Morgunblaðið - 06.12.1996, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.12.1996, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. komin á hlutabréfamarkað Hagnaður fyrstu átta mán- uðina HLUTABRÉF í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. hafa verið skráð á Opna tilboðsmarkaðinn og verða fyrstu tilboð í bréfin sett fram í dag. Hraðfrystistöð Þórshafnar var stofnuð árið 1969 og skiptist starf- semi fyrirtækisins nú í flórar deild- ir, þ.e. frystihús, loðnuverksmiðju, útgerð frystitogarans Stakfells og verið er að setja á fót kúfisk- vinnslu. Þá rekur Hraðfrystistöðin dótturfélagið Stakka sem á síldar- bátinn Júlla Dan. Félagið á jafn- framt þriðjung hlutaljár í Skálum ehf. sem eiga nótaskipið Júpiter. Veiðiheimildir eru um 2 þúsund þorskígildi, en veiðiheimildir Stakka og Skála eru um 2.600 þorskígildi. Umskipti í rekstrinum Rekstur fyrirtækisins hefur tekið miklum stakkaskiptum á síðustu þremur árum og tapi verið snúið í hagnað. Þannig nam tapið um 85 milljónum á árinu 1991, 35 milljón- um 1992, en hagnaður hefur verið af rekstrinum allar götur síðan. Á árinu 1995 nam hagnaðurinn um 118 milljónum og fyrstu átta mán- uði þessa árs skilaði fyrirtækið um 113 milljóna hagnaði, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Jóhann A. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar- innar sagði í samtali við Morgun- blaðið að fyrirtækið hefði á undan- förnum árum verið að dreifa starf- semi sinni á fleiri greinar sjávarút- vegs. „Fyrir nokkrum árum vorum við nær eingöngu í bolfiskvinnslu, en sá hluti hefur hins vegar farið minnkandi. Við stundum núna rekstur á mjög breiðu sviði, bæði sjófrystingu, landvinnslu, vinnslu á loðnu og síld, mjölvinnslu o.fl.“ Bókfært eigið fé var neikvætt um 43 milljónir í lok 1992, en var orðið jákvætt um 291 milljón í lok ágúst sl. Jóhann telur þó að upplýs- ingar um eigið fé 1992 hafi ekki gefið_ rétta mynd af stöðu félags- ins. Útgerðarfélagið hafi sameinast frystihúsinu árið 1990 og eigið fé þá lækkað við mat á eignum og skuldum. Hann segir afkomuna ágæta á þessu ári og vonandi haldist það eitthvað áfram. Hins vegar sé af- koman mjög sveiflukennd og ekki hægt að ganga út frá neinni vissu í því efni. Ekki séu iíkur á því að hagnaðurinn á árinu í heild verði mikið meiri en fram kom í átta mánaða uppgjörinu, þar sem haust- ið hafi verið tiltölulega rólegt. Stærstu hluthafar í Hraðfrysti- stöð Þórshafnar eru Þórshafnar- hreppur með 34,6% og Hængur hf. með 24,8%. I 'i I TILKYNNING UM UTBOÐ MARKAÐSVERÐBREFA HLUTABRÉFAS J ÓÐURINN ÍSHAF HF. HLUTABRÉFAÚTBOÐ Heildarnafnverð nýs hlutafjár: Sölugengi: Sölutímabil: Söluaðilar: Umsjón með útboði: Skráning: 50.000.000.- kr. 1,50 6. desember 1996 - 24. maí 1997 Landsbréf hf., Búnaðarbankinn - verðbréf, Fjárvangur hf., Handsal hf., Kaupþing hf., Kaupþing Norðurlands hf., Verðbréfastofan hf. 9g Verðbréfamarkaður Islandsbanka hf. Landsbréf hf. Sótt verður um ^kráningu hlutabréfanna á Verðbréfaþingi Islands þegar hluthafar verða orðnir 200 talsins. Útboðs- og skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa liggur frammi hjá söluaðilum. HLUTABREFASJ OÐURINN ÍSHAF HF. LANDSBREF HF. - 'lvhv /rf,H ■ oi Suðuriandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 588 9200, bréfasími 588 8598. LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS. ___________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________ . | Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar, um ásakanir um innherjaviðskipti Vilja skaða sameininguna VINNSLUSTÖÐIN hf. í Vestmanna- eyjum hefur óskað eftir því við bankaeftirlit Seðlabanka Islands að rannsókn á ásökunum um innheija- viðskipti í fyrirtækinu á árinu 1996 verði hraðað eins og kostur er. Sig- hvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að ásak- anirnar skaði orðstír fyrirtækisins og stjórnenda þess. Það verði að hreinsa þessa aðila af þessum róg- burði og þess vegna hafi þess verið óskað að málinu yrði hraðað. Sigurður Bjarnason, sveitarstjórn- armaður í Þorlákshöfn, óskaði eftir því við bankaeftirlitið að rannsóknin færi fram. Sighvatur sagði að þeir hefðu látið bankaeftirlitinu í té öll gögn varðandi viðskipti með hlutafé í félaginu frá því í byijun júní og þar kæmi fram að engir stjórnar- menn hefðu átt viðskipti með hlutafé og engin fyrirtæki sem tengdust stjórnarmönnum. Einu viðskiptin sem þyrfti að nefna í þessu sam- bandi væru kaup hans sjálfs á hluta- fé í félaginu af Lífeyrissjóði Vest- mannaeyinga 18. júlí í sumar, löngu áður en þetta mál hefði komið upp og um þau kaup hefði verið tilkynnt til Verðbréfaþings. Hreinn rógburður „Allt tal um innherjaviðskipti er hreinn rógburður og ég tel að það þjóni einhveijum annarlegum til- gangi að vera að setja þetta fram. Það er til þess eins að skaða þessa fyrirhuguðu sameiningu fyrirtækj- anna,“ sagði Sighvatur. Gengið hefur verið frá samruna- áætlun Vinnslustöðvarinnar og Meit- ilsins í Þorlákshöfn og verður sam- einingin tekin fyrir á hluthafafundi í Meitlinum á morgun, laugardag, og á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar annan laugardag. Tvo þriðju hluta atkvæða hluthafa þarf til að sam- þykkja sameininguna. Sighvatur sagði að allt tal um að það væri verið að sameina Vinnslu- stöðina Meitlinum til að bjarga Vinnslustöðinni væri á vanþekkingu og misskilningi byggt. í fyrsta iagi væri farið rangt með aflaheimildir Vinnslustöðvarinnar. Þær væru ekki 8.441 þorskígildistonn heldur rétt um 9.500. Brúttóvelta Vinnslustöðvar- innar væri 3.649 milljónir og brúttó- skuldir 3.414 milljónir. Nettóskuldir fyrirtækisins væru 2.490 milljónir króna. Til samanburðar væri velta Meitilsins á þessu ári rétt innan við 800 milljónir króna og brúttóskuld- irnar 800 milljónir. Þannig væru hlutföllin mun hagstæðari Vinnslu- stöðinni. Að auki hefði Vinnslustöðin tekið á móti 143 þúsund tonnum til vinnslu á síðasta rekstrarári, sem væri langt umfram þær aflaheimildir sem fyrirtækið ætti. Það væri með marga báta í viðskiptum og það hefði með öðru gert þeim kleift að hafa þessar tekjur. Þá væru bátar Vinnslustöðvarinnar á veiðum sem ekki væru kvótabundnar, eins og á norsk-íslensku síidinni, í Smugunni og á úthafskarfa. Skip Meitilsins hefðu enga möguleika á sams konar eða svipuðum veiðum. Þessar fullyrð- ingar væru því út í hött. Sighvatur sagði að meiningin með sameiningunni væri að búa til arð- bærari einingu út úr þessum tveimur