Morgunblaðið - 26.10.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞAÐ er ekki ofsagt af fjöllyndinu í mér, allt Iiðið farið að ganga með hr. biskupinn í
maganum...
;• ;; 's*;f ' | .
— kraftmikil SO hestafla léttmálmsvél
— 16 ventla og bein innsprautun
— hraðatengt vökva- og veltistýri
— þjófsvörn é raesingu
— rafdrifnar rúöur og speglar
— viðarinnrétting í meelaborði
— 14 tommu dekkjastærð
— útvarp og kassettútaeki
— styrktarbitar í hurðum
— sérstaklega hljóðeinangraður
— fóanlegur sjálfskiptur
— samlæsing á hurðum
— sportleg innrétting
— rúðuþumka fynip aftuppúðu
— framhjóladpif inn
— samlitip stuðarap
— hiöfuðpúðap fpaman og aftan
— hæðarstillanlegur
fpamljósageisli
— stafræn klukka
— bremsuljós í aftuprúðu
— eyðsla 5,6 I á 90 km/klst.
— 4,31 metPÍ á lengd
— pyðvöpn og skpáning innifalin
(M)HONDA Vatnagörðum24, Reykjavík,sími5689900
- kjarni málsins!
Ferðagleðin ’96
Nauðsynlegt
að fólk kynnist
innbyrðis
Kristján Arngrímsson
AÐ ferðagleðinni
standa óháð samtök
innan ferðaþjón-
ustunnar en margir leggja
þar hönd á plóg. Hátíðin
stendur í tvo daga og er
hápunktur hennar þegar
aðilar innan ferða- og veit-
ingaþjónustu eru heiðraðir
fyrir störf í þágu atvinnu-
greinarinnar.
Hvers vegna er verið
að halda sérstaka ferða-
gleði?
„Ferðagleðin er upp-
skeruhátíð allra aðila í
ferðaþjónustu; veitinga-
fólks, þjónustufólks og
ferðaskrifstofufólks, svo
eitthvað sé nefnt. Þeir aðil-
ar sem koma að ferðaþjón-
ustunni, hvort sem er í
stóru eða smáu, eru ótal
margir og ferðagleðin gef-
ur öllu þessu fólki tækifæri
til þess að koma saman og gera
sér glaðan dag. Fólk í þessari at-
vinnugrein er dreift víða um iand
og á oft lítil tök á því að kynnast
innbyrðis. Það er skaði, enda er
það ferðaþjónustunni til fram-
dráttar að fólk kynnist og viti
hvert af öðru í stað þess að hver
sé að vinna í sínu homi. Þetta er
stór og dreifð atvinnugrein þannig
að menn líta á ferðagleðina sem
kærkomið tækifæri til þess að
eiga saman góða stund og bera
saman bækur sínar. Upp úr slíku
geta síðan kviknað margar góðar
hugmyndir, hver veit, en fyrst og
fremst er þetta til gamans gert.“
Hvað gerir fólk sér til gamans
á ferðagleðinni?
„Á laugardaginn er opið hús í
veitingahúsinu Naustinu frá
klukkan 14. Þar koma menn sam-
an og eyða tímanum í létt rabb
og önnur skemmtilegheit og veit-
ingar eru seldar á vægu verði. Á
sunnudag hefst svo hátíðin
klukkan 18 á Hótel íslandi og
stendur fram á nótt. Ýmis
skemmtiatriði verða á dagskrá
og dregið verður í glæsilegu
happdrætti þar sem meðal vinn-
ingar eru ferðir utan lands og
innan. Hápunktur kvöldsins verð-
ur síðan þegar tuttugu manns
úr ferða- og veitingaþjónustu
verða sérstaklega heiðraðir fyrir
störf. Þeir fá veglega styttu,
Ferða-lang, til eignar og það má
kalla þessa viðurkenningu Ósk-
arsverðlaunin í ferðaþjónustunni.
Þess má líka geta að heiðursfor-
seti hátíðarinnar í ár verður Kon-
ráð Guðmundsson."
Hvernig er undirbúningnum
háttað?
„Undirbúningur ferðagleðinn-
ar tekur um tvo mánuði. Sérstök
nefnd er sett á laggirn-
ar til að hafa yfirum-
sjón með framkvæmd-
um og svo snýst málið
um að virkja gott fólk
í þágu góðs málstaðar.
Það er greinilegt að menn innan
ferðaþjónustunnar eru sammála
um mikiivægi þess að svona há-
tíð sé haldin, allir eru samhentir
og menn leggjast á eitt við að
hafa hátíðina sem best úr garði
gerða.
Það má nefna að Flugleiðir og
íslandsflug bjóða þátttakendum
utan af iandi sérstök kjör á flug-
farinu og Sérleyfishafar bjóða
fólki ókeypis rútuferð í bæinn,
hvaðan sem það er af landinu.
Þá eru fetjurnar líka með ákveðna
► Kristján Arngrímsson er 67
ára gamall, fæddur 1929. Hann
hefur í þrjátíu til fjörutíu ár
unnið við margt sem tengist
ferðaþjónustu, einkum og sér í
lagi leiðsögustörf. Hugmyndin
að ferðagleðinni er frá Krist-
jáni komin, hann er forsvars-
maður hennar og hefur séð um
framkvæmdina til þessa, en
helgina 2.-3. nóvember næst-
komandi verður hátíðin haldin
í þriðja skipti.
Kristján á fimm börn.
fyrirgreiðslu. Hótelin í Reykjavík
bjóða fólki gistingu á mjög góðum
kjörum og svona mætti lengi telja.
Allir leggja sitt af mörkum, jafnt
stórir aðilar sem smáir.“
Hvað er húist við mörgum þátt-
takendum og hvernig fólk viljið
þið fá á ferðagleðina?
„Um fjöldann er lítið annað að
segja en það að í fyrra komu um
átta hundruð manns og ég vona
að þátttakan verði a.m.k. jafngóð
núna. Það stefnir allt í það. Við
viljum fá á hátíðina alla þá sem
starfa við hvers konar ferða- og
veitingaþjónustu eða hafa ein-
hvern tímann starfað við slíka
þjónustu. Fólk sem í gegnum
vinnu sína tengist þessum mál-
um.“
Nú áttir þú hugmyndina að
þessari hátíð og hefur haft umsjón
með framkvæmdinni þau þrjú ár
sem hún hefur verið haldin. Eftu
ánægður með móttökurnar?
„Það er ekki hægt annað en
að vera ánægður, það er greini-
legt að menn eru mér sammála
um mikilvægi svona hátíðar, en
áður en ferðagleðin kom til átti
ferðaþjónustufólk sér enga árshá-
tíð eða neitt í líkingu
við það.
Það er reyndar heil-
mikil vinna í því fólgin
að sjá um undirbúning
svona hátíðar og það
er spurning hvort ég ætti ekki
að fara að skila þessu í hendurn-
ar á yngra fólki. Ég hef samt
haft mjög gaman af þessari vinnu
og það má reyndar segja að ég
hafi með henni á vissan hátt ver-
ið að þakka öllu þessu ágæta
fólki í ferða- og veitingaþjónustu
víðsvegar um landið fyrir gott
samstarf undanfarna áratugi, allt
frá háttsettum aðilum í stórfyrir-
tækjum til afgreiðslufólks í vega-
sjoppum. Þetta hefur verið reglu-
lega gaman.“
Er í raun
að þakka fyrir
mig