Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 70

Morgunblaðið - 06.12.1996, Síða 70
70 FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRUMSYNING foblN WÍLLÍAMS GEIMTRUKKARNIR Ekki missa af þessari frábæru kvikmynd. Sýningum fer fækkandi!! HANN ? ELDIST ‘ . FJÓRUM SINNUM HRADAR EN VENJULEdT FÓLK.. HANNER LANCSTÆR STUR í BEKKNUM. KLIKKAÐI PROFESSORINN CeiititrukUarnir er oft mjög^fy'm i<iog getur lika yerið tals.wéfP speniiandi og hasnnnyjfciyoð. lyiyndin er innilega sjálfhædiö 'geimæuintýri og hih finasta skemmtun" -L BRIMBROT EDDIE MURPHY THE NUTTY PROFESSOR DIGITAL ENGU LÍKT TILBOÐ KR 300 Komdu og sjáðu Robin Williams fara á kostum em stærsti 6.bessingur í heimi, ótrúlegt grín og gaman í frábærri mynd fyrir alla fjðlskylduna. Aðalhlutverk: Robin Williams, Diane Lane og Bill Cosby. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. ■ XÆ ^m ....að í Háskólabíó er góífhalli í sölum nógu brattur til (r l H að Sefn Pér óhi,tdmð útsýni á STÓR SÝNINGARTJÖLD. 0 Þú horfir því ekki í hnakkann á næsta gesti eða á milli hausa eins ogsvo víða annarstaðar. Háskólabíó státar líka af vönduðum Dts ogDollnj Digital sterio hljóðkerfum sem tryggja frábær hljóðgæði. HÁSKÓLABIÓ ER GOTT BÍÓ HASKOLABIO SÍMI552 2140 Háskólabíó Gott Bio HELGARMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA Spegill spegill... Varla kerti eða spil I sérflokki þessa heigina I er sýning Stöðvar 2 laugardagur ► 0.40á Leigubflstjóranum (Taxi Driver, 1976,). Fáar kvikmyndir hafa speglað samtíma sinn með jafnógnvekjandi hætti og þessi stórborgartryllir Martins Scorsese endurkastaði einsemd, firringu og ofbeldissvörun hornsílis í h&karl- asjó bandarfsks samfélags. Taxi Driver er martröð risaþjóðfélags þar sem smæð einstaklings veldur slíkri hugsýki að hann segir því strfð á hendur. Leigubflstjórinn Travis Bickle, snilldarlega túlkaður af Robert DeNiro, er erkitýpa íjöldamorðingja, þeirra helsjúku einfara sem eru jafnframt félags- legt Sjúkdómseinkenni. Meðal annarra leikara eru Cybill Shepherd og Harv- ey Keitel. Tónlist gamia Hitchcocktónskáldsins Bemards Herrmann á ekki minnstan þátt í áhrifamætti myndarinnar. ★ ★ ★ ★ HJÓLAJÓL, jólahjól og þeir féiagar allir eru famir að skjóta upp kolli á dagskrám - * sjónvarpsstöðva sem útvarpsstöðva og verður það yfir okkur að ganga sam- kvæmt gildandi markaðslögmálum. Um leið skapast millibilsástand - biðtími eft- ir því að allir fái eitthvað fallegt upp úr jólapökkunum sjálfum, þar með talið bíó- myndapökkum stöðvanna. Þessi helgi ber nokkum svip af þeim biðtíma. Föstudagur Sjónvarpið ► 22.45 Ættleiðingar- drama milli kjörforeldra og kynforeldra sem heitir Svikin loforð (Broken Prom- ises) virðist hafa villst af dagskrá Stöðv- ar 3, sem hefur nánast sérhæft sig í sjónvarpsmyndum af þessu tagi. Engar umsagnir liggja fyrir, en leikstjóri er Donald Wrye. Stöð 2 ► 13.00 og ► 0.25 Marisa Tomei fékk sitt fyrsta aðalhlutverk í ungmennarómansinum Hjartað á rétt- um stað (Untamed Heart, 1993). Hún leikurgengilbeinu á veitingastað 0g Christian Slater er hlédrægur samstarfs- maður hennar sem unnir henni hugást- um. Slater er afar góður og myndin hin þekkilegasta afþreying með skýru sögu- sviði í Minneapolis. Leikstjóri er Tony Bill. ★★'/2 Stöð 2 ► 21.05 Vinsæl bandarísk þáttaröð um Walton-fólkið, sveitaflöl- skyldu í blíðu og stríðu, hefur ekki