Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 1
88 SIÐUR B/C/D/E
91.TBL. 85.ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sérsveitir ná bústað japanska sendiherrans í Lima úr klóm Tupac Amaru-liða
Allir gíslar utan
einn bjargast í
skyndiáhlaupi
Lima. Reuter.
REYKUR liðast upp úr bústað japanska sendiherrans í Líma,
skömmu eftir að hermenn réðust til inngöngu þangað.
SÉRSVEITIR perúska hersins réð-
ust inn í bústað japanska sendiherr-
ans í Lima í gærkvöldi og skýrði
perúsk útvarpsstöð frá því að allir
72 gíslar skæruliða Tupac Amaru
samtakanna (MRTA) utan einn
hefðu bjargast. Alberto Fujimori,
forseti Perú, staðfesti að einn gísl,
tveir hermenn og 14 skæruliðar
hefðu verið felldir í áköfum en
snörpum skotbardaga. Þeir höfðu
haft bygginguna á valdi sínu frá
því 17. desember eða í 126 daga.
Gíslarnir grétu sumir af gleði er
þeir gengu frá byggingunni í fylgd
her- og lögreglumanna og að
áhlaupinu loknu söng Fujimori þjóð-
söng landsins með hermönnum og
gíslum á sendiráðslóðinni. Talsmað-
ur MRTA-samtakanna í Þýskalandi
sagði að áhlaupsins yrði hefnt með
árásum á efnahags- og hemaðar-
lega mikilvæg skotmörk í Perú.
Sérsveitirnar réðust til inngöngu
í sendiherrabústaðinn úr einbýlis-
húsum umhverfis hann klukkan
3.20 síðdegis, klukkan 20.20 í
gærkvöldi að íslenskum tíma. Um
150 her- og lögreglumenn tóku
þátt í áhlaupinu, en talið var að í
hópi undanfara hefðu verið um 15
grímuklæddir sérsveitarmenn.
Heyrðust nokkrar vélbyssuskot-
hrinur og sprengingar og í kjölfar-
ið stigu reykjarbólstrar upp frá
byggingunni.
Tók fjörutíu mínútur
Um 40 mínútum eftir að fyrstu
sérsveitarmennimir bmtust inn í
bygginguna drógu þeir niður fána
Tupac Amaru sem blaktað hafði á
fánastöng hússins frá því fyrir jól.
Gengu þeir síðan sigri hrósandi út
á þak byggingarinnar, sungu þjóð-
sönginn og gáfu gieði sína til kynna
með því að steyta ákaft hnefa.
Flestir gíslanna sluppu ómeiddir
en talið var að a.m.k. fimm gísl-
anna hefðu særst. Vom fjórir
þeirra bornir út úr húsinu á sjúkra-
bömm. Einn gíslanna beið bana,
perúskur hæstaréttardómari, og
einn sérsveitarmaður. Gíslunum
var ekið til nærliggjandi sjúkra-
húsa og þangað hröðuðu sér skelf-
ingu lostin skyldmenni þeirra.
Áhlaupið á sendiherrabústaðinn
átti sér stað eftir margar árangurs-
lausar tilraunir til að leysa gísla-
deiluna með samningum. Skæm-
liðar MRTA, sem njóta stuðnings
kúbanskra yfírvalda, kröfðust þess
að mörgum hundruðum félaga
þeirra, sem sitja á bak við lás og
slá, yrði sleppt en perúsk stjórn-
völd voru aldrei til viðræðu um
það. Talið er að um 30.000 manns
hafi beðið bana í Perú frá því 1980
í ofbeldisaðgerðum sem Tupac
Amaru og skæruliðasamtökin
Skínandi stígur hafa staðið fyrir,
en bæði samtökin hafa risið upp
gegn stjórnvöldum í landinu.
Fujimori á vettvang
Fujimori forseti Perú kom mjög
fljótlega á vettvang og var fagnað
af her- og lögreglumönnum er
hann gekk inn í bústaðinn klæddur
skotheldu vesti. Þaðan hélt hann
til hersjúkrahúss sem flestir gísl-
anna voru fluttir til. Sveipaður
fána faðmaði hann bæði gísla og
vegfarendur að sér. Meðal gísl-
anna, sem öðluðust frelsi á ný í
gær, voru Francisco Tudela utan-
ríkisráðherra Perú, sem borinn var
á sjúkrabörum frá byggingunni og
Morihisa Aoki sendiherra Japans.
Voru 24 Japanir, 12 stjórnarerin-
drekar og 12 kaupsýslumenn, í
hópi gíslanna og sluppu þeir allir,
flestir ómeiddir.
