Morgunblaðið - 10.04.1997, Qupperneq 65
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 65
MYWDBÖMD/KVIKMYMPIR/ÚTVARP-SJÓMVARP
„The Saint“
gekk vel en
Carrey gekk
enn betur
HÁÐFUGLINN Jim Carrey og
mynd hans „Liar Liar“ eru þaul-
setin á toppi listans yfir aðsókn-
armestu myndir í Bandaríkjun-
um en myndin er nú á toppnum
þriðju vikuna í röð með 1.299,3
milljónir króna í greiddan að-
gangseyri og alls 7.149,7 miHjón-
ir króna eða 100,7 miHjónir
bandaríkjadala frá frumsýningu.
Myndin hefur örugga forystu á
myndina i öðru sæti, „The Saint“
sem þó gekk mjög vel en alls nam
innkoma á hana 1.157,3 miiyón-
um króna. Myndin fjallar um at-
vinnuþjóf sem gerist einkaspæj-
ari, Simon Templar, sem leikinn
er af Val Kilmer. „The Devil’s
Own“ þokaðist niður í þriðja
sætið, var í öðru sæti síðast.
Leikstjóri „The Saint“, Phillip
Noyce, þakkar velgengnimynd-
arinnar einkum þrennu. Ákvörð-
un Paromount um að fresta
frumsýningunni þar til „Star
Wars“-æðið hefði hjaðnað, góð-
um „trailer" og því kynningar-
starfi sem aðalleikari myndar-
innar, Val Kilmer, innti af hendi.
„Hann hefur ferðast um landið
síðustu þrjár vikurnar og unnið
hug og hjarta almennings," sagði
Noyce.
Áðrar nýjar myndir á listanum
eru til dæmis rómantísk gaman-
mynd Bette Midlers og Dennis
Farinas, „That Old Feeling", sem
lenti í fjórða sæti og „Double
Team“, með Jean-Claude Van
Damme og Dennis Rodman í að-
alhlutverkum, sem fór í fimmta
sæti.
Myndin í tíunda sæti, „Invent-
ing The Abbots", með Liv Tyler
og Billy Crudup í aðalhlutverk-
um olli vonbrigðum en aðeins
nam greiddur aðgangseyrir á
hana 163,3 milljónum króna.
Audrey Hep-
burn eflir
ástarelda
i
i
l
<
i
i
MICHAEL Lembeck er
kannski ekki nafn sem
margir kannast við. Hann
hlaut Emmy-verðlaun á síð-
asta ári fyrir leikstjórn á
þætti um Vinina („Friends"),
og hefur þess vegna fengið
tækifæri til þess að leikstýra
rómantískri gamanmynd
sem ber titilinn, „Why Can’t
I Be Audrey Hepbum?“.
Myndin er um konu sem
er eldheitur aðdáandi Aud-
rey Hepbum. Hún telur sig
hafa hitt þann eina rétta.
Þegar hann mætir ekki í
brúðkaupið hefur hún ástar-
samband við svaramanninn
en hann er líka mikill aðdá-
andi Audrey Hepburn.
i
i
Ástkær
kvikmynduð
THANDIE Newton kemur
til með að leika á móti Ophru
Winfrey í kvikmynd byggðri
á skáldsögu Toni Morrison,
Ástkær („Beloved"). Það er
Jonathan Demme sem ætlar
að leikstýra myndinni. New-
ton hefur áður leikið í bún-
ingamyndum sviðsettum í
fortíðinni. Hún lék á móti
Nick Nolte í Merchant-Ivory
búningamyndinni „Jefferson
in Paris“.
NÝJUM VORUM
LEWS
555
BOOT
CUT
R. 6.590
LEVI'S
ORANGE
TAP
3.990
Kringlunni, sími 533 1718
JIM Carrey hættir að (júga í „Liar Liar“ og er sína þriðju viku
á toppnum á lista aðsóknarmestu mynda í Bandaríkjunum.
BI0AÐS0KN
í Bandaríkjunum
BI0AÐI
Bandarí
BI0AÐS0KN
í Bandaríkjunum
AÐSÓKN
aríkjunum
Titill Síöasta vika Alls
1 . (1.) LiarLiar 1.299,3 m.kr. 18,3 m. $ 100,7 m. $
2. (-) The Saint 1.157,3 m.kr. 16,3 m. $ 16,3 m.$
3.(2.) The Ðewil's Own 497,0 m.kr. 7,0 m.$ 29,6 m. $
4. (-) That Old Feeling 362,1 m.kr. 5,1 m.$ 5,1 m.$
5. (-) Double Team 355,0 m.kr. 5,0 m. $ 5,0 m. $
6. (3.) Selena 248,5 m.kr. 3,5 m.$ 27,7 m.$
7.(5.) Jungle 2 Jungle 227,2 m.kr. 3,2 m. $ 48,0 m. $
8.(6.) The 6th Man 205,9 m.kr. 2,9 m. $ 8,9 m.$
9. (4.) The Return of the Jedl 198,8 m.kr. 2,8 m. $ 303,4 m.$
10. (-) Inventing the Abbots 163,3 mkr. 2,3 m. $ 2,3 m. $
1