verið sýnd hérlendis en hér kemur Þakkar- gjörðardagur Walton-fjölskyldunnar (.A Walton ThanksgivingReunion, 1993), sjónvarpsmynd um endurfundi þessa fólks á tímum Kennedymorðsins. Block- buster Video segir hana heldur slappa og gefur ★ ★. Aðalhlutverk Richard Thomas, Ralph Waite og Michael Le- amed. Leikstjóri Harry Harris. Stöð 2 ► 22.45 ítalska bíómyndin Anastasia, bróðir minn (Anastasia mio fratello, 1973) er mér ókunn en hún fjallar um óreyndan ítala, alinn upp í klaustri, sem fer til New York. Aðalhlut- verk Franco Angrisano, Thomas Chu og Richard Conte. Leiksljóri er Steno. Stöð 3 ► 21.05 Sjálfsævisaga sveita- tónlistardúósins The Judds, mæðgnanna Naomi og Wynonu, er viðfangsefni myndar í tveimur hlutum sem heitir Mæðgurnar (Love Can BuildA Bridge), og er seinni hlutinn á dagskrá annað kvöld. Aðalhlutverk Kathleen York, Viv- eka Davis og Melinda Dillon. Engar umsagnir liggja fyrir. Stöð 3 ► 22.35 Vestrinn Siringo (1994) segir frá löggu sem leitar að ráns- feng en finnur ást, að sögn Martins og Potters og eru þau þokkalega ánægð með þau býti, gefa ★ ★ ★ (af fimm mögulegum). Aðalhlutverk Brad John- son, Chad Lowe og Ciystal Bemard. Leikstjóri Kevin G. Cremin. Stöð 3 ► 0.05 Engar umsagnir liggja fyrir um sjónvarpsmyndina Trúnaðar- brest (Shattered Tivst), drama um lög- fræðing sem sækir mál bams sem orðið hefur fyrir kynferðislegri áreitni og reyn- ist það henni afdrifaríkt. Aðalhlutverk Melissa Gilbert, Kate Nelligan og Ellen Burstyn. Sýn ► 21.00 Fjórar skilmingafantasíur hafa verið gerðar um Deathstalker, vöðvaijall sem léndir í ýmsum delluæv- intýrum. 1 Hættuleg eftirför (Deat- hstalker III - The Warriors From Hell, 1988) er hann á höttunum eftir þremur töfrasteinum. Ég hef ekki séð þetta verk en Martin og Potter segja það hæfiiega grínaktugt og gefa ★ ★ ★ '/2, Blockbust- er Video * en Maltin gefur núll. Freistið gæfunnar. Sýn ► 23.20 Spennumyndin Blóm í vegarkantinum (Road Fiower, öðru nafni Road Killers, 1994) ertöluvert öflug afþreying frá hasarleikstjóranum Deran Sarafian. Christopher Lambert, sá dauðyflislegi leikari, er með óvenju- legu iífsmarki í hlutverki fjölskyldufóður sem berst upp á líf og dauða við illþýði á þjóðvegunum. Ekki frumlegt, ekki leið- inlegt. ★★'/2______________________ Laugardagur Sjónvarpið ► 21.25 Gamanmynd Rons Howard, þess vandvirka en misheppna leikstjóra, Fjölskyldulíf (Parenthood, 1989) er á köflum kostuleg lýsing á for- eldravandamálinu. Steve Martin á góðan dag og óþarfi að kvarta yfir öðrum leikur- um. Agæt skemmtun. ★ ★ '/2 Sjónvarpið ► 23.40 Ástralski réttar- geðlæknirinn Jane Halifax býðurjafnan upp á áhugaverðar glæpagátur og Hali- fax - Yndið mitt (Halifax f.p. - My Lovely Girl, 1994) er sú nýjasta og þar er hún að kljást við geðsjúkan morð- ingja, aldrei þessu vant. Aðalhlutverk Rebecca Gibney. Stöð 2^15.00 Hinir sívinsælu og sí- gildu Prúðuleikarar ganga til liðs við meistara Charles Dickens í Jólasögu Prúðuleikaranna (TheMuppet Christmas Carol, 1992) og mega báðir vel við una. Michael Caine nær prýðis (prúðum?) tökum á nirflinum Skröggi og allt um kring dansa Kermit og félag- ar. Leikstjóri er Brian Henson, sonur skapara Prúðuleikaranna, Jims heitins Henson. ★★★ Stöð 2 ► 21.25 Amerikanar eru voða veikir fyrir því að endurvekja eftirlætis- drauga sína úr sjónvarpinu og gera bíó- myndir þeim til heiðurs (The Untoue- hables, Mission Impossible, The Beverly Hillbillies og allt þar á milli). Brady-fjöl- skyldan (The Brady Bunch Movie, 1995) er hylling til grínsápu frá áttunda ára- tugnum sem okkur var sem betur fer hlíft við hér á landi. En myndin er ekki óskemmtileg paródía og hefur húmor fyrir sjálfri sér. Aðalhlutverk Shelley Long, Gary Cole og Michæl McKean. Leikstjóri er Betty Thomas. ★ ★ '/1 Stöð 2 ► 23.00 Wesley Snipes, einn besti svarti leikarinn í Bandaríkjunum er að verða ný hasarmyndahetja. í Stökksvæðinu (DropZone, 1994) leik- ur hann með skopstælingu í bland við harðjaxlaímyndina alríkislöggu sem glímir við óþokka í fallhlífahasar. Brokk- geng mynd með fáránlegri fléttu en bærileg skemmtun frá John Badham. ★ ★'/2 Stöð 2 ► 0.40 - Sjá umfjöllun í ramma. Stöð 3 ► 21.20 Mæðgumar, seinni hluti - Sjá föstudag. Stöð 3 (► 22.50 Spennumyndin Hafinn yfir grun (Above Suspicion, 1994) er forvitnileg, ekki síst, því miður, vegna kaldhæðni örlaganna. Christopher Reeve leikur rannsóknarlöggu sem slasast við skyldustörf, lamast fyrir neðan mitti og er bundinn við hjólastól. Við það breytist margt í lífi hans. En ég tek vara á áhorf- endum: Myndin er á margan hátt kunn- áttusamlega ofinn blekkingarvefur og fátt er sem sýnist. Skömmu eftir að þessi mynd var gerð upplifði Reeve svo svipuð örlög. Góður leikhópur, auk Ree- ves, Joe Mantegna, Kim Cattrall o.fl., og Steven Schachter leikstjóri spinnur vefinn allvel. ★ ★ '/2 Stöð 3 ► 0.20 Alistair MacLeanhas- arinn Arnarborgin (Where Eagles Dare, 2 969) er gamall og góður reyfari um háskalegan leiðangur Richards Burton, Clints Eastwood og fleiri harðjaxla til bjargar fóngum úr flallakastala Hitlers í heimsstyijöldinni. Fýrirtaks afþreying undir stjóm Brians G. Hutton. ★ ★ ★ Sýn ► 21.00 Ég hef engar umsagnir um sakamálamyndina Á glapstigum (Medium Straight, 1992) um vandræði smákrimma. Aðalhlutverk Jeremy LaPage og leikstjóri Adam Friedman, hverra manna sem þeir nú kunna að vera. Sunnudagur Sjónvarpið ► 14.40 Don Bluth hefur verið björt en mistæk von bandarískrar teiknimyndagerðar. Ein besta mynd hans er Vesturfararnir (An American Tail, 1986) um ungan rússneskan músastrák sem verður viðskila við ijölskyldu sfna sem er meðal innflytjenda í New York á síðustu öld. Fín hreyfimyndatækni, síðri frásagnartækni. Meðal radda eru Dom DeLouise, Christopher Plummer o.fl. ★ ★'/2 Sjónvarp ► 22.25 Engar umsagnir liggja fyrir um frönsku sjónvarpsmynd- ina Lífsdansinn (Danse avec la víe) um móður sem vill sjá gamla drauma sína um dansframa rætast í tíu ára dóttur sinni. Leikstjóri Michel Favart. Stöð 2 ► 22.30 Á heljarþröm (Country; 1984) er ágætlega heppnað dreifbýlisdrama um erfiða lífsbaráttu sterkrar sveitakonu - Jessica Lange - andspænis fjandsamlegu ríkisvaldi. Eig- inmaður Lange, Sam Shepard, er til aðstoðar, en leikstjóri er Riehard Pearce. ★ ★ ★ Sýn ► 22.50 Aukapersónur eru, að sögn Maltins, áhugaverðari en aðalper- sónur í Augnatillit (Parting Glances, 1986), tveir hommar á krossgötum. Hann segir myndina greindarlegt og ein- lægt drama og gefur ★ ★V2, Blockbust- er Video gefur ★ ★ ★ og segir Steve Buscemi framúrskarandi sem alnæmis- veikan rokkara, Martin og Potter gefa ★ ★ ★ ★ (af fimm). Þetta er eina mynd Bills Sherwood, leikstjóra sem lést úr alnæmi árið 1990. Ámi Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.