Morgunblaðið - 18.05.1996, Page 18
18 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hagnaður Kaupfélags Þingeyinga
um 7 milljónir kr. á sl. ári
Sterkari staða
eftir endurskipu-
lagningu
Húsavík. Morgunblaðið.
HAGNAÐUR Kaupfélags Þingey-
inga á Húsavík var um 7 milljónir
króna á síðasta ári en um 9 milljón-
ir árið áður, að því er fram kom
á aðalfundi félagsins fyrir
skömmu. Heildarvelta félagsins
var um 1.780 milljónir króna, sem
er um 3,8% aukning á milli ára.
I skýrslu Þorgeirs B. Hlöðvers-
sonar, kaupfélagsstjóra, kom m.a.
fram að hagnaður fyrir ijármagns-
liði var um 36,4 milljónir króna á
móti 43,7 millj. hagnaði árið 1994.
Fjármagnskostnaður lækkaði á
milli ára og óreglulegar tekjur urðu
jákvæðar, en hafa verið neikvæðar
undanfarin ár. Fjármunamyndun
frá rekstri varð rúmlega 45
milljónir á móti 49,7 árið áður.
Stórum áfanga var náð í að laga
hlutföll í fjármögnun félagsins, en
síðastliðið haust var gengið frá
samningi við Landsbanka Islands
um fjárhagslega endurskipulagn-
ingu félagsins, sem breytti
rekstrarstöðu þess verulega til hins
betra.
Eigið fé félagsins í árslok nam
262 milijónum, sem er um 21,7%
af niðurstöðu efnahagsreiknings
og um 37 milljóna króna hækkun
milli ára. Gætt var varúðar í
eignamati og bókfært verð fast-
eigna er nokkuð undir fasteigna-
mati.
Breytingar á stjórn
Tvær breytingar urðu á stjórn
Kaupfélags Þingeyinga á aðalfundi
þess sem haldinn var fyrir
skömmu. Kjörtíma sínum í aðal-
stjóm höfðu lokið Böðvar Jónsson,
Gautlöndum, og Skarphéðinn Sig-
urðsson, Úlfsbæ, og gáfu þeir ekki
kost á sér til endurkjörs. í stað
þeirra tóku sæti í stjórninni Atli
yigfússon, Laxamýri, og Ingveldur
Arnadóttir, Hraunbæ.
Stjóm félagsins skipa því nú,
auk hinna tveggja nýju stjómar-
manna, Egill Olgeirsson, Húsavík,
sem jafnframt er formaður, Aðal-
steinn Árnason, Hrísateigi, Ari
Teitsson, Hrísum, Gísli Sigurðsson,
Arnþórsgerði og Halldóra Jóns-
dóttir, Grímshúsum.
VÖRUSKIPTIN VIÐ ÚTLÖND Á Verðmæti vöruút- og innflutninj jan.- mars 1995 og 1996 1995 (fob virði í milljónum króna) jan.-mars ■ cm: irs 1' *■> / % 1996 breyting á jan.-mars föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 29.032,9 32.422,5 11,5
Sjávarafurðir 20.428,1 25.714,1 25,6
Ál 2.962,8 3.141,5 5,8
Kísiljárn 565,4 777,0 37,2
Skíp og fiugvélar 2.149,8 126,2
Annað 2.926,8 2.663,7 -9,2
Innflutningur alls (fob) 22.980,8 27.168,7 18,0
Sérstakar fjárfestingarvörur 393,9 994,2
Skip 376,4 904,1
Flugvélar 75,4
Landsvirkjun 17,5 14,7
Til stóriðju 1.887,5 1.575,1 -16,7
íslenska álfélagið 1.696,8 1.414,5 -16,8
íslenska járnblendifélagið 190,7 160,6 -16,0
Almennur innflutningur 20.699,4 24.599,4 18,6
Olía 1.547,2 2.117,6 36,6
Alm. innflutningur án olíu 19.152,2 22.481,8 17,2
Matvörur og drykkjarvörur 2.197,7 2.619,7 19,0
Fólksbílar 883,8 1.424,3 60,8
Aðrar neysluvörur 4.792,4 5.387,3 12,2
Annað 1.1.278,3 13.050,5 15,5
Vöruskiptajöfnuður 6.052,1 5.253,8
Án viðskipta íslenska álfélagsins 4.786,1 3.526,8
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska járnblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 2.655,5 3.778,4
• Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog: á þann mælikvarða var meðalverð eriends gjaldeyris 0,2%
lægra í janúar-mars 1996 en á sama tíma árið áður. Heimild: HAGSTOFA ISLANDS
Ríkisvíxlaútboð hjá
Lánasýslu ríkisins í gær
Merki um
þrýsting til
vaxtahækk-
unar?
