Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
NÚ vantar ekkert annað á til að fullkomna verknaðinn en að sljórnvöld veiti þeim
greifum verðuga viðurkenningu sem best hafa staðið sig í að
losa byggðarlögin við kvótann.
Morgunblaðið/Golli
Slys á börnum rædd
á mömmumorgni
Á MÖMMUMORGNI sem haldinn var í safnaðar- og flutti erindi um varnir gegn slysum á börn-
heimili Neskirkju í vikunni kom Herdís Stor- um. Myndin er tekin við það tækifæri af þessum
gaard frá Slysavarnafélagi íslands í heimsókn fönguíega hópi.
Farþegaafgreiðsla í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli
Innritunarborðum fjölgað
LOKIÐ verður við að fjölga innrit-
unarborðum í Leifsstöð úr 14 í 20
fyrir næstu mánaðamót, að sögn
Péturs Guðmundssonar flugvallar-
stjóra á Keflavíkurflugvelli. Hann
segir það bæta mjög aðstöðuna við
innritun farþega, en hins vegar sé
ekki hægt að koma fyrir fleiri inn-
ritunarborðum innanhúss í Leifs-
stöð.
Þá hafa Flugleiðir tekið á leigu
húsnæði sem Póstur og sími var
með í Leifsstöð og flytjast sölubás-
ar Flugleiða þangað úr innritunar-
salnum sem stækkar við þetta um
34 fermetra.
Flöskuháls hefur oft myndast í
vegabréfaskoðun í Leifsstöð á há-
annatímum og hafa þá myndast
biðraðir brottfararfarþega þvert á
biðraðir þeirra farþega sem bíða
eftir innritun. Tvö hlið með gegn-
umlýsingartækjum eru í Leifsstöð
og að sögn Þorgeirs Þorsteinsson-
ar, sýslumanns á Keflavíkurflug-
velli, er nú í athugun að bæta við
þriðja hliðinu ásamt tækjabúnaði.
Hann sagði að stuðst væri við
þá reglu að að hafa eitt hlið opið
ef fjöldi farþega er innan við
350-400 á klukkustund, en ef
fjöldin er meiri eru bæði hliðin
höfð opin.
„Ef ekkert verður gert hjá okkur
er í raun og veru verið að færa
þennan hala til frá Flugleiðum til
okkar. Það er ákveðin nefnd í þessu
sem bæði á að fjármagna þetta
og leggja þetta til,“ sagði Þorgeir.
Grasrótarhreyfingin Síung
Hugað að hags-
munum höf-
unda og barna
Iðunn Steinsdóttir
UM ÞESSAR mundir
stendur yfir lestr-
arátak sem Félag
íslenskra bókaútgefenda
stendur fyrir. Hópur sem
kallar sig Síung stendur
dyggilega að baki bókaút-
gefenda og hefur tekið á
sig talsvert af vinnunni
sem fylgir átakinu. Iðunn
Steinsdóttir rithöfundur er
óopinber talsmaður hóps-
ins og hún segir nú aðeins
frá félagsskapnum, fyrir
hvað hann stendur og
fleira.
„Siung er samstarfs-
hópur innan Rithöfunda-
sambandsins. Hópurinn
var stofnaður vorið 1990
og samanstendur af
nokkrum barna- og ungl-
ingabókahöfundum. Að
jafnaði eru 7-10 höfundar virkir
hveiju sinni en við vildum gjarnan
sjá fleiri. Síung er eiginlega gras-
rótarhreyfing, við höldum mánað-
arlega fundi þar sem við ræðum
helstu hagsmunamál okkar. Við
reynum með starfinu að styrkja
hvert annað og vekja athygli á
vinnu okkar og bókunum og fylgj-
ast með því sem gert er fyrir
börn á menningarlegum vettvangi
almennt."
- Hvers vegna eruð þið að
þessu?
„Það er nú fleiri en ein ástæða
fyrir því. Oðrum þræði erum við
hagsmunasamtök sem reyna að
stuðla að því að bæta afkomu
okkar en á hinn bóginn viljum
við líka vekja athygli fólks á gildi
bamamenningar
- Hvernig farið þið að?
