Morgunblaðið - 04.04.1997, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ljóska
Já, ég heyrði að þið Ég hef aldrei séð Auðvitað, ég Lárus segir að þú megir hafa teppið
hefðuð tapað fyrsta leik bróður minn skal segja hon- eins lengi og þú viljir.
sumarsins ... svona niðurdreg- um það ...
inn...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329
NÁMSKEIÐIÐ fékk okkur til að hugsa um umferðina á
annan og ábyrgari hátt.
51% ungra öku-
manna hafa ek-
ið undir áhrif-
um áfengis?
Frá hópi 26 og 27 hjá Sjóvá-
Almennum:
VIÐ ERUM tveir hópar ungra
ökumanna sem sóttum námskeið hjá
Sjóvá-Almennum í nóvember og jan-
úar síðastliðnum. Við unnum að
nokkrum verkefnum sem tengjast
umferðinni og við viljum koma niður-
stöðum okkar á framfæri við ykkur
sem eruð nýliðar í umferðinni.
Ekið aftan á
Til að draga úr aftanákeyrslum
hvetjum við ykkur til að hafa einbeit-
inguna í lagi við aksturinn. Horfið
fram fyrir ykkur en ekki vera með
augun á öðrum óþarfa hlutum. Haf-
ið gott bil á milli bfla og fylgist með
umferðinni framan við bflinn á und-
an.
Tjón, sem verða þegar bakkað er,
eru algeng. Til að draga úr þeim
hvetjum við ykkur til að halda rúðum
og speglum hreinum. Lítið vel aftur
fyrir ykkur og í kringum ykkur áður
en þið bakkið af stað. Betra er að
bakka í stæði þegar bfllinn er heitur
og engin móða á rúðum en að aka
beint inn í það því þá sérðu betur
út auk þess sem þú veist meira um
umferðina í nágrenni stæðisins þegar
þú kemur akandi eftir því.
Forgangur
Tjón sem verða vegna þess að
fólk virðir ekki forgang á gatnamót-
um eru nokkuð algeng. Virðið því
hægri regluna, hún er víðar en ykk-
ur grunar. Ef ekkert umferðarmerki
sést við gatnamótin er það hægri
reglan sem gildir. Fylgist með um-
ferðarmerkjunum við gatnamótin og
áður en þið komið að þeim. Bið- eða
stöðvunarskyldumerkin segja okkur
til um forgang. Við hvetjum ykkur
til að draga úr hraða, fylgjast vel
með umferðinni og ganga úr skugga
um að leiðin sé greið og engir bflar
nálægt. Farið gætilega í vinstri
beygjur því bílamir sem á móti koma
nálgast oft hraðar en okkur grunar.
Munið að aka ekki yfir á rauðu
ljósi eða fara óvarlega yfir þegar
gula ljósið logar.
Útafakstur og framúrakstur
Einbeitið ykkur að akstrinum, far-
ið eftir umferðarreglum og haldið
hraða innan skynsamlegra marka.
Metið aðstæður rétt. Byiji bfllinn að
renna óeðlilega til, skulið þið reyna
að halda ró ykkar, forðast aílar
snöggar hreyfingar á bflnum, sleppa
bensíngjöfinni og snúa stýrinu í sömu
átt og afturendi hans leitar. Farið
varlega þar sem malarvegur tekur
við af bundnu slitlagi.
Ef þið ætlið framúr öðrum bfl
verðið þið að fylgjast vel með um-
ferðinni sem á móti kemur. Ekki
fara framúr ef aðstæður em slæmar
eða ef vegur framundan gefur ekki
tilefni til þess. Ef veður er slæmt
eða skyggni lélegt, er óafsakanlegt
að taka framúr. Ekki halda að öku-
maðurinn fyrir framan hugsi eins
og þú.
Farið gætilega f krappar beygjur
og þar sem skyggni er lélegt. Hægið
á ykkur eða nemið staðar ef þrengsli
eru þar sem bílar mætast. Stillið
hraða í hóf og hegðið ykkur í sam-
ræmi við aðstæður.
Undir áhrifum
í könnun sem Sjóvá-Almennar
hafa gert meðal rúmlega 400 ungra
ökumanna kemur í ljós að um 51%
þeirra hafa ekið undir áhrifum áfeng-
is. Við teljum að þessi aldurshópur
geri sér ekki grein fyrir því hve alvar-
legt þetta er og bendum á að hæfni
okkar og dómgreind minnkar mjög
þegar við erum undir áhrifum. Því
viljum við að lokum hvetja ykkur til
að vera allsgáð og vel úthvíld þegar
þið akið og munið að akstur og
áfengi fara ekki saman. Sama gildir
um öll önnur vímuefni.
Gæfan fylgi ykkur í umferðinni.
Fyrir hönd hóps 26 og 27 hjá
Sjóvá-Almennum
EINAR GUÐMUNDSSON
fræðslustjóri Sjóvá-Almennra.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.