Morgunblaðið - 30.04.1996, Page 56
MORGUNBLABID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Guðmundur Arngrímsson
Tók sér far
með togara
FARFUGLARNIR hafa verið að
koma til landsins hver á fætur
öðrum. Ekki komast þeir allir
hjálparlaust. Þessi skógarþröstur
hafði villst af leið og var kominn
150 sjómílur suður af landinu þeg-
ar hann tyllti tá á Viðey RE. Var
hann aðframkominn og hefði
eflaust drepist ef hann hefði ekki
hitt fyrir hjálpsama skipveija, sem
gáfu honum ferskt vatn og brauð-
mylsnu. Fuglinn var í góðu yfir-
læti um borð þar til veiðiferðinni
lauk. Þegar skipið nálgaðist land
kvaddi hann með vængjaþyt og
situr nú eflaust á tijágrein í ein-
hveijum garðinum á höfuðborgar-
svæðinu.
—-----------♦ ♦ ♦----
Lát konu rannsakað
Sextugur
maður í
gæsluvarð-
haldi
SEXTUGUR karlmaður var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 3. maí næst-
komandi í Héraðsdómi Norðurlands
»—eystra vegna láts rúmlega sextugrar
konu á bæ í Öxndal í Eyjafirði um
helgina.
Málsatvik eru þau að á laugar-
dagskvöld kl. rúmlega 20 var óskað
eftir lækni og sjúkrabifreið á bæ einn
í Öxnadal vegna konu sem þar hafði
látist. Lögregla var einnig send á
staðinn.
Þegar þangað var komið bentu
ummerki á staðnum til þess að látið
hefði ekki borið að með eðlilegum
hætti, þannig að ákveðið var að rann-
saka málið frekar. Sú rannsókn leiddi
til þess að ábúandinn á bænum var
handtekinn.
Á sunnudag var krafist gæsluvarð-
halds yfir manninum í hálfan mánuð
-fjcr var krafan tekin fyrir í Héraðs-
aómi Norðurlands eystra í gær þar
sem úrskurðað var að maðurinn skyldi
sæta gæsluvarðhaldi til 3. maí næst-
komandi. Rannsóknarlögreglan á
Akureyri fer með rannsókn málsins,
en nýtur aðstoðar tæknideildar Rann-
sóknarlögreglu ríkisins.
----♦ ♦ ■♦---
Hestamanna-
mót í Grímsey
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Léttir á
Akureyri hyggst standa fyrir hesta-
mannamóti í Grímsey 22. júní nk.
Stefán Erlingsson hjá Létti segir að
eftir því sem hann komist næst sé
þetta í fyrsta sinn sem slíkt mót er
haldið í eynni.
Ráðgert er að fara með 8-10 hross
frá Akureyri með feijunni Sæfara
og verður keppt í skeiði, stökki og
töiti á flugveliinum.
Breyting SH í hlutafélag
verður rædd á félagsfundi
Tillaga um að skipta eign SH í dótturfélögunum á milli félagsmanna dregin til baka
AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna samþykkti á Ak-
ureyri í gær að fela stjórninni að
endurskoða félagsform SH og
leggja niðurstöðurnar fyrir sér-
stakan félagsfund í haust. Þá skýr-
ist hvort áhugi hefur aukist á því
að breyta SH í hlutafélag. Tillaga
um að afhenda félagsmönnum beint
þá eign sem felst í dótturfélögunum
í Bandaríkjunum og Bretlandi var
dregin til baka.
Sigurður Einarsson, útgerðar-
ÖNNUR tegund A-stofna inflú-
ensu stakk sér niður hér á landi
eftir áramót í kjölfar hinnar
fyrri í fyrrahaust. Helgi Guð-
bergsson, starfandi héraðslækn-
ir, segir að af því að tegundin
hafi ekki valdið faraldri megi
ætla að töluvert ónæmi hafi ver-
ið fyrir henni meðal íslcndinga.
Hins vegar óttast hann að marg-
ir kunni að veikjast í kjölfar
breytts stofns næsta haust.
Helgi sagði að A-stofna H3N2
inflúensa hefði gengið yfir hér
á landi í október, nóvember og
desember og eitthvað fram yfir
áramót. Eftir að sú inflúensa
hefði gengið yfir hefði svo A-
stofna HlNl inflúensa tekið við
í mars og apríl.
maður í Vestmannaeyjum, hefur í
mörg ár barist fyrir breytingu á SH
í hlutafélag. Fyrir fundinn í gær
voru lagðar nýjar tillögur hans um
þetta efni. í þeim fólst í fyrsta lagi
að eign SH í dótturfélögunum í
Bandaríkjunum og Bretlandi,
Coldwater Seafood og Ieeland Frez-
ing Plants, yrði afhent eigendum
SH, þeir _ skipti hlutabréfunum á
milli sín. í öðru lagi yrði stjórn SH
falið að stofna hlutafélag sem þegar
í júní tæki við öllum rekstri, eignum
Hann sagði að þrjár tegundir
inflúensu, þessar tvær af A-
stofni og ein B-stofna, gengju
að jafnaði yfir til skiptis og allar
tegundirnar gætu breytt sér.
