Morgunblaðið - 10.04.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 49
)
)
>
í
)
V
3
>
I
>
,
I
I
I
9
I
Elsku Þórhildur, hugur okkar er
hjá þér og megi Guð veita þér styrk
á þessum erfiðu stundum. Bóthildi,
Davíð, Vilborgu, Gísla og fjölskyld-
um vottum við samúð okkar.
Dóttir, dýrðar hendi
Drottins mín sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfirði
ætíð sæl lifðu nú.
(H. Pét.)
Eva, Kári, Sandra Dís
og Hilmar Þór.
Elsku Hildur Harpa. Við þökkum
þér fyrir að leyfa okkur að þekkja
þig þennan stutta tíma sem þú dvald-
ir hérna hjá okkur. Það var alltaf
svo gaman þegar þú komst með
mömmu þinni í heimsókn til okkar
og lékst þér við Jón Gísla. Þú varst
alitaf svo góð og blíð þó að stundum
slettist upp á vinskapinn hjá ykkur.
Við munum sakna þín voðalega
mikið en þó mest Jón Gísli sem trú-
ir því ekki að hann fái aldrei að sjá
þig aftur.
Bless, elsku besti sólargeislinn
hennar mömmu sinnar.
Elsku Þórhildur, ömmur, afar,
frænkur og frændur, megið þið fá
allan þann styrk sem til er.
Þínir vinir,
Anna María, Jón Ragnar,
Jón Gísli og Sóley Kristín.
Þó ævi þín hafí ekki verið löng,
elsku Hildur Harpa, þá gafst þú
okkur öllum ómetanlega gleði og
ánægju.
Ekki er hægt að segja með nokkr-
um orðum hve mikla gleði þú færðir
okkur, en minningarnar um þig
munum við geyma í hjörtum okkar
alla ævi. Ég minnist þess einna helst
þegar við vorum í sumarbústað með
ömmu og afa, og við vorum að tína
ber. Það leið ekki löng stund þangað
til þú varst öll orðin beijablá á munn-
inum og á litlu puttunum, en þó var
ekki komin nema botnfylli í fötuna.
Fuglarnir flögruðu um og sungu,
geislar sólarinnar teygðu sig til okk-
ar en þó fannst mér þú skína skær-
ar en sólin.
Minningin um þig mun alltaf vera
sólargeisli í lífi okkar.
Þín frænka,
Vilborg Lilja Alberts-
dóttir og systkini.
Kæra frænka og vinkona.
Við sögðum oft hvor um aðra að
við værum bestu vinkonur, okkur
kom vel saman. Ég man þegar við
tæmdum bókahillurnar hjá afa og
ömmu við litla hrifningu, eða þegar
þú varst í pössun hjá okkur og við
vöknuðum klukkan 5 um morguninn
til að leika okkur. Margar góðar
minningar koma upp í hugann, eins
og til dæmis ferðirnar í sumarbú-
staðinn hjá afa og ömmu. Þar lékum
við okkur krakkarnir í „búinu“ og
fórum í gönguferðir.
Elsku Hildur, ég mun ávallt minn-
ast þín.
Þín frænka,
Bryndís.
Elsku Hildur Harpa.
Ég sakna þín sárt þó svo að við
höfum ekki verið vinkonur lengi.
Við ætluðum að gera svo margt
saman í sumar. Leika okkur úti og
verða samferða í skólann sem við
áttum báðar að byija í í haust.
En nú skilja leiðir og ég veit að
þú ert núna komin í himnaríki, sem
við töluðum svo oft um. Þar ertu
nú hjá pabba þínum og pabba mínum
sem hugsa báðir vel um þig, gæta
þín og vernda.
Litla vina lífið kallar
leiðir okkar skilja i dag.
Góðar vættir vaki ailar
vemdi og blessi æ þinn hag.