MEÐALÁVÖXTUN ríkisvíxla í út-
boði Lánasýslu ríkisins í gær var
þremur punktum hærri, en ávöxtun
er nú á eftirmarkaði ef tekið er til-
lit til mismunandi tímalengdar 3
og 6 mánaða víxla.
Hins vegar var hlutfallslega mun
minna tekið af tilboðum nú en í
útboði fyrir mánuði og bendir það
til tímabundins þrýstings til vaxta-
hækkunar, að því er fram kemur í
Gjaldeyrismálum, riti Ráðgjafar og
efnahagsspáa ehf. Fyrirtækið býst
þó við að vaxtalækkanir erlendis
haldi aftur af þessu.
Meðalávöxtun 3 mánaða ríkis-
víxla var 6,52% í útboðinu borið
saman við 6,73% í síðasta útboði
sem haldið var fyrir rúmum mán-
uði. Ávöxtun 6 mánaða ríkisvíxla
lækkaði úr um 6,85% í 6,65%, en
það er í takt við lækkanir á eftir-
markaði á þessu tímabili.
Alls bárust 18 gild tilboð í ríkis-
víxla að fjárhæð 1.990 milljónir.
Heildarfjárhæð tekinna tilboða var
1.080 milljónir, en þar af 360 millj-
ónir frá Seðlabanka íslands á með-
alverði samþykktra tilboða. Engum
tilboðum var tekið í 12 mánaða rík-
isvíxla að þessu sinni.
Almennur innflutningur á fyrsta ársfjórðungi jókst um 17%
ÁRNI Sophaníasson, forsljóri Miðlunar ehf., og Rune Carlström,
framkvæmdastjóri Telia Informedia Respons AB, handsala
samning fyrirtækjanna.
Vöruskiptin við útlönd
hagstæð um 5,2 milljarða
FLUTTAR voru út vörur fyrir
32,4 milljarða króna fyrstu þijá
mánuði þessa árs en inn fyrir
27,2 milljarða króna fob. Afgang-
ur var því á vöruviðskiptunum við
útlönd, sem nam 5,2 milljörðum,
en á sama tíma árið áður voru
þau hagstæð um 6,1 milljarð á
föstu gengi, skv. tilkyríningu Hag-
stofunnar.
Fyrstu þijá mánuði þessa árs var
verðmæti vöruútflutningsins 12%
meira á föstu gengi en á sama tíma
árið áður. Sjávarafurðir voru 79%
alls útflutningsins og var verðmæti
þeirra 26% meira en á sama tíma
árið áður. Þá jókst verðmæti út-
flutts áls um 6% og verðmæti kísil-
jáms var 37% meira en á sama tíma
árið áður.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu þijá mánuði þessa
árs var 18% meira á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Innflutn-
ingur sérstakrar fjárfestingarvöru
(skip, flugvélar, Landsvirkjun), inn-
flutningur til stóriðju og olíuinn-
flutningur er jafnan mjög breytileg-
ur frá einu tímabili til annars. Að
þessum liðum frátöldum reynist
annar vöruinnflutningur hafa orðið
17% meiri á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Þar af jókst inn-
flutningur á matvöru og drykkjar-
vöru um 19%, fólksbílainnflutning-
ur jókst um 61%, innflutningur
annarrar neysluvöru var 12% meiri
en á sama tíma árið áður en inn-
flutningur annarrar vöru jókst um
16%.
I marsmánuði sl. voru fluttar
út vörur fyrir 13,2 milljarða kr.
og inn fyrir 10,5 milljarða fob.
Vöruskiptin í mars voru því hag-
stæð um 2,7 milljarða kr. og í
mars 1995 voru þau einnig hag-
stæð um 2,7 milljarða kr. á föstu
gengi.
Svíar kaupa „Gulu línuna“ af Miðlun hf.
Stefnt að uppsetningu á
öllum Norðurlöndunum
TELIA AB, stærsta símafyrirtæki
Svíþjóðar, hefur samið við Miðlun
hf. um kaup á viðskiptahugmynd
„Gulu línunnar" og uppsetningu á
henni í Svíþjóð. Fyrsta þjónustan
verður opnuð í Jönköping í Svíþjóð
20. maí nk. í haust verður síðan
opnuð Gul lína í Malmö og frá og
með 1. janúar 1997 verður þjón-
usta Gulu línunnar um alla Svíð-
þjóð ef vel tekst til, að því er segir
í frétt frá Miðlun.
