Morgunblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.06.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1996 13 FRÉTTIR Fimmtugasta rótarý- þingið haldið í Kópavogi FIMMTUGASTA umdæmisþing Rót- arýhreyfingarinnar á íslandi fer fram í Kópavogi dagana 7. og 8. júní næstkomandi. A sama tíma verður haldið umdæmisþing Inner Wheel á ísiandi, en það er félagsskapur eigin- kvenna rótarýmanna. Gert er ráð fyrir að þingin sæki allt að 400 manns víðs vegar af landinu auk erlendra gesta. Hin alþjóðlega Rótarýhreyfing barst til Islands á kreppuárunum. Rótarýklúbbur Reykjavíkur var stofnaður hinn 13. september árið 1934, og næsta áratuginn voru stofn- aðir klúbbar á ísafirði, Siglufirði, Akureyri, Húsavík og í Keflavík. Klúbbarnir heyrðu undir danska rót- arýumdæmið og sóttu umdæmisþing þess. Þegar sambandið við Dan- mörku rofnaði á stríðsárunum, hó- fust tilraunir til að fá því framgengt að ísland yrði sjálfstætt rótarýum- dæmi. Þær báru árangur í kjölfar lýðveldisstofnunarinnar, og fyrsta umdæmisþingið var haldið 1947. Þá störfuðu sex klúbbar hér á landi og félagsmenn voru aðeins 133, en nú þegar fimmtugasta þingið er haldið eru þeir um þúsund talsins í 26 klúbbum. Kynningar- og ákvarðanamót Umdæmisþing rótarýhreyfingar- innar eru í senn kynningar- og ákvarðanamót, þar sem skemmtiat- riði og menningarviðburðir eru á dagskrá. Fyrsti umdæmisstjþrinn var dr. Helgi Tómasson yfirlæknir, en annar í röðinni var séra Óskar J. Þorláksson. Þeir gegndu báðir emb- ættinu tvö ár hvor, en síðan .hafa umdæmisstjórar starfað í eitt ár. Núverandi umdæmisstjóri er Ásgeir Jóhannesson framkvæmdastjóri en við starfinu mun taka af honum í lok þingsins Jón Pétursson frá Egilsstöð- um. Starfsárið 1997-1998 mun Birg- ir ísleifur Gunnarsson bankastjóri gegna embættinu. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Guðmundssyni, formanni SVIPMYND frá fyrsta umdæmisþinginu sem fram fór fyrir hálfri öld. Yst til hægri við háborðið er Vilhjálmur Þór, sem var for- seti Rótarýklúbbs Reykjavíkur og því gestgjafi þingsins. Stand- andi fyrir miðju er fulltrúi Rotary International, en honum á hægri hönd stendur Helgi Tómasson, fyrsti umdæmisstjóri Rótarý- hreyfingarinnar á íslandi. undirbúningsnefndar þing- haldsins í Kópavogi, verður um að ræða viðameiri hátíð en venjulega í tilefni af af- mælinu. Reynt verður að hafa þinghaldið stutt og hnitmiðað en önnur dag- skráratriði fjölbreytt og skemmtileg. Formót rótarý verður í Félagsheimili Kópa- vogs föstudaginn 7. júní, en sjálft umdæmisþingið verð- ur sett í Digraneskirkju dag- inn eftir og því síðan fram haldið í Smáranum. Hátíðar- ræðu þingsins flytur Styrmir Gunnarsson ritstjóri. Boðið verður upp á skemmtisiglingu og kynnis- ferðir. Bæjarstjórn Kópa- vogs tekur á móti fulltrúum og gestum og á laugardags- kvöldið verður hátíðarsam- koma. ÁSGEIR Jóhannesson, umdæmisstjóri Rótarýhreyfingarinnar, býður frú Vig- dísi Finnbogadóttur, forseta íslands, velkomna sem félaga í rótarýklúbbn- um Reykjavík-Miðborg 16. nóvember 1995. Alls eru nú rúmlega 30 konur í fjórum rótarýklúbbum hér á landi. SFR-félagar 1 starfi hjá innheimtumönnum ríkissjóðs Kanna möguleika á stéttarfélagi STARFSMENN innheimtumanna ríkissjóðs, sem eru félagsmenn í Starfsmannafélagi ríkisstofnana, eru að kanna möguleika á að segja skilið við félagið og stofna eigið stéttarfélag. Að sögn Grétars Guð- mundssonar, deildarstjóra hjá Tollstjóranum í Reykjavík, var gerð skoðanakönnun sl. haust sem benti til þess að 75,5% þess um það bil 300 manna hóps sem um er að ræða, vildi segja skilið við SFR. Forsvarsmenn hópsins hafa þegar rætt málið við ráðuneytis- stjóra fjármálaráðuneytisins og áttu á fimmtudag fund með for- ystu SFR til a’ð ræða sín mál. Jens Andrésson, formaður SFR, segir að á fundinum á fimmtudag hafi m.a verið ræddir möguleikar á að starfsmennirnir stofnuðu