Morgunblaðið - 10.04.1997, Page 1
88 SIÐUR B/C
80. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Klofning-
Mobutu, forseti Zaire, reynir að halda í völd sín
Átök í Kinshasa
ur í ESB
Kaupmannahöfn. Morgunblaðiö.
„Við skulum ekki stæra okkur, en í
raun er það Danmörk sem bjargar
orðstír Evrópu hvað mannréttindi
varðar," sagði Poul Nyrup Rasmuss-
en forsætisráðherra Dana þungur á
brún í gær, er hann lýsti áliti sínu
á deilum Evrópusambandslandanna
um nýja ályktun Sameinuðu þjóð-
anna um mannréttindi í Kína. Jafn-
framt lýsti hann fullum stuðningi
við baráttu Niels Helveg Petersens
utanríkisráðherra fyrir að fá ESB-
löndin til að fallast á afstöðu Dana.
í kvöld rennur út frestur til að skila
nýjum tillögum, en tvíbent er að
danska tillagan nái fram að ganga.
Nyrup Rasmussen sagðist ekki
geta leynt því að stefna Frakka lof-
aði ekki góðu fyrir aukið samstarf
ESB á sviði utanríkismála.
Reuter
ETIENNE Tshisekedi, sem Mobutu Sese Seko forseti vék úr embætti forsætisráðherra Zaire i
gær, reynir hér að verja sig er hermaður úðar táragasi í vit hans.
Hermenn forsetans, sem setið
hefur 32 ár sleitulaust á valdastóli,
slógu í gær skjaldborg um skrifstof-
ur forsætisráðherrans í miðborg
Kinshasa. Þeir hindruðu Tshisekedi
í að komast þangað er hann gerði
tilraun til þess með fulltingi þús-
unda stuðningsmanna sinna. Stuðn-
ingsmönnunum lenti saman við her-
mennina, sem hleyptu af skotum
og beittu táragasi til að dreifa
mannfjöldanum.
Hermenn, þar á meðal sonur
Mobutus, Kongolo, fylgdu Tshi-
sekedi heim til sín, þar sem hann
er nú í stofufangelsi.
Hershöfðinginn, sem Mobutu
skipaði í stað Tshisekedis, heitir
Likulia Bolongo. Hann var varnar-
málaráðherra í stjórn Kengos wa
Dondo, sem sagði af sér í lok marz.
Hershöfðingi í stól
forsætisráðherra
Lubumbashi fellur í hendur uppreisnarmanna
Kinshasa. Reuter.
MOBUTU Sese Seko, forseti Zaire, fól í gær háttsettum hershöfðingja
að fara með völd forsætisráðherra í krafti neyðarlaga, sem forsetinn setti
í fyrrakvöld. Hermenn handtóku Etienne Tshisekedi tæplega einni viku
eftir að hann var skipaður í embætti forsætisráðherra. Þykir fréttaskýrend-
um þessar aðgerðir allar bera merki örvæntingarfullrar tilraunar Mobutus
til að halda í þau völd sem eftir eru í höndum hans. Uppreisnarmenn
Laurents Kabilas tóku í gær Lubumbashi, næststærstu borg Zaire og
miðstöð námuvinnsluhéraðsins Shaba. Frá Washington bárust Mobutu í
gær þau skilaboð, að tími væri kominn fyrir hann að sleppa hendinni af
stjórnartaumunum, þar sem „tími einræðis" væri útrunninn.
Á liðnum áratugum hafa Bandarík-
in, ásamt Frakklandi, verið meðal
helztu stuðningsaðila stjórnar Mob-
utus.
Uppreisnarmenn hafa nú um
helming hins stóra Afríkulands á
valdi sínu. Stjórnarherinn var enn
á undanhaldi út úr Lubumbashi í
gærkvöldi, en flugvöllur rétt norðan
við borgina var þá enn ekki fallinn
í hendur uppreisnarmanna.
„Fall Lubumbashi þýðir fall Mob-
utus, því ef hann er skynsamur
gerir hann sér grein fyrir að hann
verður að segja af sér; að hann eigi
einskis annars úrkosti,“ sagði Louis
Nyarubasa, talsmaður uppreisnar-
manna.
Reuter
Prodi hélt
andlitinu
Róm. Reuter
ROMANO Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, hlaut í gær tilskilinn stuðning
ítalska þingsins við áætlun sína um
fjölþjóðlegan friðargæzluleiðangur
til Álbaníu, sem ítölskum hermönn-
um er ætlað að fara fyrir. Tap í
þessari atkvæðagreiðslu hefði verið
stjórn Prodis mikið áfall. En verðið
sem stjórnin greiddi fyrir þennan
stuðning var að missa stuðning rót-
tækra vinstrimanna, sem höfðu
fram að þessu tryggt henni þing-
meirihluta. Þeir ætla nú að bera upp
vantrauststillögu á hendur stjórn-
inni.
í atkvæðagreiðslu í fulltrúadeild
þingsins í gærkvöldi fóru leikar
þannig, að 503 þingmenn greiddu
áætlun stjómarinnar atkvæði gegn
85. Sjö sátu hjá. Prodi þarfnaðist
stuðnings Frelsisbandalags Silvios
Berlusconis, sem nú er í stjórnar-
andstöðu, eftir að róttæki vinstri-
flokkurinn „Kommúnísk endur-
reisn“ neitaði að styðja stjórnina í
þessu máli.
