Morgunblaðið - 30.04.1996, Side 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölbraut í Garðabæ í samvinnu við þijá erlenda skóla í Suður-Evrópu
Útflutningsskólinn
Samskipti við Italíu
með hjálp orðabókar
UM SJÖTÍU nemendur og fimm
kennarar í Fjölbrautaskóla
Garðabæjar (FG) eru í þriggja
ára Comenius-samstarfi við
framhaldsskóla í Róm á Ítalíu,
Þessalóníu í Grikklandi og
Madríd á Spáni. Skólinn í
Madríd er jafnframt stýriskóli
verkefnisins, sem ber heitið
Fiskurinn og hafið. Verkefnið
er unnið í ýmsum námsgreinum,
svo sem í áfanga sem nefnist
SAM og er samþætting félags-
vísindagreina og íslensku, lista-
sögu, myndlist og fjölmiðla-
fræði.
Aðalbjörg Helgadóttir, kenn-
ari við FG, er verkefnisstjóri
og sagði hún samvinnu af þessu
tagi vera vítamínsprautu fyrir
kennara ekki síður en nemend-
ur, því hægt væri að brjóta upp
hefðbundna kennslu. Fjöldi
vettvangsferða hefur verið far-
inn innanlands þar sem teknar
hafa verið Ijósmyndir og kvik-
myndir sem sendar verða utan.
Latnesk heiti ístað ensku
Aðalbjörg segir nemendur
hafa sýnt verkefninu mikinn
áhuga og þeir verið tilbúnir að
leggja mikið á sig til að vanda
verkefnin eins og að leita að
latneskum heitum þegar í ljós
kom að ekki var hægt að skrifa
á ensku. „Við héldum að við
gætum talað alþjóðatungumál-
ið, ensku, en öll samskipti við
Spán verða að fara fram á
spænsku. Við erum því vel sett
að hafa spænskumælandi fólk
innan skólans. Grikkir eru aftur
á móti sæmilegir í ensku en við
höfum orðið að stauta okkur
fram úr ítölsku bréfunum með
orðabók okkur við hlið.“
Hún sagði markmiðið með
verkefninu að víkka út samstarf
og skilning á milli þjóða og benti
skólar/námskeið
tölvur
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
' - PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows
! - Internet námskeið
f - Tölvubókhaid
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Barnanám
- Unglinganám í Windows
- Unglinganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja ölium námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
. í síma 561 6699, netfang
tolskrvik@treknet.is,
veffang www.treknet.is/tr.
a» Tolvuskoli Reykjavíkur
lifjrKðrtúni 28, sími 561 6699.
tungumál
■ Enskunám í Englandi
í boði er enskunám alit árið við virtan
enskuskóla. Barna- og unglinganámskeið
6-18 ára í sumar. Fararstjórn með
yngstu nemendum. Fjðiskyldur velkomn-
ar. Fámennir hópar. Fæöi og húsnæði
hjá enskri fjölskyldu. Skoöunarferðir og
íþróttir í lok skóladags og um heigar.
Allar nánári upplýsingar gefur
Marteinn M. Jóhannsson eftir
kl. 18.00 fsíma 581 1652.
nudd
■ Betri árangur við aukafitu
Sogæðanudd - trimmform -
Sellulite-olíunudd
Örvaðu ónæmiskerfið og losaöu líkama
þinn vió uppsöfnuð eiturefni, aukafitu
og bjúg.
Mataræðisráðgjöf innifalin.
Norðurljósin,
heilsustúdíó,
Laugarásvegi 27,
sími 553 6677.
■ Heilsa og vellfðan
Býð upp á heildrænt nudd og ráógjöf
varðandi heilsu og vellíóan. Einnig parta-
nudd og svæðanudd. Hef margra ára
reynslu og nám að baki.
Tímapantanir og upplýsingar í Heilsu-
efli, sími 588-3881.
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein pláss laus á vornámskeið í
maí-júní.
Hannes Flosason, s. 554 0123.
■ Nám í cranio sacral- jöfnun
1. hluti af þremur
22.-28. júní. Kennari: -
Svarupo H. Pfaff, lög- ' j
giltur „heilpraktikerin"
frá Þýskalandi.
Uppl. og skráning í
síma 564 1803.
myndmennt
■ Glerlistanámskeið
Jónas Bragi, gierlistamaður, heldur nám-
skeið í steindu gleri og glérbræðslu.
Nánari upplýsingar í símum 562 1924
og 554 6001. .
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparió og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglæróur kennari.
Sigrfður Pétursd., s. 551 7356.
heilsurækt
■ Qi Gong morgun-námskeið
Öndun - Hreyfing - Einbeiting
Mán. - mió. - fös. kl. 7.45 til 8.45 og
9.15 til 10.15.
