Morgunblaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 11
UNDIR máttugum tindum hins
sögufræga fjalls Ararats hófst 32.
Ólympíuskákmótið á sunnudag. Við
setningarathöfnina kom Levon Ter-
Petrosjan, forseti Armeníu, fram
ásamt Kirsan Iljumsjinov, forseta
Alþjóðaskáksambandsins, og Garrí
Kasparov heimsmeistara og var
þessum þremur mektarmönnum
fagnað innilega af áhorfendum í
þjóðleikhúsinu í Jerevan þar sem
athöfnin fór fram.
Ýmsum fannst vissulega skjóta
skökku við að Kasparov skyldi sér-
staklega kynntur á setningarhátíð
þessa mikilvægasta atburðar Al-
þjóðaskáksambandsins þar sem
hann á ekki minnstan þátt í vand-
ræðum FIDE þessi misserin, með
frægri ákvörðun sinni um að segja
skilið við FIDE og tefla undir merkj-
um eigin skáksambands. En
Kasparov virðist nú hafa samið góð-
an frið við forseta FIDE og þar að
auki á Kasparov vitanlega ættir að
rekja hingað til Armeníu, þótt hann
hafi að vísu alist upp í Aserba-
edsjan. Móðir hans er armensk eins
og margir vita og hann er því vin-
sæll hér í iandi.
Einfaldir hlutir taka
langan tíma
Ólympíuskákmótið vekur að von-
um mikla athygli hér í Jerevan enda
er um að ræða fyrsta stórviðburðinn
af þessu tagi sem Armenar halda
síðan þeir tóku sér sjálfstæði undan
Sovétríkjunum árið 1991. Armenum
er því mikið í mun að vel takist til
og fram að þessu eru flestir þátttak-
endur sæmiiega sáttir, enda þótt
reynsluleysi Armena við skipuiagn-
ingu svo fjölmennra mannfagnaða
segi vissulega til sín. Flestir einfald-
ir hlutir taka afar langan tíma, enda
virðast Armenar sjálfir vera þolin-
móðir menn og rólyndir.
Aðstæður á skákstað þykja á hinn
bóginn mjög góðar en teflt er í gríð-
arstóm menningarhöll í Jerevan.
Helgi Áss Grétarsson, stórmeistari
og annar varamaður íslensku sveit-
arinnar, kvað aðstæður til dæmis
mun betri en á Ólympíumótinu í
Moskvu fyrir tveimur árum. Þá þykja
hótel að flestu leyti til fyrirmyndar.
Forsetakosningar verða í Armeníu
eftir fáeina daga og sá viðburður
hefur ásamt Ólympíuskákmótinu
orðið til þess að ýmsum lagfæringum
og þjóðþrifaverkum í Jerevan hefur
verið flýtt, svo sem viðgerðum á
rafkerfi borgarinnar, á hótelum og
FRÉTTIR
Ólympíuskákmótið hafið í Jerevan í Armeníu
íslendingamir ánægðir
með aðstæður á skákstað
Ólympíuskákmótið er hafið í Jerevan, höfuð-
borg Armeníu. Mikil átök eiga sér nú stað
innan Alþjóða skáksambandsins og er talið
að þau setji svip sinn á mótið. Dlugi Jökuls-
son iylgdist með setningarathöfninni.
víðar. Glæpir á götum úti munu
hafa verið mjög fátíðir, miðað við
það sem þekkist í ýmsum öðrum
fyrrverandi Sovétlýðveldum, en nú
hefur verið hreinsað svo til á götun-
um að öryggi vegfarenda er algert.
Vændiskonur krúnurakaðar
Það er haft til marks um hversu
Armenum er umhugað um að gefa
góða mynd af landi og þjóð að lög-
reglan mun fyrir skömmu hafa
smalað saman öllum kunnum vænd-
iskonum í Jerevan, sett þær í
stranga læknisskoðun og því næst
krúnurakað þær til þess að minni
hætta væri á því að þær freistuðust
til að leggja snörur sínar fyrir alla
þá útlendinga sem hér eru vegna
Ólympíumótsins.
127 þjóðir tilkynntu þátttöku á
þetta Ólympíuskákmót og enda þótt
einhvetjar hafi enn vantað í gær
þegar tekið var til við taflið er ljóst
að mótið er sennilega það fjölmenn-
asta frá upphafi. Sífellt bætast fleiri
þjóðir við og lengi von á sumum.
