Morgunblaðið - 30.04.1996, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
_ ^
Eimskip hlýtur Utflutnings
verðlaun forseta íslands
Vatnsfélag
Suðurnesja hf.
Tilrauna-
sending-
ar lofa
góðu
VATNSFÉLAG Suðurnesja hf. hefur
gengið frá tveimur tilraunasending-
um af vatni til Bandaríkjanna. Alls
er um að ræða u.þ.b. 30 þúsund
flöskur, sem hver um sig er 1 72 lítri.
Kaupendur eru innflutningsfyrirtæki
og stór verslunarkeðja í New York,
sem eru að vinna að markaðsathugun
á vatninu.
Að sögn Árna Ragnars Ámason-
ar, alþingismanns og stjórnarfor-
manns Vatnsfélags Suðurnesja hf.,
hafa þessar tilraunasendingar gefið
góða raun. í framhaldinu hafi verið
ákveðið að fara út í mun víðtækari
markaðssetningu á vatninu en ráð
var fyrir gert í upphafí.
Muni erlendu aðilarnir taka
ákvörðun um frekari viðskipti í fram-
haldi af þessu átaki. „Við gerum
okkur vonir um að þessi mál skýrist
endanlega á þessu ári. Bestu vonir
segja fyrir mitt árið en ég er ekki
alveg viss um að það takist," segir
Árni.
Vatnsfélag Suðumesja hf. var
stofnað haustið 1993 og bytjaði fljót-
lega að framleiða fyrir aðila í Ohio
í Bandaríkjunum. Þau viðskipti
gengu hins vegar ekki að óskum, að
sögn Áma, þar sem sá aðili reyndist
ekki vera dreifingaraðili á mat- né
drykkjarvöru og tókst ekki að koma
sér inn á það svið.
Þegar komið var fram á árið 1994
þótti ljóst að þau viðskipti ættu ekki
framtíð fyrir sér. Árni segir að þá
hafi verið farið að vinna að því að
afla fyrirtækinu nýrra viðskipta-
tengsla í Bandaríkjunum.
Markaðsaðstæður erfiðar
Ámi segir að framleiðsla Vatnsfé-
lagsins hins vegar verið mjög stopul
að undanfömu enda aðeins framleitt
í þessar tilraunasendingar. Hann seg-
ir hins vegar að markmiðið sé að ná
samningum sem nýti framleiðslugetu
verksmiðjunnar, sem sé umtalsverð,
betur.
Hann segir hins vegar ljóst að
markaður fyrir innflutt vatn sé enn
mjög takmarkaður í Bandaríkjunum.
Bandaríkjamenn telji eigin vöru betri
auk þess sem vatnið sé enn mjög
ódýrt. Því sé flutningskostnaðurinn
umtalsverður hluti af framleiðslu-
kostnaði þess. Hins vegar hafi ís-
lenska vatnið staðist allar prófanir
með glæsibrag og almennt þyki það
vera mjög tært og hreint í alla staði.
EIMSKIP hefur hlotið Útflutnings-
verðlaun forseta Islands í ár og
voru verðlaunin afhent við hátíð-
lega athöfn sl. sunnudag á Bessa-
stöðum. Þetta er í áttunda sinn seni
Útflutningsráð veitir verðlaunin í
samvinnu við embætti forseta Is-
lands.
Verðlaunin eru veitt fyrir það
hversu markvisst Eimskip hefur
brotið sér leið með starfsemi sína
inn á erlendan markað, þar sem
meginsamkeppnisþátturinn hefur
verið íslensk þekking, reynsla og
hugvit, að því er fram kom í ávarpi
Páls Sigurjónssonar, formanns út-
hlutunarnefndar.
„Eimskip hefur á stuttum tíma
breyst úr því að vera skipafélag í
það að verða alhliða þjónustu- og
flutningafyrirtæki með heima-
markað á Norðvestur-Atlantshafi
og sívaxandi umsvif í okkar heims-
hluta,“ sagði Páll. „Úthlutunar-
nefndin telur mikilvægt að Islend-
ingar hasli sér völl á erlendri
grund og hefur áhuga á að sjá fleiri
gera það en þegar hefur orðið. Það
styrkir starfsemi fyrii-tækjanna,
flytur jafnframt inn starfsþekk-
ingu og reynslu og leysir að
nokkru leyti upp þá takmarkandi
þætti sem smæð hins íslenska
samfélags setur. Aukin starfsemi
Eimskips erlendis er því ávinning-
ur fyrir íslenska útflyljendur og
styrkir samkeppnisstöðu þeirra,
hún nýtir og selur íslenska þekk-
ingu og hugvit og aflar reynslu
erlendis sem síðan nýtist innan-
lands.“
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, færði í ávarpi sínu sér-
stakar þakkir til forseta Islands
og Útflutningsráðs fyrir viður-
kenninguna og fyrir sjálf verðlaun-
in sem hann sagði táknræn fyrir
grunnþáttinn í starfsemi félagsins.
