Morgunblaðið - 30.04.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 35
MINNINGAR
JONLINA
ÍVARSDÓTTIR
+ Jónlína Ivars-
dóttir fæddist á
Djúpavogi 27. júlí
1907. Hún andaðist
á Hrafnistu í Hafn-
arfirði 21. apríl sið-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Anna
Margrét Jónasdótt-
ir (1872-1949) og
ívar Halldórsson
(1872-1953). Jón-
lína átti eina hálf-
systur, Þórunni (lát-
in), voru þær sam-
mæðra og fimm al-
bræður: Hannes,
Kristin, Sigurð, Björgvin og
Inga Björn (allir látnir). 28. maí
1929 giftist Jónlína Þórarni
Engilbert Bjarnasyni frá Reyð-
arfirði, f. 9. nóvember 1907, d.
14. apríl 1987. Börn þeirra eru:
1) Bjarni, f. 5.10.1929, kvæntur
Svanhildi Jónsdóttur, f. 18.10.
1930. 2) Þóranna, f. 3.10. 1930,
gift Ingólfi Árna-
syni, f. 1.12. 1921,
d. 7.8. 1993. 3) Ás-
dís, f. 27.6. 1934,
gift Bjarna Björg-
vinssyni, f. 23.8.
1934. 4) Óskar, f.
21.12. 1941, kvænt-
ur Gunnu Sigríði
Kristjánsdóttir, f.
30.6. 1944. 5) ívar,
f. 14.2. 1947,
kvæntur Maríu
Haukdal Jónsdótt-
ir, f. 31.3. 1948. 6)
Þórir, f. 24.9. 1949,
kvæntur Kristínu
Elídóttur, f. 14.8. 1951. 7) Val-
ur, f. 3.3. 1951, kvæntur Olafíu
Andrésdóttur, f. 27.10. 1955.
Frá börnum Jónlínu og Þórar-
ins er kominn stór hópur af-
komenda.
Útfjör Jónlínu fer fram frá
Hafnarfjarðarkirlq'u í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
í dag er kvödd hinsta sinni kær
tengdamóðir mín hún Lína, eins
og hún var ávallt kölluð af þeim
sem best þekktu hana, þannig vildi
hún sjálf hafa það.
Ég kynntist henni vorið 1970
þegar ég kom í fyrsta sinn austur
á Reyðarfjörð, þá nýtrúlofuð
Dodda (Þóri) næstyngsta syni Linu
og Tóta. Þangað var ég komin til
að dvelja yfir sumarið því Doddi
var að fara til sjós á bát frá Reyð-
arfirði.
Þó .nokkur kvíði var í mér við
að hitta væntanlega tengdafor-
eldra, þau Línu og Tóta, en sá
kvíði reyndist ástæðulaus þegar á
staðinn var komið því mér var af-
skaplega vel tekið af þeim báðum,
föðmuð og kysst og boðin velkom-
in. Ekki hafði Lína heldur verið
kvíðalaus fyrir komu okkar en
ekki veit ég hvort vó þyngra, að
hitta væntanlega tengdadóttur eða
það hvort við Doddi kæmumst
heilu og höldnu á leiðarenda. Það
var einmitt einkennandi fyrir Línu
að vera óróleg ef einhver henni
nákominn var að ferðast þar til
hún var fullviss um að viðkomandi
væri kominn á áfangastað. Þetta
kalla ég umhyggjusemi - það að
vita af sínum á öruggum stað.
í eldhúsinu á Klöpp, en það er
húsið nefnt sem þau áttu, beið
okkar Dodda hlaðið borð af smurðu
brauði og tertum. Það var hennar
yndi að veita vel. Því átti ég eftir
að kynnast betur. Lína var búin
að undirbúa dvöl mína þetta sumar
með því að leggja inn orð um vinnu
fyrir mig hjá Skarphéðni á hóteli
KHB, sem ég og fékk. Hún sá um
sína, blessunin.
Lína mín var afskaplega hrein-
skilin í orði og lá ekki á skoðunum
sínum, sagði hreint út hvað henni
fannst um hlutina, en hafði svo
stundum áhyggjur af hvort einhver
hefði móðgast við hana og gekk
úr skugga um hvort svo hefði ver-
ið því hún vildi vera í sátt við Guð
og menn. Lína var mjög trúuð
kona og ól börnin sín upp í sam-
ræmi við það. Á þeim tímum þegar
messum var útvarpað sat hún við
útvarpstækið með sálmabókina,
hlustaði á ræðu prestsins og söng
sálmana með kórnum enda hafði
hún alla tíð mikla ánægju af söng
og um tíma var hún í kirkjukórnum
á Reyðarfirði. Henni var líka tamt
að syngja við heimilisstörfin.
