Morgunblaðið - 30.04.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996 39
JÓHANN
SÖLVASON
ÍSLANDSMÓTIÐ
í TVÍMENNINGI
32 pör víðs vegar að af landinu.
27.-28. apríl. - Aðgangur ókeypis.
+ Jóhann Sölva-
son var fæddur
í Kjartansstaðakoti
í Viðvíkursveit í
Skagafirði 23. maí
1915. Hann lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 28. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Sigurlaug Björns-
dóttir og Sölvi Jó-
hannsson, sem lengi
var póstur milli
Sauðárkróks og
Siglufjarðar. Jó-
hann var yngstur
sextán barna þeirra, en ellefu
komust upp og er nú lífs af þeim
stóra hópi Sigríður, búsett á
Dalvík.
Um árið 1941 hóf hann bú-
skap með Onnu Friðrikku Magn-
úsdóttur og áttu þau einn son,
Guðjón, f. 1943. Hann er búsett-
ur á Siglufirði. Önnu Friðrikku
missti Jóhann af barnsförum
árið 1948.
Jóhann fluttist síðar til
Reykjavík. Hann
kvæntist Öldu
Kristrúnu Jónsdótt-
ur og bjuggu þau í
Meðalholti 9 í
Reykjavík. Þau áttu
saman þijá syni, Sig-
urjón Sölva, f. 1955,
hann er búsettur á
Kjalarnesi, Björn
Þór, f. 1957, d. 1975,
og Karl Jóhann, f.
1958, hann er búsett-
ur á Grundarfirði.
Börn Öldu Kristrún-
ar áður eru Rósa,
Ámundi og Krist-
björg Ámundabörn. Þau eru
búsett í Reykjavík. Alda Krist-
rún lést árið 1974.
Árið 1975 hóf Jóhann sambúð
með Margréti Hildi Jóhannsdótt-
ur, en hún Iifir mann sinn. Mar-
grét átti tvær dætur áður, þær
eru Ása Sigurlaug Halldórsdóttir
og Rakel Katrín Guðjónsdóttir,
báðar búsettar í Reykjavík.
Útför Jóhanns fór fram í
kyrrþey.
Ég vil minnast með fáum orðum
vinar míns Jóhanns Sölvasonar.
Honum kynntist ég fyrst 1976, en
þá kom ég oft á heimili hans og
Margrétar í Meðalholti 9. Alltaf fór
vel á með okkur Jóa. Hann var
glettinn og spaugsamur. Þá var oft
gert að gamni sínu og ekki spilltu
þær glaðværðinni dæturnar tvær
Ása og Katrín. Jói vann í Straums-
vík á þessum árum og í fríum ferð-
aðist hann með Möggu sína um
landið. Um síðsumar 1977 komu
þau vestur að Firði, en þá átti að
tína ber og veiða fugla. Þar sem
veðrið var ekki sem best þessa helgi
varð ekkert úr berjatínslu og ekk-
ert úr veiði, en þau létu það ekki
spilla ánægju ferðarinnar.
Þar sem ég var fluttur út á land
liðu nú 13 ár þar til ég hitti Jóa
aftur og hafði hann þá lítið breyst.
Hann var hættur að vinna í álverinu
en var með Jóa bróður hennar
Möggu á grásleppuveiðum. Við hitt-
umst stundum á bryggjuni í Hafn-
arfirði, þá var hann í essinu sínu
klæddur sjógalla og ataður slori.
Jói var alla tíð ósérhlífinn við vinnu
enda tíðkaðist ekki hjá þeirri kyn-
slóð að láta deigan síga. Jói var
hrókur alls fagnaðar á ferðalögum
og eru mér minnisstæðar þær ferð-
ir sem við fórum saman. Árið 1991
fórum við norður í Hrísey á fornar
slóðir Sigurlaugar móður Margrét-
ar. Þarna kom saman hópur þeirra
ættmenna, þeir sem eldri voru gistu
í bænum Stekkjarnefi en aðrir voru
í tjöldum. Fyrsta kvöldið var tekið
í harmoniku og dansað eins og í
gamla daga og mun ég seint gleyma
þegar Jói dansaði við tengdamóður
sína, hann var svo lipur að það var
hreirú ótrúlegt, maður orðinn þetta
fullorðinn.
