Morgunblaðið - 17.09.1996, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.09.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1996 2 7 Háskólatónleik- ar Vox Feminae VOX Feminae heldur háskólatón- leika miðvikudaginn 18. september 1996 kl. 12.30 undir stjórn Sibyl Urbancic. Þetta eru fyrstu háskóla- tónleikar vetrarins. Tónleikarnir eru haldnir í Norræna hússinu og standa í u.þ.b. hálfa klukkustund. Vox Feminae er sönghópur sem var stofnaður 1993 og starfar innan Kvennakórs Reykjavíkur. Stofnandi og fastur stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Sibyl Urbancic kennir nú sam- söng við Tónlistarháskólann í Vín- arborg, en hefur frá ársbyijun 1955 komið tvisvar á ári til þess að vinna með hópnum en þetta eru fyrstu tónleikarnir undir hennar stjórn. í febrúar á næsta ári mun hópurinn flytja messu eftir Þorkel Sigur- björnsson og í ágúst er fyrirhuguð tónleikaferð til Vínar. Á dagskrá tónleikanna eru aðal- lega verk eftir austurrísk og íslensk tónskáld frá 16. öld og til 20. ald- ar. Nokkur verk eru eftir eldri tón- skáld s.s. Caspar Othmayr, Leon- hardt Lechner, Heinrick Isaac og Joseph Haydn en flest eru eftir 20. aldar tónskáld. Frumflutt á íslandi verður Ave Maria eftir Anton Heill- er. Auk þess verða flutt þjóðlög í raddsetningu Victors Urbancic og Salutatio Mariæ eftir Jón Nordal. F'rumflutt á íslandi verður einnig grafískt verk við orð úr Inúit esk- imóamáli; Snowforms eftir R. Murray Schafe. Að lokum er sérstaklega bent á að á tónleikunum mun Vox Fem- inae frumflytja verk eftir Báru Grímsdóttur við Þulu Theódóru Thoroddsen," segir í kynningu. Handhöfum stúdentaskírteina er boðinn ókeypis aðgangur, en að- gangseyrir fyrir aðra er 300 kr. Reuter TEST THE 8EST Listrænn Berlínarmúr HJÓLREIÐAMAÐUR virðir fyr- ir sér listaverk sem sýnir Trab- ant-bifreið brjótast í gegnum Berlínarmúrinn. Var verkið ný- lega gert upp en það er á lengsta heillega hluta múrsins, sem kall- ast Austurhlutagalleríið og er hálfur annar kílómetri að lengd, Alls gerðu fimmtán listamenn af þeim 118, sem upprunalega máluðu verk á hluta múrsins, verk sín upp en tímans tönn og veggjakrot hafa sett sitt mark á þau. Lítið skylt við LEIKLIST Draumasmið j a n VENUS/MARS Handrit og leikstjóm: Edda Björg- vinsdóttir. Leikarar: Gunnar Gunn- steinsson, Margrét Kr. Pétursdóttir og Valgeir Skagfjörð. Leikmynd og búningar: Kristín Björgvinsdóttir. Tónlist: Valgeir Skagfjörð. Kaffi Reykjavík, sunnudag 15. september. DRAUMASMIÐJAN og Menning- ar- og fræðslusamband alþýðu standa að 20 mínútna langri sýningu sem kölluð er Venus/Mars og fjallar um samskipti kynjanna. Sýningin, sem frumsýnd var á Kaffi Reykjavík síðastliðinn sunnudag, er unnin upp úr metsölubókinni Karlar eru frá Mars og konur eru frá Venus, eftir bandaríkjamanninn John Gray, sem kom út á íslensku í fyrrahaust. Það er mikil ofrausn að kenna þessa sýningu við leiklist, því hún á lítið skylt við þá listgrein. Hér er um að ræða stutta uppákomu með söngvum og örstuttum atriðum sem lýsa eiga alkunnum samskiptum kynjanna eða réttara væri að segja; sem lýsa alkunnum klisjum um sam- skipti karls og konu. Morgunblaðið/Golli MARGRÉT Kr. Pétursdóttir og Valgeir Skagfjörð í hlut- verkum sínum. í Bandaríkjunum