Morgunblaðið - 04.04.1997, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 13
Morgunblaðið/Kristján
Aukið eftirlit
með hraðakstri
NÚ Á næstunni verður eftirlit á
vegum lögreglunnar á Akureyri
aukið með hraðakstri, ölvunar-
akstri, notkun bílbelta, umferð um
gatnamót og einnig verður yngstu
ökumönnunum veitt sérstakt að-
hald. Þetta er í samræmi við „Um-
ferðaröryggisáætlun til ársins
2001“ sem nú er verið að kynna.
Tekið verður harðar á þessum
brotum og sektum beitt, en þessir
þættir eru taldir helstu orsakir
alvarlegra slysa og óhappa í um-
ferðinni. Markmiðið er að fækka
slysum í umferðinni um 20% fyrir
árslok árið 2000.
Lörgeglan á Akureyri er þegar
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur
aukið hlut sinn í útgerðar- og físk-
vinnslufyrirtækinu Gunnarstindi á
Stöðvarfirði, bæði með kaupum
af öðrum hluthöfum og í kjölfar
hlutafjáraukningar þar sem KEA
keypti allt nýja hlutaféð.
KEA keypti stóran hlut í Gunn-
arstindi fyrir tæpu ári en með
aukningu nú á félagið um 70%
hlutafjár í fyrirtækinu. Hjá Gunn-
arstindi, sem áður hét Hraðfiysti-
stöð Stöðvaríjarðar hefur lengst
farin að hafa þessi atriði að leiðar-
ljósi í störfum sínum að umferðar-
málum eins og margir ökumenn
hafa orðið varir við.
Síðustu daga hafa til að mynda
tveir verið kærðir fyrir að sinna
ekki stöðvunarskyldu, tveir fyrir
brot á ljósanotkun, tveir fyrir rétt-
indaleysi við akstur, 7 fyrir að
láta ekki skoða ökutæki sín á
réttum tíma, einn fyrir ölvun við
akstur, 19 fyrir að nota ekki ör-
yggisbelti, 12 fyrir að vera ekki
með ökuskírteinið meðferðis við
aksturinn og einn fyrir að vera
aðeins með annað númerið á öku-
tækinu.
af verið stunduð hefðbundin bol-
fískvinnsla. Síðastliðið haust var
ráðist í umfangsmiklar fram-
kvæmdir hjá fyrirtækinu.
Meðal annars var frystigetan
aukin verulegan og keyptur
búnaður til vinnslu á uppsjávar-
físki, síld og loðnu. Samtals var
fjárfest fyrir um 90 milljónir
króna. Einnig gerir fyrirtækið út
togarann Kambaröst. Þetta kemur
fram í nýju fréttabréfi KEA.
Morgunblaðið/Kristján
Eldur í þak-
skeggi
ELDUR kom upp í þakskeggi
iðnaðarhúsnæðis að Draupnis-
götu 6 á Akureyri um kl. 9.00 í
gærmorgun. Slökkvilið Akur-
eyrar sendi tvo slökkvibíla á stað-
inn en starfsmenn höfðu slökkt
eldinn með brunaslöngvu er
slökkviliðið kom þar að.
I húsnæðinu rekur fyrirtækið
Kraftur hf. viðgerðar- og þjón-
ustuverkstæði og varahlutaversl-
un fyrir vörubíla og þungavinnu-
vélar. Verið var að logskera bita
í lofti innandyra og er talið að
neistar frá logskurðartækjunum
hafi valdið eldinum
-----♦-♦.♦--
9. bekking-
ar keppa í
stærðfræði
KE A eykur hlut
sinn í Gunnarstindi
Perar end-
urnýjaðar
STARFSMENN Rafveitu Akur-
eyrar, þeir Stefán Heiðarsson og
Gísli Birgisson voru í óða önn að
skipta um perur í umferðarljósum
bæjarins í gær. Hér er um tölvert
verk að ræða enda allt að 50 per-
ur í umferðarljósum á einstaka
gatnamótum. Einnig voru þeir
félagar að laga skerma á ljósun-
um, sem hafa gengið til í ýmsum
veðrum í vetur. Stefán sagði að
eftir að búið væri að skipta um
allar perurnar, mætti búast við
að þær loguðu vandræðalítið
næstu 2-3 árin. Það er líka eins
gott að perurnar séu í lagi enda
umferðarljósin mikil öryggistæki
jafnt fyrir akandi sem gangandi
vegfarendur.