Elsku Þórhildur og aðrir aðstand-
endur, ég og fjölskylda mín óskum
þess að góður Guð styrki ykkur i
þessari miklu sorg.
Þín vinkona,
MIIMIMIIMGAR
GUÐMUNDUR
STEFÁNSSON
+ Guðmundur
Stefánsson
fæddist í Hólkoti í
Reykjadal í Suður-
Þingeyjarsýslu 1.
apríl 1957. Hann
andaðist á Grensás-
deild 1. apríl síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá
Laugarneskirkju 7.
apríl.
Það var í kringum
1980 sem kunnings-
skapur okkar Gumma
hófst er hann fór að
venja komur sínar i Borgarfjörðinn
ýmist í fylgd eða til að heimsækja
sameiginlegan félaga okkar Jó-
hann Pjetur á Hvítárbakka. Seinna
áttu fleiri þræðir eftir að tengja
okkur betur saman. Um miðbik
níunda áratugarins deildum við
húsnæði saman skamma hríð í
skjóli áðurnefnds Jóhanns Pjeturs,
og nefndum við okkur gjarnan í
gamni umrenningana. Seinna urð-
um við vinnufélagar um tveggja
ára skeið og síðast en ekki síst
var nýársnótt 1987 til Jiess að
styrkja vináttuböndin. Ég hafði
rétt ætlað að kíkja inn til Gumma
og Hobbu til að óska þeim gleði-
legs árs en örlögin voru þar ráðin.
Út gekk ég í morgunsárið í fylgd
konunnar sém varð lífsförunautur
minn. Hún er vinkona Hobbu og
ein úr saumaklúbbnum.
Þegar sest er niður og skrifuð
minningargrein um látinn vin leita
margar góðar minningar á hugann
en það verður að velja og hafna.
Ein besta minningin er ferð á
æskustöðvar Gumma fyrir 3 árum.
Hann hafði tekið að sér ferð með
súrefnistank norður í land en ferð-
in hitti á helgi og Gummi bauð
mér með. Ég hafði í farteskinu
forláta rússneska ljósmyndavél
hannaða til að þola stórstyijaldir.
Að góðum móttökum í Hólkoti
þarf ekki að spyija. En helginni
eyddum við að stórum hluta við
veiðar í vatninu við bæinn og átum
við sijunginn nýveiddan í hvert
mál. Á sunnudeginum þræddi ég
36-mynda filmu í
myndavélina og ákvað
að mynda þá feðga við
ádráttinn. Ýmist var
staðið í stafni eða leg-
ið láréttur eða staðið
lóðréttur við að mynda
þá feðga því tilgang-
urinn var að búa til
góða myndasyrpu af
þeim við iðju sína á
vatninu. Það voru því
vonbrigði að uppgötva
að filman í rússneska
tækinu sem aldrei átti
að klikka hvað sem á
gengi, hafði aldrei
þræðst. Myndasyrpan var aldrei
annað en „plaff“ út í loftið en ég
hef aldrei þurft myndir til að rifja
þessa ferð upp, svo skýrt stendur
hún fyrir hugskotssjónum, svo
ánægjurík og skemmtileg sem hún
var.
Gummi var trúaður maður.
Hann trúði á líf eftir þetta líf og
að hjálp væri að fá að handan.
Þótt það hefði örugglega verið
honum sárt að vita að endalokin
á þessari jarðvist nálguðust og
þurfa að kveðja sína nánustu á
þeim aldri sem mönnum er annað
í huga en að vera burtkallaðir,
hlýtur það jafnframt að vera styrk-
ur að vita að lífinu sé ekki lokið
þótt jarðvistinni sé lokið. Hann
ræddi þessi mál oft við okkur
Siggu. Sjálfur taldi hann sig fá
styrk að handan á erfiðum stund-
um og hann hugsaði sterkt til
okkar þegar hann vissi að eitthvað
bjátaði á. í okkar síðasta samtali
vildi hann fremur tala um velferð
fjölskyldu minnar - þó einkum
Siggu en fyrir henni bar hann
mikla umhyggju - fremur en að
tala um sín eigin bágindi. Hann
bar nefnilega ríka umhyggju fyrir
vinum sínum. Hans verður sárt
saknað.
