Morgunblaðið - 24.10.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
I
>
>
>
>
>
I
|
I
I
)
I
f
B
5
I
;
j
f
I
i
AÐSEIMDAR GREINAR
Aðvörun á
elleftu stundu
Vegna ætlaðrar sameiningar LH
og hestaíþróttadeildarinnar
ÞRATT fyrir að ég
hafði hugsað mér að
blanda mér ekki frekar
í umræður um fram-
kvæmd félagsmála
hestamanna en orðið
er, er nú svo komið að
ég vil ekki sitja þegj-
andi hjá þegar fram-
undan er ársþing
landssambandsins, þar
sem mér skilst að lögð
verði fram tillaga um
að leggja það niður og
sameina það hesta-
íþróttadeildinni og
þannig færu þessi tvö
sambönd sameinuð
eftirleiðis með heildar-
málefni hestamanna í landinu.
Það setur að mér ugg og mér
finnst að ef af verður sé hinn al-
menni félagsmaður einstakra fé-
laga og landssambandsins í heild
Öll félagsmálastarfsemi,
segir Grímur Gíslason,
byggist á mikilli og
virkri þátttöku.
að selja frumburðarrétt sinn, þann
að hafa jafnréttisaðstöðu til þess
að hafa áhrif á afgreiðslu og fram-
gang mála.
Eg tek það skýrt fram að ég
met mikils ötult og fórnfúst starf
frammámanna í hestaíþróttum og
viðurkenni þá staðreynd að íþrótta-
stefnan hefir, í vaxandi mæli, sett
svip sinn á samkomur og mót hesta-
manna undanfarin ár. Samhliða
þessu er mjög kvartað yfir minnk-
andi áhuga almennings að sækja
hestamannamótin og vera virkur í
framkvæmd þeirra. Einfaldlega er
þetta talin afleiðing þess að hinn
almenni leikmaður í hestamennsk-
unni telur sig ekki eiga þar heima
því „fagmennirnir" séu að verða
allsráðandi á mótunum, hirði öll
verðlaun og hafi ýmiskonar ráð til
þess að koma með þrautþjálfaða
hesta sína til keppni, svo fyrirsjáan-
legt sé hvernig muni fara.
Ekki má taka þessi orð min svo
að ég sé að deila á fagmennskuna
í hestamennskunni því að ég dáist
að þeim mönnum sem standa þar
í framvarðarsveit. En afleiðing
þessarar þróunar er bæði félagslega
og fjármálalega neikvæð. Ég hefi
raunar þegar gert grein fyrir hinu
neikvæða í félagslega þættinum og
mér sýnist að hið sama komi upp
hvað fjármálahliðina snertir. 011
félagsmálastarfsemi byggist á mik-
illi og virkri þátttöku og fram-
kvæmd hestamannamótanna bygg-
ist á því að þangað komi margt
fólk og borgi sig inn. Það er engin
von til þess að hestamannafélögin
standi lengi að mótunum ef á þeim
fer að verða uppsafnað tap. Þar
hlýtur að gilda hinn sami dómur
og fiskvinnslan í landinu stendur
nú andspænis, tap-
rekstri, sem enginn er
tilbúinn að greiða.
Alvarlega verða
hestamenn í landinu,
og þá fyrst og fremst
fulltrúar þeirra á mál-
þingum, þeir sem hafa
ákvörðunarvaldið í
höndum sér, að vara
sig á að kalla ekki yfir
sig að verða þrælar
þunglamalegs kerfis
sem lamar áhugann og
skapar afskiptaleysi en
það er hin versta pest
í mannlegu samfélagi
á hvaða sviði sem er.
Það hljóta að vera
áhugasömum hestaíþróttamönnum
mikil vonbrigði, og jafnvel sárindi,
að almenningur skuli ekki hafa
áhuga á að koma á sýningar þeirra.
Það er staðreynd, sem er afger-
andi, og má ekki ganga út yfir
hestamannamótin almennt. Það
yrði óbætanlegt tap. Fólki þykir
sem íþróttasýningarnar séu lang-
dregnar og ekki spennandio þar sem
takmarkið er, fyrst og fremst, að
sjá skilyrðislausa hlýðni hestsins.
Landssamband hestamannafé-
laga hefir nú starfað í fast að hálfri
öld. Á þeim tíma sem sambandið
var stofnað var hestamennskan í
landinu í mikilli lægð og vélvæðing-
in var nálægt því að ganga af henni
dauðri. Nokkrum eldhugum tókst
að snúa dæminu við og tendra
hestamennskuna á ný. Ómetanlegt
starf hefir unnist eins og öllum al-
menningi er kunnugt, bæði í hrossa-
rækt og hestamennsku. Það
kannski má ekki segja það en hvor
tveggju þættimir eru í nokkurri
hættu fyrir því að verða „kerfmu“
að bráð, með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Það hvarflar að mér að
boginn sé að verða of spenntur.
Strengurinn of þaninn.
Til þess eru þessi orð sett á blað,
fyrst og fremst, að væntanlegt árs-
þing hestamanna flani ekki að ör-
lagaríkum breytingum á félags-
málakerfi hestamanna í landinu.
Hvernig væri að bíða aðeins og sjá
hvernig breytingin á framkvæmd
hestamannamótanna verður í fram-
kvæmd? Það þarf mikið íjármagn
til þess að framkvæma landsmót í
annaðhvert ár og spurningin er
hvort almenningur í landinu er til-
búinn að leggja það fram.
Höfundur er fv. bóndi ognú
fréttaritari Ríkisútvarpsins á
Blönduósi.
***/*'■* FLÍSAR
m úmv
ll! !?l II-Ll1* *
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími S67 4844
Grímur
Gíslason
FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1996 33
"i oPÞilHlKiN
í þvottavélunum frá
Þýskar úrvals vélar eins og þær
gerast bestar - búnar framtíðartækni.
8 gerðir: 5 kg - ullarvagga - 40°
Biokerfi - 800 - 1000 - 1200 og
1400 snúninga vélar. Sumar búnar
Digitronic-stýrikerfi. Áfangavinding,
rafeindastýrðir mótorar o.fl., o.fl.
Verð frá aðeins kr. 56.905 stgr.
Blomberq
hefur réttu lausnina fyrir þig
Einar Farertveit & Co. hf
Borgartúni 28 • Símí 562 290 I og 562 2900
menswear
Hausttilboð á jakkafötum
IVIilcið úrval af Jakliafötum fyrir árshátíðir og fínni tilefní.
15 - 25% afsláttur
■
CkQS'Cy 's &>r*>fa.KY+
VfcK. GfLu
All Saints
Limehouse
Jakkaföt fra 3.300
Jakkafatastærðir: 46-60,102-110, 25-27. G ^
Skyrtustærðir: 14 1/2-20
Opið alla laugardaga kl.10.00-16.00
Laugavegi, s. 511 1717, Kringlunni, s. 568 9017
Brandtex vörur
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433
Stóra skriðdýrasýningin
e'íwmm Síðasta sýningarvika
Lifandi hitabeltisdýr:
Fjölbreytt safn af
óvenjulegum, lifandi
dýrum úr öll-
um heims-
hornum
Miöaverö:
Börn kr. 500
Fullorðnir kr. 600
JL-Húsiö v/Hringbraut
2.hæð, 1000 m2 sýningarsalur
5. - 27. október.
Opiö virka daga kl. 12-20;
laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-19
Risasnákar, eitursnákar,
eðlur, skjaldbökur, sporðdrekar,
kóngulær o.s.frv.
Hitabeltisfíörildí í hundraðatali
Upplýsingar gefur Gula línan - sími 562-6262