Morgunblaðið - 26.10.1996, Page 1

Morgunblaðið - 26.10.1996, Page 1
80 SIÐUR B/C 245. TBL. 84. ÁRG. LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Rússland Varað við upplausn í hernum Moskvu. Reuter. ÍGOR Rodíonov, varnarmálaráð- herra Rússlands, sagði í gær, að yrði ekki ráðin bót á ástandinu innan hersins gæti það leitt til alvarlegra atburða. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, skipaði í gær æðstu embættismönnum að leggja valdabaráttuna á hilluna og sagði, að kominn væri tími til, að þeir létu hendur standa fram úr ermum í starfi sínu. Jeltsín, sem fer í hjartauppskurð í næsta mánuði, var óvenju örugg- ur í útvarpsávarpi, sem hann flutti í gær. Hann lagði áherslu á, að hann ætlaði sér að sitja út kjör- tímabilið. „Það er komið nóg af baktjalda- makkinu þar sem hver reynir að skara eld að eigin köku. Afleiðing- in er sú, að við erum að tapa tíma og trausti fólksins,“ sagði Jeltsín. Hermenn betla á götunum Viðvörun varnarmálaráðherr- ans er aðeins ein af mörgum en ástandið í rússneska hernum er nú orðið þannig, að óbreyttir her- menn eru farnir að betla á götum úti og margir foringjanna eru komnir í annað starf með her- mennskunni. „Leiðtogar Rússlands og samfé- lagið allt verða að gera sér grein fyrir, að fjársveltið er að ýta hern- um út á ystu brún og getur leitt til atburða, sem enginn fær við ráðið,“ sagði Rodíonov. Ár liðið frá því að snjó flóðið féll á Flateyri ÁR ER liðið frá því siyóflóð féll á Flateyri og tuttugu manns fór- ust. Er þetta eitt mannskæðasta snjóflóð aldarinnar. Ymsar framkvæmdir standa yfir á staðnum, meðal annars við snjó- flóðavarnir og nýjan leikskóla, en Magnea Guðmundsdóttir, fyrrverandi oddviti, segir að uppbyggingin hefði mátt ganga hraðar. I dag klukkan 14 verður afhjúpaður minningarskjöldur um þá sem létust og kyrrðar- stund verður í Flateyrarkirkju í kvöld klukkan 21. í dag klukkan 17 verður einnig minningarguðs- þjónusta í Neskirkju í Reykjavík. Undanfarna daga hafa Flateyr- ingar undirbúið daginn og var Morgunblaðið/Golli myndin tekin þegar Eggert Jónsson og Guðjón Guðmunds- son, sem báðir misstu nána ætt- ingja í flóðinu, festu minningar- skjöldinn á stein við Flateyrar- kirkju. Steinninn var sóttur upp í mitt fjall en þangað hafði snjó- flóðið borið hann. ■ Skilur eftir djúp/14 ■ Ekki kom til greina/30 Boðar aðhald til að hemja verðbólgu Ósló. Reuter. THORBJ0RN Jagland, leiðtogi Verkamannaflokksins, tók í gær við embætti forsætisráðherra Noregs af Gro Harlem Brundtland, tæpu ári fyrir næstu þingkosningar. Jagland myndaði nýja stjórn og kvaðst ætla að framfylgja sömu stefnu og Brundtland en boðaði breytingar á frumvarpi til fjárlaga fyrir næsta ár til að geta knúið það fram á þing- inu, þar sem Verkamannaflokkurinn er í minnihluta. Litið er á afgreiðslu fjárlagafrum- varpsins sem fyrsta prófsteininn á styrk nýju stjórnarinnar. Stjórnar- andstæðingar úr röðum hægrimanna og vinstrimenn í Verkamanna- flokknum hafa Iagt fast að forystu- mönnum flokksins að nota olíuauð- inn til að auka útgjöldin. Jagland sagði nauðsynlegt að breyta forgangsröðuninni í fjárlaga- frumvarpinu, auka útgjöldin til ákveðinna málaflokka en lækka þau á öðrum sviðum. Hann ítrekaði hins vegar að efnahagsstefnunni yrði ekki breytt í meginatriðum. „Stefna þessarar stjórnar í félagslegum vel- ferðarmálum byggist fyrst og fremst á því að halda verðbólgunni í skefjum til að stemma stigu við atvinnu- leysi,“ sagði hann. Áætlað er að tekjuafgangur norska ríkisins á næsta ári verði 40,9 milljarðar norskra króna, um 410 milljarðar íslenskra, en stjómin hyggst halda aðhaldsstefnu sinni til streitu til að koma í veg fyrir mikla verðbólgu. Sjö nýir ráðherrar Haraldur Noregskonungur skip- aði Jagland og ráðherra hans á sér- stökum fundi ríkisráðsins í kon- Reuter GRO Harlem Brundtland óskar eftirmanni sínum sem forsætis- ráðherra Noregs, Thorbjorn Jagland, til hamingju eftir að hann tók við embættinu í gær. ungshöllinni eftir að hafa samþykkt afsagnarbeiðni Brundtland. Sjö ný nöfn eru í stjórn Jaglands og fjórir ráðherrar í fyrri stjórn skipta um ráðuneyti. „Við fáum bæði reynslu og end- urnýjun í stjórnina," sagði Jagland. „Stefnan verður sú sama en ég hygg að ég hafi hér sveit sem getur farið út og hlustað á fólkið." ■ Ný rikisstjórn í Noregi/22 I fangelsi fyrir skrif um forseta Búkarest. Reuter. TVEIR rúmenskir blaðamenn hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir að hafa rægt Ion Iliescu, forseta Rúmeníu og haldið því fram að hann hafi eitt sinn verið á mála hjá sovésku leyni- þjónustunni KGB. Mennirnir tveir, Sorin Rosca Stanescu, stjórnandi dagblaðs- ins Ziua, og Tana Ardeleanu, blaðamaður á sama blaði, voru einnig sviptir borgaralegum réttindum og mega ekki starfa í atvinnugrein sinni. Stanescu og Ardeleanu halda fast við fréttir sínar um Iliescu og ætla að áfrýja dómnum. Ákæruvaldið mæltist til þess að mennirnir yrðu dæmdir í sex mánaða fangelsi hvor, en dóm- aranum í málinu fannst það heldur vægt og dæmdi Stan- escu í árs fangelsi og Ardeleanu í 14 mánaða fangelsi. Rúmenar ganga til forseta- kosninga í nóvember og sam- kvæmt skoðanakönnunum bendir allt til þess að Iliescu verði endurkjörinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.