Kæra Hólmfríður, Kristbjörg
Hildur, Guðmundur Smári, Ólafur
Freyr, foreldrar, systkini og aðrir
aðstandendur, við Sigga sendum
ykkur okkar dýpstu samúðar-
kveðjur. Guð blessi ykkur.
Guðmundur Garðar.
GUÐFINNUR
KARLSSON
Ég sest hér niður til
að skrifa nokkrar línur
um góðan vin minn
sem er fallinn frá, hann
„Guffa“, eins og ég var
vanur að kalla hann.
Við kynntumst er við byijuðum í
Vélskóla íslands fyrir um tíu árum
og hjálpuðumst að í gegnum hluta
hans saman. Guðfinnur var vinur,
sem alltaf var hægt að treysta á,
hvort sem um var að ræða hjálp
við viðgerðir, skemmtanir eða bara
að fá sér kaffi og spjalla. Við við-
gerðir eða breytingar var alveg
sama hvort hann hafði séð hlutinn
áður eða ekki, það var strax ráðist
í að gera við hann, nær undantekn-
ingarlaust með góðum árangri. Ég
man eitt skipti, er við urðum varir
við óvenjulegt hljóð í gírkassa í bíl
sem ég átti. Þá var druslan dregin
suður í skúr til Kalla og Haddíar,
og við réðumst í það að rífa hann
í sundur. Þegar kassinn var kominn
í parta á borðið sáum við ekkert
athugavert við hann, í þann mund
kom Kalli niður og
spurði okkur hvort það
hefði ekki verið nein
olía á kassanum.
„Bingó“, þama höfðum
við verið í heilan dag
við viðgerð sem þurfti
ekki að taka nema 10
mínútur, þess ber að
geta að bíllinn fór aldr-
ei í fimmta gír aftur.
Það eru ófáar
skemmtilegar minn-
ingar sem ég á af við-
gerðum með Guffa, en
of langt að telja þær
allar upp hér.
Guðfmnur fékk mig til að byija
til sjós og rerum við saman á trill-
unni Hafdísi, sem hann átti með
föður sínum, eitt sumar. Það var
skemmtilegur tími þó að ekki væn
aflinn alltaf mikill, ekki kunni ég
mikið fyrir mér þegar við byijuðum
en honum tókst að troða ýmsu í
kollinn á mér, síðan reddaði hann
mér minu fyrsta vélstjóraplássi á
sjó. Guðfinnur var mjög sterkur og
bjartsýnn persónuleiki, kom það vel
í ljós í veikindum hans. Það var
alveg sama hvað gekk á, aldrei lét
hann bugast og stóð Lilja eins og
klettur við hlið hans allan tímann.
Guffi er vinur sem ég sakna sárt,
og samhryggist ég Lilju, Hafdísi
og öllum hinum er þótti vænt um
hann.
+ Guðfinnur
Karlsson fædd-
ist í Reykjavík 22.
nóvember 1969.
Hann lést á Land-
spítalanum 21.
febrúar síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Áskirkju
4. mars.
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag Hreyflis
Ágús Benediktsson og Bragi Ei-
ríksson hafa tekið forystuna í Butl-
er-tvímenningi félagsins. Þeir hafa
150 stig en röð næstu para er ann-
ars þessi:
AnnaG. Nielsen-GuðlaugurNielsen 105
Skafti Björnsson - Jón Sigtryggsson 101
Thorvald Imsland - Rúnar Guðmundsson 82
Kári Siguijónss. - Guðm. Magnússon 80
Góð þátttaka á Suðurnesjum
Aðaltvímenningur Bridsfélags
Suðurnesja hófst sl. mánudags-
kvöld í félagsheimilinu og mættu
22 pör. Spilaður er barometer, 6
spil milli para, og stendur keppnin
í fímm kvöld.
