Morgunblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996
MONTANA
DIESEL
# gegnum
glerið
Sólgleraugu gegna margvíslegu hlutverki öðru en að
vernda augun fyrir sólinni. Áslaug Snorradóttir og
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir fóru út í góða veðrið á
dögunum, könnuðu málið og ræddu við sólgler-
augnafíkla um leið og þeir stilltu sér upp með
eftirlætis sólgleraugun sín á nefínu.
MORGUNBLAÐIÐ
Þetta eru bjartsýn-
ísgleraugu. Glerin
eru blá og því sé égr
heiminn i ööru ljósi. Ég
keypti þau í Sautján og
er alltaf með þau!
/ Barnapian á þessi
/ sem voru keypt fyrir
/ 100 ka11 á bensin-
/ stöð. Ég er með þau þvi
/ Ray Ban gleraugun min
/ eru i viðgerð.
3KY/V/A GuvWPGpvMA
AU#lÝS(N<?[A S77éf<i
Ég er rosalegur
gleraugnasafnari og
á stórt og mjög töff
safn af flottum gler-
augum. Þessi eru þó
1 ánsgleraugu.
&ES77 fijðW '(Hmut
Ljósm: Áslaug Snorradóttir
Þessi sólgleraugu eru
dálitiö eydd en samt
litið notuð og eru mjög
m/ÍNNULAuS
a la ELVIS PRESLEY
ÞEGAR sumarið gengur í garð og sól-
in skýst heit og björt upp á himin-
hvolfið fara margir að huga að sól-
gleraugunum sínum. Duga þau gömlu eitt
sumarið enn eða skyldi fjárfest í nýjum?
Komist menn að síðari niðurstöðunni þarf að
hafa ýmislegt í huga og væri rangt að ana út
í sólgleraugnakaup að vanhugsuðu máli.
Að ótal mörgu er að hyggja, jafnvel þótt
fjárráð og smekkur neytenda sé æði misjafn
og kröfur hans sömuleiðis. Sumir eltast við
tískuna og snobba fyrir ákveðnum merkjum
á meðan aðrir flnna klink í buddunni og
splæsa í ódýrustu sólgleraugun á markaðin-
um. Enda geta réttu gleraugun á réttri
manneskju gert bensínstöðvar-gleraugu að
Gaultier ef svo er að skipta og enginn sér
muninn.
Margvíslegt hlutverk
Þessi staðreynd réttlætir þó ekki fljót-
færni við val nýrra sólgleraugna. Margt
kemur til og þá ber fyrst að nefha það sem
snýr að heilsuvemd. Þynning ósónlagsins
hefur aukist gríðarlega hér á norðurslóðum
og í því sambandi er skynsamlegt að velja
gleraugu með 100 prósent sólarvöm því UV-
sólai'geislar geta valdið ótímabæm vagli í
augum. Vissulega eru slík gleraugu dýrari
en margur hefur hug á að kaupa, en á móti
má réttlæta bruðlið og vanda valið því líta
má á sólgleraugnakaup sem fjárfestingu í
andliti.
Ekki þarf að vera glampandi sólskin til að
sólgleraugu sjáist í notkun og margt getur
komið til. Feimni er vandamál sem margir
glíma við og geta þá sólgleraugu orðið besti
vinur þess feimna því þau veita ákveðna
vöm fyrir utanaðkomandi áreiti.
Ekki má gleyma hlutverki sólgleraugna
þegar menn þurfa að dulbúast. Sjái menn
Nota bara gleraugu þegar
rignir!
Ég nota aldrei sól-
gleraugu nema á djamm-
inu eða þegar ég er dauð
ástæðu til að vera í einhverjum feluleik ættu
þau svo sannarlega ekki að koma upp um
mann, þótt hitt sé annað mál að það getur
virkað mun grunsamlegra og meira áber-
andi að vera með sólgleraugu við ópassandi
kringumstæður.
Rammi ancllitsins
Sólgleraugu ramma inn andlitið og því er
ekki verra að ramminn eða umgjörðin sé
klæðileg. Þetta eru margh- meðvitaðir um og
til eru þeir sem eiga fullan fataskáp af sól-
gleraugum, tuttugu pör eða svo. Þeir gera
sér grein fyrir því að ólík sólgleraugu passa
við ólíkar aðstæður. Ein passa við húsið,
önnur við bikiníið og svo er auðvitað nauð-
synlegt að eiga gleraugu sem passa vel við
bílinn. I safninu eru svo sólgleraugu sem
vii’ka traustvekjandi og áfram mætti lengi
telja.
Enginn var maður með mönnum fyrir
nokkrum árum nema hann ætti Ray Ban-
sólgleraugu og skipti þá alls engu máli hvort
þau klæddu andlitið eða ekki. Ray Ban hafa
alltaf haldið velli á Islandi þótt þau hafi verið
úti í kuldanum í þó nokkum tíma erlendis og
eru nú fyrst að ná einhverjum vinsældum á
ný. I þetta skiptið er þó ekki verið að höfða
til kvenna.
Frægir hönnuðir hafa keppst við að ná vin-
sældum á sólgleraugnamarkaðinum og hefur
mörgum tekist vel. Alain Mikli var braut-
ryðjandi í hönnun tískusólgleraugna og reið
fyrstur á vaðið. Önnur tískuhús hafa í seinni
tíð keppst við að fá hann til að hanna fyrir sig
sólgleraugnalínur og má þar nefna merki á
borð við Soniu Rykel, Montana og Girbaud
svo einhver séu nefnd. í Los Angeles eru til
dæmis biðlistar eftir nýju kvensólgleraugun-
um frá Gucci sem eru með breiðum egglaga
plastumgjörðum og þykja minna á Jackie