Morgunblaðið - 06.12.1996, Page 4

Morgunblaðið - 06.12.1996, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskólans á fylgi stjórnmálaflokkanna 38,3 sjáifstæðis- Fylgi stjórnmálafiokka í kosningum 1995 og i skoðanakonnun siðan 37,2 Spurt í nóvember-desember 1996. Hvað myndu menn kjósa f alþingiskosníngum nú? Nóv,- Kosn. Nóv. Maí des. Framsóknar- 1996 1996 flokkur .dStm Annað 1,9 0,8 0,8 4,8 23,3 03 23,4 —iwrn iiN K«1 ð§; Alþýðuflokkur 14,4 §14,4 41 minuyiaj Kvennalisti 4,9 ^4 43 Þjóð- 7,2 vaki Hvort mundir þú segja að þú værir stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar eða andstæðingur? Nóv.des Hlutfall þeirra sem svara w _ 1995 Stuðnings- menn Hlutlausir Andstæðingar Niðurstöður kosninga íapríl 1995 4,9% Kvennalisti 7,2% Þjóðvaki 1,9% Annað Skoðanakönnun í nóv./des. 1996 Hvað myndu menn kjósa í alþingis kosningum nú? Sjálfstæðis- flokkur Framsóknar- flokkur Alþýðubandalag Alþýðuflokkur 4,3% Kvennalisti 0,7% Þjóðvaki 4,8% Annað Ef þrír listar væru í framboði, hvern þeirra myndir þú kjósa Sameinaðir jafnaðarmenn Litlar breytingar á fylgi frá kosningum FYLGI stjórnmálaflokkanna er nánast það sama í nýrri skoðana- könnun Félagsvísindastofnunar og þeir fengu í síðustu kosningum ef undan er skilið að fylgi Þjóðvaka hefur færst til Alþýðuflokks og Alþýðubandalags. Fylgistölur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks eru næstum nákvæmlega þær sömu í könnuninni og í kosn- ingunum. Skoðanakönnunin var gerð dag- ana 29. nóvember til 3. desember sl. Stuðst var við slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til 1.500 manna á aldrinum 18-75 ára af öllu land- inu. Nettósvarhlutfall var 73%. Þrjár spurningar voru lagðar fyrir svarendur. „Ef alþingiskosn- ingar væru haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa?“ Þeir sem sögðu „veit ekki“ voru spurðir áfram. „En hvaða flokk eða lista heldurðu að líklegast sé að þú myndir kjósa?" Segðu menn enn veit ekki voru þeir spurðir: „En hvort heldurðu að sé líklegra að þú kjósir Sjálf- stæðisflokkinn eða einhvern annan flokk eða lista?“ Þegar svör höfðu fengist við þessum spurningum öll- um var hlutfall þeirra sem voru óákveðnir eða neituðu að svara komið niður í 22,5%. Framsóknarflokkur og Al- þýðuflokkur bæta við sig Niðurstaða könnunarinnar er sú að Alþýðuflokkur fær 14,4%, Framsóknarflokkur 23,4%, Sjálf- stæðisflokkur 37,2%, Alþýðu- bandalag 15,2%, Kvennalisti 4,3%, Þjóðvaki 0,7%, Jafnaðarmanna- flokkur 4,4% og aðrir flokkar 0,4%. Könnunin er næstum samhljóða niðurstöðu síðustu alþingiskosn- inga ef undan er skilið að fylgi Þjóðvaka hefur minnkað mikið og farið yfir á Alþýðuflokk og Alþýðu- bandalag. Ef könnunin er borin saman við skoðanakönnun sem gerð var um miðjan maí sl. kemur í ljós að Alþýðuflokkur hefur bætt við sig 0,5%, Framsóknarflokkur bætir sömuleiðis við sig 3,1%, Sjálf- stæðisflokkur tapar 5,5%, Alþýðu- bandalag tapar 1,1%, Kvennalisti tapar sömuleiðis 0,5% og Þjóðvaki tapar 0,4%. 