Morgunblaðið - 18.05.1996, Page 49

Morgunblaðið - 18.05.1996, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996 49 í I i : ( < < ( Friðhelgi látinna fótum troðin Frá Jónu Rúnu Kvaran: AF alvarlega gefnu tilefni get ég ekki orða bundist og sé því ástæðu til þess að vekja athygli annarra á ömurlegri reynslu sem ég hef orðið fyrir varðandi grafreit sem ég hirði um á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn minn lést í janúar 1994 og varð lagður til hinstu hvíldar í kirkjugarðinn við Suðurgötu. Ég ákvað í upphafi að setja endingar- sterkt og skrautlegt silkiblóm við minningarkrossinn hans í garðinum í þeirri trú að það fengi að vera þar rautt og fallegt í friði þrátt fyrir váleg veður og vetrarhörkur. Veður- hamur truflar sannarlega ekki end- ingarhæfni blómsins því það stóð af sér hvers kyns veðurhræringar á annan vetur. Það er á hinn bóginn óvandað fólk sem ítrekað virðist hafa séð varhugaverðan tilgang í því að reyta af blóminu blöð og knúpp. Viðkomandi aðilar hafa slitið biómið upp úr stuðningssteinum og mold þar sem það hefur legið í vasa sem grafinn hefur verið djúpt ofan í jarðveginn. Vasinn hefur ítrekað verið rifinn upp úr jörðinni og kast- að frá krossinum ásamt leifum blómsins. Steinar sem mynda skrautkross blóma á leiðinu hafa verið íjarlægð- ir og brotnir. I þokkabót hafa ein- hverjir séð ástæðu til þess að kasta af sér þvagi yfir krossinn og nán- asta umhverfi hans. Hvernig það er gert bendir ekki til þess að dýr eigi þar hlut að máli heldur fólk, því það sjást ummerki mannaúr- gangs m.a. ofan á minningarkross- inum. Sígarettustubbar og allskyns gosdrykkja- og sælgætisumbúðir hafa jafnframt verið látnar falla á leiðið og hafa beðið mín og minna þegar við höfum komið til þess að votta minningu hins látna virðingu og kærleika. Ég verð að viðurkenna að ég áleit á tímabili að þetta væri at- burðarás sem væri einstök, en svo er ekki. Líti maður í kringum sig til annarra leiða á svipuðum slóðum blasa m.a. við stórskemmdir leg- steinar sem hafa greinilega verið brotnir af mannavöldum. Jafnframt þessari staðreynd er aðflutt drasl á ýmsum leiðum og á göngustígum meðfram og á milli leiðanna flestum til ama. Ég verð að játa það að mér sárn- ar þessi atgangur á leiðið og vil benda þeim sem fara um þennán kirkjugarð að sjá sóma sinn í því að vanvirða ekki minningu þeirra látnu með hegðun sem er ósæmileg og afbrigðileg og vanhelgar rétt þeirra liðnu til fá að hvíla með sæmd. Látnir geta ekki varist vanvirð- andi hegðunartferli lifenda og eru varnarlausir gagnvart framferði skemmdarvarga sem smána og fót- umtroða friðhelgi hinna látnu og þeirra sem kjósa að hlú að grafreit- um sinna nánustu. Hvort í þessu sérstaka tilviki er um skemmdarfýsn bama eða full- orðinna að ræða skal ekkert fullyrt um, en hvort heldur sem er þá er mál að linni. Látum leiði látinna í friði og gerum ekki lítið úr því sem öðrum er heilagt og hugstætt, því það særir og hryggir hlutaðeigandi. JÓNA RÚNA KVARAN, Kambsvegi 25, Reykjavík. Vertu til friðs, Gróa á Leiti Frá Hörpu Karlsdóttur: ÞAÐ veldur mér furðu hversu íslend- ingar eru oft á tíðum tilbúnir að rakka náungann niður eða trúa öllu illu upp á hann. Þetta á sérstaklega við ef um einstakling er að ræða sem eitthvað ber á eða kemur fram með nýjar hugmyndir. Af hveiju sam- gleðjumst við ekki? Ég vil sérstak- lega