Morgunblaðið - 06.12.1996, Page 11

Morgunblaðið - 06.12.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 11 Morgunblaðið/Kristinn KJÖTINU raðað í kjötborð nýju MM-verslunarinnar við Fákafen í gær. Nýjar sérverslanir með kjöt og grænmeti Allt að 15-20% lægra verð á kjöti ÞRJÁR nýjar sérverslanir með kjöt og grænmeti verða opnaðar á höf- uðborgarsvæðinu í dag. Verslanirnar bera nafnið MM - Matarkofi Meist- arans - og eru í eigu kjötvinnslufyr- irtækisins Meistarans hf. Forsvars- menn verslananna segja að með beinum aðgangi kjötvinnslunnar að markaðinum fækki milliliðunum um einn og því sé hægt að bjóða allt að 15-20% lægra verð á kjötvörum en almennt gerist í verslunum. Tryggvi Sveinbjörnsson, einn aðaleigenda Meistarans, segir að þó að samkeppni kjötvinnslustöðva að undanförnu hafi leitt til lækkunar á heildsöluverði kjöts hafi sú lækkun ekki skilað sér sem skyldi frá smá- sölustiginu til neytenda. MM-verslanirnar eru við Reykja- víkurveg í Hafnarfirði, Smiðjuveg í Kópavogi og Fákafen í Reykjavík. Að sögn Tryggva var einkum lögð áhersla á tvö atriði við staðsetning- una. Annars vegar að hafa verslan- irnar nálægt verslunarkjörnum þar sem margt fólk er í vinnu og hins vegar að hafa þær þannig staðsettar að auðvelt sé fyrir sem flesta að koma þar við á leið heim úr vinnu, þannig að viðskiptavinirnir losni við að fara í gegnum heilan stórmarkað til þess eins að komast að kjötborð- inu. FRÉTTIR Forseti Islands í Bandaríkjunuum Afmælis landafunda verði minnst árið 2000 ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, flutti í gær ræðu á hátíðarfundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í New York og hvatti þar meðal annars til samstarfs á milli íslands og Bandaríkjanna um að minnast 1000 ára afmælis landafunda Leifs Eiríkssonar árið 2000. „Nú er talið að um 200.000 íbúar af íslenskum uppruna og ætterni séu búsettir í Bandaríkjunum og Kanada. Sá fjöldi samsvarar um tveimur þriðju hlutum íbúa íslands. Mikið verk bíður því okkar allra að virkja þessa fjölmennu sveit hér vestanhafs til hagsbóta fyr- ir íslensk viðskipti og menningartengsl," sagði forseti meðal annars og kvað mega draga lærdóm af því hvern- ig írar og ítalir í Bandaríkjunum hafa notfært sér tengsl við ættjörð sína til að efla sinn hag. Dagur íslendinga í Vesturheimi Markmið íslendinga í þessu sambandi gætu verið tvíþætt að sögn forseta. „I fyrsta lagi flölþætt samteng- ing hins nýja áraþúsunds við minningarhátíðar um landafundi Leifs Eiríkssonar. Sú atburðakeðja gæti tengt fyrirheit nýs tíma við áræði þeirra sem fyrir þúsund árum sigldu um ókunn höf og fundu nýjan heim. í öðru lagi uppbygging og efling hins íslenska samfé- lags í Vesturheimi og tenging þess við árlegar hátíðir íslenskra samfélaga um gervöll Bandaríkin og Kanada, við heimsóknir á ættarslóðir á íslandi, við alhliða við- skipti með íslenskar vörur og þjónustu, og við sterka vitund um gamalt og nýtt í íslenskri menningu og list- sköpun. Dagur íslendinga í Vesturheimi, dagur Leifs Eiríks- sonar, gæti öðlast sama gildi og dagur heilags Patreks og dagur Kólumbusar þótt umfangið verði eðlilega annað,“ sagði Ólafur Ragnar." í ræðu sinni fjallaði hann einnig um framtíðarþróun í viðskiptum íslands og Bandaríkjanna og tækifæri sem tækni og alþjóðavæðing viðskiptalífsins skapa. Ólafur Ragnar var sérstakur gestur á stjórnarfundi Reuter ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti íslands ræddi við Richard Grasso, stjórnarformann Kauphallarinnar í New York, meðan á kynnis- ferð um hana stóð í gær. Kauphallarinnar í New York, en þar er miðstöð við- skipta- og fjármálalífs í Bandaríkjunum. Höfuðstöðvar SH heimsóttar Forsetahjónin heimsækja aðalstöðvar Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna, Coldwater Seafood, í Bandaríkj- unum í dag og kynna sér m.a. markaðsþróun íslenskra sjávarafurða þar í landi. Sértilboð á jólabó Hagkaupi Eins og undanfarin jól selur Hagkaup nýjustu jólabækurnar á sérlega hagstæðu verði. Bækurnar eru seldar í og sál í öllum verslunum Hagkaups ferðinni. og geta bókaunnendur því og keypt næringu fyrir líkama jólabóka H^fompsve k jóUbóRvtMHwi neytendum á úrvals- a alla þá |ta bækur. Er ekki að efa að viðskiptavinir Itagkaups munu njóta gleðilegra bókajóla. Afsláttur - tilboð - frábært verð SértiLboð á föstudag, Laugardag, sunnudag og mánudag HAGKAUP -Mr fíólskiflduHá- Auglýsing

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.