Morgunblaðið - 06.12.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 25
LISTIR
Sýningum í
Hafnarborg
að ljúka
NU standa yfir í Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnarfjarðar,
sýningar Eggerts Magnússonar og
Jóns Óskars, en þeim lýkur mánu-
daginn 9. desember.
Eggert hefur fengist við málara-
list um nokkurra ára skeið og hefur
gjarnan verið talinn til naífista, með-
al annars fjallaði Aðaisteinn Ingólfs-
son um hann í bók sinni Einfarar í
íslenskri myndlist. Efniviður Eggerts
er annars vegar veruleiki íslensku
sveitanna og hins vegar svipmyndir
frá fjarlægum löndum.
Jón Óskar sýnir eitt hundrað
mannamyndir sem unnar eru með
tölvutækni. Hér er um að ræða and-
lit sem ekki eru ljósmynduð heldur
skönnuð beint inn í tölvuna og síðan
unnin og prentuð út aftur. Jón Óskar
hefur haldið fjölda sýninga bæði hér
heima og erlendis. Hingað til hefur
hann þó einkum sýnt olíumálverk.
Jólatónleikar
Kvennakórsins
KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika í Hallgríms-
kirkju laugardaginn 7. desember og
sunnudaginn 8. desember kl. 17 báða
dagana. Yfirskrift tónleikanna að
þessu sinni er „Englakór frá himna-
höll“.
Gestir á tónleikunum verða Krist-
ján Þ. Stephensen óbóleikari, Dom-
enica Cifarielli hörpuleikari frá Ítalíu
og kammerkór Grensáskirkju.
Svana Víkingsdóttir annast org-
elleik. A tónleikunum verða flutt
ýmis verk sem tengjast jólahátíðinni
auk þekktra jólalaga.
-----♦ ♦ ♦-----
Sýningunni
„Ljósbrigði“
að ljúka
SÝNINGUNNI „Ljósbrigði - Safn
Ásgríms Jónssonar", sem staðið hef-
ur í Listasafni íslands undanfarnar
sex vikur, lýkur nú um helgina. Sýn-
ingin er haldin í tilefni þess að á
þessu _ári eru liðin 120 ár frá fæð-
ingu Ásgríms Jónssonar.
Á sýningunin eru 120 valin verk
úr listaverkagjöf hans til íslenska
ríkisins árið 1958 sem sameinuð var
Listasafni íslands árið 1988. „Leitast
hefur verið við að sýna sem heilleg-
asta mynd af listaverkagjöf Ásgríms
og eru til sýnis olíumálverk, vatns-
litamyndir og teikningar auk fjölda
teiknibóka sem gefa innsýn inn í
vinnubrögð hans,“ segir í kynningu.
-----------» ♦ ♦-----
Nýjar hljómplötur
• FYRIRTÆKIÐ Marknet heíur
nú fyrir jólin gefið út geisladiskinn
Jólahátíð og rennur hluti af ágóða
geisladisksins í símasölu Kvenna-
athvarfsins.
Á Jólahátíð eru söngvar, sögur og
kvæði og meðal flytjenda eru Hjalti
Rögnvaldsson, Helga Möller,
Pálmi Gunnarsson, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Söngsysturo.H.
PÚÐAR
kirsuberjatréð
vesturgötu 4
VERK eftir Eggert Magnússon.
Undir berum himni
Zurich. Morgunblaðið
FIMM óperur - Aida, Rigoletto og
Macbeth eftir Verdi, Madame Butt-
erfly eftir Puccini og Carmen eftir
Bizet - verða sýndar á listahátíðinni
í Veróna á Ítalíu í sumar. Hátíðin
hefst 4. júlí með flutningi Macbeth
í uppfærslu Pier Luigi Pizzi og und-
ir stjórn Giovanni Rath. Maria Gul-
eghina, Paolo Coni eða Juan Pons
syngja aðalhlutverkin.
Daniel Oren stjórnar Madame
Butterfly, Raina Kabaivanska fer
með aðalhlutverkið. Kristján Jó-
hannsson syngur Radames í Aida
undir stjórn Nello Santi. Carmen
verður sýnd eftir 19. júlí undir stjórn
Juan Jimenez. Agnes Baltsa, José
Carreras og Cicilia Gasdia syngja
aðalhlutverkin. Rigoletto undir
stjórn Nello Santi verður sýnd í ág-
úst með einsöngvurunum Leo Nucci,
Alida Farrarini og Ramon Vargas.
Requiem Verdis undir stjórn Zubin
Metha verður einnig flutt á hátíðinni
í Veróna í sumar. Porgy og Bess
eftir George Gershwin verður flutt
á stóra sviðinu í Bregenz við Bod-
ensee í Austurríki í sumar. Flestir
flytjendanna eru Bandaríkjamenn.
Frumsýningin er 18. júlí og sýningar
standa til 19. ágúst. Uppfærslurnar
í Bregenz eru sýndar tvö ár í röð
svo að Porgy og Bess verður einnig
á dagskrá sumarið 1998.
GUÐRÚN
Nýjar bækur
Guðrunar
|T Telgaclóttrrr
MEIIUAF JÓNIODDI
OG JÓNIBJARNA
MARKA!
Enn á ný hefur Guðrún
Helgadóttir skapað
frábæra sögu fýrir börn
og unglinga.
Hér hittum við aftur
hinar góðkunnu
persónur úr met-
sölubókinni Ekkert að
þakka sem lenda nú í
nýjum ævintýrum.
Ekkert að marka! er
bráðfyndin og spennandi
‘ ók sem allir hafa gaman
af að lesa.
EKKERT AÐ
1
V i*-
Hver vill ekki vita
meira af Jóni Oddi og Jóni
Bjarna? Hér er á ferð ný útgáfa af
þessari sígildu barnabók sem hefur
notið mikilla vinsælda
um langt skeið. Jón Oddur og Jón
Bjarni halda uppteknum hætti og
koma sér í ýmis vandræði,
öðrum til mikillar skelfingar en
lesandanum til mikillar skemmtunar.
VAKA-HELGAFELL
SlÐUMÚLA 6, 108 REYKJAVÍK