Morgunblaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.09.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI GUÐMUNDUR Guðmundsson, gæðastjóri Lýsis, og Karl Karls- son, framkvæmdastjóri Vörumerkingar, undirrituðu samninginn, Lýsi hf. og Vörumerking hf. Semja um gæða- tryggingu URVERINU Formaður LÍÚ Verðum að tak- marka aflann á Flæmingjagrunni Nánarí rannsókn á Olivetti Mílanó, Reuter. FRANCESCO CAIO, aðalfram- kvæmdastjóri Olivetti, verður að mæta í fleiri yfirheyrslur vegna nán- ari rannsóknar á fjárreiðum fyr- irtækisins og hlutabréf í því halda áfram að lækka í verði. Caio, sem stjómaði fyrirtækinu í aðeins 10 vikur, verður yfirheyrður vegna undirbúningsrannsóknar rann- sóknardómara á reikningum Olivetti í bænum Irvea skammnt frá Tórínó á Norður-ítah'u. Yfirheyrsiunnar verða fyrsta skrefið í rannsókn, sem getur leitt til enn víðtækari rannsókn- ar á yfirlýsingum fyrirtækisins um bókhald þess. Þær koma í kjölfar svipaðrar rannsóknar eftirlitsnefndar verðbréfaviðskipta, Consob. Verð hlutabréfa í Olivetti lækkaði í 515 lírur, lægsta verð til þessa, og var viðskiptum með þau hætt. Rannsóknardómarar í Ivrea hafa yfirheyrt fyrrverandi flármála- og endurskoðunarstjóra Olivetti, Renzo Francesconi, því að hann hefur dreg- ið í efa að yfirlit um stöðu fyrirtækis- ins á fyrri árshelmingi sé rétt. ---------------------- Kúbaeykur framleiðslu á nikkel Havana. Reuter. KÚBVERJAR stefna að metfram- leiðslu á nikkel á þessu ári með hjálp kanadíska samstarfsaðilans Sherritt International Corp. Að því er stefnt að framleiða 55.000 tonn í ár og slá fyrra met, 46.591 tonn, frá 1989, þegar Sovét- ríkin sálugu keyptu 70% nikkel- útflutnings Kúbveija. Bandarísk stjórnvöld hafa gripið til refsiaðgerða gegn Sherritt Intern- ation samkvæmt Helms-Burton lög- unum, sem Clinton forseti undirritaði í marz. Nikkelframieiðsla Kúbveija hrundi etir upplausn Sovétríkjanna ríkjanna. Hún jókst úr 26.362 tonnum 1994 í 43.900 tonn í fyrra vegna samstarfs- samnings við Sherritt Intemationaf. FULLTRÚAR Lýsis hf. og Vöru- merkingar hf. hafa undirritað gæðatryggingarsamning á milli fyrirtækjanna. Þetta er annar gæðatryggingarsamningurinn sem Lýsi hf. hefur gert við inn- lenda birgja og er það gert í sam- ræmi við yfirlýsta gæðastefnu fyr- irtækisins. Auk samninganna hérlendis hefur Lýsi hf. gert samskonar samninga við nokkra erlenda birgja. I samningunum eru skil- greindar meginkröfur er varða við- skipti fyrirtækjanna, tæknilýsing- ar og reglur um sýnatöku og próf- anir. Einnig er lýsing á þeim kröf- um sem varan verður að uppfylla og flokkun á göllum, þar sem til- OLIUVERÐ kann að hafa náð há- marki í bili að sögn kunnugra, en þeir telja að ef hernaðarumsvif auk- ist geti það leitt til hækkana í vik- unni. Nóvemberverð á Norðursjávarol- íu komst í 23,12 dollara á föstu- dag, en októberverð í 24,39 dollara á fimmtudag. Fulltrúi OMV olíufélagsins í London bjóst ekki við verulegri greindar eru þær lágmarkskröfur sem Lýsi hf. samþykkir. Mikil undirbúningsvinna liggur í gerð slíkra samninga og eftir því sem komist verður næst eru samningar Lýsis hf. hinir einu slíkir hérlend- is, að því er segir í frétt. Meginmarkmiðið með gerð gæðatryggingarsamninga er að samræma kröfur kaupanda og birgja þannig að hinn síðarnefndi annist allt gæðaeftirlit og losa þar af leiðandi kaupanda við alla skoð- un þegar tekið er á móti vörunni. Þannig er Lýsi hf. betur í stakk búið til að framleiða vörur sem uppfylla þarfir og væntingar við- skiptavina fyrirtækisins. hækkun, en taldi olíumarkaðinn í hættu vegna framferðis Saddams Husseins. Hann sagði of snemmt að spá hve mikil hækkun yrði, en kvað markaðinn óstöðugri en á sama tíma í fyrra. „Vegna vaxandi eftirspurnar og lítilla birgða á Vesturlöndum verður olíuverð mjög viðkvæmt,“ sagði hann. KRISTJÁN Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir það vera ljóst að íslendingar geti ekki ætlað sér eins stóran hlut í rækjuveiðum á Flæmingjagrunni og veiðin á þessu ári stefni í. íslensk veiðiskip hafa veitt um sextán þúsund tonn af rækju á Flæmingjagrunni það sem af er árinu og stefnir heildaraflinn í yfir tuttugu þúsund tonn á árinu sem er þreföldun á afla miðað við árið í fyrra sem var okkar næst- besta. 