Morgunblaðið - 10.04.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 39
„Pirringur dansks
blaðamanns“
Vilhjálmur Örn
Vilhjálmsson
ÞRJÁR greinar um
sjálfsmynd íslendinga
hafa nýlega birst í
Morgunblaðinu. Fyrsta
greinin, Lesbók-
argrein, eftir Siguijón
Baldur Hafsteinsson
mannfræðing birtist 1.
mars. Hún fjallaði um
glansmyndir íslend-
inga fyrr og síðar. Sig-
urjóni varð það á í
messunni að fara of
lofsamlegum orðum
um sjónvarpsþættina
Þjóð í hlekkjum hug-
arfarsins. Það leiddi af
sér viðbrögð Árna
Björnssonar þjóðhátta-
fræðings þann 14. mars. Árni birti
föðurlega áminningu með vísun til
löngu liðinna þjóðskálda, sem höfðu
fyrir ævalöngu sagt allt sem segja
þurfti um það, sem afskræmt var
í sjónvarpsþáttunum. Árni taldi
heldur enga ástæðu fyrir Siguijón
að gera svo mikið veður úr ein-
hverri pirringslegri grein eftir
danskan blaðamann. Loks kom svar
Siguijóns við grein Árna þann 21.
mars.
Grein Siguijóns í Lesbókinni var
þörf. Þótt það hefði ef til vill ekki
verið ætlunin að greinin væri há-
fræðileg, kallaði hún strax fram
hlekkjuð viðbrögð gamla skólans.
Árni Björnsson skrifar reyndar af
lífsreynslu, með tvo þriðju hluta 20.
aldarinnar í farteskinu, eins og
hann sjálfur segir. Þá er ekki nema
von að Siguijón, sem líklegast ólst
upp fyrir framan sjónvarpið eins
og við mörg, megi sín ekki mikils
gegn rökum Árna, sem sýndu fram
á að eymdin á Islandi hefði alltaf
verið mönnum kunnug. Vitnar Árni
í bókmenntirnar því til stuðnings.
Á blómatíma Árna hvarf hins vegar
bændamenningin (með sínum róm-
antísku glansmyndum eða eymd).
Meðan Árni gerðist þjóðháttafræð-
ingur hurfu torfbæirnir einn af öðr-
um, aldagömul verkmenning þjóð-
arinnar, en einnig eymdin og fá-
tæktin. Ekki var hægt að sporna
við þessari þróun. Þjóðin efnaðist
nefnilega í stríðinu og herinn færði
okkur meðal annars hið yndislega
verkfæri, jarðýtuna. Bændur stýrðu
siðan jarðýtunum, sem ekið var
yfir gömlu bæina eftir að stein-
steypuhúsin urðu fokheld. Halda
mætti að menn hefðu skammast sín
fyrir forðtíðina, fátæktina, eða hvað
það nú var sem jarðýtan fór yfir.
Eftir stóðu útvaldir innanstokks-
munir, rokkar og kistlar í löngum
röðum á söfnum. Trémunir og
ísaumuð teppi íslenskra handverks-
manna segja hins vegar afar tak-
markaða sögu um afkomu blá-
snauðs almenning og sjálfsmynd
þjóðarinnar fyrr á öldum.
Hugsanlega eiga ungir fræði-
menn erfitt með að setja sig inn í
þjóðfélagsgerð bændasamfélagsins
án þess að afskræma allt. Þetta er
væntanlega vegna þess að flestir
þeirra sem gátu miðlað af þekkingu
sinni um þetta samfélag brugðust.
Ef til vill má einnig kenna lélegri
sögukennslu yngstu kynslóðanna
um að myndröð eins og Þjóð í
hlekkjum hugarfarsins virðist full-
nægja fróðleiksþörf nokkuð stórs
hóps nútíma íslendinga. Mikið af
umræðunni sem fylgdi í kjölfar
þáttanna var leiðinleg þrætupólitík,
sem tengdist umræðunni um hvort
mætti flytja inn erlendar landbún-
aðarvörur eða ekki. Eitt er þó víst,
að í myndinni komu fram mörg
sannleikskorn, sem urðu jafnvel til
þess að sumir í nútíma bændastétt
tóku myndaflokkinn persónulega.
Slíkt var óþarfa tilfínninganæmi.
Goðsagnir, glansmyndir og heil-
agur sannleikur um fortíð og nútíð
lifa í góðu yfirlæti á íslandi og það
er aðeins gott þegar sérhver ný
kynslóð fræðimanna veltir fyrir sér
sögunni án þess að feta
beint í fótspor lærifeðr-
anna. Ef ekki á sér
stað endurnýjun og
-skoðun verður hér
ólíft fyrir fræðipostul-
um, sem ekki má falla
hinn minnsti skuggi á.
Mikil hætta er á slíku
í litlum þjóðfélögum,
þar sem margir berjast
um fáar stöður á opin-
berum stofnunum.
