Morgunblaðið - 14.12.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
PAKKAÐU honum inn, góði, við ætlum að taka desertinn með og borða hann heima.
Ekki „utanaðkom-
andi atburður“
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað
vátryggingarfélag af kröfu
manns um rúmlega hálfa milljón
króna í skaðabætur vegna áverka
sem hann hlaut þegar hann lék
tennis við son sinn á malbikuðum
tennisvelli í borginni Alicante á
Spáni.
Maðurinn fékk snúningsáverka
á hné þegar hann teygði sig eftir
tennisbolta og kom síðar í ljós að
liðþófi hafði rifnað. Hann var
metinn til 10% varanlegrar örorku
vegna afleiðinga liðþófameiðsl-
anna, auk 100% tímabundinnar
örorku í fjórar vikur og 50% í
aðrar fjórar.
Maðurinn vísaði til þess að
hann hefði verið slysatryggður
hjá vátryggingarfélaginu, en
samkvæmt skilmálum trygging-
arinnar var með orðinu slys átt
við skyndilegan utanaðkomandi
atburð sem veldur meiðslum á lík-
ama þess sem tryggður er og
gerist án vilja hans.
Félagið hafnaði bótum þar sem
ekki hefði verið um utanaðkom-
andi atburð að ræða og hafnaði
fullyrðingu mannsins um að í
hinni hröðu atburðarás íþrótta og
keppni hlytu allir atburðir, sem
valda áverka á íþróttaiðkandan-
um, að vera utanaðkomandi.
Hæstiréttur staðfesti á
HÚSNÆÐISNEFND Reykjavík-
ur hefur þegar afskrifað sex millj-
ónir króna vegna vanskila á leigu-
greiðslum í kaupleiguíbúðum.
Vanskil sem ekki hafa verið af-
skrifuð eru rúmlega tólf milljónir
króna. Samtals nema þessar upp-
hæðir um hundrað þúsund krón-
um á hverja kaupleiguíbúð í um-
sjón Húsnæðisnefndarinnar, en
þær eru um 180. Lán fengust til
byggingar 30 nýrra kaupleigu-
íbúða í Reykjavík á þessu ári og
fleiri eru í byggingu frá fyrri
árum.
„Við höfum nú fært innheimt-
fimmtudag niðurstöðu héraðs-
dóms, sem taldi slysið einungis
taka til hreyfíngar mannsins
sjálfs á tennisvellinum.
una út úr stofnuninni í banka.
Þegar vanskil hafa náð þremur
mánuðum fara þau til lögfræðings
og þar er þeim fylgt eftir af fyllstu
alvöru. Vandinn er uppsafnaður
frá árinu 1991 en mér sýnist að
þetta sé heldur að fara í rétt átt
hjá okkur,“ segir Pálmi R. Magn-
ússon, formaður Húsnæðisnefnd-
ar Reykjavíkur. „Það er búið að
sækja um lán hjá Húsnæðisstofn-
un fyrir þeim kaupleiguíbúðum
sem nú eru í byggingu. Þær verða
því nýttar sem slíkar en nefndin
hefur tekið ákvörðun um að bæta
ekki við fleirum á næstu árum.“
Kaupleigníbúðir Húsnæðisnefndar
Sex milljóna króna
vanskil afskrifuð
t.
Amerísk rúm
Amerískar heilsudýnur frá stærstu framleiðendunu
SEALY - BASETT - SPIUNCWALL - MAKSIIALL
Betri dýnur - meira úrval - betra verð
Verð á rúmi með sökkli frá kr. 38.900
Nýborg
Opið sunnudag frá kl. 14-17
Ármúla 23, sími 568 6911
Alþjóðlegu kvenréttindasamtökin IAW
Mikil áhersla
lögð á að út-
rýma ólæsinu
Inga Jóna Þórðardóttir sat
30. þing alþjóðlegu kven-
réttindasamtakanna Int-
emational Alliance of Women
(IAW)í Kalkútta á Indlandi
dagana 1.-8. _ desember.
Kvenréttindafélag íslands hef-
ur verið aðili að samtökunum
allt frá því það var stofnað á
fyrsta áratug aldarinnar.
Kvenréttindafélög í öllum álf-
um heimsins eiga aðild að
samtökunum og þau eiga full-
trúa hjá öllum helstu stofnun-
um Sameinuðu þjóðanna.
-Hvað var einkum rætt á
þinginu?
„Fyrst og fremst var fjallað
um hver áhersluatriðin ættu
að vera í störfum aðildarfé-
laganna á næstu fímm árum,
í framhaldi af þeim árangri sem
náðist á ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Peking fyrir ári. Þar
var gengið frá samþykktum fyrir
ríkisstjórnir heimsins um ákveðna
aðgerðaáætlun í málefnum kvenna
fram á næstu öld og IAW er hluti
af þeim grasrótarhreyfingum sem
munu fylgjast með því hvemig rík-
isstjómimar koma þessari áætlun
í framkvæmd.
Segja má að samþykktir Samein-
uðu þjóðanna séu ekkert annað en
skjal nema að það takist að fá ríkis-
stjómimar til að standa við þær
og grasrótarhreyfingamar eru
besta tækið til þess að veita aðhald
og stuðning og fylgja samningun-
um eftir.