Lína og Tóti fluttu til Hafnar-
fjarðar 1972. Fastur liður í lífi
okkar Dodda var sunnudagsheim-
sókn með drengina okkar til Línu
og Tóta, á það líka við um hin
börnin þeirra og barnabörn sem
bjuggu næst þeim og var því oft
stór hópur saman kominn á heim-
ili þeirra. Ef við vorum ekki komin
á hefðbundnum síðdegiskaffitíma
hringdi Lína til að vita hvað tefði
okkur. Ævinlega komum við að
tilbúnu kaffiborði. Eftir kaffi og
meðlæti var oftast farið að spila
„Hornafjarðarmanna" við tengda-
pabba, reyndar voru karlmennirnir
áhugasamari við spilamennskuna.
Við kvenfólkið sátum að spjalli á
meðan. Barnabörnin tóku þátt í
spilunum af miklum ákafa og voru
mörg hver ekki há í loftinu þegar
þau kunnu að spila „manna“. Afi
þeirra kenndi þeim einnig að leggja
ýmsa kapla en hann stytti sér
gjarnan stundir við þá iðju, en Lína
sat þá við að sauma út í púða og
veggmyndir. Einnig las hún
ógrynni af skáldsögum, einkum
ástarsögur og lifði sig svo inn í
sögurnar að oft runnu tárin á
meðan hún las. Það var henni erf-
itt að sætta sig við að geta ekki
lesið eftir að sjóninni hrakaði.
Eftir að Tóti dó leið Linu mjög
illa að vera ein, sérstaklega á
næturnar í svartasta skammdeg-
inu og gisti hún hjá okkur Dodda
einn vetur en dvaldi heima hjá sér
yfir daginn.
Sumarið 1992 flutti Lína á
Hrafnistu í Hafnarfirði og var þá
orðin nokkuð lasburða. Síðustu tvö
árin var hún á hjúkrunardeild þar
sem hún naut frábærrar umönnun-
ar og er starfsfólki þakkað fyrir
notalegheitin og hjáípina við Línu.
Heilsu hennar hrakaði ört síðustu
mánuðina en hugsunin var skýr
fram undir það síðasta. Til marks
um það má geta þess að hún fylgd-
ist af ákafa með framhaldssögum
sem lesnar voru fyrir sjúklingana
og sagði hún okkur frá söguper-
sónunum og beið spennt eftir fram-
haldinu.
Lína var lengi búin að vera ósátt
við líkamlegt ástand sitt, allt þrek
farið og þráði hún hvíldina eilífu.
Guð varð henni líknsamur og tók
hana til sín. Hjá honum trúi ég
að hún hafi hitt Tóta sinn aftur.
Til þín, ó, Guð, ég hljóður huga sný, -
við heimsins iðutorg ég þreyttur bý.
Þú getur veitt mér föpuð, ljós og frið,
ó, faðir, ég um þína návist bið.
Af sviði lífsins hverfa þau eitt
af öðru sem ég átti með svo ágæta
fylgd á ævivegi áður. Hugumþekk
er mynd mætrar heiðurskonu sem
nú hefur kvatt, aldin að árum og
ærið södd lífdaga. í hug kemur
helzt hinn geislandi lífskraftur
hennar og dáðríkur dugnaður.
Henni Línu á Klöpp, eins og hún
var kölluð af okkur sveitungum
hennar, var sannarlega ekki fisjað
saman. Allt hennar ævistarf ein-
kenndist af fórnfýsi og samvizku-
semi, léttri lund hennar var við
brugðið, skap hennar þó heitt en
hlýtt var hjartalagið, hláturinn dill-
andi léttur og svo þessi einstaka
eljusemi við allt það er hún tók sér
fyrir hendur. Hún var móðir og
húsmóðir af þeirri hjartans rausn
og reisn, þar sem kærleikur og
kraftur fara saman, þar sem ekki
er undan látið og öllu til skila hald-
ið sem skyldan býður.
