslan var gerð að
beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur og
níu annarra alþingismanna.
Enginn með hámarksrefsingu
Fíkniefnaneytendum hefur fjölgað
og aldur neytenda lækkað undanfar-
in fimm ár, að því er segir í skýrsl-
unni. Aukið magn fíkniefna sem lagt
er hald á gefur til kynna aukin
umsvif á fíkniefnamarkaðinum.
Hámarksrefsing fyrir fíkniefna-
brot er 10 ára fangelsi en til þessa
hefur enginn hlotið hámarksrefs-
ingu. í fyrra hlutu 226 einstaklingar
dóm eða gerðu dófnssátt í fíkniefna-
málum, 213 karlar og 13 konur, ald-
urshópurinn 20-24 ára var þar fjöl-
mennastur.
Allstór hópur, a.m.k. nokkur
hundruð, hefur beðið varanlegt
heilsutjón vegna fíkniefnaneyslu síð-
astliðin 10 ár. Árið 1994 voru 396
bráðalegur á Ríkisspítölum vegna
ávana- og fíkniefnaneyslu, auk þess
er allnokkur starfsemi á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur vegna sömu mála.
Rannsóknir á vegum lögreglunnar í
Reykjavík sýna að neytendur fíkni-
efna hafa sterka tilhneigingu til
sjálfsvíga. Alls höfðu 30% þeirra sem
handteknir voru vegna fíkniefna-
mála fyrstu fjóra mánuði ársins
1995 gert tilraun til sjálfsvígs.
Nefnd sem dómsmálaráðuneytið
skipaði í ársbyrjun er að gera heild-
arúttekt á forvarnarmálum. Einnig
er unnið að rannsókn á vegum lög-
reglustjórans í Reykjavík á áhrifum
fíkniefnaneyslu á fjölskyldur fíkni-
efnaneytenda. Niðurstaðna þessara
rannsókna er að vænta í sumar.
Breytt mynstur ofbeldis
Skýrslur frá slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur sýna Iitla fjölgun ofbeld-
ismála frá 1975-1995 að teknu til-
liti til íjölgunar íbúa. Hins vegar
hefur mynstur ofbeldis breyst. Aukin
áfengis- og fíkniefnaneysla vegur þar
þungt og hefur aukið alvarleika
verknaða. Oft er um lilefnislausar
árásir að ræða. Lögregluskýrslur
sýna að áfengi er án efa sá vímu-
gjafi sem helst verkar til ofbeldis auk
þess sem hátt hlutfall fórnarlamba
ofbeldis er undir áhrifum áfengis.