Ég hitti hér fréttaritara frá dag-
blaði Vatíkansins í Róm, sem tjáði
mér að skákáhugi væri svo mikill
hjá hinum klerklærðu í Páfagarði
að þeir væru að íhuga að senda lið
á næsta Ólympíuskákmót eftir tvö
ár. Væri það vissulega sjón að sjá
ef hér settust að tafli fjórir hempu-
klæddir kaþólskir prestar, en í bili
vekja einna mesta athygli írönsku
skákkonurnar sem mæta til leiks
svartklæddar frá hvirfli til ilja en
að vísu ekki með blæju fyrir andlit-
inu. íran tekur nú í fyrsta sinn í
langan tíma þátt í Ólympíuskák-
móti.
ísland stefnir á sæti 10-15
íslendingar eru í nítjánda sæti að
stigum hér á mótinu og ljóst að
helsta takmark okkar manna verður
að ná sæti á bilinu 10 til 15. Á hinn
bóginn er mótið svo jafnt að ef allir
íslensku keppendurnir ná sér á strik
er ekki útilokað að ná sæti meðal
hinna tíu efstu sem væri mikið af-
rek. En allir eru sammála um að
útilokað sé að spá fyrir um úrslit
með nokkurri vissu, enda hefur allt
verið breytingum undirorpið í skák-
heiminum síðustu árin.
• Þar skipta hrun Sovétríkjanna og
upplausn Júgóslavíu mestu máli, þar
sem í stað tveggja sterkra skákþjóða
komu hátt í tuttugu, og flestar í
hópi hinna allra sterkustu. Þá hafa
„gamlir" sovéskir og júgóslavneskir
skákmenn dreifst um víða veröld og
vekur mesta athygli hér að Alexand-
er Beljavski, sá frægi stórmeistari
frá Úkraínu, skuli nú tefla undir
fána Slóveníu. Meira að segja frænd-
ur vorir írar skarta nú mjög öflugum
rússneskum alþjóðameistara á efsta
borði, Baburin að nafni.
Ýmsar aðrar þjóðir hafa enn frem-
ur sýnt mikiar framfarir við skák-
borðið að undanförnu, og til dæmis
eru Grikkir, sem til skamms tíma
voru nánast aðhlátursefni í skák-
heiminum, nú orðnir stigahærri en
íslenska skáksveitin.
En hvað sem allri óvissu líður eru
Rússar langsigurstranglegastir enda
teflir Garrí Kasparov heimsmeistari
KASPAROV var mættur við
setninguna þrátt fyrir að
hann eigi mestan þátt í vand-
ræðum FIDE.
á efsta borði þeirra. Á öðru borði
er Vladimir Kramnik, þá Alexei Dre-
ev og á fjórða borði Peter Shvindl-
er. Varamenn eru Evgeni Barcev og
Sergei Rublevski. Skákáhugamenn
þekkja kannski lítið til Shvindlers
og Rublevskis en báðir eru kornung-
ir stórmeistarar sem náð hafa langt
yfir 2600 stigum síðustu misseri.
Báðir unnu til verðlauna á síðasta
Ólympíumóti. Shvindler fékk gull
með Á-sveit Rússlands en Rublevski
brons með B-sveitinni.
Judit Polgar á fyrsta borði
Önnur sterkasta þjóðin hér í Jere-
van er Englendingar sem tefla fram
Short, Adams, Speelman, Sadler,
Hodgson og Conquest. Tony Miles
datt úr skaftinu á síðustu stundu
en er þó staddur hér í Jerevan og
talar fátt við félaga sína. íslandsvin-
urinn Conquest kom í hans stað í
liðinu. í þriðja sæti yfir sterkustu
skáksveitirnar eru Ungverjar með
Judit Polgar á efsta borði og gamla
kempan Lajos Portisch hefur hreiðr-
að um sig í öðru sæti enda þótt
hann sé nú orðið töluvert stigalægri
en ungu mennirnir sem sitja í næstu
sætum. Á þriðja borði Ungveija er
Almasi, þá hinn ungi Leko, síðan
Chernin og loks Pinter.