Kennari Helga Jóakims.
Uppl. og skráning í símum 568 6516
og 581 1851.
Aukin orka - Hugarró
Þri. ogfim. kl. 7.45-8.45 og 9.15-10.15.
Kennari Matti Osvald.
Uppl. í skráning í síma 567 8850.
Einfaldar og áhrifaríkar æfingar fyrir
alla. Námskeiðin hefjast 7. maí og lýkur
31. maí.
Sjálfefli,
Nýbýlavegi 30, Kóp.
(gengið inn Dalbrekkumegin).
Fjöidi fyrir-
spurna
en fáar
umsóknir
Ljósmynd/Sigurður Jökull Ólafsson
NEMENDUR fóru meðal annars í fjöru og unnu að myndverki
um hafið undir leiðsögn kennara.
á að áhugi nemenda hefði til
dæmis aukist á því sem væri að
gerast í samstarfslöndunum.
Madríd sýndi áhuga
Forsaga málsins er sú að
nokkrir kennarar FG lögðu inn
umsókn til Comenius-áætlunar-
innar, sem er samstarfsverkefni
á grunn- og framhaldsskóla-
stigi, þar sem fram koniu ýmsar
hugmyndir um viðfangsefni.
Skólinn í Madríd sýndi áhuga á
samstarfi en þeirra uppástunga
var hafið og það sem því teng-
ist. „Hafið skiptir okkur máli í
alla staði, þannig að við gengum
inn á það,“ sagði Aðalbjörg.
Hún ásamt öðrum kennara
og skólameistara FG fóru síðan
til Madríd í janúar til að hefja
samstarfið. „Á þeim fundi sett-
um við niður tíu efnisþætti sem
við ætlum að vinna með og þar
má til dæmis nefna vistfræði
hafsins. Meðal hugmynda er að
búa til matreiðslubók úr fiskaf-
urðum, þar sem hvert land legg-
ur sitt af mörkum. Því má segja
að um menningarlega mat-
reiðslubók sé að ræða, þar sem
eitthvað verður skrifað sam-
hliða uppskriftunum,“ sagði
Aðalbjörg.
Hún segir ennfremur að
listahópurinn hafi kannað
hvaða íslensku listamenn hafi
málað mótíf tengd hafinu og
tónlistarhópur hafi skoðað tón-
list og texta sem tengjast haf-
inu. „Einnig höfum við tekið
fyrir fiskana í sjónum, sjófugla,
seli, hvali og fleira.“
Þess má geta að 10-15
kennarar frá Ítalíu, Grikklandi
og Spáni, sem koma að sam-
starfinu, eru væntanlegir til
íslnds á haustmánuðum.
FJÖLDI fyrirspurna hefur borist
undanfarna daga vegna sex vikna
sumarnáms á vegum Utflutnings-
skólans en umsóknir eru ekki
orðnar mjög margar enn seni kom-
ið er, að sögn Sigurðar Ágústs
Jenssonar verkefnisstjóra. Skólinn
verður starfræktur í samstarfi við
Danska útflutningsskólann og
stendur yfir 10. júní til 21. júlí á
Sauðárkróki. Hámarksfjöldi nem-
enda verður fimmtán. Meðal kenn-
ara verða skólastjóri og fjórir
kennarar Danska útflutningsskól-
ans.
Meðal þeirra sem standa að
skólanum eru nokkur fyrirtæki á
Sauðárkróki, kaupfélagið þar og
dótturfyrirtæki þess, SH og ís-
lenskar sjávarafurðir auk nokk-
urra einstaklinga. Námið kostar
260 þúsund krónur með húsnæði
og er möguleiki á að veita þremur
einstaklingum sem sækja um skól-
ann á eigin vegum styrk að upp-
hæð 150 þúsund krónur hverjum.
„Við reiknum með að fyrirtæki
styrki starfsmenn sína til námsins.
Hluti af náminu er verkefnavinna,
sem fyrirtækin fengju til baka,“
sagði Sigurður.
Krafist er stúdentsprófs inn í
skólann auk tveggja ára starfs-
reynslu. Þar sem námið fer að ein-
hvetju leyti fram á ensku er gert
ráð fyrir nokkurri enskukunnáttu.
17. júní 1996
Þjóðhátíöarnefnd Reykjavíkurborgar óskar
eftir tilboðum í atriði sem flutt yrðu á 17. júní í
ár. Um er að ræða leikþætti, tónlistarflutning
og skemmtiatriði fyrir börn og fullorðna.
Skemmtidagskrá mun standa í miðbænum kl.
14.00 - 17.30 og 20.00 - 01.00.
Umsóknum skal skila fyrir 10. maí á skrifstofu
ÍTR Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar
fást.
Nánari upplýsingar j síma 562 2215.
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur.
íþrótta- og tómstundaráð.