Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 33
LISTIR_______
Tilbreyting
og tómleiki
Yignir sýnir
í SPRON við
Alfabakka
VIGNIR Jóhannsson opnar sýn-
ingu á verkum sínum í útibúi
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis við Álfabakka 14 í Mjódd,
sunnudaginn 8. desember kl. 14.
Vignir fæddist á Akureyri upp
úr miðri öldinni. Hann lauk námi
frá Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1978 og fluttist þá til
Bandaríkjanna og hóf þar nám,
en þar lauk hann mastersgráðu
árið 1981. Hann var síðan búsett-
ur í Bandaríkjunum þar sem hann
hélt sýningar, en á síðasta ári
fluttist hann heim aftur.
Sýningin stendur til 11. apríl
næstkomandi og verður opin á
opnunartíma útibúsins frá kl. 9.15
til 16.
Jólatónleik-
ar Söng-
smiðjunnar
SKÓLASTARF Söngsmiðjunnar
hefur staðið í vetur og hafa um
200 nemendur á öllum aldri stund-
að nám við skólann í ýmsum deild-
um_ hans.
Á jólatónleikunum koma allir
nemendur Söngsmiðjunnar fram
og sýna afrakstur vinnu sinnar.
Flutt verða ýmis jólalög, gosp-
el, leikhústónlist og margt fleira.
Aðgangseyrir er 500 kr. en frítt
fyrir börn 12 ára og yngri, einnig
eldri borgara.
Vertíðarskáld
lesa í Akra-
borginni
NOKKUR vertíðarskáld og rithöf-
undar munu lesa úr verkum sínum
um borð í Akraborginni, laugar-
daginn 7. desember, þau eru;
Bragi Ólafsson, Elísabet Jökuls-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og
Össur Skarphéðinsson. Þá mun
Hrafn Jökulsson lesa úr bók 111-
uga bróðufy síns og þjóðsögum
Jóns Múla Árnasonar.
Lesið verður í hálffjögurferðinni
upp á Skaga og fimm ferðinni til
Reykjavíkur. Allir velkomnir.
Sýningu Guð-
mundu að ljúka
SÝNINGU Guðmundu Andrés-
dóttur á Sóloni íslandusi lýkur á
sunnudag 8. desember.
Á sýningunni eru olíumálverk á
striga, unnin sl. þijú ár. Sýningin
er opin alla daga frá kl. 11-18.
„Einn á dag“
í DESEMBERMÁNUÐI verða að-
standendur Skruggusteins með
dagatal í „Skotinu", Hamraborg
20a, Kópavogi, en daglega fram
að jólum bætist við nýr listmunur
eftir einhvern listamannanna sem
að galleríinu standa.
Opið alla daga vikunnar fram
að jólum.
MYNPLIST
Nýlistasaf nið
INNSETNINGAR
Finnur Amar/Ingileif Thorlac-
ius/Guðrún Halldóra Sigurðardóttir.
Opið kl. 14-18 alla daga til 8. desem-
ber; aðgangur ókeypis
ÞAÐ eru ólíkar sýningar sem nú
bregður fyrir í sölum Nýlistasafnsins.
Ein býður upp á tilbreytingu og per-
sónuleg kynni, en hinar vekja fremur
upp tilfinningu tómleika, þar sem
mjög sparlega er farið með allt sem
að þeim snýr. Knöpp tjáning getur
vissulega verið sterkari en sú sem
veður á súðum, en er tæpast næg
forsenda góðrar listar ein og sér.
Finnur Arnar
í neðri sölum safnsins býður Finn-
ur Arnar gestum örlitla innsýn í
hversdagslíf hins venjulega samborg-
ara - handverksfólks, skrifstofu-
manna, launafólks hjá borg og ríki
- og leitast jafnframt við að skapa
þá tilfinningu að lífið sé í fullum
gangi innan um allt það sem fyrir
augu ber.
Handverksfólk er hér auðkennt
með einföldum blýantsteikningum af
munum sem tengjast þeirra iðn, og
skrifstofufólki er lýst með æviskrám,
þar sem lögð er áhersla á fjölskyldu-
tengsl, störf og búsetu fremur en
menntun og opinberan frama. Þessar
skrár eru jafnóvenjulegar og þær eru
persónulegar, og benda okkur á að
þrátt fyrir samheiti starfa eru ein-
stakar manneskjur að baki hveiju
nafni, þar sem hver á sína sögu,
drauma og vonir.
Þessi áhersla kemur enn skýrar
fram með sérstakri uppsetningu
launaseðla; þar er brugðið upp mynd
af afrakstri verkamanns, kennara,
sérfræðings, vagnstjóra - þar sem
hver hefur sína sérstöðu hvað varðar
vinnuálag, launakjör og greiðslur til
samfélagsins. Þetta er óvenjuleg að-
ferð til að nálgast persónuna, og
tekst vel í einfaldleik sínum.
Loks hefur listamaðurinn dreift
um salina hlutum, sem eru líkt og
skildir eftir örskotsstund; eigandinn
hefur aðeins skroppið frá. Þessi inn-
skot eru jafnhversdagsleg og þau eru
skemmtileg; móðirin sem skrapp frá
barnavagninum, rafvirkinn sem
skaust eftir peru, forsetaaðdáandinn
sem var að koma úr innkaupaleið-
angri - allt á þetta fólk vel heima
í þessari ágætu innsetningu Finns
Arnars.