Um haustið sama ár fórum _við
Jói og mæðgurnar Margrét og Ása
vestur að Firði í bergjaferð. Jói var
ekki mikið fyrir það að rápa um
beijalandið og var að mestu kyrr á
sama blettinum en við hin alltaf að
leita að meiru, en þegar heim var
komið var Jói búinn að tína mest
og var sérstakur glettnisglampi í
augum hans þegar verið var að
bera saman beijaföturnar.
Árið 1993 veiktist Jói og dvaldi
langdvölum á sjúkrahúsi og til að
bæta gráu ofan á svart, eftir að-
gerðir og miklar svæfingar, missti
hann sjónina og var það þungbert
fyrir mann eins og hann. Síðustu
ferðina sem við fórum út úr bænum
ásamt Sigurlaugu, Möggu og Ásu
var ekið austur að Flúðum að
heimasækja Kötu, en hún var í sum-
arbústað. Þá var hann búinn að
missa sjón og orðinn sjúklingur.
Ég undrast það æðruleysi hans,
maður sem alla tíð var sjálfbjarga
þurfti nú að láta leiða sig jafnt úti
sem inni, en engum treysti hann
betur til þeirra hluta en Möggu
sinni. Á heimleiðinni- sungum við
öll í bílnum og hann manna mest
og hann kunni ógrynni af lögum
og textum og við hin höfðum ekki
roð við honum í þeim efnum og
má segja að hann hafi haldið sínum
skagfirsku einkennum alla tið. Tvö
síðustu árin dvaldi hann á Hrafn-
istu uns hann fór sína síðustu för.
Með þessum orðum viljum við
Ása og Kata þakka Jóhanni fyrir
allt bæði gamalt og gott og óskum
honum góðrar heimkomu til feðra
sinna. Við vottum Margréti, börnum
og öðrum aðstandendum samúð og
biðjum Guð að blessa minningu
hans.
Einar og Ása.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kveðja frá
barnabörnum og
barnabarnabörnum.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
ÍSLANDSMEISTARARNIR í tvímenningi, Sverrir Ármannsson og Björn Eysteinsson. Með þeim
á myndinni er Guðmundur Sv. Hermannsson varaforseti Bridssambandsins, en hann afhenti
verðlaunin í mótslok.
íslandsmótið í tvímenningi
Sverrir Ármannsson og Björn
Eysteinsson öruggir sigurvegarar
BRIDS
B r i d s h ö 11 i n
Þönglabakka
BJÖRN Eysteinsson og Sverrir
Ármannsson sigruðu örugglega
í keppninni um íslandsmeistara-
titilinn í tvímenningi sem fram
fór nú um helgina. Steinar Jóns-
son og Jónas P. Erlingsson urðu
í öðru sæti og Magnús Magnús-
son og Sigurður Vilhjálmsson í
því þriðja.
Sigurvegaranir byrjuðu mótið
nokkuð þokkalega og voru í
fjórða sæti eftir 8 umferðir með
57 stig yfir meðalskor. Að lokn-
um 13 umferðum voru þeir í 13.
sæti með 21 stig en þaðan í frá
var stefnan tekin upp á við.
Helztu keppinautarnir, Jónas P.
og Steinar, fóru hægt af stað og
voru með 1 í plús eftir 8 umferð-
ir en 7 umferðum síðar voru þeir
komnir í 8. sætið, en þá, þ.e.
eftir 15 umferðir, voru Sigurður
og Magnús með 1 í mínus. Þá
leiddu bræðumir Guttormur og
Pálmi Kristmannssynir og voru
reyndar langefstir með 181 stig
en Valgarð Blöndal og Þorlákur
Jónsson voru í öðru sæti með 146
stig.
