Morgunblaðið - 18.05.1996, Page 12
12 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996
Mótaði
lífsstíl
20. aldar
Tískukóngurinn Pierre Cardin er á íslandi.
Sem sendiherra UNESCO afhendir hann kl.
13 á laugardag utanríkisráðherra svonefnda
„Fána umburðarlyndis<( við Ráðhúsið. Jafn-
framt er hann að líta á ísland, tími til kom-
inn, sagði hann við Elínu Páimadóttur,
áður en hann hélt í rigningunni til Gullfoss
og Geysis. En hann rekur líka Maxims með
veitingahúsum og ferðaskrifstofu. 0 g með
honum í för er M. Cardier, hans maður í
Maxims ferðafyrirtækinu.
VARLA er sú manneskja í
veröldinni sem ekki
þekkir merkið „Pierre
Cardin", það má sjá á
hvers konar merkjavöru sem fólk
notar í lífinu, fötum, húsbúnaði,
matvörum, smávörum o.s.frv. og í
öllum heimsálfum. En það var
hann sem fyrir 40 árum skipulagði
og kom af stað þessháttar einka-
leyfiskerfi og merkjavörutísku 20.
aldar.
„Það tók langan tíma að þróast
og mikla vinnu, ekkert hefst öðru
vísi“, sagði hann. „Þetta er vöru-
merki sem þekkist alls staðar. Til
dæmis í Kína, Japan og Rúss-
landi, þar sem fólk talar ekki okk-
ar tungumál en það þekkir merkið
Pierre Cardin. Það er og á að vera
tákn um traust, eitthvað sem það
getur treyst. Það er kjarni málsins
sem ég miða að um hvaða varning
sem er að ræða“. Og svo dró hann
upp þunnan plastapakka „Hitapúð-
inn Gullsandur" eftir Pierre Card-
in, það nýjasta í öllum merkja-
flokknum og skellti á kalda hönd
blaðamannsins úr rigningunni. Frá
pakkanum streymdi hiti sem verm-
ir í 12 tíma kaldar hendur í vasa,
fætur í skóm o.s.frv. „Getur þetta
ekki komið að góðum notum ef
fólki kólnar á ferðalögum á ís-
landi?“, sagði hann.
Það merkilega við þennan fræga
kóng tískunnar er að hann stjórnar
öllu sínu sjálfur, skrifar undir alla
samninga og teiknar enn hátísku-
línu sína, rekur leikhúsið sitt,
kynnir sýningar í öllum heimsálf-
um. Hvernig fer hann að þessu?
Vinnur 24 tíma á sólarhring!
Sendiherra umburðariyndis
~ HVernig stendur á því að sVo
önnum kafinn maður, sem veltir
árlega hærri upphæðum en ís-
lenska ríkið, gefur sér
tíma til að vera „Am-
bassador UNESCO“ og
reka erindi þeirrar al-
þjóðlegu stofnunar um
menningu og vísindi?
Þegar hann kom hingað kvaðst
hann vera nýkominn frá ísrael til
af draga upp fána umburðalyndis
þar og í Elat afhenti hann Palest-
ínuaröbum þetta tákn friðar og
umburðarlyndis. „Daginn sem
átökunum í Líbanon lauk kom kom
ég til Petra með 350 ísraelsmenn
í fylgd með mér. Þetta er tákn-
rænt merki um mannlegt trúnaðar-
traust, sem byggist á því að um-
bera hvert annað þvert á líkamlega
yfirburði og hugarfar. Það er hlut-
verk mitt að stuðla að viðurkenn-
ingu á öllum þjóðum og þjóðflokk-
um, hversu smáir sem þeir eru og
reyna koma í veg fyrir að brjótíst
út átök milli slíkra hópa, sem því
miður gengur brösuglega. Ég hefi
farið með þessa fána til Japans,
Kína og Sovétríkjanna og allra
þeirra staða sem ég er í sambandi
við.“
Pierre Cardin kvaðst hafa tekið
að sér þetta hlutverk fyrir þremur
árum. Sendiherrar samtakanna 13
skipta með sér verkum. „Mitt hlut-
verk er sendiherra umburðarlynd-
is. Einnig gagnvart harmleiknum
í Tsjernobil eftir kjarnorkuslysið
og til þess hefi ég farið til Kiev
vegna spítala og barnaheimila og
einnig til að útvega bústaði fyrir
fólk í 50 km fjarlægð frá borg-
inni. Sem tákn og hvatningu um
umburðarlyndi, sem var kjörorð
ársins 1995 á 50 ára afmæli
UNESCO og Sameinuðu þjóðanna
hefi ég látið framleiða sex fána
eftir jafnmarga fræga listamálara
úr öllum heimsálfum, Bandaríkja-
manninn Robert Rauschenberg frá
Bandaríkjunum, Roberto Matta frá
Chile, Rachid Koraichi frá Alegríu,
Souleymane Keita frá Sénegal,
Dan You frá Viet Nam og Hund-
ertwasser frá Austurríki. Þetta eru
samskonar tákn og þjóðfánar, en
eru þama tákn heimsálfanna.