Morgunblaðið/Kristján
Radionaust
fagnar tíu
ára afmæli
UM þessar mundir eru 10 ár frá
því að Radionaust á Akureyri
hóf starfsemi sína. Á þessum
árum hefur orðið veruleg breyt-
ing á starfsemi fyrirtækisins, frá
að vera eingöngu smásöluversl-
un í að flytja inn vörur frá mörg-
um þekktum framleiðendum, á
borð við Samsung, Daewoo,
Aiwa, Coby og fleirum og dreifa
til um 40 verslana um allt land.
Einnig selur Radionaust vörur
frá innflytjendum á höfuðborg-
arsvæðinu, m.a. Heimilistækj-
um, Húsasmiðjunni, Japis, Raf-
ha og Takti, auk þess að hafa
úrval geisladiska á boðstólum.
Vegna þessara tímamóta hef-
ur verið efnt til margs konar
uppákoma. Rekin hefur verið
útvarpsstöð á FM 102 frá 21.
mars og mun hún starfa til 5.
apríl nk. Einnig eru í gangi
margvísleg tilboð á hinum ýmsu
vöruflokkum verslunarinnar.
Tilboðin eru kynnt daglega á
Radionaust FM 102 og bætast
ný tilboð við daglega til 5. apríl.
Hápunkturinn er svo afmælis-
veislan sjálf laugardaginn 5.
apríl milli kl. 12 og 16. Þá er
öllum boðið að bragða á af-
mælistertunni og þiggja kaffi
eða gosdrykk.
Blómabúð-
in flytur
BLÓMABÚÐ Akureyrar, sem þjón-
in Guðbjörg Inga Jósefsdóttir og
Sigmundur Rafn Einarsson eiga
og reka flutti sig um set í Hafnar-
stræti, úr húsi númer 88 í númer
96, París sem þau keyptu fyrir
skömmu. í húsinu var til fjölda ára
rekin blómabúðin Laufás.
í búðinni er fjölbreytt úrval
blóma- og gjafavöru og þar er
hægt að fá alla þjónustu varð-
andi afskorin blóm og blóma-
skreytingar.
----♦ ♦ ♦
Messur
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkju-
skóli næstkomandi sunnudag, 6.
apríl, kl. 11 í Svalbarðskirkju og
kl. 13.30 í Grenivíkurkirkju.
Kyrrðar- og bænastund í Greni-
víkurkirkju sunnudagskvöldið 6.
apríl kl. 21.
JUNIOR Chamber á Akureyri efnir
til stærðfræðikeppni milli 9. bekk-
inga grunnskólanna á Eýafjarðar-
svæðinu, allt frá Siglufirði til Greni-
víkur eða alls í 13 skólum.
Forkeppni fór fram fyrir skömmu
og munu tveir nemendur úr hverri
bekkjadeild komast áfram í úrslita-
keppnina sem fram fer laugardaginn
5. apríl í Gryfjunni í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Hjörtur H.
Jónsson lektor við Háskólann á Ak-
ureyri semur prófin og verður yfir-
prófdómari í úrslitakeppninni.
Hlutabréfasjóður
Norðurlands
Leiörétt auglýsing
Aðalfundur
Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. 1997
Aðalfundur hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. verður
haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 10. apríl nk. og
hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins.
3. Önnur mál löglega fram borin.
Ársreikningur, tillögur og endanleg dagskrá mun
liggja frammi á skrifstofu Kaupþings Norðurlands
frá og með 2. apríl.
Lausar lóðir
við Urðargil
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
í gær að heimila byggingafulltrúa
að auglýsa lausar lóðir við Urðargil
sem er í Giljahverfi 5. Alls er um
að ræða 38 lóðir, 17 einbýlishúsalóð-
ir, 7 fyrir parhús og 14 íbúðir. Stefnt
er að því að lóðirnar verði byggingar-
Vií»'far 1 iiilí
Akureyri 3. apríl 1997.
Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.