7.500 tonn eða þaðan af minna Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verður að öllum líkindum settur kvóti á skip, sem stundað hafa veiðar á Flæmingja- grunni, fyrir árið 1997. Sömuleiðis er orðið ljóst að Islendingar koma til með að þurfa að draga mjög verulega úr veiðunum miðað við yfirstandandi ár. Heimildir Morgunblaðsins herma að aflinn þurfi að minnka allt niður í 7.500 tonn á næsta ári eða þaðan af minna til þess að NAFO muni una því að íslendingar fái að vera áfram utan sóknartakmörkunar. Gera má ráð fyrir að þessi fiskveiðimörk verði ákveðin á næstu dögum. Það leiðir til þess að ekki verður lengur hægt að gera út á Flæmingja- grunnið með sama hætti og áður sem þýtt getur verkefnaleysi fyrir fjölmörg skip, sem byggja nánast eingöngu á þessum veiðum. Getum ekki haldið uppteknum hætti „Við einir erum að fiska frítt á þessum slóðum á meðan að aðrir eru bundnir sóknardagastýringu, sem ákveðið var að taka upp á fundi NAFO í fyrra. Ef við ætlum okkur að halda áfram að vera í samfélagi þjóðanna, verðum við að ganga til baka. Við getum ekki haldið því áfram sem við höfum verið að gera á þessu ári. Við vilj- um halda þessum veiðum áfram og teljum það vera mjög mikil- vægt að ofveiða ekki þennan stofn. Þess vegna verðum við að hlíta því að setja okkur veiðitakmörk þar sem að íslensk stjórnvöld hafa gefið út þá yfirlýsingu að við munum eftir sem áður mótmæla sóknardagakerfinu. Ríkisstjórnin hefur tveggja mánaða frest til að setja fram mótmælin, en þá þarf líka að liggja fyrir hvað við munum takmarka sóknina inn á svæðið við mikinn afla á árinu 1997.“ 30-40 skip að jafnaði á veiðum Á NAFO-fundi í Pétursborg í liðinni viku, voru engar tölur nefndar í þessu sambandi, heldur er beðið ákvörðunar íslendinga. „Ef við setjum okkur kvóta, sem hinar þjóðirnar telja ósanngjarnan miðað við sitt sóknarkerfi, ætla hinar þjóðirnar að hjálpa okkur við að klára stofninn, eins og það var orðað, í staðinn fyrir að láta okkur eina um það,“ segir Krist- ján. Að jafnaði stunda 30 til 40 ís- lensk skip rækjuveiðar á Flæm- ingjagrunni og stefnir veiðin á þessu ári í yfir 20 þúsund tonn, sem er um helmingur þess rækju- afla sem yeiddur verður á svæð- inu. Auk Islendinga stunda þarna veiðar Rússar, Norðmenn, Færey- ingar, Grænlendingar, Kanada- menn og Evrópubandalagsþjóðir lítilsháttar. Heildaraflinn á svæð- inu í fyrra nam um 33 þúsund tonnum, þar af veiddu íslendingar 7.500 tonn sem er okkar næst- besta ár. Olíuverð í óvissu London. Reuter. Helgardvöl í heimsborg fyrir líkama og sál Litla landið með stórahjartað Verð frá 29.5101, á mann í tvfbýli í 3 daga*. 'Innifalið: Flug, fistinf með morgunverði ogjhigvulhrslmitar. Lúxembon? ..............Jr1**1* Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn, ferða- skrifstofurnar eða söludeild Flugleiða í síma SO SOÍOO (svarað mánud. - föstud. kl. 8-19 og á laugard. kl. 8 - 16). FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagi Borgar- stjóri Hull á útvegs- sýninguna BORGARSTJÓRINN í hafnarbænum Huil á Eng- landi verður hér á landi í heimsókn á meðan á íslensku sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll stendur eða frá 18.-22. september. Með honum í för verða eiginkona hans og fulltrúar frá Þróunar- stofnun Hullborgar, en Hull ásamt hafnarbænum Grimsby mynda svokallað Humber- svæði, sem Islendingar hafa átt fiskviðskipti við í áraraðir. Sendinefndin mun m.a. taka þátt í sýningarhaldinu ásamt fulltrúum frá um fimm- tíu sjávarútvegstengdum fyr- irtækjum frá Bretlandi. Þá hyggjast Bretamir bjóða ís- lenskum fyrirtækjum þátt- töku í sex daga vöru- og þjón- ustusýningu, sem ráðgerð er á Humbersvæðinu dagana 26.-31. október nk. og er von- ast til að allt að tuttugu ís- lensk fyrirtæki muni sjá sér fært að taka þátt, eftir því sem fram kemur í fréttatil- kynningu frá breska sendiráð- inu í Reykjavík. . \ \ % \ X I [ \ t í i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.