Fjórða stigahæsta sveitin er sú
úkraínska með Ivantsjuk í broddi
fylkingar, sú fimmta kemur frá
Búlgaríu með hinn geysisterka Top-
alov á efsta borði, og í sjötta sæti
eru Þjóðveijar. Tveir fyrrum Sovét-
menn tefla nú með þýsku sveitinni,
Jussupow á efsta borði og Dautow
á því þriðja, en Hiibner er í öðru
sæ_ti.
í sjöunda sæti eru Spánveijar með
rússneska Lettann^ Shirov á efsta
borði, áttundu eru ísraelar með ein-
tóma rússneska innflytjendur í liðinu
og níundu eru Bandaríkjamenn.
Gata Kamsky teflir ekki fyrir Banda-
ríkin að þessu sinni, en í bandaríska
liðinu eru Gulko, Yermolinsky. DeF-
irmian, Kaidanov, Benjamin og
Christiansen. Armenar eru í tíunda
sæti og hefur Akopian nú rutt hinum
kunna Vaganian af efsta borði
þeirra, en stigahæsti Armeninn, 18
ára alþjóðameistari að nafni Movses-
ian, er ekki með í liðinu. í sætum
11 til 18 eru Georgíumenn, Bosníu-
menn, Hvít-Rússar, Króatar, Hol-
lendingar, Grikkir (!), Tékkar og
Eistlendingar.
í tuttugasta sæti, fyrir neðan
okkur íslendinga, eru svo Litháar,
þá Pólveijar, Svíar (Andersson, Pia
Cramling, Akesson, Hellsten, Ast-
rom og Tiger Hillarp-Persson),
Frakkar, Júgóslavar, Norðmenn
(Agdestein, Tisdall, Gausei, Djurhus,
Heim og Elsness), Argentínumenn,
Rúmenar, Danir (Curt Hansen, Peter
Heine Nielsen, Danieisen, Mortens-
en, Nikolaj Borge og Carsten Hoi),
og Kínveijar eru í þrítugasta sæti.
Sterkasta kvennasveitin er sú
georgíska, þá sveit Rússlands, síðan
sveitir Kína, Júgóslavíu og Ung-
veijalands. Soffia Polgar teflir á
efsta borði Ungveija, en Susa systir
hennar, ' nýbakaður heimsmeistari
kvenna, er fjarri góðu gamni.
íslenska sveitin er sem kunnugt
er skipuð þeim Margeiri Péturssyni,
Jóhanni Hjartarsyni, Hannesi Hlífari
Stefánssyni, Helga Ólafssyni, Þresti
Þórhallssyni og Helga Áss Grétars-
syni. Liðsstjóri er Ágúst Sindri
Karlsson, fararstjóri Andri Hrólfs-
son og sérlegur þjálfari er Gunnar
Eyjólfsson leikari.
Naumur sigur Islendinga gegn Venszuela
Falleg sóknarskák
tryggði sigurinn
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
HLUTI þeirra fíkniefna, tækja og tóla sem fundust við húsleit
lögreglunnar á fimmtudag í síðustu viku.
Þýfi, fíkniefni og
eggvopn fundust
ísafirði. Morgunblaðið.
LÖGREGLAN á ísafirði handtók sjö
einstaklinga, á fimmtudag í síðustu
viku, grunaða um innbrot og fíkni-
efnamisferli. Fólkið var handtekið
eftir að fíkniefni og þýfi fannst við
húsleit í tveimur íbúðum á ísafirði
en við leitina var notast við hund frá
fíkniefnadeildinni í Reykjavík.
Flestir hinna handteknu voru á
þrítugsaldri og hafa oft áður komið
við sögu lögreglunnar vegna slíkra
afbrota. Fimm þeirra var sleppt að
loknum yfirheyrslum en óskað var
gæsluvarðhalds yfir tveimur mönn-
um á föstudag. Þeir voru úrskurðað-
ir í gæsluvarðhald til þriðjudagsins
17. september en var sleppt seint á
laugardagskvöld eftir að málið tald-
ist upplýst.
