Morgunblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 21 Lestarslys í Síberíu UM fimmtíu manns fórust í lestarslysi skammt frá bænum Kemerovo í Síberíu í gær. Slysið varð með þeim hætti að fjórir bílar, sem voru á flutningalest, losnuðu og skullu á farþegalest. Var sagt að fremsti vagn hennar hefði lagst saman við slysið. Skotbardagi í Xinjiang TVEIR menn létu lífið fyrr í vikunni í skotbardaga lögreglu og sjálfstæðissinna í Xinjiang- héraði í vesturhluta Kína. Skaut lögregla sjálfstæðis- sinna sem sagður var hafa gert árás á héraðsstjórann í Xinjiang, sært hann alvarlega og myrt lögregluþjón. Afsögn hjá franska sjón- varpinu FRANSKI sjónvarpsmaðurinn Jean-Pierre Elkabbach, sagði af sér í gær sem yfirmaður franska ríkissjónvarpsins, vegna hneykslismáls í tengsl- um við greiðslur til skemmti- krafta. Fékk Elkabbach nokkra þekkta skemmtikrafta til að hressa upp á áhorfið og greiddi þeim sem svarar til 8,3 milljarða ísl. fyrir. Hálshöggnir fyrir tilræði FJÓRIR Saudi-Arabar voru hálshöggnir í gær en þeir höfðu verið fundnir sekir um að hafa staðið að sprengjutil- ræði í Riyadh í nóvember sem varð fimm Bandaríkjamönnum og tveimur Indveijum að bana. Hungurverk- fall í Albaníu FÉLAGAR í albönsku stjórn- arandstöðunni hófu í gær hungurverkfall til að kreíjast þess að þingkosningarnar sem fram fóru í landinu um síðustu helgi yrðu lýstar ólöglegar. Yfir fimmtíu manns taka þátt í aðgerðunum. 500 öfgamenn handteknir EGYPSKA lögreglan hefur handtekið um 500 menn sem grunaðir eru um að vera félag- ar í öfgasamtökum heittrúar- manna. Þá var gert upptækt mikið magn vopna. Vopnahámark samþykkt BANDARÍKIN og Rússland hafa náð samkomulagi um hámark þess liversu mikið magn vopna lýðveldi fyrrum Sovétríkjanna mega hafa yfir að ráða. Hins vegar hafa Evr- ópuþjóðir ekki enn samþykkt skiptinguna. Leary látinn TIMOTHY Leary, sem var í fararbroddi þeirra sem prédik- uðu um ágæti ofskynjunarlyfja á sjöunda áratugnum, lést á heimili sínu í gær. Leary, sem var prófessor í sálfræði við Harvard, var 75 ára, en bana- mein hans var krabbamein í blöðruhálskirtli. __________ERLENT Segir hættuástand í Norður-Kóreu Tókýó. Reuter. WALTER Mondale, sendiherra Bandaríkjanna í Japan, lýsti því yfir að ástandið í Norður-Kóreu væri óljóst, en efnahagsvandi lands- ins gæti leitt stjórnina í Pyongyang til að grípa til örþrifaráða með ófyr- irsjánlegum afleiðingum. Mondale sagði að vitað væri að matarskortur væri í Norður-Kóreu, en óljóst væri hvort skollin væri á hungursneyð. Það ylti á því hversu styrk stjórn Kims Jong-ils væri hvort hún freistaðist til að beita öflugum her landsins, sem stendur grár fyrir járnum á landamærum Suður-Kóreu. Mondale sagði að hvetja yrði stjórn Norður-Kóreu til að hvika ekki frá braut skynseminnar og í því skyni ætti að leggja kapp á að tillaga Bills Clintons Bandaríkjafor- seta um fjórhliða viðræður Banda- ríkjamanna, Kínveija, Norður- Kóreumanna og Suður-Kóreu- manna um framtíð Kóreuskagans verði samþykkt af öllum aðiljum. Reuter Króati játar stríðsglæpi UNGUR Króati brotnaði saman og grét í dómssal stríðsglæpadómstóls Sam- einuðu þjóðanna í Haag í gær, er hann játaði að hafa tekið þátt í fjöldamorðum á óvopnuðum múslimum. Erdemovic er 24 ára og fyrsti maðurinn sem játar sig sekan fyrir stríðsglæpa- dómstólnum í Haag. Greiðsluskilmálar allt að 3 ár án útborgunar Euro og Visa greiðslur Reyfarakaup! Tilboðsbílar við hjólbarðaverkstæði Jöfurs í Skeljabrekku. Nú eru notaðir bílar að lækka í verði vegna breytinga á vörugjaldi af bifreiðum. Rétti tíminn til hagstæðra bílakaupa er núna. Jöfur býður mikið úrval af notuðum bílum fyrir sumarið. Opið mánudaga - föstudaga frá 09:00 til 18:00 Laugardaga frá 12:00 - 16:00 Notaðir bílar Nýbýlavegi 2, sími: 554 2600 og 564 2610
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.