Morgunblaðið - 04.04.1997, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 04.04.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 4. APKÍL 1997 21 Mikið starf hjá Leikfé- lagi Sauðár- króks Sauðárkrókur. Morgunblaðið. MIKIL gróska er nú í starfi Leikfé- lags Sauðárkróks, æfíngar eru hafn- ar á Sæluvikuverkefni félagsins, sem er gamanleikurinn Græna lyftan, og verður það verk tekið til flutnings í lok apríl. Með helstu hlutverk fara Guðbrandur J. Guðbrandsson, Hrönn Pálmadóttir, Svanhildur Guðmunds- dóttir og Páll Friðriksson, en leik- stjóri er Þórunn Magnea Magnús- dóttir. Þá hefur leikarinn Gunnar Eyj- ólfsson starfað með félaginu um nokkurt skeið, og var meiningin að leiklesa verkið Pétur Gaut eftir Ibsen nú um páskana, en frá því var horf- ið og í samráði við Gunnar ákveðið að setja verkið á svið. Með helstu hlutverk fara Styrmir Gíslason og Kristján Örn Kristjáns- son, sem leika Pétur Gaut ungan og Gunnar Eyjólfsson sem leikur Pétur Gaut eldri, með önnur hlut- verk fara Elsa Jónsdóttir, Bragi Haraldsson og Karel Sigurjónsson. Frumsýningin var miðvikudaginn 2. apríl, önnur sýning verður í kvöld, föstudaginn 4. aprfl, og svo í næstu viku. Að sögn Einars Þorbergssonar formanns félagsins er það mjög ánægjulegt að hafa fengið jafn þrau- treyndan leikhúsmann sem Gunnar Eyjólfsson til starfa með félaginu, og sagði hann árangurinn af starfí Gunnars með leikurum félagsins þegar orðinn mjög mikinn. Sérstak- lega væri það nauðsynlegt fyrir yngstu meðlimi félagsins, sem væru að stíga sín fyrstu spor á leiksviði, að fá svo góða kennslu í framsögn og þá reynslu að starfa með Gunn- ari Eyjólfssyni. ------» ♦ »----- Menningarvaka með Þórarni Eldjárn á Alftanesi LISTA- og menningarfélagið Dægradvöl á Álftanesi hefur staðið fyrir menningarvökum um nokkurt skeið og einkum kynnt höfunda sem tengjast Álftanesi á einn eða annan hátt. í kvöld föstu- daginn 4. apríl kl. 20.30 verður næsta menning- arvaka á vegum Dægradvalar í Haukshúsum á Áltanesi, litlu bláu listamiðstöðinni við sjóinn. Þórarinn Eldjárn kemur og les upp úr verkum sínum ásamt fleiri lesurum af Álftanesi. Fiutt verður tónlist á milli atriða. Dægradvöl hvetur alla sem vilja njóta að nota þetta tækifæri til að eiga kvöldstund með Þórarni og verkum hans. Þórarinn Eldiárn ------.......... Síðasta sýningarhelgi í AÐALSAL Hafnarborgar, menn- ingar- og listastofnunar Hafnar- fjarðar, sýnir Sæmundur Valdi- marsson fimmtíu höggmyndir unn- ar í rekavið. Sigrún Harðardóttir sj'nir í Sverrissal olíumyndir og innsetn- ingsverk undir yfirskrfiftinni, hver/hvar. Elías B. Halldórsson sýnir smá- myndir á kaffistofu Hafnarborgar. Sýningarnar standa til 7. apríl og eru opnar frá kl. 12-18 alla daga. FÉLAGAR úr Grímni fluttu lög úr leikritum sem Grímnir hefur sett upp á 30 ára tímabili. Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi 30 ára Stykkishólmi. Morgunblaðið LEIKFÉLAGIÐ Grímnir hélt upp á 30 ára starfsafmælið 21. og 22. mars sl. Félagið var með „Opið hús“ í Hljómskálanum, en félagið hefur fengið Hljómskálann til af- nota fyrir starfsemi sína. Flutt voru sönglög úr þeim leikritum sem það hefur flutt í gegnum árin og farið var yfír það helsta úr starfsemi félagsins. Til sýnis voru myndir frá starfsemi félagsins og myndbands- upptökur. Þá var öllum boðið upp á kaffi og kökur. Tókst afmælisdag- skráin vel og um 200 manns heim- sóttu afmælisbarnið. Það var 13. mars 1967 sem stofn- fundur leikfélagsins var haldinn. Aðalhvatamaður að stofnun félags- ins var Unnur Jónsdóttir. Á þessu INNLITI þriggja grafíklistakvenna í Gallerí Smíðar og skart Skóla- vörðustíg 16a lýkur sunnudaginn 6. apríl. I sýningunni taka þátt Sig- ríður Anna Elísabet Nikulásdóttir, Kristín Pálmadóttir og Þórdís Jóels- dóttir. Þær sýna grafíkverk i tilefni 3ja ára afmæli gallerísins. Þær hafa allar lokið námi í Graf- íkdeild Myndlista- og handíðaskóla