Spennan í mótinu náði há-
marki þegar 25 umferðum var
lokið en þá var staða efstu para
þessi:
Jón Baldursson - SævarÞorbjömsson 137
BjömEysteinsson-SverrirÁrmannsson 137
Sigurður Vilhjálmsson - Magnús Magnússon 134
Aðalsteinn Jörgensen - Ásmundur Pálsson 127
GuttormurogPálmiKristmannssynir 123
Valgarð Blöndal - Þorlákur Jónsson 122
Steinar Jónsson - Jónas P. Erlingss. 118
SkúliSkúlason-RúnarEinarsson 109
Anton Haraldsson - Guðmundur Pétursson 106
Jafnari gat keppnin ekki verið,
en nú fóm hjólin að snúast. Björn
og Sverrir skoruðu jafnt og þétt
en Steinar og Jónas fengu skell,
31 mínusstig í 26. umferðinni.
Björn og Syerrir stungu andstæð-
inga sína af í næstu umferðum
og baráttan varð um annað sæt-
ið. Sigurður Vilhjálmsson og
Magnús Magnússon spiluðu vel
og náðu öðru sætinu en Steinar
og Jónas P. voru ekki búnir að
gefast upp og skoruðu 45 stig í
næstsíðustu umferðinni, sem
nægði þeim í annað sætið í mót-
inu, en lokastaðan varð þessi:
BjörnEysteinsson-SverrirArmannsson 212
Steinar Jónsson - Jónas P. Erlingsson 179
Sigurður Vilhjálmsson - Magnús Magnússon 139
JónBaldursson-SævarÞorbjömsson 125
PállValdimarsson-RagnarMagnússon 110
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
. er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið,
MAGNÚS Magnússon og Sigurður Vilhjálmsson spiluðu vel
seinni hluta mótsins og urðu í þriðja sæti.
AðalsteinnJörgensen-ÁsmundurPálsson 101 Fernir feðgar spiluðu saman í
Anton Haraldsson - Guðmundur Pétursson 95 úrslitakeppninni og a.m.k. tvennir
Guttormur og Pálmi Kristmannssynir 89 bræður en auk þess spiluðu feðg-
ValgarðBlöndal-ÞorlákurJónsson 82 arnir Sigurður Vilhjálmsson og
GuðmundurSv. Hermannss.-HelgiJóhannss. 82 Vilhjálmur Sigurðsson í mótinu,
HelgiSigurðsson- ísakÖm Sigurðsson 78 en Vilhjálmur leysti aldursforset-
Kristján MárGunnarss. - Helgi Helgason 69 ann> Guðmund Jónsson, af um
Sverrir Ármannsson hefir áður kvöldið fyrri spiladaginn.
unnið íslandsmeistaratitilinn í Gjafavél Bridssambandsins fékk
tvímenningi en það var 1991 með að snúast fyrir mótið en alls voru
Matthíasi Þorvaldssyni. Björn er gefin 2.050 spil í keppnina, þ.e.
að vinna titilinn í fyrsta sinn en undaúrslit og úrslit. Framkvæmda-
þetta hefir verið gott ár hjá Birni stjórinn Sólveig Kristjánsdóttir
því aðeins eru liðnar nokkrar vik- stjómaði mótinu en keppnisstjór-
ur síðan hann varð íslandsmeist- arnir Jakob Kristinsson og Sveinn
ari í sveitakeppni með félögum R- Eiríksson sáu um þá hlið sem
sínum í sveit Samvinnuferða- að keppendum sneri. Guðmundur
/Landsýnar. Sv. Hermannsson varaforseti BSÍ
Sigurvegararnir unnu sér rétt til aflienti verðlaunin í mótslok og gat
að taka þátt í afmælismóti hann þess sérstaklega að dómstóll
finnska bridssambandsins sem Bridssambandsins hefði aldrei
fram fer í lok næsta mánaðar. þurft að koma saman til að úr-
Bridssambandið greiðir ferðir en .skurða kærumál í úrslitakeppninni.
kostnaðurinn ytra er í boði Finna. Arnór G. Ragnarsson
Blomastqfa
wn • f
tnojmm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið ðll kvöld
til kl. 22 - einnig um hclgar.
Skrcytingar fyrir öll tílefni.
STEINAR Jónsson og Jónas P. Erlingsson áttu góðan loka-
sprett og tryggðu sér örugglega annað sætið.