Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Afrýjunarnefnd um mál Lífs og sögu gegn Miðlun
Samkeppnisráð felli
úr gildi ákvörðun sína
ÁFRÝJUNARNEFND sam-
keppnismála hefur úrskurðað að
Samkeppnisráð felli úr gildi
ákvörðun sína í máli bókaútgáf-
unnar Lífs og sögu ehf. gegn sam-
keppnisráði.
Upphaf málsins má rekja til
þess að Líf og saga sótti mál á
hendur Miðlun ehf. vegna meintra
brota á höfundarrétti og hugsan-
legs ritstuldar í tengslum við út-
gáfu síðarnefnda fyrirtækisins á
bókinni Dear Visitor ’96, sem ætl-
uð er erlendum ferðamönnum. Rit-
stjóri Dear Visitor ’96 var áður
ritstjóri sambærilegrar bókar,
Gests, sem Líf og saga gaf út. Líf
og saga gerði athugasemdir við
útgáfuna til Samkeppnisstofnunar
í janúar síðastliðnum og felldi sam-
keppnisráð þann úrskurð í maí að
Miðlun ehf. hefði með viðskipta-
háttum sínum við kynningu og
sölu á fyrirhugaðri útgáfu Dear
Visitor brotið gegn ákvæðum sam-
keppnislaga.
Miðlun ehf. kærði ákvörðun
samkeppnisráðs um að fyrirtækið
hefði brotið gegn góðum viðskipta-
háttum til áfrýjunamefndar sam-
keppnismála, en nefndin staðfesti
fyrri niðurstöðu með úrskurði 6.
desember sl.
Atvinnuleyndarmál
verið rofið
í ákvörðunarorðum sam-
keppnisráðs sagði m.a.: „sam-
keppnisráð telur ekki ástæðu til
frekari íhlutunar í tilefni af erindi
Lífs og sögu ehf.“ Þessu vildu
forsvarsmenn Lífs og sögu ekki
una og áfrýjuðu ákvörðuninni
einnig til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála. Krafðist áfrýjandi
þess að áfrýjunarnefndin felldi
framangreinda ákvörðun sam-
keppnisráðs úr gildi og legði fyrir
ráðið að taka málið til efnislegrar
meðferðar.
í úrskurði áfrýjunarnefndarinn-
ar segir að samanburður bókanna
Dear Visitor og Gests sýni að í
mörgum tilvikum sé að finna sömu
eða mjög sambærilegar greinar í
báðum bókunum og séu þær sum-
part skreyttar sömu ljósmyndum.
Fleiri samlíkingar megi ennfrem-
ur finna. Áfrýjunarnefndin telur
að atvinnuleyndarmál hafi verið
rofið með óeðlilegum hætti í
tengslum við útgáfu bókarinnar
Dear Visitor. Af framansögðu leiði
að ekki verði hjá því komist að
fella ákvörðun samkeppnisráðs úr
gildi.
Búnir að
bora 60%
ganganna
STARFSMENN Fossvirkis eru
nú búnir að sprengja 3.280 metra
undir Hvalfjörð. Er það 60% af
heildarlengd Hvalfjarðarganga.
Sprengingarnar hafa gengið
vel að undanförnu, að sögn
Björns A. Harðarsonar jarðverk-
fræðings hjá Speli hf. Lítið vatn
er i göngunum og góðar aðstæð-
ur til vinnu.
Fossvirkismenn eru komnir
1.850 metra að sunnanverðu og
1.430 metra að norðanverðu.
Heildarlengd ganganna verður
5.484 metrar og hafa þeir því
lagt að baki 60% leiðarinnar und-
ir fjörðinn. Samkvæmt áætlunum
verktakans ná bormennirnir að
sunnan- og norðanverðu saman
í árslok. Bjartsýnustu menn spá
því að það verði fyrr, eða í lok
október, og miða þá við ganginn
í verkinu undanfarnar vikur.
Mikil vinna er eftir í göngun-
um þó sprengingum ljúki á þessu
ári og verður umferð ekki hleypt
í gegn um þau fyrr en í október
á næsta ári.