Ingileif Thorlacius
Á palli og í efsta sal safnsins hef-
ur Ingileif Thorlacius komið fyrir
torræðum innsetningum, sem hún
virðist jafnvel ekki hafa mikla trú á
sjálf. Verkið „Það sem eftir liggur“
er kynnt með eftirfarandi hætti:
„Einhver kannski eldgömul tilfínn-
ing inni í manni vill út. Vill verða
þungt og jarðbundið efni og form
og liggja á gólfi. Heldur að hún geti
orðið skynsamleg og skiljanleg."
Hin efnislega tjáning þessarar
eldgömlu tilfinningar felst í dökkleitu
ullargófteppi, sem blóði hefur verið
hellt yfír. Að því sögðu getur gestur-
inn leitað að skynsemi og skilningi
verksins, hafí hann áhuga á.
í efri salnum hefur listakonan sett
upp tíu vatnslitamyndir, þar sem
breiðar strokur lita mynda kross á
pappírsblaði. Kynningin er eftirfar-
andi:
„Tveir straumar koma sinn úr
hvorri áttinni og mætast í miðjunni.
Ég tók eftir því að litirnir urðu dálít-
ið mismunandi hjá mér vetur, sum-
ar, vor og haust. Tvær hliðar á ein-
hveiju.“
Er þörf á að segja meira?
Guðrún Halldóra
Sigurðardóttir
í setustofu safnsins getur að þessu
sinni að líta vangaveltur ungrar lista-
konu, vangaveltur um tilvist og eðli
málverksins. Guðrún Halldóra minnir
á að þessi mál hafa verið brotin til
mergjar af ýmsum í heimslistinni, og
endar með því að búa til verk sem
er ætlað að undirstrika fjarvist mál-
verksins - „nokkurskonar högg-
myndir af málverkum".
Þessar höggmyndir felast einfald-
lega í því að efni sem eru málverkinu
framandi eru strengd á blindramma
í stað striga - gólftuska, vasaklútur,
bleia, umbúðaplast.
Slíkar vangaveltur kunna að vera
eðliiegur þáttur í framþróun hvers
listamanns, en í þeim felast óneitan-
lega endurtekningar, sem bjóða upp
á litla ögrun. Og hví þá að sýna þær
opinberlega?
Eiríkur Þorláksson
S ' ít?
Prjár áhrifamiklm
ogymJisJegar bcelcui
Boðskapur Maríu um von
Margir muna sjálfsagt eftir fyrstu bók Annie Kirkwood, sem kom út á íslandi árið 1994
undir nafninu Boðskapur Maríu til rnannkynsins og er löngu uppseld hjá útgefanda.
í þessari bók, Boðskapur Maríu um von eru áframhaldandi upplýsingar frá Maríu,
þar sem hún leggur enn meiri áherslu á mikilvægi bænarinnar, kærleikans og
fyrirgefningarinnar í lífi allra. í bókinni eru einlægar og einfaldar 1
eiðbeiningar öllum til handa. Þar er einnig að finna spádóma um
væntanlegar heimsbreitingar. Þessi bók er yndislegt
leiðarljós, einfaldlega sett fram.
Samt sem áður er það einmitt hið einfalda,
sem oftast vefst fyrir okkur.
Boðberi: Annie Kirkwood.
Skráð af Byron Kirkwood.
ENGLA
D -A-G - A*R
Dagbók fýrir bxnir,
drauma og markmið
______O______
GUÐRÚN g.
BERGMANN
o .
Höfundur:
Guðrún G.
Bergmann.
Engladagar
Engladagar er dagbók með ódagsettum reirum fyrir alla daga vikunnar,
52 vikur ársins. í upphafi hverrar viku er fjallað um englaorku vikunnar.
Hægt er að setja sér markmið tengd henni og skrá svo hugleiðingar
tengdar ferlinu daglega. Þú getur byrjað að halda dagbókina í hvaða
viku ársins sem er, skrifað þegar þú finnur fyrir innblæstri, stundum
misst úr viku, en alltaf snúið til baka, því englarnir bíða þín.
Best er samt ef hver dagur er Engladagur.
/Engladögum er einnigfjallað um englaorkuna, verndarengla og erkiengla, mátt bœnarinnar
og kraft hugsunarinnar.
Einmitt núna er þörf
fyrir þessa bók
Uppgjör við aldahvörf
Hin þekkta englakona, Karyn Martin-Kuri,
er ómyrk í máli, þegar hún greinir frá
nauðsyn þess að við gerum eitthvað, einmitt
NUNA, til að auka og efla meðvitund okkar
og fylla hana af kærleik og ljósi Guðs.
Höfundur:
Karyn Martin-Kuri
ALDAHVORF
Ummæli:
„Spurningin er: Erum við að
gera rétt? Efhið í þessari bók leyfir
manni að hugsa upp á nýtt. Það
er óvægið, en samt fallegt og
hvetur mann til að horfa á lífið á
þann hátt, að rnaður skilur eftir
sig kærleik x öllu, þ.e. lífinu sjálfu."
'Þórhallur Guðmundsson, miðill.
„Bókin er sérstök, öðruvísi en
bækur, sem hér liafa verið gefnar
út um andleg efni á síðustu árum.
Hún fjullar urn samstarf við englana.
Þessi englabók er stórkostlegt
tilboð mannkyni til handa vegiia
væntanlegra þrenginga.“
Ulfiir Ragnarsson, laknir.
Bók sem gerir kröfur til þín
LEIÐARLJ^S ehf.
Leiðandi í útgáfu á sjálfsrœktunarefni
______Okkar markmið er...að hjálpa þér að ná þmu!
Brekkubæ - Hellnum, 355 Snæfellsbæ.
Afgreiðsla í Reykjavík: 567 3240.
e-mail: leidar@aknet.is
Fást í öllum
helstu
bókabúðum
landsins