Morgunblaðið - 30.04.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 19
ERLENT
Minnihlutastj órn hægrimanna í Alþýðufylkingunni á Spáni að fæðast
Aznar tryggir
sér stuðning
Katalóna
Madrid. Reuter.
FLOKKUR Katalóna (CiU), sem er
í oddaaðstöðu á spænska þinginu,
staðfesti á sunnudag samning um
samstarf sem gerður var við sigur-
vegara þingkosninganna 3. mars,
Alþýðufylkinguna (PP), undir for-
ystu José María Aznars. Viðræðurn-
ar hafa staðið í nær tvo mánuði.
Katalónía og önnur hálf-sjálfstæð
héruð Spánar munu fá að innheimta
30% af tekjuskatti og sjálfræði þeirra
verður aukið á fleiri sviðum.
16 liðsmenn CiU á þingi munu
greiða Aznar atkvæði sitt á laugar-
dag þegar ákveðið verður hver fær
umboð til að mynda nýja minnihluta-
ríkisstjóm í stað sósíalistans Felipe
González sem verið hefur við völd
frá 1982. Ekkert er sagt um tíma-
lengd samningsins en Jordi Pujol,
leiðtogi CiU, sagðist vona að sam-
starfið yrði við lýði allt kjörtímabilið
sem er fjögur ár.
„Við undirrituðum ekki þennan
samning með það í huga að bijóta
hann eftir eitt ár,“ sagði Pujol á
fréttamannafundi en viðurkenndi
aðspurður að ekki væri hægt að
tryggja neitt í þeim efnum. CiU gerði
sams konar samning við González
og dugði hann í hálft þriðja ár en
þá rauf Pujol hann vegna íjölmargra
hneykslismála sósíalista er grafið
höfðu undan stjórn þeirra.
Rannsóknardómari á vegum
hæstaréttar Spánar, Emilio Vez,
sagði á föstudag að engar vísbend-
ingar hefðu fundist um að González
hefði vitað um mannréttindabrot lög-
gæslumanna á Böskum í stríði stjórn-
valda gegn baskneskum hryðju-
verkamönnum á níunda áratugnum.
Myndi rétturinn „að líkindum" gefa
út yfirlýsingu þessa efnis á næstu
dögum þar sem öllum ákærum á
hendur González og tveim öðrum
háttsettum ráðamönnum yrði vísað
á bug.
Ný stjórn í næstu viku
Búist er við að stjórn Aznars geti
tekið við í næstu viku og með hjálp
CiU og íjögurra þingmanna frá Kan-
aríeyjum mun stjórnin hafa eins at-
kvæðis meirihluta á þingi en þar sitja
350 fulltrúar. Aznar reynir einnig
að fá stuðning fimm baskneskra
þingmanna en liðsafli þeira dugar
skammt ef Katalónarnir hrökkva frá.
Hægrimenn Aznars hafa lengi
verið andvígir auknu sjálfræði hérað-
anna og því ljóst að þeir hafa orðið
að kaupa stuðning Katalóna dýru
verði. Pujol sagði flokk sinn hafa náð
mun meira fram en honum tókst í
samstarfinu við sósíalista.
Blaðið EI País, sem styður sósíal-
ista, birti skopmynd af Pujol með
vængi og kórónu þar sem hann lyft-
ir Aznar upp á súlu. „Þar til dauðinn
aðskilur okkur?“ spyr Aznar. „Þang-
að til ég verð þreyttur," svarar Pujol.
Reuter
JORDI Pujol, leiðtogi flokks Katalóna (CiU) og José María Aznar,
leiðtogi Alþýðufylkingarinnar (PP) á Spáni, heilsast eftir að hafa
náð samkomulagi um samstarf flokkanna á þingi.
Whitewater-
fjársvikamálið
Clinton
forseti
ber vitni
Washington. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti bar
á sunnudag vitni. bak við luktar dyr
í Whitewatermálinu. Var vitnis-
burðurinn tekinn upp á 'myndband
er notað verður síðar í sjálfum rétt-
arhöldunum sem fram fara í Ark-
ansas.
Ákærð eru hjónin James og Sus-
an McDougal sem sökuð eru um
að hafa með sviksamlegu hætti
notað fé úr sparisjóði, er McDougal
rak, til að íjármagna Whitewater-
byggingafyrirtækið. Clinton og eig-
inkona hans, Hillary, lögðu árið
1978 fram fé í fyrirtækið sem'reisti
sumarhús en fór á hausinn. Forset-
inn hefur ekki verið sakaður um
neitt ólögmætt sjálfur.
Yfirheyrslan fór fram í svonefndu
kortaherbergi Hvíta hússins þar
sem Franklin D. Roosevelt forseti
fékk á sírium tíma skýrslur hers-
höfðingja sinna um gang mála í
heimsstyijöldinni síðari.
Ciinton svaraði spurningum lög-
manna McDougal-hjónanna í 45
mínútur en alls varði yfirheyrslan
í fjórar og hálfa klukkustund. Þyk-
ir ljóst að megnið af tímanum hafi
farið í spurningar iögmanna Kenn-
eth Starrs rannsóknardómara sem
þingnefnd fól að að kanna hvort
forsetinn hefði misnotað aðstöðu
sína á rikisstjóraárunum í Arkansas
og reynt síðar að blekkja yfirvöld
við rannsókn málsins.
Dodge Rain
Bíllinn sem fer sigurför um Bandaríkin
og slær öll sölumet. Einn umtalaðasti
bíllinn á markaðnum í dag.
Dodge Ram er ekta amerískur pallbíll,
kraftmikill, rúmgóður og traustur.
Þú getur valið umV8, VIO eða Cummins
Turbo diesel.frægustu dieselvélina sem
framleidd hefur verið.
Auðveldur í breytingum.
Dodge Ram er til í ýmsum
útfærslum og möguleikarnir
eru nánast óþrjótandi:
Vinnubíll, ferðabíll,
fjölskyldubíll, fjallabíll, lúxusbíll...
Þetta allt sameinast í Dodge Ram.
Sérstaklega rúmgóður
Það er siðferðileg skylda allra áhugamanna um jeppa og
pallbíla að koma og reynsluaka Dodge Ram. Því fyrr því betra
þar sem þeir seljast upp jafnóðum.
Nýbýlavegur 2
Síml: 554 2600