Hins vegar væri óvenjulegt að
tvær tegundir greindust á sama
árinu. Afbrigðin væru lík og
sömu sjúkdómseinkenni, höfuð-
verkur, hálsbólga, kvef og hiti,
gjarnan með hósta, fylgdu þeim.
Bóluefnið frá því í fyrrahaust
náði til beggja afbrigðanna.
Nýr stofn kenndur við Kína
Helgi sagði að af því að inflú-
ensan væri svipuð fyrri inflúens-
um hefðu ekki orðið miklir far-
aldrar. Hins vegar væri ekki
ólíklegt að inflúensufaraldur
og skuldum SH og sölumiðstöðin
lögð niður að því búnu.
Skipting eigna
Jón Ingvarsson, stjómarformaður
SH, lagði til að tillagan um að skipta
eigninni í dótturfélögunum yrði felld.
Hann lagði til að hlutafélagstillög-
unni yrði vísað til stjómar, henni
falið að endurskoða félagsformið og
leggja niðurstöðumar fyrir sérstakan
félagsfund í haust. Var sú tillaga
samþykkt með öllum greiddum at-
gengi yfir næsta haust. „Úti í
heimi eru nefnilega farnir að
gera vart við sig stofnar talsvert
ólíkir fyrri stofnunum. Við höf-
um ekki algjöra vissu fyrir því
en búast má við að hressilegur
faraldur gangi yfir næsta vet-
ur,“ sagði hann. Iiann sagði að
um töluvert breyttan A-stofn
H3N2 væri að ræða og væri af-
brigðið kennt við Wuhan-borg í
Kína.
Hann sagði að bólusett yrði
við nýja afbrigðinu næsta haust.
Það væri ólíkt fyrri afbrigðum
og því væri lítið ónæmi fyrir í
fólki. Líkur væru á að margir
myndu veikjast. Inflúensan sjálf
væri hins vegar ekki alvarlegri
en fyrri inflúensur.
kvæðum og dró Sigurður þá tillögu
sína um dótturfélögin til baka.
Sigurður sagðist vera þokkalega
ánægður með þessa niðurstöðu,
þegar rætt var við hann eftir fund-
inn, þótt í henni fælist ekki efnisleg
afstaða þýddi hún að unnið yrði í
málinu. „Það fylgja þessu bæði kost-
ir og gallar,“ sagði Sigurður um
hlutafélagsformið. Sagðist hann
telja að rekstur SH yrði skilvirkari
í hlutafélagi og skýrara hvað menn
ættu. Taldi hann betra að standast
samkeppni, bæði innanlands og ut-
an, með hlutafélagsforminu.
„Tillagan kom fram með svo
skömmum fyrirvara að ekki gafst
tími til að fara yfir málið. Þetta er
mjög mikil ákvörðun sem ná þarf
um sem mestri sátt,“ sagði Jón Ing-
varsson um afgreiðslu fundarins.
Hann sagði að tillaga þessa efnis
hefði komið reglulega til umfjöllun-
ar í stjórn og á aðalfundum SH.
Skiptar skoðanir væru um málið og
vilji félagsmanna yrði að koma í ljós
á félagsfundinum í haust. Bæði Sig-
urður og Jón töldu að heldur vax-
andi áhugi væri fyrir breytingum í
þessa átt.
Veikir félagið
Dótturfélögin í Bandaríkjunum
og Bretlandi eru stærstu eignir SH,
2,3 milljarðar króna. „Það kemur
ekki til greina að svipta SH þessari
eign. Það veikir félagið svo mikið
að það hefði ekki þá burði sem þarf
til að taka þátt í ört vaxandi sam-
keppni,“ sagði Jón um þá hugmynd
að afhenda eigendum SH eignar-
hluti félagsins í Coldwater og IFPL.
■ Hagnaður helmingi/28
------♦.♦■.♦---
Góða veðrið
kætir
ÞAÐ ríkti mikil gleði við Gerðu-
berg í Breiðholti í gær þegar
ungir sem aldnir skemmtu sér
saman i vorblíðunni.
------♦-♦-♦----
Uppsagnir
heilsugæslu-
lækna fram-
lengdar
HEILBRIGÐIS- og tryggingamála-
ráðherra hefur ákveðið að neyta
heimildar laga til að framlengja upp-
sagnarfrest 129 heilsugæslulækna
um þijá mánuði.
Læknarnir sögðu upp störfum með
þriggja mánaða fyrirvara 1. febrúar
sl. og hefðu því átt að hætta störfum
í dag. Uppsagnarfresturinn var
framlengdur til 31. júlí nk.
Katrín Fjelsted, formaður Félags
íslenskra heimilislækna, sagði að í
bréfi með uppsögnunum hefði komið
fram að nauðsynlegt væri að kveða
upp úr um verkaskiptingu í heilbrigð-
ismálum og skerpa línurnar hvað
varðaði stjórnkerfi heilsugæslunnar.
Ekki fyrr en að því loknu væri hægt
að hefja viðræður um gerð kjara-
samninga heilsugæslulækna.
Morgunblaðið/Sverrir
Breyttur inflúensustofn
gæti gert usla næsta vetur