Fyrir utan þessa framkvæmdaá-
ætlun fyrir næstu ár voru réttindi
stúlkubama meginþema sérstaks
málþings, sem var hluti af þingi
LAW í Kalkútta. Indversku kven-
réttindasamtökin skipulögðu mál-
þingið og þau leggja mesta áherslu
á að beina sjónum að stúlkubörn-
um, réttindum þeirra og réttleysi.
Það sem mest brann á fólki var
réttur stúlkubamanna til mennt-
unar. Litið er á ólæsi í veröldinni
sem eina helstu hindmnina fyrir
frekari framförum í málefnum
bama út um allan heim.
Ennfremur var mikið rætt um
mannréttindi og mannréttinda-
fræðslu. í lokaskjali ráðstefnunnar
er fjallað um stjómmálaleg réttindi
og nauðsyn þess að fólk sé „læst“
á réttindi sín. Þ.e.a.s. að fólk fái í-
gegnum menntakerfið og ýmislegt
í þjóðfélaginu vitneskju um þau
réttindi sem það á að njóta.
Síðan var mikið rætt um fátækt
í ýmsum löndum, til dæmis í Aust-
ur-Evrópu. Ofbeldi hefur einnig
verið viðvarandi áhyggjuefni sam-
takanna. Fyrir fimmtán ámm hófu
samtökin mjög víðtæka baráttu
gegn ofbeldi á heimilun-_________
um sem þótti á þeim tíma
vera innrás í einkalíf
fólks þótt það hafi nú
breyst.
Fulltrúar á ráðstefn-
unni höfðu miklar _____
^hyggjur því hvað það
viðgengst í ríkum mæli að konur
og stúlkur séu seldar milli landa
tii að stunda vændi fyrir ákveðna
aðila. Þetta er hálfgert þrælahald.
Við höfum séð ákveðna anga af
þessu vandamáli birtast í hörmu-
legum atburðum sem tengjast
börnum í Evrópu.
Ennfremur var fjallað um heil-
brigðismálin, m.a. grundvallarrétt-
indi eins og rétt stúlkna til næring-
ar. Slík umræða er okkur mjög
framandi en ekki í þriðja heimin-
um, því miður. Þetta lýsir sér í því
að stúlkuböm mæta afgangi þegar
fjölskyldan nærist, bræðumir fá
Inga Jóna Þórðardóttir
► Inga Jóna Þórðardóttir hef-
ur átt sæti í alþjóðlegu kvenrétt-
indasamtökunum IAW frá árinu
1992 og var formaður Kvenrétt-
indafélags íslands á árunum
1992-95. Hún átti ennfremur
sæti í sendinefnd íslands á ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um
málefni kvenna í Peking fyrir
ári. Inga Jóna fæddist á Akra-
nesi 24.9.1951, lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1971 og námi í við-
skiptafræði við Háskóla íslands
1977. Hún starfaði sem inn-
kaupastjóri hjá Skipasmíðastöð
Þorgeirs og Ellerts hf. 1976-78
og kennari við Fjölbrautaskól-
ann á Akranesi 1978-81. Hún
var framkvæmdasljóri Sjálf-
stæðisflokksins 1981-84, að-
stoðarmaður menntamálaráð-
herra 1984-85 og heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra
1985-87. Hún var í útvarpsráði
1983-91, formaður þess
1985-91, og er nú borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins.
Fjallað um
réttindi
stúlkna og
réttleysi
mest og stúlkumar afganginn.
Þetta hefur jafnvel verið flokkað
undir siðvenjur, stúlkurnar hafa
ekki sama rétt til matar og bræð-
umir. Þetta hefur birst í ýmsum
átakanlegum myndum í mörgum
löndum veraldar.
Þetta eru frumatriði sem eru
alltaf til umræðu og valda áhyggj-
um. Síðan var mikið talað um
sjálfsákvörðunarrétt kvenna til
barneigna, sem er stórmál í mörg-
um löndum. Innan þessara sam-
taka eru þessi grundvallarréttindi
eitt af helstu málunum."
- Var rætt um þátt kvenna í mat-
vælaframleiðslunni og hlutdeild
þeirra í þróunaraðstoð við ríki í
þriðja heiminum?
„Það var mikil áhersla lögð á
_________það mál. í þriðja heimin-
um gegna konur mjög
veigamiklu hlutverki í
öllu samfélaginu, þær ala
bömin og kenna þeim,
annast heilbrigðismálin
og margt fleira, þannig
að lykillinn að úrbótum
er að kenna þeim réttar aðferðir.
Það er hins vegar mjög erfítt að
koma því áleiðis meðan ólæsið er
jafn mikið meðal kvenna og raun
ber vitni. Menn líta svo á að lykil-
atriði fyrir frekari framþróun sé
að byrja á því að kenna konunum
að lesa, því upplýsingamar grund-
vallast að miklu leyti á því að fólk
sé læst. Möguleikar kvenna til sjálf-
stæðra aðgerða em auðvitað mjög
takmarkaðir þegar menntunar-
skorturinn er algjör. Þannig að í
starfí samtakanna er lögð rík
áhersla á að þróunarhjálpinni verði
beint til kvenna.“