Rektorskjör í HÍ
Þorsteinn
hættur við
ÞORSTEINN Vilhjálmsson,
prófessor í eðlisfræði, hefur
dregið framboð sitt til emb-
ættis háskólarektors til baka.
Kjörið fer fram í Háskóla ís-
lands 16. apríl nk.
í orðsendingu til starfs-
manna háskólans, þar sem
Þorsteinn tilkynnir ákvörðun
sína, lýsir hann yfir stuðningi
við Véstein Ólason, prófessor
í íslenskum bókmenntum, en
tekur þó fram að stuðnings-
menn sínir séu að sjálfsögðu
óbundnir af þeirri ákvörðun.
Allir kjörgengir
Allir prófessorar háskólans
eru kjörgengir til embættis
rektors en aukitveggja hlnna
fyrrnefndu höiðu þeir Jón
Torfi Jónasson, prófessor í
uppeldis- og menntunarfræði,
Páll Skúlason, prófessor í
heimspeki, og Þórólfur Þór-
lindsson, prófessor í félags-
fræði, gefið kost á sér.
Andlát
SIGURÐUR
SIGURÐSSON
SIGURÐUR Sigurðs-
son fréttamaður lést á
heimili sínu í Reykjavík
í fyrrinótt eftir lang-
varandi veikindi, 77
ára að aldri. Sigurður
vann við Ríkisútvarpið
í 37 ár, meðal annars
sem íþróttafréttamað-
ur, og var þjóðkunnur
sem slíkur.
Sigurður fæddist í
Hafnarfirði 27. janúar
1920. Foreldrar hans
voru Sigurður Sig-
urðsson bifreiðarstjóri
og síðar kaupmaður
og Elísabet Böðvarsdóttir síðar
kaupmaður. Fósturforeldrar hans
voru Þórður Gunnlaugsson, kaup-
maður í Reykjavík, og Ólafía í.
Þorláksdóttir.
Sigurður lauk verslunarprófi
frá Verslunarskóla íslands 1938
og var við fiðlunám í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík 1940-44.
Hann var við skrifstofustörf hjá
I. Brynjólfsson & Kvaran frá
1938. Árið 1943 réðst hann til
Ríkisútvarpsins og vann þar í 37
ár. Fyrst var hann fulltrúi í inn-
heimtudeild og innheimtustjóri en
síðan fréttamaður frá árinu 1964
og aðstoðarfrétta-
stjóri frá 1974. Hann
var jafnframt íþrótt-
afréttamaður á árun-
um 1948 til 1971, þar
af að aðalstarfí hjá
útvarpi og sjónvarpi
árin 1966-71. Sig-
urður lét af störfum
1980.
Sigurður var um
skeið formaður Sam-
taka íþróttafrétta-
manna og formaður
Starfsmannafélags
Ríkisútvarpsins og sat
í varastjórn BSRB.
Hann var sæmdur riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
brautryðjendastörf á sviði íþrótta-
fréttamennsku og hlaut fjölda ann-
arra viðurkenninga fyrir störf sín.
Þar má nefna Gullmerki Alþjóða-
sambands íþróttafréttamanna og
Sambands íþróttafréttamanna í
Finnlandi og á íslandi. Einnig gulL
merki Vals og heiðursmerki FRÍ
og KSÍ.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar
er Sigríður Sigurðardóttir verslun-
arstjóri. Þau eignuðust þtjú böm,
Ingibjörgu, Hrafnhildi og Sigurð
Öm.
DAGSKRA
05.04.
Ta?knival Skeifunni
kl. 10.30-11.30:
Fréttabréfa- og mynd-
vinnsla med Corcl Draw
á Internetinu.
Tæknival Hafnarfirði
kl. 12.30-13.30:
Fréttabréfa- og mynd-
vinnsla meó Corel Draw
á Internetinu.
Einnig. adeins i Hafnarf..
kynning a Heimabanka.
Sparisjoós Hafnarfjardar.
Verif) velkomiu!