Henni Línu varð hvarvetna vel
til vina, viðmótið gefandi og elsku-
legt, lundemið ljúft og hressilegt
um leið, rösk og hiklaus í hverri
grein, góð greind og athyglisgáfa
farsælar eigindir á ævibraut.
Hún var sannkölluð félagsvera,
naut samvista og samskipta við
aðra, einarðar skoðanir óspart viðr-
aðar, en af sanngirni settar fram,
og öðru fremur var lífsviðhorf
hennar mótað af bjartsýni og trú-
mennsku, skýr var skyldurækni
hennar, skörp var málafylgjan.
Umfram allt var hún ljómandi af
lífsgleði, kunni vel á kímninnar
strengi, fasið fijálslegt, fótatakið
létt. Hún á í minningu minni fal-
lega mynd góðrar, sannrar mann-
kostakonu, þar sem auðlegð atorku
og atgervis átti heima.
Heimilið var hennar staður enda
börnin 7 og kyrrð hvíldarinnar
heldur sjaldgæf enda hefði hún illa
kunnað auðum höndum að sitja.
Hún tók virkan þátt í starfi Kvenfé-
lags Reyðarfjarðar, þess merka
félags, sem á sína undurgóðu sögu
margra mætra verka, verðug þess
að vera skráð. Þar naut Jónlína sín
í hveiju einu sem að var iðjað, aldr-
ei neitt eftir talið, þó á sig væri
bætt eftir önnina daglangt.
Jónlína var fríð kona og fínleg,
suðrænt var yfirbragð hennar eins
og svo margra ættmenna hennar,
að henni stóðu styrkir ættstofnar.
Gestrisni hennar var rómuð og
þar átti margur góða vist, hús
hennar og þeirra hjóna ávallt opið
Minningargreinar
og aðrar greinar
FRÁ áramótum til 15. febrúar sl. birti Morgunblaðið 890 minningar-
greinar um 235 einstaklinga. Ef miðað er við síðufjölda var hér um
að ræða 155 síður í blaðinu á þessum tíma. í janúar sl. var pappírs-
kostnaður Morgunblaðsins rúmlega 50% hærri en á sama tima á árinu
1995. Er þetta í samræmi við gífurlega hækkun á dagblaðapappír um
allan heim á undanfömum misserum. Dagblöð víða um lönd hafa brugð-
izt við miklum verðhækkunum á pappír með ýmsu móti, m.a. með því
að stytta texta, minnka spássíur o.fl.
Af þessum sökum og vegna mikillar íjölgunar aðsendra greina og
minningargreina er óhjákvæmilegt fyrir Morgunblaðið að takmarka
nokkuð það rými í blaðinu, sem gengur til birtingar bæði á minning-
argreinum og almennum aðsendum greinum. Ritstjórn Morgunblaðsins
væntir þess, að lesendur sýni þessu skilning enda er um hófsama tak-
mörkun á lengd greina að ræða.
Framvegis verður við það miðað, að um látinn einstakling birtist
ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd en lengd annarra greina um
sama einstakling er miðuð við 2.200 tölvuslög eða um 25 dálksenti-
metra í blaðinu.
í mörgum tilvikum er samráð milli aðstandenda um skrif minningar-
greina og væntir Morgunblaðið þess, að þeir sjái sér fært að haga því
samráði á þann veg, að blaðinu berist einungis ein megingrein um
hinn látna.
Jafnframt verður hámarkslengd almennra aðsendra greina 6.000
tölvuslög en hingað til hefur verið miðað við 8.000 slög.
frændfólki og vinum. Hún var bók-
hneigð kona og las mikið, söngvin
vel, enda hafði hún ung sungið í
kór um árabil, hannyrðakona var
hún mikil og á þessum sviðum sem
ýmsum öðrum naut hún góðra
gjafa.
Hennar lífsgæfa var sú að eign-
ast hinn ágætasta lífsförunaut, búa
honum og börnum sínum einstak-
lega gott athvarf og skjól. Hún var
sínu hlutverki trú í lífinu, auðnað-
ist það að koma mannvænlegum
börnum til þroska og þekkra starfa,
eigandi vonglaða trú á lífið og til-
veruna. Móðir mín og eiginkona
áttu með henni góðar og gefandi
stundir á vettvangi Kvenfélagsins
og víðar og mátu hana mikils sem
traustan félaga og einstaklega
skemmtilega röskleikakonu í allri
gjörð.