„Reynslan sem við höfum fengið
á undanförnum árum hefur kenut
okkur margt. I fyrsta lagi næst
sjaldan árangur á erlendri grund
með leiftursókn. Varanlegur
árangur næst ekki nema með
margra ára markvissu og þrot-
lausu starfi. I öðru lagi þarf sterk-
an heimamarkað og gott orðspor
til að geta náð betri árangri en
erlendir keppinautar. Það er
grundvallaratriði að íslensk fyrir-
tæki bjóði framúrskarandi vöru og
þjónustu ef þau eiga að geta keppt
með góðum árangri á erlendum
mörkuðum. Mikilvægast er þó að
hafa á að skipa góðu starfsfólki
með grundaða þekkingu og
stjórnunarhæfileika," sagði hann
Sparisjóður
Þórshafnar
2 millj.
tap á síð-
astaári
Þórshöfn. Morgnblaðið.
TÆPLEGA 2 milljóna króna tap
varð á rekstri Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis á síðasta
ári. Þar vegur þyngst að framlag
í sérstakan afskriftareikning var
rúmar 20 milljónir. Þetta fram-
lag var ekki að ófyrirsynju því
gjaldþrot þriggja fyrirtækja
hafa dunið yfir staðinn með
stuttu millibili. Til samanburðar
má geta að hagnaður ársins þar
áður var tæpar 7 milljónir króna.
Þetta kom fram á aðalfundi
Sparisjóðs Þórshafnar og ná-
grennis sem haldinn var síðasta
dag vetrar. Heildarinnlán Spari-
sjóðsins um síðustu áramót voru
tæpar 314 milljónir og drógust
þau saman um 3,6% frá árinu
á undan. Eigið fé nam 99,6
milljónum og eiginfjárhlutfall
samkvæmt Bis-reglum um 28%.
Samkvæmt lögum um sparisjóði
má Bis-hlutfallið ekki vera
lægi'a en 8%. Þetta hlutfall hef-
ur þó lækkað því í árslok 1994
var það 34,5%.
„Alvarlegir hlutir“ komu
í ljós í desember sl.
Nýr sparisjóðsstjóri hefur ver-
ið ráðinn til starfa við sparisjóð-
inn, Halldór Karl Hermannsson,
sem áður var sveitarstjóri á
Suðureyri. Síðastliðna fjóra
mánuði hefur fulltrúi sparisjóðs-
ins, Ragnhildur Karlsdóttir,
gegnt stöðu sparisjóðsstjóra eft-
ir skyndilega burtför fyrrverandi
sparisjóðsstjóra.
Löggiltur endurskoðandi
Sparisjóðsins, Björn St. Haralds-
son, kom í reglubundið eftirlit í
sparisjóðinn í desember sl. og
að hans sögn komu þá í ljós
alvarlegir hlutir sem leiddu til
þess að þáverandi sparisjóðs-
stjóri lagði fram uppsagnarbréf
og lét samdægurs af störfum.
Endurskoðandinn sagði ekki rétt
á þessu stigi málsins að greina
frá hvers eðlis það væri en lög-
fræðingur sparisjóðsins hefur
sent það til ríkissaksóknara.
Björn St. Haraldsson sagði enn-
fremur að þegar málsmeðferð
þar væri lokið þætti honum eðli-
Íegt framhald málsins að boðað
yrði til fundar með hluthöfum
og greint frá eðii málsins.
Stjórn sparisjóðsins var end-
urkjörin með meirihluta at-
kvæða.
m.a.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VERÐLAUNAGRIPURINN í ár er gerður af listakonunni Sólveigu Baldursdóttur myndhöggvara
og nefnist Foss. Á myndinni sést Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskips ásamt Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta íslands við verðlaunaafhendinguna.
