Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 4

Morgunblaðið - 23.04.1997, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra á ráðstefnu um þróun byggðar á Islandi Afkomimiögnleikar ekki einráðir um búsetu Morgunblaðið/Kristján DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálnisson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, stinga saman nefjum við upphaf byggðaráðstefnunnar í gær. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að tekju- og afkomumöguleik- ar fólks séu síður en svo einráðir um óskir og ákvarðanir fólks um búsetu og hyggilegt sé að reyna að öðlast betri skilning á því hvað ráði óskum fólks um búsetu. Á fyrra degi ráðstefnu um þróun byggðar, sem hófst á Akureyri í gær, var mikið fjallað um ástæður fólksflóttans frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. „Efling byggðar í landinu er ekki einkamál dreifbýlisins, það er miklu fremur sameiginlegt viðfangsefni allrar þjóðarinnar. Á þessum tíma- mótum er því mikilvægt að við horf- um til framtíðar, til sátta en ekki sundurlyndis, og reynum að brjóta til mergjar hvað sameinar og eflir okkur sem þjóð,“ sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, við setningu ráðstefnu um þróun byggðar á íslandi, Þjóðarsátt um framtíðarsýn, sem haldin er á Akur- eyri. Níundihver höfuðborgarbúi aðfluttur í erindi Sigurðar Guðmundsson- ar, forstöðumanns þróunarsviðs Byggðastofnunar, kom fram að frá 1981 hafi verið stöðugur straumur fólks af landsbyggðinni til höfuð- borgarsvæðisins. Mestur varð hann 1.745 manns og er orðinn samtals yfir 17.500 manns á þessu tímabili. Tæplega helmingur af samanlagðri fjölgun höfuðborgarsvæðisins frá 1981 er vegna aðflutnings utan af landi sem þýðir að níundi hver íbúi svæðisins flutti þangað af lands- byggðinni á síðustu fimmtán árum. „Byggðastefna snerist um langt árabil nánast eingöngu um aðstoð við fyrirtæki og þótt hagsmunir ein- staklinganna og fyrirtækjanna hafi oft farið saman er ekki hægt að leggja þessa hagsmuni að jöfnu, enda hefur komið á daginn að tekju- og afkomumöguleikar eru síður en svo einráðir um óskir og ákvarðanir fólks um búsetu," sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra í ávarpi sínu. Nefndi hann þróunina á Vestfjörð- um, miðhluta Austfjarða og fleiri svæðum sem dæmi um þetta. „Stað- reyndir af þessu tagi hljóta að hvetja til þess að leitað sé fleiri skýringa og haldbetri skýringa en við höfum haft... Það má segja að það hafí verið tímabært að framkvæma könnun þar sem leitað var til ein- staklinganna sjálfra um skýringar, en fram til þessa hefur tilhneigingin verið sú að skýra búsetuþróunina og breytingar á henni nánast ein- göngu út frá hagrænum forsend- um,“ sagði forsætisráðherra. Ánægja með búsetuskilyrði Með þessum síðustu orðum er hann að vísa til könnunar á búsetu- skilyrðum í landinu sem Félagsvís- indastofnun Háskóla íslands er að gera fyrir Byggðastofnun. Ur- vinnsla könnunarinnar er á frum- stigi en Stefán Ólafsson prófessor gerði grein fyrir nokkrum atriðum úr henni á ráðstefnunni í gær. Það vakti athygli Stefáns hvað mikil ánægja er með marga þætti búsetu- skilyrða meðal íbúa á landsbyggð- inni. Eftir stæði spurningin um það af hveiju fólk flytti þá á brott í umtalsverðum mæli. Forsætisráðherra rifjaði upp stefnumótun í byggðamálum til fjögurra ára, meðal annars um skil- greiningu vaxtarsvæða. Sagðist hann