íslands. Sigríður Anna lauk námi árið 1992, hún hefur tekið þátt í sex tímabili hafa verið sett upp leikrit á hveiju ári og stundum tvö, nema árið 1973 en þá var engin sýning. Alls hafa verið sýnd 33 leikrit, grín og söngleikir og hafa margir Hólm- arar tekið þátt í starfsemi félagsins á þessum 30 árum. Þá er ákveðið að félagið setji upp leikrit á þessu ári og hefur verið ráðinn leikstjóri til þess. Sá sem hefur starfað hvað mest með félaginu allt frá byrjun er Jón Svanur Pétursson. Hann hannaði merki félagsins og var það sett upp á Hljómskálann á þessum tímamótum. Hann vann merkið og gaf vinnu sína. Formaður leikfé- lagsins Grímnis er Ema Björg Guð- mundsdóttir. samsýningum hérlendis og erlendis, og verður fyrsta einkasýning henn- ar í haust. Kristín Pálmadóttir lauk námi árið 1994 og hefur tekið þátt í þremur samsýningum og haldið einkasýningu á Mokka árið 1995. Þórdís Elín útskrifaðist árið 1988. Þórdís hefur tekið þátt í fjöl- mörgum sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur einnig hald- ið nokkrar einkasýningar. Teikning á safni Einars Jónssonar FRÆÐSLUDEILD Myndlista- og handíðaskólans vill kynna námskeið sem haldið verður á safni Einars Jónssonar í apríl. Teikning á safni Einars Jónssonar er námskeið þar sem þátttakendum gefst kostur á að kynnast list Einars Jónssonar náið. Kennslan fer fram inni á safninu og eru safnmunimir nýttir við hana. Þetta fyrirkomulag er nýjung hér á landi en víða erlend- is fer teiknikennsla fram á söfnum. Kennari er Lísa Guðjónsdóttir myndlistarmaður og starfandi kenn- ari við Myndlista- og handíðaskól- ann. Lísa mun fjalla um myndbygg- ingu og litaval Einars Jónssonar, dulúðina og hið þjóðlega f verkum hans. Hrafnhildur Schram listfræðingur, forstöðumaður safnsins, mun kynna list Einars Jónssonar, safnið og sögu þess. Námskeiðið verður haldið á safni Einars Jónssonar 7., 9., 14., 16., 21. og 23. apríl kl. 17.30-20. Námskeiðið er öllum opið og verð- ur aðeins haldið ef næg þátttaka fæst. » ♦ ♦------ Tónleikar Söng- félaga SVR SÖNGFÉLAGAR Strætisvagna Reykjavíkur halda tónleika í Há- teigskirkju laugardaginn 5. apríl kl. 17. Stjómandi er Guðlaugur Viktorsson og undirleikari Pavel Smid. Gestakórar verða 4K Karla- kór Kjalarness og Kjósar, stjórn- andi Páll Helgason, Söngkór Mið- dalskirkju og Grímsneskórinn, stjómandi þeirra er Margrét Stef- ánsdóttir. Aðgangur ókeypis. Elma Ólafur Vign- Atladóttir ir Albertsson Einsöngstón- leikar ELMA Atladóttir sópransöngkona og Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari halda einsöngstónleika í Norræna húsinu í Reykjavík sunnudaginn 6. apríl kl. 16. Aðgangur að tónleikun- um er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfír. Á efnisskránni eru m.a. Máríuvers eftir þijú íslensk tónskáld, Áskel Jónsson, Karl O. Runólfsson og Pál ísólfsson, sex sönglög op. 48, sem Edward Grieg samdi við þýsk ljóð, ljóðasöngvar eftir Johannes Brahms, Richard Strauss og Claude Debussy og aríur úr óperunum Mefistofele eftir Boito og La Rondine eftir Pucc- ini. Elma er fædd og uppalin í Þingeyj- arsýslu og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1990. Hún stundaði tónlistarnám við Tón- listarskólann á Akureyri undir leið- sögn Hólmfríðar Benediktsdóttur söngkennara og píanóleikaranna Guðrúnar A. Kristinsdóttur og Gerr- it Schuil og lauk 8. stigi 1995. Hún hóf þá nám við framhaldsdeild Söng- skólans í Reykjavík undir handleiðslu Dóru Reyndal söngkennara og Ólafs Vignis Albertssonar píanóleikara og tók burtfararpróf - Ádvanced Cert- ifícate sl. vor. Tónleikamir eru lokaá- fangi prófsins. Elma hefur tekið þátt í uppfærsl- um Nemendaóperu Söngskólans, einnig hefur hún komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri og er félagi í Kór íslensku óperunnar. • Smiðjuvegi 9 • Simi 564 1475» Gallerí Smíðar og skart i Láttu vita af þér

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.