SR-mjöl hf. stendur frammi fyrir fækkun útgerðarmanna og minni aflaheimildum í hluthafahópnum
Möguleiki á að félagið
færi siginn í veiðamar
Aðalfundur samþykkir heimild til 120 millj. hlutafjáraukningar
SR-mjöl hf. stendur nú frammi fyr-
ir því að útgerðarmönnum innan
hluthafahópsins fer fækkandi og
skip þeirra og aflaheimildir hafa
færst á hendur aðila sem ekki hafa
landað hjá verksmiðjunum.
Félagið getur brugðist við með
ýmsum hætti til að styrkja stöðu
sína, en þá er ljóst að fjárhagslegir
burðir þurfa að vera meiri, að því
er fram kom í ræðu Benedikts
Sveinssonar, stjórnarformanns SR-
mjöls, á aðalfundi félagsins á föstu-
dag. Þar var samþykkt að veita
stjórn félagsins heimild til að auka
hlutafé um 120 milljónir.
„Einn möguleikinn er að félagið
færi sig inn í veiðamar, gerist hlut-
hafí eða eigandi skipa eða útgerðar-
félaga. Annar möguleikinn er sá
að styrkja stöðu verksmiðjanna með
þeim hætti að þær geti ávallt greitt
hæsta verð af öllum. Slíkt kallar á
tæknilega og markaðslega yfir-
burði. Þriðji möguleikinn er að haga
legu verksmiðja með þeim hætti að
tryggt sé að hráefni berist þrátt
fyrir harða samkeppni. Segja má
að með byggingu verksmiðjunnar í
Helguvík sé stigið mikilvægt skref
í þessa átt. Allir þessir möguleikar
kalla á fjármagn. Erfitt er að meta
hvaða leiðir skynsamlegast er að
velja. Hugsanleg lausn er sambland
af þessum kostum og vissulega
dreifír sá kostur áhættu.
í dag hefur SR-mjöl hf. sterka
eiginfjárstöðu. Félagið er vel í stakk
búið til að taka áföllum á borð við
aflabrest og jafnvel áföllum í mark-
aðsverði. Eigi félagið hins vegar
að styrkja stöðu sína á þá vegu sem
hér hefur verið lýst, er ljóst að fjár-
hagslegir burðir þurfa að vera
meiri. Af þessum sökum verður lögð
fram tillaga á þessum fundi að
stjórn félagsins fái heimild til að
auka hlutafé fyrirtækisins um 15%
með áskrift nýrra hluta. Við teljum
þetta nauðsynlegt til þess að félag-
ið öðlist möguleika á að bregðast
við nýjum kringumstæðum sem
kalla á aukið fjármagn,“ sagði
Benedikt.
Samdráttur í vinnslu í fyrra
Verulegur samdráttur varð í
vinnslu loðnu á árinu 1995 hjá
SR-mjöli. Á tímabilinu janúar til
marsloka bárust um 107 þúsund
tonn af loðnu til fyrirtækisins, sem
er 47 þúsund tonnum minna en á
vetrarvertíð 1994. Á árinu 1995
bárust 74 þúsund tonn af síld í maí
og júnímánuði úr norsk-íslenska
stofninum og hafði það afgerandi
áhrif á afkomu ársins. Um haustið
bárust 18 þúsund tonn af síld til
verksmiðjanna, en einungis 78 þús-
und tonn af loðnu bárust á sumar-
og haustvertið. Heildarafli, sem
barst til SR-mjöls á árinu, var um
274 þúsund tonn, sem er um 30
þúsund tonna samdráttur frá 1994.
Benedikt sagði hins vegar, að
þetta ár lofaði mjög góðu í rekstri
félagsins. í vetur bárust um 170
þúsund tonn af loðnu, sem er ríf-
lega 60 þúsund tonnum meira en í
fyrra. Þar af voru flutt 23 þúsund
tonn af suðvesturhorninu til vinnslu
í verksmiðjunum. Framundan eru
veiðar í norsk-íslenska síldarstofn-
inum, en þær veiðar hefjast 10.
maí nk. „Spár fiskifræðinga benda
ekki til annars en að veiðar á loðnu
og síld geti áfram verið öflugar
þótt loðnan sé stundum laus á kost-
um. SR-mjöl hf. er í afar góðri
aðstöðu til að nýta sér þau færi sem
gefast og tilkoma verksmiðju í
Helguvík verður til að styrkja þá
stöðu verulega.“
Á fundinum var samþykkt að
greiða 8% arð á hlutafé félagsins,
sem nú er 812,5 milljónir. í stjórn
voru kjörnir Benedikt Sveinsson,
Gísli Marteinsson, Gunnar Þór
Ólafsson, Þorsteinn Húnbogason og
Örn Erlingsson.