Morgunblaðið - 30.04.1996, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
r",.....;.;.>
HÁSKOLABÍÓ
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
VAMPIRA I BROOKLYN
EDDIE / ÁNCÍELA
MURPHY
ANGELA
BA*ETT
GULLPÁLMIN
1995 .
f ('ANS'tS V
lí. Vi«r
ENNÞA ER ALLT I LAGI.
★ ★★ Ó.H.T. Rás 2
'^4\§.•
Kröftug frönsk mynd sem hefur R
slegid í gegn medal ungs fólks í
Evrópu. Myndin var valin besta
franska myndin á síðasta ári og Efefc f tSf )
leikstjori hennar Mathieu Kassovitz
var valinn besti leikstjórinn á
kvikmyndahátídinni í Cannes. WÉk
Á undan myndinni verdur sýnd „JP
stuttmyndin ALBANÍU LÁRA (15
min) eftir Margréti Rún.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 14 ára. I 'x- \ 8S
/★★★★^L Þ.
★★★★SH.K.
DAUÐAMAÐUR NALGAST
SUSAN SARANDON
1S **
Sýnd kl. 4.45 og 9.15.
SKRYTNIR DAGAR
í f á m að u ri n n J a m ts Cam c ro n
alpli l'icnncv, An^du Basscít
K^jplictte I.csvis
1
2 fyrir 1
Sýnd kl. 8. Verð kr 400.
Sýnd kl. 5 og 7.
ORIENT
Vönduð
fermingarúr
Verð
kr.ll.900.
Grétar Helgason,
úrsmiður,
Laugavegi 35,
s. 552 4025.
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543 3700 0014 6913
Erlend kort:
4581 0981 2741 8138
4925 6550 0001 1408
Afar*iöalufólk.
vlnsamlagaat taikitt
ofangralnd kort úr umfarð og
snndittVIBA Islandi aundurkllppt.
VERÐ LAiN KR. 5000,-
fyrlr att klófamta kort og vloo á vágmt
[ VoktþJttnuoUi VISA or opln aillan |
I aólarhringlnn. Þangatt bor att ,
itilkynna um yltttutt og atolln kort
I S(MI: B67 1700
Alfabakka 16 - 109 Haykjavfk
Dags. 30.4. ’96. NR. 205
: 5414 8300 2954 3104
5414 8300 3045 5108
5414 8300 3225 9102
5413 0312 3386 5018
5414 8300 3236 9109
Ofangreind kort eru vákort,
semtaka berúrumferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrirþann, semnærkorti
og sendir sundurklippt til
Eurocard.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 568 5499
SIGURLIÐIÐ; Louisa Sif, Sigríður, Ragnheiður, Theodór og
Snorri, en sá síðasttaldi var valinn ræðumaður kvöldsins.
Ræðumennska
í Tjarnarskóla
NÚ á dögunum þreyttu nemendur
9. bekkjar Tjarnarskóla próf í ræðu-
mennsku og framsögn, en þeir hafa
verið í tveimur kennslustundum á
viku í þeirri námsgrein í allan vet-
ur. Prófíð fór fram með þeim hætti
að ræðukeppni var haldin. Allir
nemendur bekkjarins voru þátttak-
endur; stjómuðu fundi, héldu ræð-
Guðmndm Rapi GemöaL
væntanlegur forsetaframbjóðandi
ur, dæmdu, tóku tímann og buðu
gesti velkomna.
Gestirnir, sem voru foreldrar,
systkini, afar og ömmur nemenda,
skemmtu sér að sögn konunglega.
Þegar upp var staðið var búið að
flytja 20 ræður, þar sem tekist var
á um hvort lögleiða ætti dauðarefs-
ingu á íslandi. Niðurstaðan var sú
að það ætti ekki að gera og ræðu-
maður kvöldsins var kosinn Snorri
Stefánsson.
Nýtt í kvikmyndahúsunum
Stjömubíó forsýnir
Kviðdómarann
STJÖRNUBÍÓ forsýnir þriðjudaginn
30. apríl og miðvikudaginn 1. maí
kl. 21.15 spennumynmdina Kvið-
dómarinn (The Juror) sem i leikur
hæstlaunaða leikkona Hollywood í
dag, Demi Moore. Leikarinn Alec
Baldwin fer með annað aðalhlut-
verkið í myndinni. Handritshöfundur
er Ted Tally sem hlaut Óskarsverð-
laun fyrir handrit sitt Lömbin þagna.
Leikstjóri er Brian Gibson.