Ég leyfi mér að taka
undir ábendingu Sigur-
jóns Baldurs Haf-
steinssonar til Árna
Björnssonar um að
horfa á íslenskar sjón-
varpsútsendingar. Þar finnur hann
nútima fjallkonu. Það er þó ekki
víst að maður með meirihluta aldar-
innar í farteskinu horfi eins gagn-
rýnum augum á það sem þar birt-
ist. Fjölda manns af ákveðinni kyn-
Eigi sér ekki stað end-
urnýjun, segir
Vilhjálmur Örn
Vilhjálmsson, verður
hér ólíft fyrir fræði-
postulum.
slóð klígjar hins vegar við að horfa
á auglýsingar fyrir mjólk og ís-
lenska tungu, þar sem ung, ljós-
hærð stúlka syngur um hreina
tungu sína og heitir því að varð-
veita hana ómengaða. Þessi sama
kynslóð fær fljótt leiða á að heyra
englakór úr háloftunum syngja „ís-
land er land þitt“ meðan fallegustu
landslög íslands eru sýnd úr þúsund
feta hæð. Slíkar myndir eru nú
sýndar í stað gullfiskanna sálugu,
sem birtust þegar hlé urðu á útsend-
ingum Ríkissjónvarpsins. Ekki má
heldur gleyma öllum landgræðsluá-
tökunum, sem stefna að því að end-
urreisa forna frægð. ísland á að
verða skrúðgarður eins og forðum.
Það er þó vel hugsanlegt, að það
séu aðeins fáeinir einstaklingar af
þessari sjónvarpskynslóð, sem láta
þessa nýþjóðrembulegu sjálfsmynd,
sem sett er fram af duglegu auglýs-
ingafólki, fara í taugarnar á sér.
Ef meirihluti þjóðarinnar er ánægð-
ur með þessar ákveðnu myndir og
syngur með á viðlaginu, þá er niður-
staðan einfaldlega sú að svona er
sjálfsmynd meirihluta þjóðarinnar
þessa stundina. Þjóðin stendur að
meirihluta í þeirri trú, að á Islandi
búi besta, fallegasta, gáfaðasta og
sterkasta fólkið, sem talar hrein-
ustu tunguna, borðar hreinustu
landbúnaðarafurðir heims og skolar
því niður með hreinasta vatninu í
hreinustu og fallegustu náttúru
veraldar. Vegna alls þessa hrein-
leika verður fólk hér allra þjóða
elst og hæfast til að gegna leiðtoga-
hlutverki meðal þjóðanna.
Það var einmitt þessi ímynd, sem
danski blaðamaðurinn skrifaði um
og kallaði glansmynd. Blaðamaður-
inn, sem reyndar heitir Hoy en ekki
Hoy, skrifaði ekki greinina nýlega
heldur í maí árið 1994, eftir að
hann hafði verið á íslandi til að
fylgjast með undirbúningi 50 ára
lýðveldishátíðarinnar. Grein Hoys
var eina greinin í erlendu blaði árið
1994, sem ekki skjallaði íslendinga
á 50 ára afmælinu. Hann gerði
góðlátlegt grín að sjálfsmynd ís-
lendinga. Irónían er aðalsmerki
hans og það eru ekki bara íslend-
ingar sem hafa orðið fyrir barðinu
á skrifum hans. Hoy leyfði sér að
setja spurningarmerki við sjálfs-
mynd íslensku þjóðarinnar. Hann
telur okkur m.a. vera þjóðfélag
skyldleikapots og þjóð sem ekki
þolir mikla gagnrýni. Greinilegt er
að Árni Björnsson hefur ekki lesið
grein danska blaðamannsins. En
furðulegra þykir mér, að Árni vill
frekar kenna pirringi þessa danska
blaðamanns um ungæðisleg skrif
Sigurjóns, en t.d. gagrýnum skrif-
um Poul Durrenbergers og Gísla
Pálssonar, sem Siguijón vitnar
einnig í i Lesbókargrein sinni. Grein
danska blaðamannsins á fullan rétt
á sér. Það var ekki talin vond latína
hér áður fyrr er menn sögðu að
glöggt væri gests augað.
Höfundur er fornleifafræðingur.
Kynning verður á hinum margverðla
ELANCYL vörum sem bjóða upp á
mismunandi meðferð við ŒLLULITE
Q dag: GRAFARVOGSAPÓTEK, kl. 13-18
Á morgun: VESTURBÆJARAPÓTEK,
kl. 13-18
Stöðvaður tímann næstu
með því að nota
CELLULAR DEFENSE
SHIELD
Kynning í dag,
föstuaag og laugardag
kl.14-18.
10% kynningar-
afsláttur og veglegur
kaupauki.
H Y G E A
,inyrl t vöru verdlu n
Kringlunni
Húð þin endurheimtir
æskuljómann á ný- þökk
sér stórkostlegri virkni.
CELLULAR DEFENSE
SHIELD - frá
laprairie
| SWITZERLAND
Þá skaltu líta til okkar því við eigum
margar gerðir af vönduðum "ekta"
leðursettum með gegnumlitaðri nauts-
húð. Þessi ítölsku sett eru öli sérlega
falleg og þægileg -eins og þau gerast best.
Teg: Meiissa
Leðurlitir - Vínrautt - Dökkfjólublátt -
Grænt - Svart - Gulbrúnt
3 -1 -1 kr. 310.290,- 3-2-1 kr. 335.170,-
Teg: Anma
Leðurlitir - Svart - Ljtc
Millibrúnt
3-1-lkr. 236.270,- 1
HUSGAGNAHÖLLIN
Bfldshöfði 20-112 Rvik - S:S10 8000
Verið velkomin til okkar.
Opnunartími fram á haust.
Má til Fi. 9-18 Fö. 9-19
5% staðgreiðsluafsláttur
eða góð greiðslukjör til
margra mánaða.