Morgunblaðið - 30.04.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 37
JÓN ÁSTVALDUR
HELGASON
+ Jón Ástvaldur
Helgason var
fæddur á Hjalteyri
við Vesturveg 13 í
Vestmannaeyjum 7.
nóvember 1925.
Hann lést á Land-
spítalanum 20. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Helgi Helgason og
Þóra Finnsdóttir.
Ástvaldur var
yngstur fjögurra
systkina. Hálfbróð-
ir hans, Karl ólafur
Granz, er látinn, en
systur hans Jóhanna, f. 1915,
og Guðrún, f. 1924, búa báðar
á Hrafnistu i Hafnarfirði. 8.
október 1949 kvæntist Ástvald-
ur Kristínu Oktavíu Ingimund-
ardóttur, f. 8. október 1922.
Kristín átti fyrir dótturina Ingu
Jóhönnu Arnórsdóttur, f. 26.
janúar 1943. Hún er búsett í
Malmo í Svíþjóð ásamt börnum
sinum Dagnýju, Halldóri og
Rannveigu. Halldór á einn son,
Daníel. Börn Ástvalds og Krist-
ínar eru: 1) Óli Þór, f. 8. ágúst
1949, kvæntur Guðfinnu Ní-
varðsdóttur, búsettur á Þóru-
stöðum í Eyjafirði og eiga þau
fjögur börn, Kristínu Rós, Sól-
rúnu, Hlyn og Helgu Sif. Krist-
ín Rós og sambýlismaður henn-
ar Arnar Valsteinsson eiga eina
dóttur, Öldu Ólínu. 2) Sigur-
bj'örg Sóley, f. 23.janúar 1951,
gift Ágústi Inga Ólafssyni, bú-
sett á Hvolsvelli og eiga þau
þrjú börn, Sigrúnu, Astvald Óla
og Magnús. Ást-
valdur Oli á eina
dóttur, Silvíu Rut.
3-4) Tvíburarnir
Sigurður Rúnar og
Finnbogi Arnar, f.
5. september 1956.
Rúnar er búsettur í
Reykjavík, hann á
fjögur börn, Gylfa,
Pálma, Kristínu og
Hauk; Finnbogi er
búsettur á Hellu og
á eina dóttur, Vig-
dísi, 5) Ragnar, f.
20. apríl 1960,
kvæntur Guðrúnu
Bergmann, búsettur í Kópa-
vogi, þau eiga tvo syni, Pétur
Þór og ívar Órn. 6) Viðar Þór,
f. 20. desember 1965, kvæntur
Jóhönnu Ósk Pálsdóttur, bú-
settur á Hellu, þau eiga tvö
börn, Þóru Ósk og Jón Pál.
Ástvaldur og Kristín bjuggu í
Vestmannaeyjum til ársins
1968 er þau fluttu á Hvolsvöll
í Rangárvallasýslu. í Vest-
mannaeyjum vann Ástvaldur
sem bílstjóri á vetrarvertíðum
og sem sundlaugarvörður á
sumrin. Á Hvolsvelli starfaði
Ástvaldur sem vélavörður í
frystihúsi Sláturfélags Suður-
lands. Árið 1985 fluttu þau
hjónin til Reykjavíkur þar sem
Ástvaldur starfaði á ný sem
sundlaugarvörður, þá við sund-
laug Selljarnarness, í sex ár.
Utför Ástvalds fer fram frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljóts-
hlíð í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
Hann elsku afi minn er látinn.
Afi, svo margra annarra líka, en
nítján erum við bamabömin og
barnabarnabörnin þrjú. Hann átti
næga ást og hlýju handa okkur
öllum, nóg til að við getum geymt
innra með okkur og gefið áfram
til þeirra sem síðar koma.
Það er margs að minnast og
sakna varðandi afa okkar en mest
þó hvers konar ljúflingur hann var
og góð fyrirmynd. Hann þreyttist
aldrei á að hafa ofan fyrir börnum.
Þannig vildi til, að iaugardaginn
fyrir viku, þegar afi veiktist, var
viðtal við Jónas Árnason rithöfund
í útvarpinu. Þá rifjaðist upp þegar
afi tók litla stúlku með sér á
skemmtun hjá Jónasi í félags-
heimilinu heima á Hvolsvelli.
Krakkarnir fengu að koma upp á
svið og syngja með og við skemmt-
um okkur konunglega. Afi hafði
mjög gaman af þjóðlögum og göml-
um sjómannavísum og kenndi mér
að meta það lika. Við sem höfðum
varla nokkurn tíma séð bryggju
höfðum gaman af að heyra hann
PÁLÍNA G.