Þessa fána drógum við að húni við
UNESCO bygginguna á afmæhnu
og einnig við athöfn á Concordt-
orgi í París og síðan fer ég og
afhendi þá í öllum þátttökulöndun-
um, svo þeir blakti sem tákn um-
burðarlyndis.árið 1996. Umburðar-
lyndi fyrir skoðunum og
háttum annarra er mjög
mikilvægt í heiminum í
dag og þetta er tákn sem
á að minna og hvetja
fólk hvar semer í heimin-
um til að virða það. Ég mun af-
henda borgarstjóra Reykjavíkur og
utanríkisráðherra landsins fánana
á morgun.
Hitt erindið með komu minni er
að sjá landið, sem mig hefur alltaf
dreymt um, hvort sem það er nú
vegna „frönsku fiskimannanna"
Merkið er og á
að wera tákn
um traust
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Tískukóngurinn Pierre Cardin.
iviorgunmaoiu/ övernr
PIERRE Cardin hefur víða
verið heiðraður fyrir störf
sin. 1992 tók hann sæti í
Frönsku akademiunni, en
það er mesti heiður sem
þarlendum er veittur fyrir
menningarstörf. Myndin var
tekin við það tækifæri.
eða annars. Mig hefur lengi langað
tíl kynnast íslandi, sem er næstum
eina landið í heiminum sem ég
hefi ekki komið tíl. í 50 ár er ég
búinn að ferðast í öllum heimsálf-
Ég ætla að ferðast hér í
um.
nokkra daga og eiga góða helgi
hérna.“
Spurning um lífsstíl
Pierre Cardin hefur verið frum-
kvöðull og breytt mjög tískuheim-
inum á þessari öld. Lætur sig allt
varða, hótel, klæðnað húshald,
umhverfi. „Allt sem varðar lífs-
stíl“, segir hann.
Hann kom frá Ítalíu og varð
eftir stríð fyrsti stílistinn hjá tísku-
húsi Christans Diors 1947, áður
en hann fór að gera leikhúsbún-
inga fyrir Salvador Dali, Charles
de Bestégui og fleiri.
I því sambandi er ekki minnst
um vert að hann rekur leikhús í
París, Espace Cardin, milli Champs
Elysé og Bandaríska sendiráðsins
í miðborginni, þar sem nær ein-
göngu eru leikin framúrstefnuleik-
rit og nýjungar í leiklist. Pierre
Cardin keypti gamla Theatre Am-
bassador 1970 og umbreytti því.
Hann er ekki bara eigandi þess,
heldur tekur þátt í starfinu. „Ég
vel þau verk sem sýnd eru og einn-
ig þá sem setja þau upp,“ segir
hann.
Pierre Cardin hefur raunar alltaf
haft afskipti af menningarmálum
og tók fyrir nokkrum árum sæti í
Frönsku akademíunni, sem þykir
mikill heiður fyrir framlag til
menningarmála og fyrir mótun
hvers konar menningar.
Á árinu 1950 kom hann fram
með sína fyrstu hátískusýningu í
París í eigin tískuhúsi með miklum
lúðrablæstri. Það var fyrsti skand-
allinn. En frægð hans magnaðist
og um leið salan á tískuvarningi
hans. Þá seldu tískukóngar aðeins
hátískufatnað til auðugs fólks. En
1960 ákvað hann að yfirgefa það
kerfi „tískupáfans" og taka upp
samstarf við fólk í mismunandi
löndum heims, sem hann leiðir og
aðstoðar við að framleiða og selja
í viðkomandi löndum sjálfum, fyrir
gjaldmiðil þess lands en þá má líka
endurfjárfesta í sama landi. Og
þá eru auðvitað engir tollar. Samn-
ingar voru undirritaðir við Rinac-
etti á Italíu, Ertien í Þýskalandi
og Bonwitt-Teller í Bandaríkjun-
um. Þannig var einkaleyfakerfið
fætt, sem hann hefur grætt á síð-
an á tá og fingri. Cardin á einka-
leyfið og tekur prósentur af öllu
sem selst. Hann er sagður reka
um 850 einkaleyfafyrirtæki mú í
heiminum. Hann kvaðst ekki muna
það nákvæmlega, þetta sé á svo
mörgum sviðum, bæði ______________________
undir merki Pierres Aða|atriði að
Cardins og hms fynrtæk- ^ atvjnnu.
ins og jarðar, smáhluti sem tísku-
kjóla. Hvernig fer hann að komast
yfir þetta allt. Teiknar hann ennþá
sjálfur sínar línur?
