Morgunblaðið - 26.10.1996, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.10.1996, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1996 29 Paprika er víða enn á háu verði 98% verðmun- ur á papriku milli verslana KÍLÓIÐ af papriku er á misjöfnu verði um þessar mundir. í fyrradag voru allir litir af papriku á 399 krónur kílóið í Bónusi, hjá Nóatúni var grænt paprikukíló á 679 krónur og hinir litirnir á 789 krónur kílóið. Hjá 10-11 var sama uppi á teningn- um græn paprika á 678 krónur kílóið en aðrir litir a 788 krónur. Hjá Hagkaupi kost- uðu þrír paprikulit ir af fjórum 789 krónur kílóið og hjá Fjarðarkaupum var kíló- verð að hækka, græn paprika kostar 669 krónur kílóið en 740 krónur aðrir litir. í fyrradag var paprikukílóið um 98% dýrara hjá Hagkaupi, Nóatúni og 10-11 en í Bónusi þar sem það var ódýrast. Græn paprika á tilboðs- verði hjá Hagkaupi Þegar haft var samband við forráðamenn hjá Hagkaupi sagði Lárus Óskarsson að paprikan væri að lækka í verði hjá þeim. „Við höfum verið að selja bæði íslenska og hollenska papriku að undan- förnu í Hagkaupsverslunum en núna er hollenska magnið að auk- ast enn frekar hjá okkur,“ segir Lárus Óskarsson hjá Hagkaupi. „Tollamir lækkuðu 1. október síð- astliðinn og hafa síðan farið stig- lækkandi á viku fresti. Við vomm að fá paprikur með flugi og núna er græn paprika á sérstöku til- boðsverði á 398 krónur en aðrir litir á 639 krónur,“ segir hann. „Okkar markmið er að flytja paprikur inn með flugi til að hafa þær ferskar og það er dýrara að fá vöruna með flugi en sjóleiðis." Fyrir um það bil mánuði var kílóið af papriku víða selt á um 800 krónur kílóið og vom ástæður fyrir háu verði sagðar lítið fram- boð og háir tollar á innfluttri papr- iku. Þá var lagt á innflutt papriku- kíló 30% verðtollur og 397 króna magntollur. Skömmu síðar var ákveðið að lækka verð- og magn- tolla á paprikum. í byrjun október lækkuðu verðtollar í 22,5% og 298 króna magntoll, 7. október * í 15% verðtoll og 199 króna magntoll og frá 14. þessa mánaðar hefur verðtollurinn verið 7,5% og 99 króna magntoll- ur. - Hvers vegna hefur paprika þá ekki lækkað í verði sem lækkun tolla nemur? „Við höfum ekkert verið að selja bara erlenda papriku og höfum einnig selt íslenska papriku. Tollarnir lækkuðu ekkert að ráði fyrr en um síðustu helgi og sú paprika sem komu til landsins eftir það er núna á lækkuðu verði og græn paprika á sérstöku tilboðsverði," segir Lár- us. „Það er lítið eftir af ís- lenskri papriku en hún slæðist þó með. Við höfum verið að flytja inn græna papriku og hún er á lægra verði en þessi íslenska, þó munur- inn sé ekki mjög mikill," segir Kolbeinn Ágústsson hjá Sölufélagi garðyrkjumanna. Paprikan lækkar enn frekar „Bónus selur íslenska og hol- lenska papriku og sú spánska er að koma inn hjá okkur núna með flugi,“ segir Jón Ásgeir Jóhannes- son hjá Bónusi. „Við höfum lækk- að paprikuna jafnt og þétt að und- anförnu eftir lækkun á innflutn- ingsgjöldum og þeir sem hafa selt okkur íslenska papriku hafa fylgt því verði. Allir litir af papriku voru í fyrradag á 399 krónur nema sá græni lækkaði í 299 krónur kíló- ið.