4,4% nefna nú í fyrsta skipti Jafnaðarmannaflokk þegar þeir eru spurðir hvern þeir ætli að kjósa. Fær samanlagt fylgi fé- lagshy ggj uflokkanna Félagsvísindastofnun gerði einn- ig könnun fyrir þingflokk Jafnaðar- manna þar sem svarendur eru spurðir hvern þeir myndu kjósa ef í boði væru þrír listar, listi Sjálf- stæðisflokks, Framsóknarflokks og listi sameinaðra jafnaðarmanna. 37,5% svöruðu Sjálfstæðisflokk, 23% svöruðu Framsóknarflokk og 39,5% sameinaða jafnaðarmenn. Sameinaður listi jafnaðarmanna fær 0,5% meira fylgi en Alþýðu- bandalag, Alþýðuflokkur, Kvenna- listi, Þjóðvaki og Jafnaðarmanna- flokkur fengu samanlagt í skoðana- könnun Félagsvísindastofnunar. Ef framboðslistarnir eru þrír fær Sjálfstæðisflokkur 0,3% meira fylgi en ef listarnir væru fleiri. Fylgi Framsóknarflokks minnkar um 0,4%. Þessi munur er vel innan skekkjumarka. Séu kannanirnar bornar saman kemur í ljós að 83,5% Alþýðu- flokksmanna ætla að kjósa lista sameinaðra jafnaðarmanna ef hann væri boðinn fram, 3,8% fram- sóknarmanna ætla að gera það sama, 2,9% sjálfstæðismanna, 77,7% Alþýðubandalagsmanna, 55,2% kjósenda Kvennalistans og 80% kjósenda Þjóðvaka. I i * i l I Andlát HANNES PÁLSSON HANNES Pálsson skipstjóri og fýrrver- andi forstjóri lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. desember síðastlið- inn. Hannes fæddist 27. janúar 1903 í Reykja- vík, sonur Páls Haf- liðasonar skipstjóra og Guðlaugar Ágústu Lúðvíksdóttur. Hann kvæntist Ásdísi Þor- steinsdóttur en hún lést 1. júní 1986. Þau eignuðust þijú böm; Guðlaugu Ágústu, Braga og Ásgerði sem er látin. Hannes Iauk farmanna- og eim- vélaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1923, var við sjó- mennsku frá 1920-1954 og gekk í gegnum öll starfsþrep á togurum, frá háseta til skipstjóra. Hannes var skipstjóri á Gylli frá Reykjavík 1939-46, Ingólfi Arnarsyni, fyrsta nýsköpunartogaranum, frá 1947-51 og Þorsteini Ingólfssyni og Þorkeli mána frá 1951-54 en hætti þá sjómennsku. Árin 1954-55 var Hannes erindreki Fé- lags íslenskra botn- vörpuskipaeigenda við löndun í Hamborg á fiski, sem seldur var til Áustur-Þýskalands. Þá var hann forstjóri Hampiðjunnar hf. í Reykjavík frá 1956- 1973 og síðan formað- ur stjómar fyrirtækis- ins til 1985. Auk þess var hann í stjórn Félags íslenskra iðnrekenda 1959-1964, þar af vara- formaður í tvö ár. Hannes Pálsson var sæmdur heiðursverðlaunum Siysavarnafé- lags íslands fyrir björgun skips- hafnar Júní frá Hafnarfirði árið 1948 og hinni íslensku fálkaorðu árið 1976 fyrir störf í sjávarútvegi og iðnaði. Opið í daQ 1Q-19 Sumar verslanir opnar lengur KRINGMN Jia morgni til kvolds ' Fundur forystumanna EFTA og Evrópusambandsins í Lissabon Rætt um möguleika á aðild ríkja utan ESB að EMU FORSÆTISRAÐHERRAR EFTA-ríkjanna innan Evrópska efnahagssvæðisins, íslands, Nor- egs og Liechtenstein, áttu fund með tveimur forystumönnum Evr- ópusambandsins í Lissabon fyrr í vikunni, samhliða