ÞORSTEINSDÓTTIR
+ Pálína G. Þor-
steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
24. mars 1930. Hún
lést í Landspitalan-
um 20. apríl síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru hjónin
Þorsteinn S. Olafs-
son bifreiðasljóri í
Reykjavík, f. 22.
apríl 1899, d. 17.
ágúst 1937, og Júl-
íana Á. Gísladóttir
húsfrú, f. 10. júní
1898, d. 1. júlí 1982.
Börn Þorsteins og
Júiíönu, auk Pálínu, eru Ólína
Guðrún, f. 24. mars 1930. Þor-
steinn Július, f. 9. maí 1932 og
Olga Kristín, f. 15. nóvember
1935. •
9. janúar 1960 giftist Pálína
Árna G. Björnssyni,
f. 24. október 1925.
Börn þeirra eru Júl-
íana, f. 22. desem-
ber 1957, maki Guð-
mundur Árnason,
eiga þau tvö börn;
Ólöf G. Árnadóttir,
f. 11. september
1959, maki Börkur
Guðjónsson, eiga
þau þrjá syni; Ester
Arnadóttir, f. 30.
september 1960,
maki Hallmundur
Hafberg, eiga þau
tvö börn; Björn
Árnason, f. 28. febrúar 1966,
maki Laufey Guðmundsdóttir
og eiga þau eitt barn.
Útför Pálínu fer fram frá
Breiðholtskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Andlát mágkonu minnar Pálínu
Þorsteinsdóttur kom engum á
óvart sem til hennar þekktu. Þó
er það svo að enginn er fyllilega
viðbúinn dauðanum og svo var með
mig í þetta sinn. Þegar Pálína gift-
ist bróður mínum hafði ég haft lítil-
lega kynni af henni því það kom
fyrir að ég kæmi á heimili móður
hennar en hún var vel kunnug for-
eldrum mínum. Eftir að hún kom
í fjölskyldu mína kynntumst við
betur sem eðlilegt er. Pálína var í
eðli sínu létt í skapi og ávallt bros-
mild og þægileg í umgengni hve-
nær sem ég hitti hana. Hún hafði
hins vegar stórt skap, en aldrei lét
hún það bitna á öðrum. Ekki veit
ég hversu trúuð kona Pálína var
því þaú mál ræddum við aldrei, en
eflaust eins og aðrir hafði hún sína
trú en hélt henni fyrir sig.
Áður en Pálína gifti sig vann
hún ýmis störf en þegar hún fór
að vinna aftur eftir stofnun heimil-
is fór hún til starfa á sjúkrastofn-
MINNINGAR
segja okkur frá sjósókn og körlun-
um sem færðu fiskinn heim.
Einstaklega handlaginn var
hann afi minn og gilti þá einu hvað
hann fékkst við. Hann gerði við
reiðhjólin okkar krakkanna og bak-
aði þess á milli smákökur og tertur
eftir uppskriftum frá ömmu. Ekk-
ert var fyrirfram ómögulegt. Fyrsta
alvöru reiðhjólið mitt var gert upp
úr ýmsu gömlu og ýmsu nýju svo
úr varð dýrindis rautt reiðhjól.
Ekki veit ég hvernig hann fór að,
en þegar rauða reiðhjólið var orðið
lítið og ég stór útbjó hann annað
stærra grænt á litinn. Við vissum
líka að ef eitthvað bilaði á heimilinu
kynni hann afi áreiðanlega ráð við
því.
Stirðnuð er haga höndin þin,
gjörð til að laga allt úr öllu,
eins létt og að draga hvítt á völlu
smámeyjar fagurspunnið lín.
(Jónas Hallgr.)
Þó að pottormarnir kæmust til
vits og ára var afi ávallt til staðar
með útréttan faðminn og góð ráð
í lífsins umferðarþraut. Þau amma
töldu aldrei eftir sér að styðja börn-
in sín og styrkja og óteljandi góðar
gjafir gáfu þau. Aldrei gleymi ég
undarlega löguðum pakka undir
jólatrénu sem í reyndust vera fyrir-
taks startkaplar, en þá hafði ég
nýverið eignast minn fyrsta bíl.
Afi var ömmu dyggur eiginmað-
ur og góður félagi. Hún var auga-
steinninn hans og ástin eina. Þau
útbjuggu myndarlegt heimili og
saman plöntuðu þau í stóran garð
sem bera mun þeim fagurt vitni.
Afi Ástvaldur veiktist af parkin-
sonveiki fyrir nokkrum árum og
hrakaði heilsunni þá fljótt. Alltaf
var hann þó jafn hlýr og góður.