seljast bækur af sama tagi og fyrrnefnd bók John Grays sem heitar lummur enda áhugi þarlendra á léttsoðinni sál- fræði með afbrigðum mikill. í slíkum bókum er boðið upp á patentlausnir á hinum aðskiljanlegasta vanda mannskepnunnar, matreiddar úr auðmeltanlegum klisjum sem krefj- ast lítillar fyrirhafnar af hálfu neyt- andans. Hingað til hafa slíkar bækur ekki höfðað mjög til frónbúans en kannski er að verða breyting hér á, LISTIR Meistaratök rÓNLISI B ú s t a ð a k i r k j a EINLEIKSTÓNLEIKAR Erling Blöndal Bengtsson. Sunnu- dagur 15. september 1996. KAMMERMÚSÍKKLÚBBURINN fór glæsilega af stað í fyrstu tónleik- um vetrarins með Erling Blöndal Bengtsson í stafni. Og þar var ekki um nein meðaltök á sellóinu að ræða, því Erling er óumdeilanlega meistari á sellóið. Raunar er ekki miklu við þetta að bæta nema þá að telja upp verkin sem Erling Blöndal lék. Bach- sellósvíturnar eru margkristallaðar í gegnum áraiangar glímur og að þessu sinni lék Erling þá í D-dúr nr. 6.- Bach og Erling fallast mjög í faðma, og þó er bach-spii hans örlít- ið óvenjulegt að því leyti, að hann skreytir spilið meira en venjulegt er. Þá á ég við að hann vogar sér nokk- uð út á ystu mörk í styrkleikamun. Hann sveiflar sér frá sterku spili yfir í mjög veikt og öfugt. Að hafa vald á þessum stíl, er aðeins afbragðs- hljóðfæraleikurum gefið því þarna er svo stutt á milli smekks og smekk- leysis að líkja má við bakka og egg. En þættir svítunnar liðu fram eins og skuggamyndir. Glæsileiki Prelúd- íunnar, hinn nokkuð langi þýski dans, sem hlýtur að vera erfitt að halda uppi vegna lengdarinnar. Hin leik- lega erfiða Courante, sú geysifallega og safaríka Sarabande. Eða Gavott- urnar sem minntu verulega á sekkja- pípur (sem Skotar hafa vitanlega ekkert leyfi til að eigna sér). Og svo i lokin hin tradisjónlega Gigue. Að ljúka öllum þessum þáttum þannig að varla heyrist óhreinn tónn, er aðeins Erling Blöndal Bengtsson og hans líkum ætlandi. Atli Heimir Sveinsson skrifaði og tileinkaði Erlingi Blöndal „Dal regno del silenzio" (Ur þagnarheimi). Var það ekki Ch. Ives sem samdi eða öilu heldur sviðsetti verk um þögn- ina, þögn sem varaði í 4-5 mínútur við slaghörpuna, aldrei slegin nóta, algjör þögn þar til hljóðfærinu var lokað - þögnin á enda. Þannig er ekki verk Atla. Því fylgir greinagerð nokkur, upphafin mjög, og þá hefst leikur sellósins. Fyrst fáar nótur. Þögn. Aftur nokkur tónbil. Þögn. Endurtekið. Og síðan leit upp og niður á strengjum og gripbretti hijóð- færisins. Ekki slæm hugmynd, en einkennandi fyrir þau verk, þar sem flytjandinn skiptir meira máli en skrifaðar nótur og sannarlega náði Erling að klæða þagnir og nótur lífi. Undirritaður þekkir ekki sónötu Zoltáns Kodály op 8 fyrir knéfiðlu. Form sónötunnar virðist nokkuð lausbeislað og víða bankað uppá í stílheimi. En sónatan reynir mjög á flytjandann í öllum atriðum, en í þeim sökum virðist vera erfitt að ofbjóða Erling Blöndal Bengtsson. Erling Blöndal er ekki að heimsækja okkur og gleðja með sinni „dýru list“ í fyrsta né annað skiptið. Og sýnir aðsókn að tónleikum hans að velkom- inn er hann. Og þótt faðir hans hafi verið tónlistarmaður, skulum við ríg- halda í að tónlistargáfur hans séu frá íslenskri móður hans komnar, þ.e. frá