minnast á Ástþór Magnússon í þessu sambandi. Hann kom til lands- ins fyrir rúmu ári með hugmyndir að friði og uppbyggingu friðar í heiminum, sem á ekki að gera nein- um illt nema síður sé, og setti á stofn samtökin Friður 2000. Mér finnst nauðsynlegra að byggja upp stofnum sem þessa hér á landi en að bæta við Álver sem eykur mengun í okkar hreina landi. Það eina sem Ástþór hefur gert af sér er að hann varð gjaldþrota hér á íslandi fyrir rúmum áratug. Hann fór erlendis með ekki neitt, byijaði upp á nýtt og með elju °g dugnaði haslaði hann sér völl í viðskiptaheiminum. Getur verið að það sé öfundin sem nái yfirhöndinni þegar illt umtal fer af stað í garð náungans? Undanfarið hefur borið á ósannindum um rekstur Friðar 2000 í DV. Nú á að reyna að grýta þenn- an „friðarpostuia" niður með öllum tiltækum ráðum, sem hefur gerst svo vitlaus að eyða öllum eigum sínum í friðarmál. En við skulum muna að ef þú berð ekki virðingu fyrir sjálfum þér, þá berðu ekki virðingu fyrir öðrum. Þessu ætla ég aðeins að bauna að blaðamannastéttinni sem virðist sækja æ meir í slúðrið. Ég var ein þeirra sem fór með stofnuninni Friður 2000 til Sarajevó um síðustu jól með um 100.000 gjaf- u' frá íslenskum börnum sem gáfu jólasveininum gjafir í þetta sinn svo hann gæti glatt „börnin í stríðinu" eins og ein lítil hnáta sagði er hún afhenti pakka. Við lögðum okkur í lífshættu í þessari ferð, fengum t.d. ekki keypta iíftryggingu. Fjöldi ís- lendinga studdi okkur með því að kaupa jóla- og friðarmerki Friðar 2000 og rann það fé til kaupa á elds- neyti ásamt tryggingu á þotunni sem var rúmlega 1 milljón ísl. króna fyr- ir 30 mínútna stopp á hersetnum flúgvellinum í Sarajevó, sem varla er flugvöllur lengur. Við vorum hepp- ■n að komast yfirleitt Jieim daginn eftir. Það er erfitt að skipuleggja ferð sem þessa, sem farin er í miðju stríði. Fýrirfltuttu kom út bókin Virkjum Bessastaði eftir Ástþór Magnússon. Þótt bókin beri titilinn „Virkjum Bessastaði" þá fjallar hún ekki um innréttingamar í forsetabústaðnum. Þessa bók gaf hann út til að vekja almenning til umhugsunar á málefn- um sem koma okkur öllum við. Ég hvet alla til að finna sér tíma til lesa þessa bók, hún er hvorki vandlesin né óskiljanleg. Þar er einnig ferða- saga til Sarajevó sem gefur okkur innsýn í líf fólks í stríði alls ekki langt frá okkar friðsæla íslandi. HARPA KARLSDÓTTIR, Grettisgötu 46. Þetta tilboð gildir um allar Rhiloo vörur: Þvottavélar, þurrkara og ísskápa. Notaðu tækifærið og komdu gömlu græjunni í verð, það skiptir engu máli í hvernig ástandi hún er eða af hvaða gerð. Við sækjum hana meira að segja heim til þín um leið og þú færð þá nýju! (FRÍ HEIMSENDING GILDIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU) Verðdæmi Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 00 Fyrir 8-10 þúsund kr! RAÐCREIDSLUR Philco ísskápur 180x60 sm. CBR25 Verð nú: 79.900 kr. Afsláttur v/ eldri ísskáps: 10.000 kr. Tilboðsverð: 69.900 kr. 5% stgr. afsláttur: 3.500 kr. Staðgreiðsluverð: 66.400 kr VÍSa í 1Ö. mán. meðaigr. á mán. 4.460 m/ vöxtum og kostn. Philco þvottavél 800 sn. WMN862 Verð nú: 54.600 kr. Afsláttur v/ eldri vélár: S.000 kr. Tilboðsverð: 46.600 kr. 5% stgr. afsláttur: 2.300 kr. Staðgreiðsluverð: 44.300 kr. VlSa í 18. mán. moðalgr. á mán. 3.005 m/ vöxtum og kostn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.