Sigurður Davíðsson og Þorvaldur
Finnsson byijuðu best og eru með
53 yfir meðalskor eða liðlega 13 í
setu. Gísli Torfason og Jóhannes
Sigurðsson eru með 48 og Sigurður
Albertsson og Jóhann Benediktsson
eru með 37.
Keppninni verður fram haldið nk.
mánudagskvöld.
Bridsfélag Hornafjarðar
Hinn árlegi Sýslutvímenningur
Bridsfélags Hornafjarðar var spil-
aður í Ekru laugardaginn fyrir
páska.
Spilaður var barómeter, 55 spil,
og varð lokaröð efstu spilara þessi:
Gunnar P. Halldórsson - Guðbrandur Jóhannsson49
Magnús Jónasson - Grétar Vilbergsson 40
Olafur Jónsson - Sigfinnur Gunnarsson 31
Ragnar L. Bjömsson - Halldór Tryggvason 24
Næsta mót hjá BH verður aðal-
tvímenningur og spilaður verður
barómeter í Golfskálanum nk. laug-
ardag kl. 10.
Félag eldri borgara í Rvík
Mánudaginn 24. mars spiluðu 22
pör Mitchell.
NS
Viggó Nordquist - Tómas Jóhannsson 236
Þorsteinn Erlingsson - Sæbjörg Jónasdóttir 233
Kristinn Gíslason - Margrét J akobsdóttir 229
AV
Sigurleifur Guðjónsson - Oliver Kristófersson 280
Ingibjörg Stefánsdóttir - Þorsteinn Daviðsson 268
Eysteinn Einarsson - Sævar Magnússon 256
Meðalskor 216.
Fimmtudaginn 3. apríl spiluðu
24 pör Mitchell.
NS
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 272
Eggert Einarsson - Karl Adólfsson 246
Þórarinn Ámason - Bergur Þorvaldsson 241
Guðjón Friðlaugsson - Bergsveinn Breiðprð 226
AV
Ólafur Ingvarsson - Eysteinn Einarsson 265
Jón J. Siguijónsson - Davíð Guðmundsson 256
Fróði B. Pálsson - Haukur Guðmundsson 233
Þorsteinn Erlingsson - Helgi Jóhannesson 233
Meðalskor 216.
Bridsfélag Kópavogs
Bræðurnir Jón Páll og Sigurður
tóku afgerandi forystu fyrsta kvöld-
ið af fjórum í Catalínu-tvímenn-
ingnum en hann byijaði fímmtu-
daginn 3. apríl.
Spilaður er Butler með þátttöku
22 para sex spil á milli para. Staðan:
Jón Páll Sigurjónsson - Sigurður Siguijónsson 122
Elín Jóhannsdóttir - Hertha Þorsteinsdóttir 48
Þorsteinn Berg - Valdimar Sveinsson 36
ÞórðurBjömsson-Þrösturlngimarsson 33
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Kópavogi
Spilaður var Mitchell-tvímenn-
ingur þriðjudaginn 1. apríl. 32 pör
mættu, úrslit:
NS
Rafn Kristjánsson - Þorsteinn Kristjánsson 480
Þórarinn Amason - Þorleifur Þórarinsson 443
Helga Helgad. - Júlíus Ingibergsson 422
HannesAlfonsson-EinarElíasson 392
AV
Þórhildur Magnúsdóttir - Sigurður Pálsson 438
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 432
Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 392
JónAndrésson-EmstBackmann 386
Meðalskor 364.
