Morgunblaðið - 18.05.1996, Side 37

Morgunblaðið - 18.05.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ1996 37 lllllllllllllll ÞRÓTTARAR blása í herlúðra Qtofnfundur Köttaranna, stuðningsklúbbs Þróttar, er í dag í Ölveri kl. 14.00 og fyrsti heimaleikur sumarsins á mánudaginn á móti Fram kl. 20.00 á Valbjarnarvelli í Laugardal. FélagssKírleini Köttaranna er með mynd af verndara klúbbsins sem stendur viö sjálfan Evrópubikarinn árið 2007, en smíöi hans er nýlokið. Kötlarar á góðri stund. próttarar ætla sér stóra hluti í framtíðinni og helst strax í sumar á knattspyrnuvellinum. Það er vegna þess að við trúum því að þetta rótgróna félag sem á gríðarlega auðlind í góðu fólki geti komist á toppinn. Hér með er því skorað á alia Þróttara að gefa sig fram á ofangreindum stöðum til að sýna í verki að í aðra röndina elska þeir líka hina röndina. Á fundinum verður klúbburinn stofnaður, félagsskírteini afhend, þrumuræður haldnar og Þróttarsöngurinn sunginn í nærveru léttra veitinga. Á mánudaginn tökum við okkur svo stöðu í stúkunni og látum engan efast um hverjum sá viðfelldni hópur tilheyrir. j||vað er Köttari? Markmið Köttara er að elska og styðja Þrótt og að skemmta sjálfum sér og öðrum. Köttarar eru lævísir og liprir, eins og kötturinn og fara sínar eigin leiðir. Orðið kemur upphaflega úr Þróttmikilli íþróttagrein en hefur öðlast víðari merkingu og þykir til dæmis ekki í frásögu færandi þótt tekið sé köttað innkast. Kött er m.ö.o ákveðið lífsform, þótt varla verði stofnaður stjórnmálaflokkur um fyrirbærið. Nokkur köttuð boðorð: Köttarar eru með línurnar í lagi, þ.e. rauðar, hvítar og lóðréttar. Köttari skal vera karlmannlegur þótt kona sé. Köttari hræðist ekki hið óþekkta, nema vera skyldi reglur KSÍ. Köttarar eru meinlausir og kurteisir í sínum dónaskap. Köttarar trúa á geimverur og líf eftir fyrstu deild. Köttari klæðist korselett þegar honum finnst það viðeigandi. Köttari hefur gott karma og fallega pússaða áru. Köttarar trúa á endurholdgun og benda á að Jim Morrison er Þróttari í dag. ÞAÐ ER ÞRÓTTUR í ÞESSUM FYRIRTÆKJUM: GLÆSIBÆR Landsbanki íslands Bankl allra landsmanna L ÖLVER m Skandia ÍSLANDSBANKI /tfizuio LIFI ÞRÓTTUR Bakmenn Þróttar ■ ■■■■■■■■■■ 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.