Þakklátum hug er hún kvödd of
fáum og fátæklegum orðum, því
það er viss Ijómi yfir minningu
hennar, fölskvalausri lífsorkunni
og alúðinni. Hún Jónlína var einlæg
trúmanneskja og þá trú sýndi hún
vissulega í verkum sínum.
Á vit góðra minninga gef ég
mig um stund og gleði mín rík yfir
að hafa átt fylgd hennar. Henni
fylgja vorbjartar vermandi þakkar-
kveðjur frá okkur hjónum.
Til ljóssins landa frá lífsins þraut
er henni beðið alls hins bezta. Heið-
ríkja austfirzkrar vordýrðar er yfir
mætri minningu.
Blessuð sé sú minning.
Helgi Seljan.
Reyðarfirði. Hún tók á móti okkur
með sinni einstöku gestrisni og hlý-
hug. Síðan lágu leiðir okkar oft
saman og alltaf var hún jafn kát
og hress í viðmóti. Margar
skemmtilegar minningar líða um
huga minn þegar ég minnist spila-
kvöldanna, stuttu ferðalaganna og
jafnvel búðarferðanna sem hún gat
gert að ævintýrum með sinni ein-
lægu kæti og góða skapi. Hún var
trúuð kona, vel að sér og ættfróð.
Allar góðu minningamar sem ég á
um hana og skemmtilegu samveru-
stundirnar vil ég þakka, þær munu
lýsa upp huga minn og slá bjarma
á minninguna um þessa einstöku
konu sem mun skilja svo stórt skarð
eftir sig. Við munum ætíð minnast
hennar með söknuði.
Drottinn kallar komdu til mín nú,
þú kærleik veittir einnig ást og trú
ljósið ávallt Iýsti þína leið,
langan veg um ævi þinnar skeið.
Ollum varstu einlæg hlý og góð,
áttir sjóð af lífsins hjarta glóð
margir vinir munu minnast þín,
meðan líf í bqostum þeirra skín.
Nú ertu komin heim í herrans rann,
tii himinssala dýrðar bústað þann.
Englar drottins æ þér veri hjá,
elsku pðs og miskunn sérðu þá.
(M.K.)
Börnum, tengdabömum og
barnabörnum hennar og öðrum
ættingjum sendi ég mínar bestu
samúðarkveðjur og bið guð að
styrkja þau í sorginni.
María Konráðsdóttir.
Þegar ég frétti lát Jónlínu, þess-
arar aldurhnignu heiðurs- og dugn-
aðarkonu komu minningarnar upp
í huga mér. Við hittumst í fyrsta
sinn fyrir tæpum 30 árum, þegar
við hjónin vorum á ferðalagi um
Austfirði og komum við hjá þeim
hjónum Þórarni og Línu á Klöpp i
ERFIDRYKKJUR
Næg bílastæði
P E R L A N sími 562 0200
Toyota Corolla XL Sedan '92, vínrauöur, 5 g„ ek.
aöeins 34 þ. km. Bein sala. V. 870 þ.
Hyundai Accent GSI '95, hvítur, sjálfsk., ek. 14 þ.
km., rafm. í rúðum, spoiler, álfelgur. V. 1.050 þús.
Toyota Corolla XLi '94, 3ja dyra, hvítur, ek. 39 þ.
km., 5 g. V. 990 þús.
Hyundai Sonata GLSi '92, ek. 60 þ. km., silfur-
grár, 5 g., álfelgur, sóllúga o.fl. V. 1.050 þús.
Sk. ód.
MMC Pajero V-6 '91, blár, 5 g., ek. 90 þ. km.,
rafm. í rúöum o.fl. Fallegur jeppi. V. 1.490 þús.
Isuzu Sport Cap 2.4 (bensín) '91, grásans, 5 g.,
ek. 69 þ. km., álfelgur, veltigrind o.fl. V. 1.100 þús.
Chevrolet Lumina APV 7 manna V-6 '92,
rauður, sjálfsk., ek. 70 þ. km., rafm. í öllu o.fl. V.
2,1 millj.
Nissan Sunny SLX 4x4 station '93, grá- sans.,
ek. 77 þ. km., rafm. í rúöum, hiti i sætum, topp-
grind, dráttarkrókur o.fl. V. 1.190 þús.
Daihatsu Feroza SX '91, vínrauöur, ek. 88 þ. km.
Fallegt eintak. V. 890 þús.
MMC Pajero V-6 langur '91, 5 g., ek. 75 þ. km.,
góður jeppi. V. 1.890 þús.
