Morgunblaðið - 18.05.1996, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 18.05.1996, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/LESBOK/D Reuter Söguleg Samveldisleiðtogar lýsa stuðningi við Jeltsín Moskvu. Reuter. LEIÐTOGAR fyrrverandi sovétlýð- velda komu saman í Moskvu í gær óg lýstu yfir stuðningi við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, í kosn- ingunum 16. júní, enda óttast marg- ir þeirra að sigur kommúnista geti stofnað sjálfstæði nýju ríkjanna í hættu. Nú, þegar tæpur mánuður er í kosningarnar, er staða Jeltsíns enn mjög óljós og niðurstöður tveggja skoðanakannana, sem birt- ar voru í gær, eru mjög misvísandi. Samkvæmt könnun Stofnunar almenningsálitsins hefur Jeltsín náð fjögurra prósentustiga forskoti á helsta andstæðing sinn, Gennadí Zjúganov, frambjóðanda rúss- neskra kommúnista. Jeltsín fær þar 27,8% fylgi en Zjúganov 23,8%. Niðurstöður nýrra kannana á fylgi frambjóðenda mjög misvísandi Félagsvísindastofnun þingræðis- ins birti hins vegar könnun þar sem 42% aðspurðra sögðust styðja Zjúg- anov en aðeins 27% Jeltsín. Kann- anir síðarnefndu stofnunarinnar þykja vandaðri og áreiðanlegri en aðrar kannanir í Rússlandi. Leiðtogar ellefu annarra fyrrver- andi sovétlýðvelda, sem eiga aðild að Samveldi sjálfstæðra ríkja, sögð- ust vona að Jeltsín færi með sigur af hólmi í kosningunum. „Úkraínu- menn vona að umbótunum í Rúss- landi verði haldið áfram og undir stjórn sömu manna og hófu þær,“ sagði Leoníd Kútsjma, forseti Úkra- ínu, og aðrir leiðtogar tóku í sama streng. Óttast sigur kommúnista Leiðtogarnir samþykktu stuðn- ingsyfirlýsingu þar sem þeir sögð- ust virða vilja rússneskra kjósenda en létu í ljós þá von að þeir kysu „sameinað, blómlegt og lýðræðis- legt Rússland". Leiðtogarnir óttast að sigur kommúnista, sem vilja endurreisa Sovétríkin, kunni að stofna sjálfstæði ríkjanna, sem stofnuð voru eftir hrun kommún- ismans, í hættu. Zelímkhan Jandarbíjev, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Tsjetsjníju, var- aði við því í gær að Jeltsín myndi hætta lífi sínu ef hann stæði við yfirlýsingar sínar um að hann hygð- ist heimsækja héraðið. Jandarbíjev kvaðst ekki hafa skipulagt árás á rússneska forsetann en sagðist ekki geta hindrað að reynt yrði að ráða hann af dögum til að hefna dráps- ins á Dzhokhar Dúdajev, fyrrver- andi leiðtoga Tsjetsjníju. „Hefndar- rétturinn er spurning um heiður í augum allra sómakærra Tsjetsj- ena,“ sagði hann. ■ Gæti aukið fylgið/22 ■ Niðurskurður/21 Bretar og Rússar reka hvorir fióra úr landi i Ronfer I London. Reuter. BRESKA utantílÆsráðuneytið skipaði fjórum j stlarfsmönnum rússne^a sendiráðsins í London í gær að hverfa tír; landi innan tveggja vikna. Fyrr um daginn ákváðu Rússar að reka fjóra breska sendiráðsmenn úr landi fyrir meintar njósnir. Bretar ákváðu að svara Rússum í sömu mynt. Fjórmenningarnir eru sagðir stárfsmenn njósnadeild- ar rússneska sendiráðsins í London en Bretar höfðu hótað að reka hana alla heim létu Rússar verða af fyrri hótunum um að vísa níu breskum sendiráðsmönnum heim. Reyndu sættir Rússneskir og breskir stjórnar- erindrekar hafa átt fjölda viðræðu- funda frá 6. maí