Spilaður var Mitchell-tvímenn-
ingur föstudaginn 4. apríl. 30 pör
mættu, úrslit:
NS
Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson 456
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 443
Helga Helgadóttir - Ámi Jónasson 392
Eysteinn Einarsson - Láras Hermannsson 388
AV
ÞórarinnÁmason-ÞorleifúrÞórarinsson 418
Gunnjiórann Erlingsd. - Þorsteinn Erlingsson 405
Þórhallur Ámason - Sigurleifur Guðjónsson 402
JónAndrésson-EmstBackmann 402
Meðalskor 364.
Firmakeppni Bridsfélags
Breiðfirðinga
Nú er lokið þremur kvöldum af
fjórum í fírmakeppni félagsins. Fyr-
ir hvert kvöld er dregið um fyrir-
tæki fyrir hveija sveit því fyrirtæk-
in eru fleiri en sveitirnar. Staða
efstu sveita er nú þannig:
Rúnar Einarsson - Vaka 1850
Guðrún Óskarsdóttir - Albert og Þór HQ. 1745
Páll Þór Bergsson - Bílaréttingar Sævars 1739
Sigríður Pálsdóttir - Armur, réttingar og málun
María Ásmundsdóttir - Bílasalan Borg 1667
Nicolai Þorsteinsson - Bílamálun og réttingar
Auðuns 1626
Eftirtaldar sveitir skoruðu mest
á þriðja spilakvöldinu (meðalskor
543)
Vaka 623
AlbertogÞórHfj. 615
H. Guðmundsson plastviðgerðir 570
Bílaréttingar Sævars 562
Ryðvörn Þórðar 555
Bridsfélag Akraness
Hin árlega bæjakeppni milli Akra-
ness og Hafnarfjarðar var spiluð á
Akranesi 5. apríl sl. Þessi keppni
er árleg og keppt til skiptis á Akra-
nesi eða í Hafnarfirði og oftat á 6
borðum, fyrst var spilað fyrir um
það bil 40-50 árum. Bridsfélag
Hafnaríjarðar hafði unnið sl. þijú
ár, en nú var komið að sigri Akur-
nesinga sem unnu með samtals 92
stigum á móti 85 stigum gestanna,
svo jafnara mátti það vart vera.
Akurnesingar vilja þakka Brids-
félagi Hafnarfjarðar fyrir spila-
mennskuna og vona að þessi þáttur
í samskiptum milli þeirra megi
halda áfram á komandi árum.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Nú er lokið 5 kvölda barómeter-
keppni sem 38 pör tóku þátt í. Sig-
urvegarar urðu:
Halldýr Svanbergss. - Kristinn Kristinss. 418
Dúa Ólafsdóttir — Þórir Leifsson 407
Geirlaug Mapúsdóttir - Torfi Axelsson 345
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgerisson 282
Baldur Bjartmarss. - Halldór Þorvaldss. 264
Besta skor 7. apríl sl.
Una Árnadóttir - Kristján Jónsson 138
Friðg. Friðgeirsd. - Friðg. Benediktsd. 93
Leifur Jóhannesson - Ragnar Bjömsson 91
Friðjón Margeirss. - Valdimar Sveinss. 90
Mánudaginn 14. apríl nk. verður
spilaður eins kvölds tvímenningur
Mitchell, forgefin spil. Verðlaun
fyrir bestu skor í N/S og A/V.
Upplýsingar og skráning hjá BSÍ
í síma 587 9360, þá er hægt að
mæta tímanlega fyrir kl. 19.30 á
spilastað í Þönglabakka 1 og skrá
sig þar.
t
Elskuleg unnusta mín, dóttir okkar og systir,
ARNA RÚN HARALDSDÓTTIR,
Hléskógum 3,
Reykjavík,
lést af slysförum 8. aprtl.
Sigurður Oddur Einarsson,
Sigurveig Úlfarsdóttir, Haraldur Á. Haraldsson,
Etfa Huld Haraldsdóttir,
Úlfar Gauti Haraldsson.
j
Sirrý Björt.
Sigurður Jónsson.