Við leit í húsunum tveimur fund-
ust ýmis tæki og tól til fíkniefna-
neyslu auk nokkurs magns af fíkni-
efnum og hassplöntum. Þá fundust
einnig ýmis eggvopn og þýfi sem
mun hafa verið stolið úr versluninni
Straumi á ísafirði fyrir stuttu. Annar
mannanna, sem óskað var gæslu-
varðhalds yfir, var á mánudag
dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyr-
ir Héraðsdómi Vestfjarða fyrir sams
konar brot. Þrír mannanna munu
hafa tjáð lögreglunni að þeir væru
haldnir lifrarbólgu og einn þeirra
sagðist vera sýktur af eyðni.
________Skák__________
Ólympíuskákmótið
JEREVAN, ARMENÍU
Ólympíuskákmótið er haldið í Jere-
van, Armeníu, dagana 15. septem-
ber til 2. október.
FYRSTA umferð á ólympíuskákmót-
inu í Jerevan í Armeníu var tefld í
gær. íslendingar tefldu við_ sveit
Venezuela, og unnu 2'h - Vh. íslend-
ingar hvíldu Margeir Pétursson og
Jóhann Hjartarson, sem tefla munu
á 1. og 2. borði sveitarinnar.
Hannes Hlífar Stefánsson hafði
hvítt gegn Ostos á 1. borði. Hannes
byggði upp vænlega stöðu, sem
missti hana niður í jafntefli. Helgi
Ólafsson náði ekki að vinna Sequera
á 2. borði, þrátt fyrir góðar tilraun-
ir. Á 3. borði vann Þröstur Þórhalls-
son Hernandez í fallegri sóknarskák,
sem fylgir hér á eftir. Helgi Áss
Grétarsson varð að sætta sig við
skiptan hlut á 4. borði, í skák við
Torres.
Þessi úrslit valda vonbrigðum, því
að andstæðingarnir eru aðeins nr.73
í syrkleikaröðinni, þegar tekið er
mið af alþjóðlegum skákstigum.
Þröstur Þórhallsson fær stór-
meistaratitil sinn væntalega stað-
festan á þingi alþjóðaskáksam-
bandsins, sem haldið verður í Jere-
van, á meðan á mótinu stendur.
Hann tefldi fyrstu skákina á mótinu
af miklum krafti.
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Hernandez
Miðbragð
l.e4 — e5 2.d4 — exd4 3.Dxd4 —
Rc6 4.De3 - d6 5.Rc3 - Rf6 6.Bd2
- Be7 7.0-0-0 - 0-0 8.Bc4 - He8
9.f3 - Ra5 10.Bd3 - c5?! ll.Kbl
- Bf8 12.Df2 —a6 13.g4 - Rd7
Þröstur hefur teflt fremur sjald-
gæfa byijun og árangurinn er bar-
áttustaða, þar sem hvítur sækir á
kóngsvæng, en svartur á drottn-
ingarvæng.
14.Rh3 - Re5 15.Be2 - Rac4
16.Bcl - b5 17.Hgl - Da5 18.Rd5
- Bb7 19.f4 - Bxd5 20.exd5 -
Rd7 21.Rg5 - Rf6 22.Bd3 - h6?
Hernandez áttar sig ekki á yfír-
vofandi fórn.
Sjá stöðumynd
23.Rxf7!
Svartur hefur iíklega aðeins
reiknað með 23.Rf3. Nú nær hvítur
afgerandi sókn.
23.---Kxf7 24.g5 - Re4 25.Bxe4
- Hxe4 26.gxh6 - Kg8
Eftir 26.--gxh6 27.Dg2 er svartur
varnarlaus. Leiki svartur 26.— —
Hae8 getur hvítur leikið 27.h7! og
vinnur.
27. hxg7 — Be7
Eða 27,- - Bxg7 28.Hxg7+ -
Kxg7 29.Dg2+ ásamt 30.Dxe4 og
hvítur vinnur.
28. Dg2—Db4 29.c3
Ekki gengur 29.Dxe4? — Ra3+
30.Kal — Dxe4 o.s.fi'v.
29. - —Ra3+ 30.Kal - Dc4 31.Dh3
og svartur gafst upp, því að hann á
enga vörn við hótuninni 32.Dh8+,
og 32.- — Kf7 væri svarað með
33.Dh5+ - Kg8 34.Dh8+ - Kf7
35.g8D+ - Hxg8 36.Dxg8+ - Kf6
37.Dg6+ mát.
Bragi Kristjánsson