er Rússar hótuðu að reka níu Breta úr landi. Sögð- ust þeir hafa handtekið starfs- mann utanríkisráðuneytisins í Moskvu sem látið hefði fulltrúum bresku leyniþjónustunnar í té leynilegar upplýsingar. Bretar mótmæltu ákaft og sögðu ásakan- irnar heimatilbúnar og ætlaðar til að styrkja stöðu Borís Jeltsíns vegna forsetakosninganna í næsta mánuði. Malcolm Rifkind utanríkisráð- herra sagði í gær, að Rússum hefði ekki tekist að sýna með nein- um hætti fram á sekt breskra sendiráðsmanna. Tveir þeirra áttu að ljúka störfum í Moskvu í sumar og enginn bresku sendiráðsmann- anna verður lýstur óvelkominn til Rússlands aftur. Reuter * Olympíu- leikvangur vígður ÓLYMPÍULEIKVANGURINN í Atlanta í Bandaríkjunum verður vígður í dag með miklu stjörnu- móti í frjálsíþróttum. Leikarnir verða síðan settir á leikvanginum 19. júlí í sumar eða eftir tvo mán- uði. Þá tekur við tveggja vikna keppni um 10.000 íþróttamanna frá öllum heimshornum. Að því búnu verður leikvangurinn rifinn að verulegu leyti og breytt í hornaboltavöll. í gær lögðu starfsmenn síðustu hönd á frá- gang vallarins svo vel fari um gesti. Olían lækkar London. Reuter. OLÍA lækkaði í verði á heims- markaði í gær þar sem gengið er út frá því að Irakar fái senn heim- ild til að selja um 16 milljónir fata af olíu á næstu sex mánuðum til að fjármagna kaup á lyfjum og nauðsynjavörum. Lækkaði viðmiðunarolía úr 17,97 dollurum fatið í fyrradag og kostaði 17,70 dollara í London í gær. Þá lækkaði bensíngallonið úr 64,20 sentum í 63,25 sent milli daga á olíumarkaði í New York og hefur því lækkað um 20% frá því það náði hámarki, 78,10 sent gallonið, fyrir mánuði. Hanna Nýr hreyfill Af hálfu Rússa verða Túp- olove-verksmiðjurnar sam- starfsaðilar DASA. Fyrirtæk- in munu þróa bæði vetnisknú- inn hreyfil og flugvél sem henta mun þeirri tækni. I fyrstu verður þó Dornier-328 flugvél notuð til prófana á nýja hreyflinum. Til viðbótar hafa fyrirtæk- in ákveðið að vinna saman við þróun smíðiseininga sem notaðar yrðu í farþegaþotur Airbus-verksmiðjanna. stjómar- vetnisþotu Berlín. Reuter. ÞJÓÐVERJAR og Rússar hefja síðar á þessu ári sam- starf um þróun og smíði far- þegaþotu sem knúin verður vetni í stað steinolíu og hyggjast þannig draga úr mengun og draga úr olíunotk- un, að sögn flugdeildar Daimler-Benz fyrirtækisins (DASA). myndun ROMANO Prodi, leiðtogi ólífu- bandalagsins, myndaði í gær 55. ríkisstjórn Ítalíu frá stríðjs- lokum og er hún sú fyrsta í tæp fimmtíu ár sem fyrrum komm- únistar eiga aðild að. Eitt fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar verður að knýja í gegn niður- skurð á fjárlögum yfirsjand- andi árs, sem fráfararidi stjórn hafði lagt grunninn að. Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar eru í stjórninni; Carlo Azeglio Ciampi, sem verður yfir nýju sameinuðu ráðuneyti fjármála- og fjárlaga, og Lamberto Dini, sem gegnir starfi utanríkisráð- herra. Saksóknarinn Antonio di Pietro, sem þekktastur er fyrir baráttu sína gegn spill- ingu á Ítalíu, er ráðherra opin- berra framkvæmda og mun því stjórna þeim geira þar sem hvað mest hefur verið um spill- ingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.