Starfsemin byggist á því að
neytendur í Jönköping geta hringt
í símanúmer til að fá upplýsingar
um vörur, þjónustu og vörumerki,
líkt og íslenskir neytendur hafa
gert undanfarin 9 ár.
Kaup Telia AB felst i viðskipta-
Tölvukerfin
hönnuð af íslensku
fyrirtæki
hugmyndinni, þjálfun starfs-
manna, uppsetningu á þjón-
ustunni. hugbúnaði og aðstoð við
stjórnun og markaðssetningu.
Hugbúnaður Gulu línunnar felst í
tölvukerfum sem TölvuMyndir
hanna samkv. samningi við Miðl-
un. Um er að ræða endurhönnun
á tölvukerfi sem TölvuMyndir hafa
unnið fyrir Miðlun undanfarin ár.
Undanfama mánuði hefur
starfsfólk Miðlunar í samvinnu við
TölvuMyndir og Ráðgarð ehf. unn-
ið að undirbúningi og uppsetningu
á þjónustunni í Svíþjóð.
Stefnt að uppsetningu á
öllum Norðurlöndunum
Telia AB hyggst hins vegar bjóða
samsvarandi þjónustu á öllum
Norðurlöndunum á næstu ámm.
Þegar er hafín vinna við uppsetn-
ingu á Gulu línunni í Finnlandi.
Miðlun ehf. hefur starfað að upp-
lýsingaþjónustu á íslandi undanfar-
in 13 ár og starfrækir auk Gulu
línunnar ýmsar þjónustuskrár og
fjölmiðlavöktun. Heildarvelta fyrir-
tækisins á árinu 1996 er áætluð
200 milljónir, en þar af er áætlað
að starfsemi fyrirtækisins erlendis
muni velta um 40-50 milljónum.
Rekstur Jökuls hf. á Raufarhöfn á batavegi
Hagnaður 59 millj-
ónir á síðasta ári
HAGNAÐUR Jökuls hf. á Raufarhöfn og dótturfélaga nam tæpum
59 milljónum króna á síðasta ári og er þetta umtalsvert betri afkoma
en árið 1994, er þessi fyrirtæki voru rekin með samtals tæplega tveggja
milljóna króna tapi. Rekstrartekjur jukust verulega og námu röskum
950 milljónum á sl. ári.
Afkoma Jökuls án dótturfélaga
var sýnu betri. Hagnaður fyrirtæk-
isins nam tæpum 84 milljónum
króna samanborið við rúmlega 3'
milljóna króna hagnað árið 1994.
Þá jukust rekstrartekjur fyrirtæk-
isins úr 152 milljónum S 412,5
milljónir.
Að sögn Jóhanns M. Ólafssonar,
framkvæmdastjóra fyrirtækjanna,
var afkoman í útgerðinni mjög góð
á síðasta ári og sömu sögu má
segja af rækjuvinnsiunni. Hins
vegar hafi landvinnslan verið mjög
erfið. „Það má því segja að af-
komubatinn felist í aukinni útsjón-
arsemi í útgerð og betra ári í
rækjuvinnslunni. Landvinnslan
hefur hins vegar dregið okkur nið-
ur,“ segir Jóhannes. Hann segist
reikna með ámóta afkomu á þessu
ári en þó eitthvað lakari.
Þau fyrirtæki sem hér eiga í
hlut eru, auk Jökuls, Fiskiðja Rauf-
arhafnar og Gefla hf. á Kópa-
skeri. Skipurit þeirra var sameinað
undir lok síðasta árs og eru þau
rekin undir einum hatti en gerð
upp hvort í sínu lagi. Þá er stjórn
fyrirtækjanna einnig sameiginleg.
Jökull hf. er útgerðarfyrirtæki og
gerir nú út fjögur skip, en Fiskiðja
Raufarhafnar annast landvinnslu
og Gefla hf. sérhæfir sig í rækju-
vinnslu.
Jökull hf. á 99% í Geflu hf. og
59% í Fiskiðju Raufarhafnar á
móti 40% hlut Raufarhafnar-
hrepps. Hreppuripn á aftur á móti
um 90% í Jökli, Á aðalfundi félag-
anna á morgun verður lagt til að
hlutafé Jökuls hf. verði aukið um
20 milljónir króna að nafnvirði, en
það er í dag 63 milljónir.