leiðtogafundi Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að á fund- inum hafi verið rætt um mögu- leika ríkja utan Evrópusambands- ins á að gerast aðilar að Efna- hags- og myntbandalagi Evrópu (EMU). „Það var rætt hvort það væri forsenda aðildar að hinum sameig- inlega gjaldmiðli að ríki væru í Evrópusambandinu," segir Davíð. „Þetta var rætt, ekki þannig að menn væru að sækjast eftir slíkri aðild, heldur hvort þetta væri fræðilegur möguleiki. Svörin voru á þá leið að þetta væri flókin spurning, en ekki væri hægt að útiloka að Evrópuríki kynnu að vilja gerast aðilar að hinni sameig- inlegu mynt þótt þau væru ekki í sambandinu. Hins vegar undir- strikuðu þeir að EMU væri ekki bara efnahagslegur þáttur, heldur væri það að mati Evrópuríkja og Evrópusambandsins hluti af póli- tískri yfirlýsingu gagnvart Evr- ópuþróuninni." Fundir með æðstu yfirmönnum tvisvar á ári Fundinn sátu, auk Davíðs, Thorbjorn Jagland forsætisráð- herra Noregs, Mario Frick, forsæt- isráðherra Liechtenstein, John Bruton, forsætisráðherra Irlands, sem situr nú í forsæti ráðherraráðs ESB, og Hans van den Broek, varaforseti framkvæmdastjórnar- innar. Leiðtogar EFTA-ríkjanna eiga fund með æðstu yfirmönnum Evrópusambandsins tvisvar á ári, samkvæmt samkomulagi þar um. Á fundunum fara fram pólitísk skoðanaskipti og sameiginleg hagsmunamál eru rædd. Að sögn Davíðs var á fundinum farið yfír samstarfíð samkvæmt EES-samningnum, rætt um þróun mála á ríkjaráðstefnu Evrópusam- bandsins, undirbúning að gildis- töku Efnahags- og myntbandalags og um samstarf ESI3 og EFTA- ríkjanna í ýmsum svæðasamtök- um, til dæmis Barentsráðinu og Eystrasaltsráðinu. I I I I I s i Deila krabbameinslækna við Landspítalann Ríkisspítalar dæmdir til greiðslu 26,5 milljóna króna RÍKISSPÍTALARNIR hafa verið dæmdir í Héraðsdómi til að greiða sjö sérfræðingum í krabbameins- lækningum á Landspítalanum sam- tals 25,5 milljónir króna vegna ógreiddrar vinnu við meðferð á göngudeild, auk rúmlega milljón króna í málskostnað. Samkvæmt samkomulagi Landspítalans við læknana frá apríl 1993 var þeim heimilt að taka sjúklinga til með- ferðar í sérgrein sinni á göngudeild á ákveðnum tímum. Gjald fyrir þjón- ustu sem grfeiðist af sjúkratrygging- um átti spítalinn að sjá um að inn- heimta hjá Tryggingastofnun. Spít- alinn átti að fá 40% af reikningunum sem greiðslu fyrir aðstöðuna á spítalanum, en afgangurinn skyldi renna til læknanna. Tryggingastofnun neitaði að greiða reikningana og skuld við læknana safnaðist fyrir. Læknarnir stefndu að lokum spítalanum til greiðslu. Stjórnendur Ríkisspítal- anna töldu að meginforsenda sam- komulagsins hafi verið sú að Trygg- ingastofnun ríkisins greiddi reikn- ingana, og ekki kæmi því að gjald- daga við læknana fyrr en hún hefði greitt sinn hlut. Þeirri röksemd var hafnað fyrir héraðsdómi og Ríkis- spítalarnir dæmdir til að greiða reikningana auk dráttarvaxta og málskostnaðar. í t 1 I I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.