fyrirtækjum. Bæði fyrirtækin væru þokkalega sterk efnahagslega, en hægt væri að gera mun betur með sameiningu og hagræðingu í rekstri, fækkun skipa og meiri sérhæfingu í vinnslu. Hann bætti því við að það hefði ekki verið fólginn í því neinn hagur fyrir Vinnslustöðina eða hluthafa hennar að hækka gengið á hlutabréf- um í fyrirtækinu fyrir sameininguna. Skiptahlutföllin væru metin út frá innra virði, sem væri ákveðið út frá bókfærðum eignum og út frá skýrsl- um matsmanna sem hefðu verið að meta fasteignir og skip félaganna. Þannig kæmi skiptigengið út, sem væri um 740 króna hlutur í Vinnslu- stöðinni fyrir hvern eitt þúsund króna hlut í Meitlinum. Verslunarráð hvetur til einkavæðingar Vaxtagjöld lækk- uðu um 2,6 millj. RÍKISSJÓÐUR gæti lækkað árlegar vaxtagreiðslur til erlendra lána- drottna um 2,6 milljarða á ári ef hann annað hvort seldi einkaaðilum, eða legði niður og seldi eigur ríkisvið- skiptabankanna, fjárfestingarlána- sjóðina og hlut sinn í 13 öðrum fyrir- tækjum og stofnunum. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu Verslun- arráðs íslands um einkavæðingu sem kynnt var á morgunverðarfundi ráðs- ins í gær. 40 milljarða söluhagnaður Samkvæmt skýrslunni er mikil- vægast að einkavæða ríkisviðskipta- bankana, Landsbanka og Búnaðar- banka, ijárfestingarlánasjóðina, Fiskveiðasjóð, Iðnlánasjóð, Iðnþró- unarsjóð og Stofnlánadeild landbún- aðarins. Ríkisverksmiðjurnar, Sem- entsverksmiðju og Áburðarverk- smiðju, sem hefur verið breytt í hlutafélög en eru alfarið í eigu ríkis- ins, Ríkisútvarpið, Póst og síma, sem verður áfram í eigu ríkisins þrátt fyrir að verða breytt í hlutafélag um næstu áramót. Ríirið selji eignarhluti sína í Skýrr, Islenska járnblendifé- laginu, Kísiliðjunni, Steinullarverk- smiðjunni, Bifreiðaskoðun íslands og ísienskum aðalverktökum. ÁTVR verði seld ásamt Fríhöfninni á Kefia- víkurflugvelli og Byggðastofnun. Ráðið telur að alltof hægt hafi verið farið í einkavæðingu á síðustu árum og bendir á að ekkert hafi verið einkavætt á þessu kjörtímabili, ef frá er talin sala hlutabréfa í Jarð- borunum hf. fyrir 200 milljónir króna fyrr á þessu ári. „Lauslega áætlað eigið fé framangreindra fyrirtækja er um 35 milljarðar króna og má ætla að söluhagnaður ríkisins gæti orðið mun hærri. Ef ríkissjóður fengi til dæmis í sinn hlut um 40 milljarða á næstu 4 til 5 árum vegna einka- væðingar gæfí það stjórnvöldum kost á að greiða niður erlendar skuldir ríkissjóðs úr um það bil 137 milljörð- um niður fyrir 100 milljarða. Slík lækkun erlendra skulda gæti laus- lega áætlað lækkað árlegar vaxta- greiðslur til erlendra lánardrottna um 2,6 milljarða króna á ári.“ í erindi Sighvatar Björgvinssonar, formanns Alþýðuflokksins á fund- inum kom meðal annars fram að framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur gengið frá nýrri til- skipun um skipulag í orkumálum og því þurfi að gera ráð fyrir því að öll orkuvinnsla á íslandi verði opin og fijáls og allir þeir sem uppfylli al- menn skilyrði sem ríkisvaldið setur geti gert kröfu um að virkja þær auðlindir sem til stendur að virkja eða þörf er fyrir að virkjaðar séu. > \ i l í I r i i i i f i i t í í ; i 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.