Blöndalsættinni. Og þótt hún sé e.t.v. ekki þekktasta tónlistarætt á Islandi fram að þessu, er kannski ekki seinna vænna að breyta því og grípa þetta hálmstrá, því óneitanlega brá mér í júlí-mánuði á tónleikaferð minni um Danmörku, þar sem ég hitti fyrir marga þekkta tónlistar- menn, danska, og enginn þeirra þekkti nokkurn af okkar frægu tón- listarmönnum, tónskáldum eða flytj- endum, en þarna gæti Erling Blönd- al bjargað heiðri og heilsu okkar, og veri hann sem oftast velkominn með sinn frábæra og fræga sellóleik. Ragnar Björnsson. leiklist ef marka má gengi bókar Grays, og eflaust má af því draga nokkrar ályktanir um áhrif bandarískrar dægurmenningar á íslenskt samfé- íag. Handrit það sem Edda Björgvins- dóttir hefur unnið upp úr bókinni er samansett af nokkrum einföldum atriðum og verður að teljast heldur léttvægt. Einhvern veginn finnst mér að það hefði mátt hafa samsetn- inginn bitastæðari. Tónlist Valgeirs Skagfjörð er að sama skapi einföld en áheyrileg, eins og hans var von og vísa. Um leikinn er ekki hægt að fjölyrða því efnið býður ekki upp á mikla túlkun. Þó má geta þess að áherslan í leiknum er naíf: Hjónin eða parið eiga barnaleg samskipti og minnti sýningin á sýningu fyrir börn fremur en fullorðna áhorfend- ur. Kristín Björgvinsdóttir gerir leik- mynd og búninga og er hennar vinna ágæt. Ætlunin er víst að ferðast með sýninguna um landið og sýna í mat- ar- eða kaffihléum á vinnustöðum og í þeim tilgangi hefur Menningar- og fræðslusamband alþýðu styrkt sýninguna. Stutt skemmtun fyrir alþýðuna - eða löng auglýsing fyrir téða bók . . . Dæmi nú hver fyrir sig. Soffía Auður Birgisdóttir Rit um ís- lenska málsögu nauösynlegt RÁÐSTEFNA um íslenska mál- sögu og textafræði var haldin í Norræna húsinu dagana 14.-15. september á vegum Stofnun Sig- urðar Nordals sem er nú tíu ára. Um hundrað manns sóttu ráð- stefnuna. Að sögn Úlfars Braga- sonar, forstöðumanns Stofnunar Sigurðar Nordals, var rætt um nauðsyn þess að skrifa yfir- gripsmikla íslenska málsögu. „Á ráðstefnunni var meðal annars rætt um það hvernig sú saga ætti að vera, um heimildir hennar, fornar og nýjar, samband íslensk-unnar og norsku og ann- arra tungumála og fleira sem þessu tengist. Þá var einnig rætt livenær íslenska verður að ís- lensku en skiptar skoðanir eru um það, eins og gefur að skilja. Af einstökum forvitnilegum fyrir- lestrum má nefna nýjar hugleið- ingar Jóns G. Friðjónssonar pró- fessors um íslenska biblíumáls- hefð. Jón hélt því fram að gildi Guðbrandsbiblíu fyrir endurreisn íslenskunnar hafi ekki verið jafn mikið og menn hafi hingað til talið en hún hefur oft verið sögð hafa bjargað íslenskunni." Úlfar segir að töluvert hafi verið rætt um notkun tölva við handritarannsóknir en menn séu helst á því að tegundir tölva og forrita séu of margar, því þurfi meiri samræmingar við á því sviði. „Ef einhver meginniðurstaða er af þessu þingi“, segir Úlfar. „þá er hún helst sú að menn eru jafn vissir eftir sem áður að það er brýn nauðsyn á því að setja saman íslenska málsögu. Söguleg viðhorf hafa verið eilítið á undan- haldi í rannsóknum á málinu undanfarið og þessi ráðstefna var tilraun til að ýta frekar undir þær.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.