hagsmunahóp eða deild innan SFR. „Við eigum meira sameigin- legt en hitt,“ segir Jens. Hann sagði félagsstjórnina tilbúna að koma til móts við starfsmennina á þann hátt sem mögulegt væri innan laga félagsins en taldi tor- merki á að hópurinn yfírgæfí SFR og stofnaði sérstakt félag. í SFR eru um 4.700 félagar og starfa um 300 félagsmenn hjá inn- heimtumönnum ríkissjóðs. Sá hópur sem um er að ræða er starfsfólk tollstjóra, sýslumanns og lögreglustjóra í Reykjavík og sýslumannsembættanna úti á landi, sem hvorki eru lögreglu- menn né tollverðir né í samtökum háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna. Grétar Guðmundsson segir að ' störf hjá innheimtumönnum ríkis- sjóðs hafi ýmsa sérstöðu, væru flókin og krefðust sérhæfingar. Hann sagði að þetta fólk teldi sig hafa setið eftir gagnvart fólki í öðrum félögum sem ynni oft við hlið þess, svo sem lögreglumönn- um og tollvörðum. Einnig væri verulegur misbrestur á að fólk hefði átt kost á námskeiðum, sem í senn gerðu það það hæfara í starfi og veittu rétt til launahækkana. Grétar sagði að umræða um sérstakt félag fyrir þetta fólk hefði hafist fyrir nokkrum árum en tek- ið á sig nýja mynd, sl. haust. Grétar og félagar hans hafa átt einn fund með ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytis. Eftir þann fund með stjórnend- um SFR á fimmtudag sagði Grét- ar að næstu skref væru að ræða stöðuna við starfsmenn embætt- anna og kynna því möguleikana. Stjórnendur SFR hefðu rætt möguleika á myndun hagsmuna- hóps innan félagsins með áfram- haldandi aðild í huga og sagði Grétar að leitað yrði eftir afstöðu starfsfólksins til stöðunnar og framhalds málsins. Jens Andrésson sagði eftir fundinn að næstu skref málsins væru á valdi starfsmannanna. Hann kvaðst vonast eftir niður- stöðu á næstunni enda verði samn- ingar lausir um áramót og undir- búningur vegna þess sé að heíj- ast. Hann kvaðst gjarnan vilja sjá talsmenn starfsmanna tollstjóra og sýslumanna í starfi fyrir félag- ið í næstu samningaviðræðum. „SFR er láglaunafélag. Það á ekki bara við það, við höfum átt við ramman reip að draga,“ sagði Jens þegar leitað var álits hans á um- kvörtunarefnum starfsmannanna en kannaðist ekki við að starfs- menn þessara embætta hefðu setið sérstaklega eftir. ÆRI SNILLINGSINS / / TIL SYNIS AISLANDI! Einkaflygill rússnesk-bandaríska píanósnNlingsjns Vladimirs Horowitz er kominn til íslands. Landsmönnum gefst nú kostur að sjá /ra hlióðfæri sem verið hefur á lagi í þrjú ár. Það er hjóðfæraverslun Leifs H. Magnússonar sem býður til sýnmgarinnar. Þar er gestum velkomið ao leika á flygilinn og efnt verður til stuttra tónleika hvern sýningardag. ÓROFABÖND Vladimir Horowitz (1903-1989) var ekki einungis frægasti píanóleikari síns tíma, heldur lék hann nær eingöngu á sérsmíðaða Steinway-flygiIinn sinn nr. 314.503 í sextíu ár. Þégar Horowitz settist við hljóðfærið sitt geislaði hann af sjálfsöryggi og ástríðuþrungin túlkun hans hreif aneyrendur af ójarðneskum krafti. Slíkur Iistgjörningur á sér þrjár forsendur: flytjanaann, tónskáldio og hljóðfærið. SKIP TRYGGING HF PÍANÓFLUTNINGAR STEINDÓR GUÐMUNDSSON SfMI 8523061) / 5576461. Horowitz unni hljóðfæri sínu mjög. Sagt var að áður en hann legði upp í tónleika gengi hann í kringum flygilinn, stryki honum og klappaði. Þótti sumum sem hann hefði jafnvel meiri ást á sérstæðum hljómi flygilsins en á tónverkunum sjálfum. Kann að vera að lykillinn að kynngimagnaðri tjáningu meistarans sé að einhverju leyti fólginn í hljóðfærinu ? Því geta þeir sem leggja leið sína á Gullteiginn næstu daga svarað hver fyrir sig. Syningin stendur frá 1. júní-9. júní. Opio er frá kl. 14-17 báðar helgarnar og frá kl. 10-18 virka daga. Gjörðu svo vel að líta inn. Þú ert aufúsugestur! hljóðfænwershui Leifs H. Magmissonar GULLTEIGI 6. SIMI 568 8611
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.