I
i
Tæknival
Sketfunni 17 Reykjavfkurvegi 64
108 Reykjavík 220 Hafnarf iröi
Simi 550 4000 Sfcni SSO 4020
N«tfang: Netfang:
motUkaOtaekn'ivaUs fjordurOtaeknival.b
%*? Langsnið eftir Hvalfjarðargöngi viðHólabrú . „ . Sunnan inum (horft inn fjörðinn) fiarðar (HIL á telkningu = 4/1) vlð
H v a Ijj o r o u r
v Setlög y Berglög ’ <nn
Nú er búið að sprengja '—-JTTSÍÍ .. ogum 1.850 metra aö sunnanverðu. 150 Samtals 3.280 m, um 60% ganganna.
1.430 m að norðanverðu ~
O 1 2 3 4 5 6 km
JARÐGÖNGIN verða um 5.484 m löng og liggja dýpst 165 m undir yfirborði sjávar. Þrjár akreinar verða á veginum I göngunum að
norðanverðu, en tværað sunnanverðu. Hallinn að norðan verður svipaður og I Bankastræti en að sunnan minni en i Kömbunum.
Skátar fara á gönguskíðum þvert yfir landið
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
LEIÐANGURSMENN í skíðagönguferðinni „frá Fonti til Táar“, Ólafur Jónsson, Stefán Gunnarsson,
Eyrún Bjömsdóttir, Daði Þorbjörnsson og Guðmundur Birgisson koma að brúnni yfir Jökulsá á Fjöll-
um en þar þurfti að stíga af skíðunum og draga farangursskeljarnar yfir brúna.
Vaðbrekku, Jökuidal.
FERÐALAG félaga í Hjálparsveit
skáta úr Garðabæ á gönguskíðum
frá Fonti á Langanesi á Reykja-
nestá gengur að óskum. Göngu-
garparnir lögðu af stað frá Fonti
laugardaginn 22. mars og gera
ráð fyrir að vera komnir á leiðar-
enda á þriðjudag eða miðvikudag
I næstu viku.
Leiðangursmenn héldu af stað
fimm saman en einn heltist úr
lestinni vegna eymsla í hnjám.
Jafnvel er þó von á að hann sláist
í hópinn aftur. Þeir draga farang-
urinn á eftir sér á skeljum og er
ækið 40-50 kíló hjá hverjum
þeirra. Eftir fjögurra daga göngu
frá Fonti var leiðangurinn stadd-
ur við brúna yfir Jökulsá á Fjöll-
um við Grímsstaði.
Bóndinn gekk úr rúmi
Að sögn leiðangursmanna hafði
ferðin gengið vel til þessa, og
höfðu þeir notið frábærrar gest-
Frá
Fonti til
Táar
risni Þórshafnarbúa eftir átta
tíma göngu utan af Fonti til Þórs-
hafnar. Nóttina áður höfðu þau
gist hjá Ragnari Guðmundssyni á
Nýhól og notið gestrisni hans með
veislukosti, einnig gekk Ragnar
úr rúmi og svaf sjálfur í eldhúsinu
svo leiðangursmenn gætu allir
sofið í rúmi.
Nýhóll á Fjöllum er síðasta
byggða bólið sem leiðangursmenn
gista áður en Iagt er á hálendið.
Á hálendinu verður gist í fjalla-
skálurn, en einnig hafa leiðangurs-
menn með sér Ijöld til að gista í.
Ætluðu yfir
Langjökul í gær
Magnús Smith, félagi í Hjálp-
arsveit skáta í Garðabæ, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær
að sennilega væri þetta lengsta
skíðaganga sem farið hefði verin
hér á landi.
Hann var í símasambandi við
ferðalangana í fyrrakvöld og voru
þeir þá staddir á Hveravöllum. í
gær voru þeir komnir í Fjall-
kirkjuskála við Langjökul og ætl-
uðu að halda yfir jökulinn ef vind-
átt yrði hagstæð. Næsti áfanga-
staður er skálinn Slunkaríki við
Hlöðufell, þá Skógarhólar við
Þingvelli, Lækjarbotnar og Krísu-
vík. Ef allt gengur að óskum lýk-
ur leiðangrinum á Reykjanestá á
þriðjudag eða miðvikudag í næstu
viku.
I
)
I
I
>
I
I
>
i
i
I