ekki sjá aðra betri kosti en að fara að þeirri forskrift sem þar var dregin upp, það er að miða upp- byggingarstarf hins opinbera á landsbyggðinni við þau svæði sem eiga sér forsendur til að vaxa og svara auknum kröfum fólks um fjöl- breyttari atvinnutækifæri og nú- tímalega og fjölbreytta þjónustu. „Með þessu er ekki verið að kveða upp dóm yfir öðrum svæðum, það er einfaldlega verið að segja að þjón- ustuna eigi að byggja upp þar sem flestir hafa aðgang að henni og þar sem hagkvæmast er að veita hana,“ sagði Davíð. Kippur í bílasölu TALSVERÐUR kippur er í sölu á fólksbílum. Fyrstu þijár vikur mánaðarins seldust 679 bílar en allan aprílmánuð í fyrra seldust 669 bílar. Enn getur bæst við söluna í apríl því átta virkir dagar voru eftir af mán- uðinum þegar þessar tölur voru gefnar út. Frá 1. janúar til 18. apríl 1997 höfðu selst 2.611 bílar en fyrstu fjóra mánuðina í fyrra nam salan 2.466 bílum. Sölu- aukningin er 5,88%. Söluhæsta gerðin það sem af er aprílmánuði er VW, 122 bílar, í öðru sæti er Mitsubishi, 84 bílar, Toyota er í þriðja sæti með 80 bíla, þá kemur Subaru, 66 bílar og Nissan, 58 bílar. Nauðgun kærð í Eyjum STÚLKA á sextánda ári hefur lagt fram hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynningu um nauðgun, sem á að hafa átt sér stað um miðnætti á sunnudag. Málið er í rannsókn með tilliti til barnaverndarsjón- armiða. Stúlkan kom ásamt móður sinni skömmu eftir hina meintu nauðgun til lögreglu og greindi frá því að hún hefði verið á göngu á gangstíg á milli íþróttamiðstöðvarinnar í bæn- um og íbúðarhverfis, þegar maður réðst á hana. Gat ekki lýst manninum Hún sagði að maðurinn hefði verið í felum í hrauninu þarna skammt frá og hann komið fram vilja sínum við göngustíg- inn. Stígurinn er upplýstur að hluta en þegar þetta gerðist var bilað ljós, þannig að skugg- sýnt var, og gat hún gefið afar takmarkaða lýsingu á hinum meinta nauðgara, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Lýst eftir hlutabréfum Þjóðviljans í Eimskipi Þrotabúið opnað að nýju vegna hlutabréfa Stuttur samningafundur í deilu RSI og Pósts og síma hf. Miklar líkur tald- ar á verkfalli STUTTUR sáttafundur var haldinn í gær í kjaradeilu Rafiðnaðarsam- bandsins og Pósts og síma hf. hjá ríkissáttasemjara. Annar fundur hefur verið boðaður á fimmtudag en boðað verkfall rafíðnaðarmanna hjá Pósti og síma hefst á miðnætti næstkomandi föstudag hafí ekki samist fyrir þann tíma. Nokkrir tugir starfsmanna hjá Pósti og síma komu að húsnæði sáttasemjara í gærmorgun og þeyttu bílflautur til að sýna óánægju sína með hversu hægt gengur í samningaviðræðum. Tekist á um mat á réttindum Helsta deiluatriðið í kjaraviðræð- unum snýst um mat á félagslegum réttindum sem 150 símsmiðir afsala sér við það að fara af kjarasamn- ingi BSRB yfír á samning RSÍ en þeir ákváðu fyrir nokkru að ganga úr Félagi íslenskra símamanna. Símsmíði varð á síðasta ári löggilt iðngrein og stofnuðu símsmiðir þá Félag símsmiða og gekk félagið í RSÍ. Símsmiðir samþykktu fyrir nokkru boðun verkfalls með öllum greiddum atkvæðum og rafeinda- virkjar og rafvirkjar hjá Pósti og síma samþykktu einnig verkfall frá sama tíma. Guðmundur Gunnarsson, for- maður RSÍ, sagði að eins og staðan væri í dag væri mjög líklegt áð verkfall hefjist á föstudagskvöldið. Hann sagði að vinnuveitendur hefðu lagt fram tilboð sl. fímmtudag og rafíðnaðarmenn hefðu svarað