Demi Moore leikur mikla kjarna-
konu í myndinni og þjónar hún sem
kviðdómari í réttarmáli yfir frægum
og miskunnarlausum mafíósa. Hún
er beitt miklum þrýstingi af einum
liðsmanni mafíunnar (Alec Bald-
win) en lætur sér það ekki lynda
og ákveður þess í stað að beijast
ein síns liðs gegn máttarvaldi
stærstu glæpaklíkunnar á austur-
strönd Bandaríkjanna.
DEMI Moore í hlutverki sínu í myndinni Kviðdómarinn.
Fjölþjóðlegt Frakkland
Hvers vegna vantreysta svo
margir háir embættismenn
þjóðinni til að taka þátt í
mikilvægum ákvörðunum
sem varða þjóðarheill?!
Er það vegna þess að þeir óttast að
hún ákveði annað en þeir?! Hvað
getur verið svona slæmt við að
forseti neiti að skrifa undir lög og
þau fari undir þjóðar-
atkvæðagreiðslu? Ef þjóðin er talin
vera fær um að kjósa yfir sig
forseta og þing, ætti hún einnig að
vera fær um að kjósa í einstökum
málum sem hana varða!"
KVIKMYNPIR
Háskólabíó
HATUR „LAHAINE"
★ ★ ★
Leikstjórn og handrit: Mathieu
Kassovitz. Framleiðandi: Christophe
Rossignon. Aðalhlutverk: Vincent
Cassel, Hubert Kounde, Said Tag-
hmaoui, Karim Belkltadra, Edouard
Montoute. Le Studio Canal +. 1995.
FRANSKA myndin Hatur eftir
Mathieu Kassovitz hefur vakið
mikla athygli og umtal í Frakklandi
um aðbúnað innflytjenda í úthverf-
um Parísar. Hún lýsir óeirðum sem
þar ríkja og hatri íbúanna sem bein-
ist fyrst og fremst að lögreglunni.
Ástandinu er líkt við mann sem
fellur ofan af 50 hæða byggingu
og segir hughreystandi við sjálfan
sig í fallinu: Ennþá er allt í lagi,
ennþá er allt í lagi. En það er ekki
fallið sem skiptir máli heldur lend-
ingin. Ennþá er allt í lagi, segir
mynd Kassovitz, en varar við að
stutt sé í lendinguna.
Kassovitz hefur kosið að taka
myndina á svart/hvíta filmu og
myndatökumaðurinn heldur á henni
mestallan tímann og snýst með
hana í kringum persónunar. Þetta
ásamt nöturlegum tökustöðunum í
hverfum innflytjenda og hröðum,
spunakenndum samtölum gefur
myndinni yfirbragð heimildar- eða
fréttamynda, sem fellur vel að efn-
inu. Myndin segir af sólarhring í
lífi þriggja vina í hverfinu, araba,
gyðings og svertingja (leikararnir
bera sín raunverulegu nöfn). Félagi
þeirra liggur á gjörgæsludeild eftir
að hafa verið í yfírheyrslu hjá lög-
reglunni og í kjölfarið hafa brotist
út óeirðir. Hatur í garð lögreglunn-
ar og samfélagsins sem hún starfar
fyrir logar á yfirborðinu, frétta-
myndir sýna götubardaga, hverfið
er á suðupunkti.
Félagamir sækja fyrirmyndir sín-
ar í amerískar bíómyndir og þær eru
ræddar; einn þeirra hermir eftir
frægu atriði í „Taxi Driver“ þar sem
Travis stendur fyrir framan spegil-
inn og hatast út í borgarlífið (Ertu
að tala við mig, ertu að tala við
mig?). Stundum minnir Hatur á
„Boyz-N-the Hood“ eftir John Singl-
eton, sem lýsir átökum á milli svert-
ingjaklíka nema í mynd Kassovitz
snúa ólíkir kynþættir innflytjenda
bökum saman gegn óréttlæti. Einnig
sver hún sig í ætt við bresku innflytj-
endamyndirnar frá síðasta áratug,
sem fjölluðu um breska fjölþjóða-
samfélagið frá sjónarhóli innflytj-
enda af annarri og þriðju kynslóð.
Með Hatri hefur Kassovitz, oft
með sláandi hætti, vakið athygli á
aðbúnaði og lífsviðhorfi þeirra sem
mynda fjölþjóðlegt Frakkland.
Mynd hans er ör og spennandi og
gerð af óþreyju og innsæi í líf fólks
sem krefst breytinga.
Arnaldur Indriðason