„Til dæmis með þátttöku í
lestrarátaki á borð við það sem
nú er í gangi og nær hápunkti í
Ráðhúsinu á laugardaginn með
veglegri dagskrá. En við höfum
áður gert talsvert í því að vekja
á okkur athygli. Við höfum til
dæmis gengist fyrir skipulegum
lestri barna- og unglingabóka á
sambýlum eldri borgara. Gamla
fólkið hefur tíma til að hlusta
og hefur tekið okkur vel. Mark-
miðið er að þetta fólk gleðji síðan
barnabörn sín með bókargjöfum.
Við höfum einnig staðið fyrir
upplestri á veitingahúsum í sama
tilgangi. Fleira mætti nefna, t.d.
má ekki gleyma því að við förum
iðulega í skóla og hittum lesend-
ur og kynnum þeim bækur okk-
ar.“
- Er hægt á einhvern hátt að
mæla eða merkja árangur af
þessu starfi ykkar?
„Það getur auðvitað verið erf-
itt, en ég tel að öll at-
hygli af því tagi sem
ég hef nefnt sé af hinu
góða og hún skili sér
fyrr eða síðar. Átak
eins og nú stendur yfir
og Norræna lestrar-
átakið sem var í skólunum í vetur
eru auðvitað til mikils gagns, en
árangur verður seint mældur eins
og t.d. kartöfluuppskera!
Þó get ég nefnt nokkur atriði
sem ég hygg að rekja megi til
baráttu okkar, eða kannski að
nær væri að kalla það ýtni okk-
ar. Til dæmis hefur nefndin sem
tilnefnir verk til íslensku bók-
menntaverðiaunana lýst yfir að
rétt væri að komið yrði á fót ís-
lenskum barnabókaverðlaunum
samhliða hinum viðurkenningun-
um. Þá hefur þeim bama- og
► Iðunn Steinsdóttir er fædd
á Seyðisfirði árið 1940. Framan
af starfsævi sinni starfaði hún
sem barna- og unglingakenn-
ari. Síðustu tíu árin hefur hún
helgað sig alfarið ritstörfum
og ritað barna- og ungl-
ingabækur, auk þess að skrifa
leikrit í samvinnu við Kristínu
Steinsdóttur, systur sína. Iðunn
er óopinber talsmaður Síung,
sem er grasrótarhreyfing
barna- og unglingabókaöfunda
innan Rithöfundasambands ís-
lands. Hún er gift Birni Friðf-
innssyni og eiga þau þijú börn,
Leif, Óddu Steinu og Halldór.
unglingabókahöfundum heldur
fjölgað sem hafa fengið ritlaun.
Nú í ár fékk t.d. Guðrún Helga-
dóttir þriggja ára laun.“
- Má af þessu ráða að barna-
og unglingabókmenntir hafi átt
undir högg að sækja?
„Ég hygg að réttara væri að
orða það svo að þær hafi átt erf-
itt uppdráttar og þar endurspegl-
ist kannski afstaða þjóðfélagsins
til þeirra sem vinna með börn.“
- Þar sem þetta snýst á öðrum
þræðinum um kjaramál, er þá
ekki dálítið skrýtin tilfinnig að
taka þátt í átaki með „óvininum“,
þ.e.a.s. bókaútgefendum?
„Þetta er nú ekki þannig. Ég
hef samúð með þeim, því barna-
og unglingabókaútgáfa má ekki
kosta eins mikið og bókmenntir
fyrir hina sem eldri eru. Eigi að
síður er útgáfa þeirra oft marg-
falt dýrari, t.d. þegar mikið er
lagt í myndskreytingar. Það má
því eiginlega færa mörg rök fyrir
því að þeir standi í þessari bar-
áttu með okkur, enda
er samstarfið gott, þeir
eru yfirleitt boðnir og
búnir ef við leitum til
þeirra."
- Og lestrarátakinu
lýkur á laugardaginn?
„Já, félagar í Síung hafa verið
að lesa úr verkum sínum á leik-
skólum síðustu daga og á laugar-
daginn verður uppákoma í Ráð-
húsinu frá klukkan 14 til 16.
Meðal þess sem þar verður á boð-
stólum verður upplestur í barna-
bókum, Herdís Egilsdóttir, Árni
Árnason, Guðrún Helgadóttir og
Gunnar Helgason lesa úr verkum
sínum og Magnús Scheving og
Möguleikhúsið verða einnig með
uppákomur. Verður sérstaklega
reynt að gera börnin virk í
skemmtuninni."
Við reynum
með starfinu
að styrkja
hvert annað