Reuter
ÞRÍR hinna 72 gísla, sem höfðu verið í haldi skæruliða í jap-
anska sendiherrabústaðnum í 126 daga, sjást hér skríða eftir
þaki hússins út í frelsið, á meðan sérsveitarhermenn skiptast á
skotum við skæruliða Tupac Amaru-hreyfingarinnar, en þeir féllu
allir í skyndiáhlaupinu, fjórtán að tölu.
Þakkaði
Fujimori
Tókýó, Washington, Lima. Reuter.
RYUTARO Hashimoto, forsætis-
ráðherra Japans, kvaðst í gær
ekki hafa vitað af fyrirætlunum
perúska hersins um að ráðast til
atlögu við skæruliða Tupac Am-
aru-hreyfingarinnar í japanska
sendiherrabústaðnum í Lima en
færði perúsku stjórninni þakkir
fyrir að frelsa gíslana. Talsmaður
Bandaríkjastjórnar sagði, að
skæruliðarnir hefðu borið fulla
ábyrgð á árásinni.
„Því miður var okkur ekki gert
viðvart um árásina á sendiherrabú-
staðinn og ég harma það. Við erum
hins vegar þakklátir perúskum
yfirvöldum fyrir að grípa tækifær-
ið,“ sagði Hashimoto á frétta-
mannafundi.
Skæruliðar ábyrgir
„Eitt er alveg ljóst: Skæruliðam-
ir bára fulla ábyrgð á árásinni,"
sagði Nicholas Bums, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Kvað hann Madeleine Albright, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
mundu senda Francisco Tudela,
starfsbróður sínum perúskum og
einum gíslanna, heillaóskaskeyti
vegna björgunarinnar.
Isaac Velazco, talsmaður skæru-
liða, sagði í Þýskalandi í gær, að
Fujimori, forseti Perú, hefði gerst
sekur um „glæpsamlegt athæfi“.
Kvað hann skæruliða hafa vitað,
að brugðið gæti til beggja vona
en samt hefði árásin komið þeim
í opna skjöldu.
Clinton herðir á refsiað-
Ihaldsflokkurinn
gerðum gegn Burmastjórn
Washington, Bangkok. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN ákvað í
farinn að sækja á?
London. Reuter.
gær að beita herforingjastjórnina í
Burma nýjum refsiaðgerðum vegna
mannréttindabrota í landinu. Var
því vel fagnað meðal útlægra,
burmískra andófsmanna en einn af
leiðtogum herforingjastjórnarinnar
reyndi að gera sem minnst úr afleið-
ingum refsiaðgerðanna.
„Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur ákveðið að banna nýjar
fjárfestingar Bandaríkjamanna í
Burrna," sagði Madeleine Albright,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á
fréttamannafundi í gær. Sagði hún,
að ástæðan væri sú, að mannrétt-
indabrot í landinu og kúgun herfor-
ingjastjórnarinnar hefði aukist frá
því Cohen-Feinstein-lögin voru
samþykkt 30. september sl. Með
þeim var Bandaríkjaforseta veitt
heimild til að herða á refsiaðgerðun-
um teldi hann það nauðsynlegt.
Herforingjastjórnin í Burma tók
völdin í sínar hendur 1988 og síðan
hefur Bandaríkjastjórn hætt beinni
aðstoð við ríkið og komið í veg fyr-
ir aðra alþjóðlega aðstoð.
Útlægir Burmabúar, sem eru
flestir í Tælandi, fögnuðu þessum
tíðindum í gær en ekki náðist í
andófskonuna Aung San Suu Kyi,
sem fékk fyrir nokkram árum frið-
arverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína
gegn herforingjunum. Var hún í sex
ár í stofufangelsi af þeim sökum.
SVO mjög hefur dregið saman
með Verkamannaflokknum og
íhaldsflokknum í Bretlandi, að
nú munar ekki nema fimm pró-
sentustigum á fylgi þeirra.
Kemur þetta fram í skoðana-
könnun, sem birt var í gær, en
önnur gefur alveg öfuga niður-
stöðu.
Samkvæmt ICM-könnun, sem
dagblaðið The Guardian birti,
fengi Verkamannaflokkurinn
42% atkvæða og íhaldsflokkurinn
37%. Fijálslyndir demókratar
fengju 14%. ICM-kannanir blaðs-
ins sýna ávallt minni mun á fylgi
stóru flokkanna en aðrar kannan-
ir.
Þessi könnun stingur mjög í
stúf við Gallup-könnun, sem The
Daily Telegraph birti í gær, en
hún sýnir, að aftur hefur dregið
í sundur með flokkunum og er
munurinn nú 21 prósentustig.