því daginn eftir. VSÍ hafí svo ætlað að svara hugmyndum RSÍ á fundinum í gær, „en svörin sem við fengum voru þau að þeir væru ekki tilbúnir að ræða við okkur á þessum nótum. Ákvað sáttasemjari þá að við mynd- um hittast aftur á fimmtudag," sagði Guðmundur. Guðmundur telur að reynt verði til þrautar að ná samningum um helgina. Hann segir að verkföll hjá Pósti og síma gætu haft mjög víð- tæk áhrif m.a. á rekstur fjarskipta- kerfa og ef bilanir verða. GESTUR Jónsson lögmaður hefur fyrir hönd þrotabús Þjóðviljans til- kynnt dómstjóra í Reykjavík að hann muni höfða mál fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur til ógildingar á hlutabréfum sem þrotabúið á í Eim- skipafélagi íslands hf. Bréfin eru glötuð og hafa ekki fundist þrátt fyrir mikla leit, og ógildingu þarf til að unnt sé að fá ný hlutabréf útgefin í stað hinna gömlu. Dag- blaðið Þjóðviljinn var gefíð út af Sósíalistaflokknum og síðar Al- þýðubandalaginu og útgáfufélögum á þeirra vegum. Blaðið varð gjald- þrota. Hveijum þeim sem kann að hafa hlutabréfin undir höndum eða telur sig hafa rétt yfir þeim, er því stefnt til að mæta á dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur í lok næsta mánaðar, til að sanna rétt sinn til hlutabréf- anna. Að öðrum kosti verða bréfin ógild. Enginn vissi um bréfin Um þrettán bréf er að ræða og voru fyrstu bréfin keypt í árslok 1982, en seinustu bréfin eru jöfnun- arhlutabréf, útgefin eftir að rekstri Þjóðviljans var hætt. Áætlað sölu- andvirði þeirra er á milli 200 og 300 þúsund krónur miðað við skráð gengi, að sögn Harðar Harðarsonar lögmanns sem fer með málið fyrir Gest. „Á sínum tíma kallaði ég fyrir forsvarsmann Þjóðviljans sem var trúlega í rekstrinum undir það síð- asta, en þá komu ekki fram neinar upplýsingar um eignir. Nokkru síð- ar bárust mér gögn frá Eimskipafé- laginu um að þessi bréf væru fyrir hendi, bæði ávísun fyrir arðgreiðslu og tilkynning um útgáfu jöfnunar- hlutabréfs, og þá hóf ég að grafast fyrir um hvort einhver þeirra manna sem komið höfðu að rekstri Þjóðvilj- ans kannaðist við þessi bréf. Enginn þeirra treysti sér hins vegar til að benda á hvar þau væru niðurkomin. Að öllum líkindum eru þessi bréf í einhveijum skjalabunkum, hvar svo sem þeir kunna að vera niður- komnir. Þess vegna er þessi leið farin, enda einfaldasta niðurstað- an,“ segir Hörður. „Þessi leið er hins vegar fyrst og fremst forms- atriði og ég yrði mjög hissa ef bréf- in kæmu fram.“ Skipt á milli kröfuhafa Þjóðviljinn var tekinn til gjald- þrotaskipta árið 1995, nokkru eftir að rekstri blaðsins var hætt. Lýstar kröfur voru á milli 20 og 30 milljón- ir króna, en engar eignir voru til staðar. Búið var að loka búinu en með stefnubirtingu nú hefur það verið opnað að nýju, og verður fjár- munum sem fást fyrir sölu bréfanna skipt á milli helstu kröfuhafa. Eimskip var eitt þeirra fyrirtækja sem Þjóðviljinn beindi ósjaldan spjótum sínum að og kveðst Hörður telja eðlilegt að menn verði undr- andi á þessari eign útgáfufélags blaðsins í Eimskipafélagi íslands hf. Hann kunni hins vegar engar skýringar á þessari eign. „Það er mjög skiljanlegt að menn velti því fyrir sér, en svörin liggja sennilega helst hjá forsvarsmönn- um blaðsins á sínum tíma. Þeir hafa kannski talið þetta góða fjár- festingu, þó að þetta séu nú ekki stórar fjárhæðir," segir Hörður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.