„Já, það geri ég á nóttunni, þeg-
ar ég ligg í rúminu koma hugmynd-
irnar best til mín. Þá rissa ég þær
á blað. Og um morguninn þegar
ég fer á fætur er ég tilbúinn til að
koma þeim í framkvæmd," segir
hann. Énda fer aldrei á milli mála
handbragðið. Og hann bætir við að
hann sé alltaf með blað í vasanum
og rissi á það hvar sem er, hvenær
sem er og fyrir hvað sem er, ilm-
vatnsflösku, handritapappír, bað-
herbergisvask eða annað.
Pierre Cardin er mjög vinsæll í
löndunum þar sem hann starfar,
enda starfsemi hans mjög atvinnu-
skapandi. Aðra afdrifaríka ákvörð-
un tók hann fyrir 15-20 árum, að
íjárfesta á minnst nýttum mörkuð-
um heims. Þar kom fyrst inn Kína,
síðan Rússland, þá Pakistan og
nú Indland. Fyrsta ferð hans til
Kína var 1978 vegna samninga
um framleiðslu á fjöldaframleidd-
um tískufatnaði eða pret-a-porter,
og á því sviði eru nú seldar 100
þúsund flíkur á ári. Rússneska
ævintýrið hófst 1986 og nú í árs-
byijun opnaðist markaður hans í
Indlandi í samvinnu við þarlenda.
Nú er hann líka að verða fyrsti
maður til að opna leiðina í Kasakst-
an. En hann hefur líka farið sjálf-
ur með glæsilegar hátískusýningar
sem vakið hafa gifurlega athygli
þar í Japan og á Indlandi.
Ekki var vel séð af öðrum tísku-
kóngum þegar hann fyrstur manna
braust út úr hátískunni og tók upp
verksmiðjuframleiddu tískuna, þar
sem hann hannar og sendir línuna
út til sinnk samstarfaðila í öllum
löndum. Þeir héldu að það mundi
eyðileggja hátískumarkaðinn ef
almenningur fengi aðgang að slík-
um tískuvörum. „Það hefur ekki
orðið,“ segir hann. „Hátískumark-
aðurinn er enn til, hefur að vísu
skroppið nokkuð saman, en auðugt
fólk vill hafa eitthvað algerlega
fyrir sig með einkarétti. En pret-a-
porter gerði það að verkum að all-
ar konur sem vilja vera vel klædd-
ar geta nú keypt tískuvörur."
Keypti og útvíkkaði Maxims
Maxims veitingastaðurinn í Par-
ís er heimsfrægur. „Hann er vöru-
merki eins og Effelturninn,“ sagði
Pierre Cardin þegar ég spurði um
Maximsfyrirtækið. Hann keypti
þennan fína veitingastað 1981,
sem hann rekur og hefur um leið
gert að veitingastaðakeðju með
tveimur veitingahúsum í Peking,
einu í New York, öðru í Ríó og í
sambandi við það alls konar
merkjavöru svo sem í glösum, post-
ulíni og sódavatni. Svo hefur Max-
ims hliðargrein í ferðamennsku.
Og grunur leikur á að ofurlítið af
áhuga hans á íslandi tengist því
að athuga hvað ísland hefur upp
á að bjóða á því sviði.
Aðalatriðið er sköpunin
Þótt hann sé kominn yfir sjö-
tugt, er Pierre Cardin óþreytandi
að leita nýjunga. „Aðalaatriðið er
sköpunin, að vera atvinnuskáld,“
segir hann. Ekki standa í stað.
Óllu þessu veldi stýrir Pierre
Gardin frá höfðustöðvum sínum í
París með fámennu liði hönnuða
hann 'leggur línurnar, og
sem
hans Maxims. Hann
segir mér nú að hann
leigi hugmyndina til
skáld
ákveðins árabils, hafi eftirlit með
hvernig varan er framleidd og úr
hverju, en móti hana sjálfur.
Hannar allt sjálfur
Pierre Cardin er fyrst og fremst
hönnuður og hannar allt milli him-
i
»
|
I
l
i
nokkrum vinnustofum. Starfsfólk
hans, beinlínis, er um 600 manns,
en hann veit að út um víða veröld
eru 190 þúsund manns að fram-
leiða undir Jians merki.
________ Það furðulega er hve
þessi önnum kafni maður
er asalaus og ljúfur í
framkomu þótt við séum
við morgunverðarborðið
á Hótel Holti komin lagt
1
fram yfir þann tíma þegar hann
ætlaði af stað til Gullfoss og Geys-
is. Og hve hlýlegur hann er og
elskulegur í allri framkomu. Þar
er ekki óþolinmæðin eða yfirlætið.
Líklega er hann sjálfur dæmigerður
fulltrúi fyrir umburðarlyndið í garð
alls fólks, einstaklinga og þjóða.
í
í
4