Vantraust borið upp í dag
Liðhlaup hinna 34 fulltrúadeildar-
þingmanna flokksins undan merkj-
um stjórnarinnar hefur sett stjórn
Prodis í erfiðustu kreppu, sem hún
hefur staðið frammi fyrir á 11 mán-
aða ferli sínum. Vantrauststillagan
verður borin upp í öldungadeildinni
í dag.
Á fjórða tug Palestínumanna særast í átökum
Syrgjendur ráðast gegn
ísraelskum hermönnum
Hebron, Washington, Ankara. Reuter.
ÍSRAELSKIR hermenn særðu 31
Palestínumann í gær er þeir skutu
á þá með gúmmíkúlum. Til átaka
kom í Hebron í kjölfar útfarar eins
af þremur Palestínumönnum sem
ísraelskir hermenn skutu á þriðju-
dag. Ekki horfir friðvænlega í sam-
skiptum ísraela og Palestínumanna
á Vesturbakkanum og Gaza, en
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra ísraels, bað menn í gær að
sýna þolinmæði.
í viðtali við CW-sjónvarpsstöð-
ina sagðist Leah Rabin, ekkja
Yitzhak Rabins forsætisráðherra,
aldrei myndu fyrirgefa Netanyahu
fyrir að ýta undir hið „fjandsamlega
andrúmsloft" sem leitt hafi til dauða
manns hennar. Nefndi hún sem
dæmi mynd af Netanyahu í mót-
mælagöngu þar sem fólk ber lík-
kistu sem á stendur „Yitzhak Rabin
- morðingi zíon-
ismans".
Eftir jarðarför-
ina í gær ruddu
syrgjendur sér
leið fram hjá
óvopnuðum pal-
estínskum lög-
reglumönnum og
hófu að grýta
ísraelska hermenn sem voru í við-
bragðsstöðu skammt frá. Þá bætt-
ust hundruð ungmenna í hópinn,
köstuðu steinum og bensínsprengj-
um að hermönnum sem gæta
byggðar landnema í Hebron.
Stjórn alþjóðabankans ákvað í
gær að veita tvö stór ián til hús-
næðisbygginga á sjálfstjórnarsvæð-
um Palestínumanna. Nema lánin
samtals um 2,5 milljörðum króna.
Sendinefnd Palestínumanna hélt
í gær til Bandaríkjanna til viðræðna
við bandarísk stjórnvöld.
Spenna vegna yfirlýsinga
Erbakans
Israelsk og tyrknesk stjórnvöld
urðu í gær sammála um að vera
ósammála hvað friðarferlið í Mið-
Austurlöndum áhrærir. Þetta var
niðurstaða fundar Davids Levy, ut-
anríkisráðherra ísraels, og Necm-
ettin Erbakan, forsætisráðherra
Tyrklands. Sagði Levy að andrúms-
loftið á fundi þeirra hefði vissulega
verið spennu blaðið um tíma, vegna
yfirlýsinga Erbakans, en að þeir
hefðu skilið sáttir, og fullir vilja að
auka viðskipti_ þjóðanna. Erbakan
sagði m.a. að Israelar yrðu að láta
af kröfu sinni um óskipta Jerúsal-
em, hún væri ekki síður helg borg
fyrir múslima en gyðinga.
Islenskur
varaborgar-
stjóri í Nuuk
„ÞETTA er stórkostlegur árang-
ur, miklu betri en ég átti von á,“
segir Inga Dóra Guðmundsdóttir,
sem lenti í öðru sæti í borgar-
stjórnarkosningunum í Nuuk á
Grænlandi, og verður varaborg-
arstjóri í næstu borgarstjórn.
Úrslit lágu fyrir i fyrrinótt og í
gær sagðist Inga Dóra, sem er
25 ára, ekki fyllilega vera búin
að átta sig á sigrinum. Árni
Guðnason, sem einnig var í fram-
boði, náði ekki kjöri.
Inga Dóra var í framboði fyrir
jafnaðarmannaflokkinn Siumut,
en efst á lista hans var borgar-
stjórinn Agnethe Davidsen. Hún
fékk 1.003 atkvæði en Inga Dóra
310 atkvæði. Af 17 fulltrúum í
borgarstjórn Nuuk verða nú níu
konur, auk þess sem fjórir fulltrú-
anna eru ungir að árum. Segir
Inga Dóra mikla vakningu hafa
verið á meðal yngra fólks að und-
anförnu og að þess sjái stað í
kosningunum.
Morgunblaðið/Sermitsiak
INGA Dóra Guðmundsdóttir
(t.h.) fagnar úrslitum með ein-
um kjósenda sinna.
Kosningabarátta Ingu Dóru
stóð aðeins yfir í fjóra daga, þar
sem um tíma leit út fyrir að hún
fengi ekki að bjóða sig fram.
Engu að síður náði hún þessum
glæsilega árangri, sem hún telur
m.a. útvarpsauglýsingum að
þakka. Og Inga Dóra ætlar ekki
að láta þar við sitja, hún stefnir
nú ótrauð á kosningar til lands-
stjórnarinnar en þær verða eftir
tvö ár.
Leah Rabin