Hann kunni þá að meta það smáa
og hreina, setjast í grasið á björtum
degi eða snerta brumið á tijánum.
Svo kvaddi hann okkur í byijun
vorsins og byijun dagsins og lét
okkur um að lifa sumarið fyrir sig.
Elsku amma, styrkur þinn er
okkur styrkur. Megi góður Guð
vernda þig.
Hvað er ekki í einu ljóði falið,
einum söng frá góðu hjarta?
Já, allt, sem faprt er, skal verða talið
efst við dómsins hástól bjarta.
(Einar Ben.)
Sigrún.
unum og lengst af starfaði hún á
geðdeildum sem kannski lýsir
henni best í umgengni við aðra því
það geta ekki verið léttustu deildir
sjúkrahúsanna að vinna á. Þessi
eiginleiki og kjarkur Pálínu kom
best fram í löngum veikindum
hennar en fyrir sex árum varð hún
fyrir áfalli sem batt hana við hjóla-
stól alla tíð síðan. Þá kom best
fram kjarkur hennar og létt skap
því aldrei kvartaði hún og aðspurð
sagðist hún hafa það ágætt.
Fyrir rúmu ári greindist Pálína
með illvígan sjúkdóm sem dró hana
til dauða. í öllum þessum veikind-
um hennar kom í ljós hversu góða
og samheldna fjölskyldu hún átti
því aldrei var hún látin fínna fyrir
því að hún væri til byrði heldur
var allt fyrir hana gert svo henni
liði sem best. Þessi umhyggja létti
Pálínu þungbær veikindi hennar
og lýsti um leið því frækorni sem
hún sáði í fjölskyldu sína allar
götur frá því hún stofnaði fjöl-
skyldu.
Með Pálínu er gengin ein af
þessu hljóðlátu, kjarkmiklu og
góðu konum sem sagan er full af
en sem flestir verða ekki varir við
aðrir en þeir nánustu. Þær eru þó
grundvöllur góðs mannlífs hér á
jörð.
Farðu í friði, Pálína mín, og
þökk fyrir öll okkar kynni sem aldr-
ei bar skugga á. Bróður mínum
og fjölskyldu hans færi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur og
vona að minningin um góða konu
og móður styrki þau í sörg þeirra.
Halldór Björnsson.
t
Ástkær eiginmaður minn,
DANÍEL JÓELSSON,
Laugavegi 132,
lést á heimili sínu föstudaginn 26. apríl.
Kristín Þorvarðardóttir.
t
Elskulegur föðurbróðir og frændi,
KONRÁÐ GUÐJÓNSSON
trésmíðameistari,
Bragagötu 33,
andaðist í Landspítalanum sunnudag-
inn 28. apríl.
Guðbjörg M. Benediktsdóttir,
Guðlaugur B. Arnaldsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALBJÖRG LÁRUSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlið,
Akureyri,
áðurtil heimilis í Aðalstræti 16,
Akureyri,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri hinn 25. apríl sl., verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn
6. maí kl. 13.30.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA STEINUNN LÚTHERSDÓTTIR,
Hjarðarhaga 38,
lést á öldrunarlækningadeild Landspít-
alans þann 27. apríl.
Jarðarför auglýst síðar.
Reynir Sæmundsson, Þóra Sigurðardóttir,
Finnbjörg Konný Hákonardóttir,
Steinunn Hákonardóttir, Páll Guðmundsson,
Kristborg Hákonardóttir,
Kristgeir Hákonarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hraunbæ 44,
fyrrum húsfreyja
í Hraungerði,
lést í Landspítalanum aðfaranótt laug-
ardagsins 27. apríl.
Guðmundur Sigmundsson,
Svavar Sigmundsson,
Ingibjörg Sigmundsdóttir,
Ragnheiður Sigmundsdóttir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MÁLFRÍÐUR GUÐNÝ GÍSLADÓTTIR,
Droplaugarstöðum,
áður til heimilis
á Hagamel 38,
sem lést mánudaginn 22. apríl, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudag-
inn 30. apríl kl. 15.00.
Gísli Gunnarsson, Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
Vilborg Gunnarsdóttir, Hilmar Þór Sigurðsson,
Guðfinna Gunnarsdóttir, Torfi Gunnlaugsson,
Skarphéðinn Gunnarsson, Kolbrún Sigurðardóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Guðmundur Vilhjálmsson,
Jóhannes Gunnarsson, Sigþrúður Sigurðardóttir,
Þóra Guðný Gunnarsdóttir, Jónbjörn Pálsson,
barnabörn og barnabarnabörn.