Nissan Sunny 1.6 SLX Sedan '92, sjálfsk., ek.
53 þ. km. V. 900 þús.
Toyota Corolla XLi Hatchback '96, 5 dyra, 5 g.,
ek. 4 þ. km., spoiler o.fl. V. 1.230 þús.
Toyota Corolla 1.6 Si '94, hvítur, 5 g., ek. 39 þ.
km., álfelgur, spoilersett, geislaspilari o.fl. V. 1.200
þús.
Toyota Carina II GLi Executive '90, 4ra dyra,
sjálfsk., ek. 108 þ. km., rafm. í öllu, spoiler o. fl. V.
890 þÚS.
Dodge Caravan LE 4x4 '91, 7 manna, sjálfsk.,
ek. 91 þ. km., rafm. i öllu o.fl. V. 1.980 þús.
Toyota Corolla GL Special series'91, 5 g., ek.
93 þ. km., 5 dyra, rafm. í rúöum, samlæsingar,
blár. V. 690 þús.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut^
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bflasala
Opið laugardag kl. 10-17,
sunnudag kl. 13-18
Húsbfll M. Benz 309 '86, hvítur, 5 cyl., diesel,
sjálfsk., 7 manna, svefnpláss, eldavél, gas-
miöstöð, stórt fortjald o.fl. o.fl. V. 1.490 þús. Sk.
ód.
Toyota Tercel 4x4 station '88, rauður, ek. 147 þ.
km. V. 530 þús. Sk. ód.
Toyota Landcruiser diesel '87, 5 g., ek. 190 þ.
km., drif og gírkassar ný uppt., loftlæstur aftan og
framan. Nýl. 38" dekk. Toppeintak. V. 1.870.
Nissan Sunny 1.3 LX '90, 3ja dyra, blár, 4 g., ek.
84 þ. km. V. 460 þús.
Subaru Legacy 2.0 Station '92, grár, 5 g., ek.
aöeins 49 þ. km. V. 1.490 þús.
Toyota Carina E '93, 5 dyra, rauður, 5 g., ek. 55
þ. km. V. 1.450 þús.
MMC Colt GLXi '92, rauður, 5 g., ek. 85 þ. km.,
álfelgur, spoiler, rafm. í öllu o.fl. V. 860 þús.
Mazda 323 1.6 GLX 4x4 station '94, steingrár, 5
g., ek. 58 þ. km., álfelgur o.fl. V. 1.180 þús.
Cherokee Country 4.0 L High Output '93,
grænsans., sjálfsk., ek. 80 þ. km. Gott eintak. V.
2.350 þús.
Toyota Landcruiser stuttur bensín '88, steingrár,
5 g., 33" dekk, álfelgur. V. 1.190 þús. Sk. ód.
Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang ur) '86,
5 g., ek. 220 þ.km. 36" dekk, spil o.fl. Mikiö
endurnýjaður. V. 1.550 þús.
Hyundai Accent GS Sedan ‘95, ek. aðeins 4
þ.km. V. 960 þús.
Toyota Landcruiser GX diesel Turbo '93, 5
dyra, sjálfsk., ek. 77 þ. km., 33“ dekk, brettakan-
tar, álfelgur o.fl. V. 3,9 millj.Sk. ód.
Nissan Terrano V-6 '95, 4ra dyra, sjálfsk., ek.
aðeins 12 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu. Sem nýr. V.
3,3 millj.
Renault Clio TR 1.4 5 dyra '94, 5 g., ek. aðeins
11 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.V. 990 þús.
MMC Pajero V-6 langur '92, 7 manna, sjálfsk.,
ek. 55 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm. í rúðum o.fl.
V. 2.690 þús.
Nissan Primera 2.0 SLX '93, 5 g., ek. 38 þ. km.,
spoiler, álfelgur, rafm. í öllu, 2 dekkjagangar. V.
1.300 þús.
Peugeot 405 GR station '89, 5 g., ek. 100 þ. km.
V. 650 þús.
Mazda E-2000 húsbfll '85, 5 g., ek. aðeins 67 þ.
km. Svefnaðstaða, vaskur, eldavél, óvenju gott
eintak. V. 690 þús.
Mazda 323 GLX 1600 '92, 3 dyra, 5 g., ek. 52 þ.
km. Rafm. í rúöum, áltelgur o.fl. V. 890 þ.