“ Jón Ásgeir segir að öll gjöld verði lögð af um mánaðamót og þá tekur tollskráin við. Þá er 30% tollur af papriku og hún ætti að lækka enn meira miðað við verðið sem hún býðst á erlendis núna,“ segir Jón Ásgeir. McDonald’s og KS| bjóða hefipnum vinningshafa á leik Islands og Irlands á Irlandi þann 10. nóvember nk. Getraunaseðlar fylgja með Stjörnumáltíðum og landsleikstilboði hjá McDonald's til 27. október. VILTU VINNA FERÐ TIL ÍRLANDS? HJÁ ANDRÉSI Rýmingarsalan heldur áfram 10-50% afsláttur ■g Jakkaföt verð 4.995 - 15.920 S Stakir jakkar verð 3.900 - 9.520 q Stakar buxur verð 1.000 - 3.900 Vandaðar vörur á vtegu verði ANDRES Skólavörðustíg 22A, s. 551-8250. Póstkröfuþjónusta. Lesendur spyrja Morgunblaðið/Þorkell KRAKKABRAUÐ inniheldur ekki sömu trefjaefni og eru í grófum brauðum Eru krakkabrauð eins holl og grófu brauðin? ÞORBJÖRG Gunnarsdóttir hafði samband og vildi vita hvort svokall- að krakkabrauð væri jafn hollt og af er látið og hvort sams konar trefj- ar væru í því og grófu brauði? Svar: Laufey Steingrímsdóttir, for- stöðumaður Manneldisráðs, segir að í auglýsingum og kynningu á krakkabrauði sé því haldið fram að brauðið sé hollt eins og gróft brauð en bragðist eins og hvítt brauð. „Einnig er sagt að næringarefnum sem tapast við fínmölun korns hafi verið bætt aftur út í brauðið og því sé það eins næringarríkt og trefja- rikt og gróft brauð. Ég er ekki fyllilega sátt við þess- ar fullyrðingar þó hér sé á ferðinni betrumbætt hvítt brauð. Krakka- brauð er hollara en venjulegt frans- brauð því trefjum hefur verið bætt í það. Á hinn bóginn er ekki um að ræða sömu trefjar og eru í heil- hveiti. í krakkabrauði er hollusta sem er annars eðlis en í hefðbundnu heilhveiti." Krakkabrauð eru öðruvísi holl Laufey segir að Krakkabrauð séu gerð úr hvítu hveiti en trefjum úr sojabaunum og höfrum sé blandað í deigið. „Þessi viðbættu trefjaefni eru vatnsleysanleg og því gjörólík þeim sem er að finna í heilhveiti. Heilhveititrefjar örva t.d. melting- una en þau vatnsleysanlegu gera það lítið eða ekki. Þau hafa hinsveg- ar áhrif á kólesteról í blóði, lækka kólesteról og hægja á upptöku syk- urs úr meltingarvegi. Þetta eru þvi hin ágætustu efni, en einfaldlega ekki þau sömu og voru tekin úr heilhveitinu. Vatnsleysanleg trefja- efni fáum við á náttúrulegan hátt úr baunum, höfrum, ávöxtum og grænmeti. Til gamans má geta þess að bæði pektin og gúmmí eru vatns- leysanleg trefjaefni og Krakka- brauð bera þess merki, þau eru svolítið gúmmíleg. „Ég tel því varhugavert að halda fram að krakkabrauð sé eins hollt og gróft brauð. Það er öðruvísi hollt.“ Laufey bendir á að brauð sé vinsælt og gott skólanesti og bæði skólastjórnendur og Manneldisráð hafi mælt með að börn komi með gróft brauð í skólann. Kannanir sem hafa verið gerðar á mataræði sýna að börn taka al- mennt með sér gróft brauð í skól- ann. Auglýsingar um krakkabrauð sem hafa birst í sjónvarpi virðast miðast við að hvetja börn til að breyta þessari venju. Laufey segir að vanda þurfí til verks þegar hafa eigi áhrif á neyslu- venjur barna en skóli og skólanesti er það_ sem auglýsingarnar fjalla um. „Ég vil hins vegar taka það skýrt fram að vilji fólk borða hvítt brauð virðist krakkabrauð besti kosturinn." fí * Kínverskt veitingahús Nýbýlavegi 20, Kópavogi, sfmi 554 5022, fax 554 2333 Takið með heim: 5 rétta máltíð kr. 1.100 2ja rétta máltíð kr. 790 Borðað á staðnum: 5 rétta máltíð kr. 1.250 Veisluþjónusta Frí heimsending Blab allra landsmanna! - kjarm malsms!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.